Morgunblaðið - 29.08.1962, Qupperneq 3
Miðvifcudagur 29. ágúst 1962
MORGVNBLAÐIÐ
3
FINNSKI karlakórinn Muntra
Musikanter kom til Reykja-
víkur í fyrrakvöld með leigu-
flugvél Flugfélags íslands
frá Kaupmannahöfn. Karla-
kórinn Fóstbræður, sem er
gestgjafi Finnanna, tók á
móti þeim á flugvellinum og
heilsuðust kórarnir með því
að syngja „Sangerhilsen",
sem er kveðjusöngur nor-
rænna karlakóra. — Margt
manna var saman komið á
flugvellinum tii að taka á
móti söngmönnunum og öðr-
um farþegum, og hrópuðu
Söngur og kátína
á Reykjavíkurvelli
allir viðstaddir ferfalt húrra
fyrir þeim. f gærkvöldi hélt
kórinn fyrsta samsöng sinn í
Iláskólabíói, en það er jafn-
framt eina skiptið, sem hann
kemur fram hér í Reykjavík.
Komust færri áheyrendur að
en vildu, en styrktarféiagar
Fóstbræðra höfðu forgangs-
rétt að aðgöngumiðum. Voru
undirtektir áheyrenda mjög
góðar og söng kórinn fimm
aukalög. A fimmtudag fer
kórinn í söngför til Akureyr-
ar og kemur aftur tii baka á
föstudag. Alls eru þátttakend-
ur í fslandsför Finnanna 74,
en nokkrir þeirra eru gaml-
ir félagar, sem ekki syngja
lengur með, en notuðu þetta
íækifæri til að heimsækja
fsland.
A myndinni hér til vinstri
sést Agúst Bjarnason, for-
maður Fóstbræðra, heilsa
forráðamönnum M u n t r a
Musikanter við komuna til
Reykjavík. — Efsta myndin
sýnir Ragnar Björnsson,
söngstjóra Fóstbræðra, heilsa
söngstjóra finnska kórsins,
Erik Bergman. — Að baki
þeirra stendur formaður
Muntra Musikanter, Per Erik
Floman. Neðsta myndin sýn-
ir Fóstbræður undir stjórn
Ragnars Björnssonar syngja
„Sangerhilsen“.
(Ljósm. Mbl.: Markús)
Nýtt félagsheimili
BLÖNDUÓSI, 27. ágúst. — í gær
var nýtt Félagsheimili á Blöndu-
ósi tekið í notkun. Grunnur
þess var byggður á árunum
1958 til 1960' og það gert fok-
helt haustið 1961. Samkomusalur
þess er nú fullgerður, ásamt and-
dyri, snyrtiherbergjum og þrem-
ur félagsherbergjum. Kostnaður
við bygginguna er orðinn rúm-
lega 5 milljónir króna.
Góð veíði íiusiur
af Hvalbak í gær
— reytingur
f GÆRKVÖLDI var almenn
veiði um 31 mílu austur af Hval-
bak, og fengu öll skip, sem þar
voru stödd, veiði. Síldin var á-
gæt söltunarsíld. — Ægir fann
þarna vaðandi síld í gærmorg-
un og síldarleitarflugvél leið-
beindi skipum á svæðið. Vitað
var þar um a. m. k. tíu skip í
gærkvöldi. Þá höfðu tilkynnt
sig til Seyðisfjarðar, Ófeigur II
með 1000 tunnur og Björg SU
með 800 tunnur. — Síldar varð
vart út af Dalatanga í gær og
þar fékk t. d. Heimaskagi 700
fyrir norðan
mál af blandaðri síld. Skip á
þeim slóðum héldu suður eftir
í gær, en numu sum staðar í
Norðfj arðardj úpi.
í gær var reytingsafli 55—60
mílur norður af Raufarhöfn, þar
sem veiðin liefur verið undan-
farna daga. Lítið hefur orðið
vart smásíldar, og yfirleitt hef-
ur verið um söltunarsíld að
ræða, sem farið hefur til Rauf-
arhafnar, Húsavíkur, Dalvíkur,
Ólafsfjarðar og Grímseyjar. —
Vitað er um afla þessara skipa
frá því kl. 8 í gærmorgun af
þessum slóðum (tölurnar í tunn-
um): Leifur Eiríksson 600, Sæ-
fari BA 900 (til Hríseyjar), Héð-
inn 650, Anna SI 450, Hrafn
Sveinbjarnarson II 800, Hrafn
Sveinbjarnarson 850, Sigurfari
AK 600, Helgi Helgason 400,
Vörður 250, Arnkell 1000. Einnig
er vitað, að fleiri skip hafa
fengið afla, en ekki kunnugt um
magn.
Neskaupstað, 28. ág. — Tölu-
verð veiði er á Tangaflaki, en
síldin er blönduð. Von er á síld
á öll plön í kvöld og nótt. Veð-
ur er gott úti, en mikill straum-
ur, og þvi erfitt um vik.
— Fréttaritari.
Raufarhöfn, 28. ág. — Hér
hafa landað í bræðslu Þórsnes
116, Guðrún Þorkelsdóttir 662,
Sigurður Bjarnason 1168, Arn-
firðingur 82 og Manni 196 mál-
um. — Veiði er áframhaldandi
og veður gott. Saltað er á öllum
söltunarstöðvum og verður í
nótt víðast, eftir því sem heima-
fólk annar, en aðkomufólk er
flest farið. — Einar. ,
★
Sólarhringinn frá mánudags-
morgni til þriðjudagsmorguns
var vitað um afla 16 skipa með
samtals 11.400 mál af miðunum
40 mílur A að N frá Glettingi,
tveggja skipa með samtals 1100
mál af miðunum 6 mílur suður
af Papey, og 12 skipa með 7.700
mál af miðunum út af Rifs-
banka. Þann sólarhring var
Gullfaxi aflahæstur með 1300
mál, þá Sólrún með 1200 og Sig-
urður Bjarnason með 1100 mál.
STAKSTEINAR
„Haugalygi£ Þjóðviljans
Öll heilbrigð gagnrýni, sem
beint er gegn Sovétríkjunum eða
leppríkjum þeirra austan járn-
tjalds, heitir á máli „Þjóðviljans"
„ofstæki“, „níð“, „glórulaust of-
stæki“, „skemmdarstarfsemi“,
„haugalygi" og annað eftir þvL
Ekkert, sem gerist í heimi komm-
únismans, er í þeirra augaum ann
að en „gott og fagurt“.
Þetta hefur komið berlega í
ljós í sambandi við blaðaskrif
þau, er að undanförnu hafa átt
sér stað um „austurviðskiptin"
svonefndu. Þar hefur „Þjóðvilj-
inn“ engu sannmæli getað unað,
ef hallað hefur á vinina — eða
öllu heldur yfirboðarana í austri.
Þegar Alþýðublaðið birti sl.
sunnudag frásögn af viðhorfum
Gylfa Þ. Gíslasonar, viðskipta-
málaráðherra til viðskipta þess-
ara, þar sem staðfest eru í einu
og öllu þau höfuðsjónarmið, sem
gagnrýnendur austurviðskipt-
anna hafa bent 4> rýkur „Þjóð-
viljinn“ upp og segir í stórri fyrir
sögn: „Stjórnarblöðin éta ofan í
sig skrif um austurviðskiptin".
Hvert er sannleiksgildi þessarar
fullyrðingar? f fyrsta lagi er hér
ekki um að ræða „stjórnarblöðin“
hvorki eitt né fleiri, heldur einn
tiltekinn ráðherra stjórnarinnar,
sem lýsir sínum skoðunum. I öðru
lagi, og það skiptir auðvitað meg
inmáli, er hér alls ekki um að
tefla „ofaníát“ af neinu tagi, frek
ar en efni líka standa til. Ráð-
herrann staðfestir beinlínis, þótt
gera megi ráð fyrir að manni í
hans stöðu sé það alls ekki ljúft,
að framkoma áðurncfndra við-
skiptalanda okkar sé yfirleitt
mjög ámælisverð.
Gallað en dýrt
Þannig víkur Gylfi Þ. Gísla-
son m.a. bæði að hinu háa verð-
lagi austantjaldsvaranna og rýr-
um gæðum þeirra og segir:
„En útflytjendur þessara landa
verða að skilja, að það má ekki
til lengdar vera neinn verulegur
munur á því verði sem þeir selja
á hingað til lands og til annarra
landa, né heldur á gæðum þeirr-
ar vöru, sem þeir selja okkur og
sams konar vöru, sem fáanleg er
annars staðar“.
Því miður eru slík áminningar
orð óhjákvæmileg og ber aðeins
að vona, að þau verði tekin til
greina, því ella munu erfiðleik
amir í sambandi við austurvið-
skiptin enn vaxa. Almenningur er
orðinn langþreyttur á þeim gall-
aða en dýra varningi, sem úr
austrinu hefur komið. Sá lofsöng
ur, sem „Þjóðviijinn“ hefur kyrj
að um þessi viðskipti, er áreið
anlega sízt til þess fallinn, að
koma á breytingu til batnaðar.
„Andskotast
í smáleiðara“
Það er annars ekki ófróðlegt
að virða fyrir sér, hvað „Þjóð-
viljinn“ hefur að segja um sína
eigin framkomu á sviði viðskipta
málanna — og þá um leið hnútu
kast hans í garð andstæðinganna,
en þetta tvennt verður sjaldnast
aðskilið.
í gær var komizt svo að orði
í ritstjómargrein:
„Sem eins konar mótvægi and-
skotast ritstjóri Alþýðublaðsins
enn í smáleiðara á Þjóðviljanum,
sem hann segir að túlki málstað
erlendra þjóða í viðskiptum og
svíki málstað neytenda á íslandi
fyrir hagsmuni fárra stórkapítal
ista! Ljótt er ef satt væri, en auð
vitað er þetta Alþýðublaðssann-
leikur, það er að segja, haugalýgL
Andstætt ofstækisáróðri stjórnar
blaðanna hcfur Þjóðviljinn rætt
þessi viðskiptamál af algjöru of-
stækisleysi og frá islen^ku hags-
munasjónarmiði“.