Morgunblaðið - 28.08.1962, Side 24
Fréttasímar Mbl
— eftir lokun —
Erlendar fréttir: 2-24-85
Innlendat frcttir: 2-24-84
Vilhjálmur Stefáns.
Sjá bls. 10 og 13.
195. tbl. — Þriðjudagur 28. ágúst 1962
Aldrei fyrr annar
eins síldarafli
IMærri 2 millj. tiinnur og mál
komið á land
SÍLDVEIÐI var góð sl. viku
og var síldaraflinn á laugar-
dag kominn upp í 1.920.462
mál og tunnur og er það
mesta síldarmagn, sem á
land hefur borizt á sumar-
vertíð frá því síldveiðar hóf-
ust hér. í fyrra var aflinn á
sama tíma 1.525.166 mál og
tunnur. Hafa 84 skip aflað yf-
ir 10 þús. mál og tunnur, þar
Spyrja um
Skrýmsli
á íslandi
NÝLEGA fékk Finnur Guð
mundsson, fuglafræðingur,
bréf frá brezkum þingmanni,
skrifað á bréfapappír brezku
Neðri málstofunnar, en þing-
maðurinn er í hópi manna,
sem tekið hafa sig saman um
að ráða gátuna um hið fræga
Loch Ness-skrýmsli. Erindið
við dr. Finn var að spyrjast
fyrir um skrýmsli í vötnum
hérlendis, sem heyrzt hefðu
sögur um.
Mbl. spurði Finn um þessi
bréfaskipti. — Kvaðst hann
ekki hafa svarað bréfritara
ennþá, en sennilega yrði
svarið á þá leið, að til
skamms tíma hefðu verið
sögusagnir um skrýmsli eða
nykra í öllum meiri háttar
vötnum á íslandi, sbr. Lag-
arfljótsorminn, en þeim færi
nú óðum fækkandi. Svo gæti
verið að hann vísaði á Þor-
berg Þórðarson, sem vissi
allra íslenzkra manna mest
um þetta efni.
Ekki kvaðst Finnur vita
hvaða menn ættu þarna í
hlut, og ekki hvort þeir 'tryðu
sjálfir á Loch Ness-skrýmslið
eða hvort þetta væri ferða-
mannaauglýsing, því nábúar
Loch Ness-vatnsins hefðu
lengi lifað á ferðamanna-
straumnum, sem myndazt
hefur af sögusögnunum um
skrýmslið.
1*
a£ 8 yfir 20 þús. Hæsti bátur-
ur er nú Guðmundur Þórðar-
son RE með 24.201 mál og
tunnur, annar Ólafur Magn-
ússon með 24.054, þriðji Helgi
Helgason með 23.813 og f jórði
Víðir II með 23.734. Skýrsla
yfir bátana er birt á bls. 6.
Um helgina var bræla á mið-
unum og nær engin veiði, en í
gær fór veður batnandi og í
gærkvöldi voru bátar að veið-
um á Ægisslóðinni, NA af Rauf-
arhöfn og fengu þar mjög góða
síld, og í Héraðsflóadjúpinu. Á
fyrri staðnum var vitað um
þessa báta: Manna með 850, Þor-
björn 650, Arnfirðing 500, Frið-
berg Guðmundsson 100, Draupn-
ir 350, Sigurð AK 400, Freyju
GK 900, Ólaf bekk 800 og Fiska-
skaga með 300. Á síðartalda
staðnum var vitað um Náttfara
með 1000 mál, Gullfaxa 1300,
Bergvík 400, Ófeig II 650, Víðir
II með 1000 mál.
Aldrei síldarlegra á Sigló
Fréttaritari Mbl. á Siglufirði
símaði I gær:
Sl. föstudag og laugardag yar
mjög góð síldveiði á Rifsbanka,
um 12—15 tíma stim frá Siglu-
firði. Frá laugardagsmorgni til
sunnudagsmorgun komu 54 skip
til SR á Siglufirði með 27 þús.
mál síldar, auk fjölmargra til
Rauðkuverksmiðjunnar og síld-
artöltunarstöðva. Var á þessum
tíma mjög síldarlegt. Á þessu
svæði er mikil síld og veiðihorf-
ur hinar beztu. Sjðla á laugar-
dag var hinsvegar komin bræla
á miðunum og leituðu skipin
hafnar. Var fjöldi skipa í höfn á
Siflufirði. í gær og í dag voru
þau farin að tínast út, enda spáð
batnandi veðri.
Síldarverksmiðjan Rauðka á
Siglufirði hefur nú fengið rúm-
lega 130 þús. mál síldar og síld-
arúrgangs og hefur aldrei áður
fengið svo mikið magn hráefnis
til vinnslu. SR á Siglufirði hefur
fengið 446.000 mál síldar og úr-
gangs og hafa verksmiðjurnar
ekki fengið svo mikið síldar-
magn síðan 1944 eða í 18 ár, en
þá fengu Siglufjarðarverksmiðj-
ur SR um 570.000 mál. Svo síðla
sumars hefur ekki borizt jafn
mikil síld til Siglufjarðar um
fjölda mörg ár né verið jafn góð-
ar horfur um áframhaldandi
síldveiði.
Aðeins örfá skip hafa nú hætt
síldveiðum, en einkum þau er
illa hafa fiskað sökum lélegs út-
Framhald á bls. 23.
*
KLUKKAN 4,30 síðdegis á
sunnudag týndist tveggja ára
drengur við Loranstöðina á
Hellissandi og fannst ekki,
þrátt fyrir leit fjölda fólks,
flugvéla og loks blóðhunds er
rakti slóðina, fyrr en kl. 3 um
nóttina. Hafði hann fallið
Sævar litli sat öruggur
Kjartansdóttur, í gær.
í kjöltu mömmu sinnar, Ingibjargar
Ljósm.: Árni óskarsson.
,0ní oní‘, sögðu krakkarnir
Og félagi þeirra var týndur i gjótu
i II tima
niður í þrönga gjótu, IV2 m
djúpa, og svaf þar.
Litli maðurinn, sem heitir
Sævar, er einn af þremur
börnum hjónanna Péturs Pét-
urssonar og Ingibjargar
Kjartansdóttur. Biaðið átti í
gær tal við móður Sævars
litla, sem skýrði frá hvernig
þetta vildi til.
— Sævar var úti að leika
sér með litlum félögum sín-
um. Ég vissi af honum kl. 4,
en hálftíma seinna sá ég að
krakkarnir voru aðeins fjór-
ir og hann vantaði. Ég hljóp
út til barnanna. Þau bentu
upp eftir og sögðu: Oní! Oní!
en gátu ekkert sagt frekar,
þau eru svo lítil. Hvernig
sem gengið var á þau, fékkst
ekkert meira upp úr þeim.
Allir hér fóru að leita, fyrst
fólkið af stöðinni, síðan bætt-
ist við af Hellissandi, og ég
hugsa að hátt á annað hundr-
að manns hafi verið komið.
Síðan reyndum við að fá
blóðhund, en það ætlaði ekki
að ganga vel, fyrr en við náð-
um sambandi við Carlsen. Þá
*
kom flugvél frá Þyt með
hann og með honum lögreglu
þjónn. Önnur flugvél flaug
yfir, til að freista þess að
vekja Sævar, ef hann lægi
einhversstaðar sofandi, en
ekkert gerðist.
Ótrúlegt haim skyldi finnast
— Varst þú úti?
— Nei, ég þurfti að hugsa
um þann litla, sem verður Í4
mánaðar gamall á morgun, og
svo tók ég börnin fyrir hitt
fólkið, svo það gæti verið
úti. Ég hafði nóg að starfa,
en þetta var svo langur tími,
og síðast komið kolsvarta
myrkur. Það er svo ótrúlegt
að hann skyldi finnast eftir
allan þennan tíma, að maður
skilur það ekki. Hraunið hér
Framhald á bls. 6.
[
Saín Þorsteins sýsiu-
manns dreifist ekki
SEINT á laugardagskvöld var
gengið frá samningum um sölu
Mfög ijölsótt héraðs'
mót í Borgarnssi
SÍÖAST liðinn laugardag efndu
Sjálfstæðismehn í Mýrasýslu til
hins árlega héraðsmóts síns í
Borgarnesi Var mót þetta eitt
hið allra fjölmennasta, er þarna
hefir verið haidið, og fór að öllu
leyti fram með hinni mestu
prýði.
Samkomuna setti og stjórnaði
Jón Ben. Ásmundsson, forstjóri.
Dagskráin hófst með því, að
Kristinn Hallsson, óperusöngvari,
söng einsöng, undirleik annaðist
Skúli Halldórsson, píanóleikari.
Að loknum söng Kristins flutti
Ásgeir Pétursson, sýslumaður,
ræðu. Siðan söng Þórunn Ólafs-
dóttir, söngkona, einsöng.
Þessu næst flutti Ólafur Thors,
forsætisráðherra, ræðu, og var
máli hans fróbæriega vel tekið
af áheyrendom.
Fluttur var gamanleikurinn —
..Mótlætið göfgar“ eftir Leonard
White og fóru með hlutverk leik
ararnir Valur Gíslason og Helga
Valtýsdóttir Síðan sungu þau
Kristinn Hallsson og Þórunn Ól-
afsdóttir tvísiing við undirleik
Skúla Halldórssonar.
Var ræðumönnum og listafólk
inu mjög vel fagnað og lauk sam-
komunni síðan með dansleik
fram eftir noltu.
á hinu mikla bókasafni Þorsteins
heitims Þorsteinssonar sýslu-
manns. Kári Borgfjörð Helga-
son, kaupmaður, keypti safnið
og ætlar að halda því saman sem
sérstöku Þorsteinssafni.
Blaðið leitaði í gær upplýs-
inga hjá Ingólfi Jónssyni í mál-
flutningsskrifstofu Vagns Jóns-
sonar, en hann er umtooðsmaður
Davíðs á Arnbjargarlæk, bróður
Þorsteins heitins, og þar af leið-
andi annar seljandi safnsins. —
Ekki fékkst gefið upp verðið á
safnimu, en Ingólfur sagði að erf-
ingjar Þorsteins hefðu heldur
viljað ráðstafa því þannig, held-
ur en að selja það úr landi, þó
hærra verð fengist fyrir.
Kári, sem rekur bílaleigu Og
maimngai. verzlun, er Borgfirð-
ingur að ætt, faðir hans frá
Grafardal, og hafði hann mætur
á Þorsteini. Ætiar hann ekki að
láta safnið dreifast, heldur setja
það upp í heilu lagi í húsi sem
hann á að Njálsgötu 49, þar sem
verða myndir gf sýslumannshjón-
unum Og safnið geymt til minn-
ingar um þau.
HERAÐ8IUOT
Sjálfstæðismanna
i Ólafsfirði 1. sept.
HÉRAÐSMÓT Sjálfstæðismanna í Ólafsfirði verður haldið
næstkomandi laugardag kl. 9 e. h.
Ingólfur Jónsson, landbún- aðarráðherra, og Gísli Jóns-
son, menntaskólakennari,
flytja ræður.
Þá verður sýndur gaman-
leikurinn „Mótlætið göfgar“
eftir Leonard White, í þýð-
ingu Vals Gíslasonar leikara. j
— Með hlutverk fara leik- 1
Ingólfur
Gísli
ararnir Valur Gíslason og
Helga Valtýsdóttir.
Ennfremur verður til skemmtunar einsöngur og tvísöng-
ur. — Flytjendur eru Kristinn HaUsson, óperusöngvari,
Þórunn Ólafsdóttir, söngkona, og Skúli Halldórsson, píanó-
leikari. — Dansleikur verður um kvöldið.