Morgunblaðið - 28.08.1962, Page 23
Þriðjudagur 28. ágúst 1962
HORGVNBI. 4ÐIÐ
23
Fyrsta langferða-
bifreiðin út í Ögur
Merkur áfangi i samgöngumúlum
Djúpmanna
SUNNUDAGINN 12. ágúst sl.
lagði 16 manna ferðamannahóp-
ur úr ögurhreppi upp frá Súða-
vík í skemmtiferð suður um
Vestfirði að Ögri. UMF „Fram-
eókn“ í ögurhreppi stóð að þess-
ari ferð, sem var að því leyti
merkileg, að þetta var í fyrsta
sinn, sem langferðabíll kemst
alla leið út í Ögur. Ríkir mikil
ánægja í sveitinni yfir þeim á-
ÍÞRÓTTIR
Frahald af bls. 22
v.eri slík, að til fyrirmyndar
væri, og víst væri, að ef fleiri
af þeim ágsetu frjálsiþrótta-
mönnum sem við höium átt,
(hefðu sýnt slíka rækt, þá væri
um auðugri garð að gresja í
þessari grein nú, en raun ber
vitni.
Albert afhenti Gunnari síð
an bikarinn, og minntist þá
gamalla daga, er þeir æfðu
saman, Gunnar og hann, á
Melavellinum. Þá voru báðir
tfélitlir og eyddu frístundum
sínun- við æfingar — oft að-
eins tveir á vellinum.
Albert vék að fjölhæfni
Gunnars, sem hefur í senn ver
ið liðtækur spretfhlaupari,
stökkvari — hefur m.a. sigrað
í hástökki — og svo kastari.
Þá var Gunnar góður knatt
spyrnumaður fyrr á árum, en
lagði þá grein á hilluna. er
Ihann fór í alvöru að snúa sér
að köstum.
Þar brást hann ekki vonum
manna, eins og bezt kom fram
1946, er hann varð Evrópu-
meistari í kúluvarpi í Osló,
og f jórum árum síðar, er hann
varði þann titil í Brússel.
1955 var Gunnar í hópi 10
beztu k'úluvarpara í heimi, og
enn er hann beztur hér á landi
10 sinnum 'hefur hann orðið
ílandsmeistari í kúluvarpi,
6 sinnum í kringlukasti og tvis
var í sleggjukasti.
I»á sagði Albert að lokum
að enn væri ekki annað að sjá
en Gunnar ætti enn eftir að
bera margan sigur úr býtum
(því ekki er ellimörkum fyrir
að fara, og æfingar stundar
hann af þeirri elju. sem ein-
kennt hefur hann .
— Ibrottir
Framhald af bls. 22.
arleik sínum og umfram allt
hefur vörnin þétzt. Má aetla
að árangur góðrar þjálfunar i
sumar sé nú komin í ljós að
fullu.
Reykjavfkurliðið var hálf
elappt Og áhugalítið. Það breytt-
ist nokkuð á síðustu stund vegna
meiðsla. En mjög var áberandi
hve dettnir menn voru á hálum
vellinum.
SAMSÆTI
Eftir leikinn var boðið til hófs
I nýju byggingunni. Þar talaði
Magnús Guðjónsson bæjarstjóri.
Taldi hann byggingarnar stóran
áfanga i menningarmálum Akur-
eyrar og lét í ljós vonir um að
það yrði æsku Akureyrar og að-
komandi iþróttafólki til ánægju
Og örvunar.
Gísli Halldórsson form. ÍBR
talaði næstur. Óskaði hann Akur-
eyrarbæ til hamingju með mann-
virkin og þakkaði fyrir að Reyk-
víkingar skyldu eiga kost á því
eð leika á ÍOO ára afmæli Akur-
eyrar. Lét hann í ljós vonir um
áframhaldandi og aukin skipti á
Jþróttasviðinu milli höfuðborgar-
kuiar og Akureyrar.
Ájrmann Dalmannsaon talaði
•S lokum nokkur orð og lýsti
byggingum nánar fyrir gestum.
fanga, sem nú hefur náðst í
vegamálum og treysta menn því
nú fastlega að haldið verði á-
fram af fullum krafti að leggja
veginn inn með Skötufirði, þar
sem meir en helmingur hrepps-
búa býr og síðan áleiðis til ísa-
fj arðarkaupstaðar.
í Skötufirði eru 8 býli, sem
öll eru í byggð. Er það eini fjörð
urinn við ísafjarðardjúp, sem
svo vel er á vegi staddur. f>að er
því mikil nauðsyn að vegagerð-
inni verði hraðað sem mest, svo
að fólkið þurfi ekki að yfirgefa
jarðir sínar fyrir samgönguleysis
sakir.
Bílstjóri í þessari fyrstu ferð
langferðabifreiðar út í ögur, var
Sigurður ólafsson frá ísafirði,
hinn traustasti og bezti bílstjóri.
Unnið er nú að því að bera
ofan í Ögurveg. Ennfremur mun
í haust verða byggð brú á Ög-
urá. — Baldur.
Emil Björnsson
sjötugur í dag
EMIL BJÖRNSSON, fyrrutn
sýsluskrifari á Eskifirði og for-
stöðumaður tollendurskoðunar
ríkisins á sjötugsafmæli í dag.
Hann er kvæntur Laufeyju Jó-
hannesdóttur og eiga þau 4 upp
komin böm. Emil býr á Löngu-
hlíð 3 í Reykjavík, en dvelzt er-
lendis um þessar mundir. — ÁH.
- Vilhjálmur
Framhald af bls. 1.
hann var enn ugur maður þá
kannaði hann heimskauta-
héruðin, og jók þar stórkost-
lega á þekkingu okkar, bæði
um þessi héruð og hvernig
menn fá búið i svo hörðu
umhverfi. Síðustu áratugum
hins viðburðaríka lifs neytti
hann mikillar þekkingar
sinnar til að auðga mennta-
heiminn og hann skildi eftir
ævarandi minnisvarða, þar
sem er bókasafn hans um
heimskautafræði í Dartmouth
College".
☆
Framkvæmdc-stjóri Kon-
unglega brezka landfræðifélags-
ins, Laurence P. Kirwan, sem
sjálfur hefur ritað sögu heims-
skautakannana, komst svo að
orði í Lundúnum í gær, að hinn
íslenzk-bandaríski landkönnuður
Vilhjálmur Stefánsson hefði ver
ið einn djarfasti maður síns tíma.
-— Hann var ekki upp á það
kominn, sagði Kirwan í stuttu
samtali við fréttamann Mbl.,
— að bregða fyrir sig gömlum
aðferðum. Ilaiui treysti á að-
ferðir eskimóanna við að kom
ast áfram og framfleyta líf-
inu. Þeirra venjur tileinkaði
hann sér með því að umgang-
ast þá árum saman. Og á þeirri
reynslu sinni byggði hann sín
ar eigin nýju aðferðir.
Eg var persónulega kunnug
ur honum. Hann var jafnoki
norska heimsskautafarans
Nansens og Bandaríkjamanns
ins Peary — bæði að þvi er
snerti umfang afreka hans og
þá erfiðleika, sem hann þurfti
að sigrast á-
Hinna gagnmerku uppgötv-
ana hans í heimsskautahéruð
um Kanada mun ávallt verða
minnzt. Hann var fyrstur
manna til þess að færa sér í
nyt rannsóknarstöðvar á fljót
andi ísnum við atliuganir sin-
ar.
Hann var þegar á allt er lit
ið. merkilegur maður.
Smávegis „flugslys“ átti sér stað á sunnudag, er vélknúið
módel varð fyrir vélarbilun yfir höfðum áhorfenda. Stjórn-
andi þessa fjarstýrða módels beindi því út fyrir áhorfendahóp-
inn, en það var þá í of lítilli hæð, og snerti höfuð litlu stúlk-
unnar. Ekki gerðist þó annað, en að vængur módelsins tók
hárnælu stúlkunnar á brott með sér. Hér sést hún í hópi vina.
Minki
grandað í
sjúkrahúsi
AKRANESI, 27. ágiist. —
, Mikið uppnám varð í dag á
' læknabiðstofunni í Sjúkra-,
húsi Akraness. Einhverjir úr
starfsliði sjúkrahússins komu,
þjótandi inn á biðstofuna og
sögðu að minkur væri kominn
inn á sjúkrahúsvellina. 1
Bjarni Vilhjálmsson, hvatur
, maður og knár, nýkominn,
Íheim einn síns liðs á vélbátn-
um Snæfara, spratt upp, engu
líkara en ætti að fara að kasta'
nótinni. Með eldflaugarhraða
1 skautzt Bjami út um sjúkra-
húsdyrnar með kúst að vopnL
, Stökk hann rakleitt að minkn
um, sem slsynjaði hættuna og
flúði bak við trén. Bjarni
' reiddi kústinn, eitt högg, mink'
urinn steinlá, 50 sm langur.
1 Til bæjarstjórans með skottið,
þar sem 200 kr. 'fást fyrir það.
—, Oddur. 1
— Sildin
Framlhald af bls. 24
búnaðar. En mikill hugur virð-
ist í flestum síldveiðisjómönnum,
enda ekki ástæða til annars,
meðan horfir sem gerir.
Sl. laugardag hafði verið salt-
að í rúmlega 105 þús. tunnur
síldar hér á Siglufirði. Horfur
eru nú á viðbótarsölu til Sovét-
ríkjanna og hefur Síldarútvegs-
nefnd leyft áframhaldandi sölt-
un cutsíldar á eigin ábyrgð og
áhættu saltenda — Stefán.
Bráðkvaddur
UM hádegisibilið í gær fannst
fullorðinn maður látinn i Borgar
firðinum, við vegamóton á Þver
árhlíðarvegi og Borgarfjarðar
vegi. Þetta reyndist vera Þor-
varður Jónsson úr Reykjavík, en
hann hafði farið frá Hjarðar-
'holti um morguninn, og ætlar að
reyna að ná bíl ofan í Borgar-
nes z taka skip til Reykjavíkur.
Mjólkurbílsstjóri veitti athygli
manni, sem lá við veginn og var
læknir kvaddur á staðinn. Hefur
Þorvarður sennilega orðið bráð-
kvac.di r, þar sem hann var að
bíða eftir bíl. Hann var maður
ókvæntur.
Sofandi
undir bíl
ÞEGAR einn af leigubíl-
stjórum hjá BSR ætlaði að
leggja af stað í ferð frá stöð-
dags og snaraðist upp í bíl
inni kl. 1.30 aðfaranótt sunnu
sinn í portinu hjá stöðinni,
varð hann var við að bílhjól-
in lyftust yfir eitthvað, þeg-
ar hann ók af stað. Hafði
hann ekið ca. 1 m áfram.
En er hann kom út og leit
undir bílinn, sá hann hvar
maður lá undir honum, rétt
aftan við framhjólin. Hefur
hann þvælzt milli hjólanna,
en þau ekki farið yfir hann.
Maðurinn var fluttur í
Slysavarðstofuna, þar sem
hann svaf til kl. 5, en þá var
hann fluttur heim. Hafði
hann verið drukkinn og lagt
sig til svefns á þessum hættu-
lega stað. En hann slapp sem
sagt með nokkrar skrámur úr
I bílslysinu.
VANTAR
hættumerki
ÞAö HEFUR vakið athygli
margra, sem farið hafa um'
, Vestfirði á þessu sumri, að
hættumerki á vegunum eru
þar mjög af skomum skammti.
Ekki sprettur þetta þó af því
að liinir vestfirzku vegir séu
i hættuminni en vegir í öðrum
landshlutum. Enda þótt marg
, ir þessara vega séu mjög mynd
arlega lagðir við erfiðar að-,
stæðui blasa þar þó víða við
1 hættui, sem nauðsynlegt er að,
ókunnugir séu varaði rvið með
I venjulegum hættumerkjum.
En það hefur verið háskalega<
vanrækt. Hefur sumsstaðar leg
’ ið við óhöppum og stóif-ysum,
af þessum sökum. Krappar
' beygjur, snarbrattar hliðar og
„blindar“ hæðir eru ómerktar.
Við svo búið má ekki standa.
Vegagerðin verður að bæta úr
, þessu ófremdarástandi eins
' fljótt og frekast verður við
komið. 1 I
Rækjuleyfi veitt
og af turkölluð
ÍSAFIRÐI, 27. ágúst. — 15. ágúst
sl. veitti atvinnumálaráðuneytið
einum bát leyfi til rækjuveiða
í ísafjarðardjúpi og síðan fengu
tveir aðrir bátar leyfi. Voru leyf-
in bundin hvert við sína verk-
smiðju. Verksmiðjur Björgvins
Bjarnasonar á Langeyri, Óla
Ólsen og Guðmundar og Jóhanns
fengu leyfi fyrir einum bát hver.
Niðursuðuverksmiðjan hf hafði
enn ekki fengið neitt leyfi. Hófu
bátarnir allir veiðar fyrir viku
og var aflinn 800—1000 kg í
veiðiferð.
í dag ákvað atvinnumálaráðu-
neytið skv. ábendingu Fiskideild
ar Atvinnudeildarinnar að aftur-
kalla áðurnefndar leyfisveiting-
ar, vegna þess hve rækjan væri
smá Og laus í skelinni. Var ákveð
ið að veita engin rækjuleyfi fyrr
en 15. sept. næstkomandi. Verði
þá veitt leyfi til takmarkaðra
veiða.
BILALEIGAN HF.
VolKswagen — árg. ’62.
Sendum heim og saekjum.
400 hvalir
íí GÆR kom á land í hvalstöð*
inni í Hvalfirði 401. hvalurinn á
þessari vertíð Hefur veður verið
mjög gott og veiðiskilyrði ágæt
á vertíðinni
- Aðeins verkamað
ur
Framhald af bls 1,
af hálfu a-þýzkra yfirvalda, að
hann hefði verið „fórnardýr sinn
ar eigin heimsku, þar sem hann
hefði reynt að flýja".
Embættismaður flutti líkræð-
una, og lýsti því m.a. yfir, að
félagar Fechters, sem sendu
kranz, er á var letrað: Til okkar
kæra Peter Pechters, í viður-
kenningarskyni fyrir dugnað 1
starfi — þeir hefðu reynt að leið
rétta villu hans á þessum erfiðu
tímum, en þeim hefði greinilega
ekki tekizt það.
Ræðuimaður hélt því einnig
fram, að það væri stjórnarinnar
að ákveða hvaða leiðir væru
hættulegar fyrir borgarana og
hvaða leiðir ekki.
Unnusta hins látna grét mik-
ið. Vinir fjölskyldunnar sikýrðu
frá því, að beðið hefði verið twn
kristilega útför, en því hefði
verið neitað, og því hefði embætt
ismaður flutt líkræðuna.
- Takmarkað bann
Framhald af bls. 1.
það kunni síðar að auðvelda
samninga um allsherjarbann.
Hvort Rússar halda fast við
þá skoðun sína, að tillagan sé
aðeins sett fram í þeim tilgangi
að tryggja áframhaldandi til-
raunir neðanjarðar, er ekki
hægt að spá um á þessu stigi
málsins.
Það er von Vesturveldanna að
fá samið um aðra hvora tillög-
una áður en gert verður hlé á
fundum ráðstefnunnar, 8. sept.
F élagslíf
KR knattspyrnumenn
5. flokkur.
Knattspyrnunámskeið hefst 1
kvöld kl. 6 á íþróttasvæði félags-
ins. Tíu KR þjálfarar aðstoða á
námskeiðinu, sem stendur yfir
þrjú kvöld, þriðjudag, miðviku-
dag og fimmtudag kl. 6—8.20.
Við ráðleggjum öllum KR drengj
um 12 ára og yngri að mæta á
námskeiðinu. Lítið skrá ykkur
hjá húsverði.
Stjórnin.