Morgunblaðið - 29.08.1962, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 29.08.1962, Blaðsíða 11
f MORGVNBLAfílÐ 11 Miðvikudagur 29. ágúst 1962 Grunsamleg síld á Mæri NOREGI, 16. ágúst. — Fyrir rúmri viku fór að bera á því, að smásíld og svokölluð feit- síld, sem veiðist á Mæri um þessar mundir, var hreisturs laus á svo sem naglarstórum blettum, aðallega á kviðnum, en með gulum og rauðum blett um. Kvað allmikið að þessu, — síldin úr sumum snurpu- köstunum var nær til helm- inga með þessum grunsamlegu einkennurn, en í mörgum köst unum var nærri þriðjungur skaddaður. Öll síldin var veidd í herpinót og mikið af henni síðan sett í „lása“, því að ekki hafði við að verka hana jafnhraðan. Smásíld þessi er sem sé aðallega not uð til „niðurlagningar" í smá dósir, söltuð með ýmiskonar kryddi. Fiskirannsóknarstofunni í Bergen voru send sýnishorn af þessari sködduðu síld, en ekki töldu fiskii 'ðingr rnir sér fært að segja, hvort þessir blettir á síldinni stöfuðu af sjúkdómi eða af því, að hún hefði orðið fyrir hnjaski og meiðslum í snurpunótinni eða síldarlásunum. Að fráteknum gulu og rauðu blettunum á roðinu var ekkert á síldinni að sjá, hún var feit og falleg. Fiskirannsóknarstofan gerði því út sérfróðan mann til þess að fara norður á síldarmiðin við Molde og ná í síld nýja upp úr sjónum og gera rann sóknir á henni og rannsókn á því hvort veirur eða aðrar sóttkveikjur séu í síldinni, verða gerðar jafnhraðan. Mun þá verða hægt að skera úr, hvort hér sé um sýkingu að ræða eða hvort blettirnir stafi Nokkrar síldar, sem Fiskirannsóknarstofan í Bergen fékk til rannsóknar Síldin er greinilega feit og góð, en á kvið og síðum naglarstórir hreisturlausir blettir. Af því hvar og hvernig þeir eru, er erfitt að ákvarða að þetta séu bara veiðarfæraskemmdir. af veiðarfærunum eða öðrum „mekaniskum" áhrifum. Til- gátur komu þegar fram um það, að ef til vill væru það geislavirk áhrif sjávarins, sem ættu sökina á þessu, en fræði mennirnir telja það ekki geta komið til mála. En hvoru sem heldur er um að kenna, sýkingu eða utanað- komandi sköddun, er málið al- varlegt fyrir þá, sem gera sér þessa smásíldarveiði að at- vinnu. Það er ekki hægt að nota svona síld til þess, sem hún fyrst og fremst er ætluð, en til bræðslu er hún tiltölu- lega lítils virði. Á takmörkuðu svæði, útaf Raumsdal, er um 20—50% áf veiðinni „blettað". Og bannað hefur veiið að nota síldina til þess að krydda hana í dósir, svo að verin sem þessa iðju stunda eru aðgerðalaus, þang að til úr því verður skorið hvort hér er um sjúkdóm a8 ræða. Það hefur komið fyrir áður, að síld með svona blettum hafi veiðst á sömu slóðum og nú, og það mun hafa verið áður en snurpinót var notuð til veiðanna. En nú bíða allir hlutaðcigendur á sjó og landi eftir úrskurði fræðimannanna: Er þetta sjúkdómur eða eru það „meiðsli"? Sk. Sk. V. I Fénaður manna og fóðurbirgðir I MORGUNBLAÐI'NU sunnudag( inn 13. maí 1962 er grein með ofanskráðri fyrirsögn. Höfundur inn er Sigurlaug Björnsdóttir frá Veðramóti. Undiralda greinar- innar beinist að Mývetningum, .— hrakningum sem menn og sauð fé urðu fyrir í áhlaupsveðrum á Mývatnsfjöllum um mánaða- mótin. nóvember og desember 1961. Gamall bóndi sem tekið Ihefur svari Mývetninga, fær nokkrar setningar, og bændastétt in í heild afganginn. IÞað er, vafalaust að þrautir urðu miklar hjá mönnum og kind um í hríðum þeim, víðar en í mellöndum Mývetninga. En af Iþví að þar voru menn er sögðu frá, þá varð það fréttamatur. Á einum stað 1 grein Sigur- laugar er þetta: „Alíti menn að vissar ástæður gefi þeim ein- Ihvern einkarétt til þess að vinna (þeim mein (dýrunum G. P. Ásm.) mundi það vissulega kallast mik 111 misskilningur, og ber bæði dýravemdunarfélögum og lands lögum að skerast i leikinn", Eg trúi því varla að Sigurlaug sé «vo ung að hún, af þeim ástæð- um, mundi ekki eftir svo nefndu „Emstra máli“. Samkvæmt frétt- um í tolöðum og útvarpi (ef ég man rétt) reis málið út af því, að Hvolhreppur í Rangárvalla- sýslu á afréttarlandssvæði er Emstrur-Emstiur nefnist. Hvol- Ihreppur sendi menn I tvær ferð- ir á svæði þetta til fjársmölunar. Eitt haust vitnast bað, að kindur eru þar eftir, fara þá menn og sækja þær. Óskar svo eigandi kindanna kostnaðargreiðslu úr Ihendi Hvol'hrepps, en hann neit ar. Og svo reis mál sem síðar var dæmt í Hæstarétti. Dómsorð var á þá leið: Hvolhreppur var sýkn ®ður. En eigandi kindanna varð að borga drjúgan skilding um- fram innleggsverð kindanna. Eða, með mínum orðum sagt: það er enginn menningarljóður á Hvolhreppingum, bó sauðkind ur verði eftir á Emstrum í ann- arri leit, þær mega lifa þar og þola allar vetranþrautir eða drep ast af þeim. Dýraverndunarfélög með horfellislög í höndum m.m. yrðu hlægileg ef við sliku vildu hreifa — Hvolhreppingar hafa hæstaréttardóm, sem jafn- gildir leyfi til að láta kindur drepast, — ef þær þola ekki vetr ar þjök á Emstrum. Auðvitað sjá fáir — eða engir þær kindur sem orðið hafa úti á Emstrum eða hjara, svo enginn segi frá, og því engin frétt. En Mývetningar höfðu talstöð, og sögðu frá, því varð frétt. í niðurlagi greinar sinnar segir Sigurlaug: „Óþarfari embættis- maður í opinberri þjónustu er efalaust til, en sá maður er falið rði það starf að annast einung! • þessi mál, éinskonar fóðurmeist ari eða ráðunautur, er ferðaðist á öllum tímum ársins meðal bú endanna og ekki tæki starf sitt sem sport eða gaman, en hefði til þess bæði vilja og vald að láta til skara skríða í garð þeirra manna er ófáanlegir eru af sjálf dóðum að annast öryggi búpen- ings síns, fóðrun, eftirlit og um- sjó alla, því enn þann dag virð- ist vera sem það sé eitt af stærri vandamálum íslenzks landbúnað ar“. 1 þessari hugmynd er eittl.vað gott. Samt ætla ég að setja hér lítið dæmi. fárra ára gamalt: Porðagæzlumaðuriinn fór um (hreppinn á haustnóttum, eftir þá umferð fréttist það að tveir bænd ur skæru sig úr annar sem ég nefni A. fyrir það að hann hafði meiri umframfóðurbirgðL’ á hverja ckepnu, hinn sem ég nefni H, fyrir það hvað hann vantaði mikið fóður handa sínum fénaði. Báðir voru bændur þessir úr flokki hinna smáu. I Góu-lok fór forðagæzlumaður um hreppinn aftur. Að þeirri ferð lokinni fór hann til Búðardals, grennslaðist um kjarnfóðurbirgðir, bað hann svo kaupfélagsstjórann að skrifa nöfn þeirra sem helzt þyrftu að gan_a fyrir um kjarnfóðurkaup. Var þar efstur á blaði bóndinn A en H . ar ekki með. Ekki er forðagæzlumanni ætl- andi að hafa farið með lóf eða last af ásetningi. Hvernig stóð þá á þessu? — Ekki hafði A fjölg að fénaði og ekki fargað fóðri Og ekki 'hafði H fækkað sínum fénaði eða bætt við ,sig fóðri, Hvað vax? Til hvers mundi Sigurlaug Björnsdóttr frá» Veðramóti ætl- ast af „fóðurmeistaranum“, ef hann fengi haustnótta skýrslu forðagæzlumanns, sem hér er bent til? Ætlaðist hún til að beð- ið yrði með aðgerðir til útmán- aða, Mér skilst á grein hennar að slíkt gæti ekki komið til greina samanber orðalag ........... en hefði til þess vilja og vald að lóta til skarar skríða í garð þeirra manna. .... “ Þótt „fóðurmeistarinn'* væri sá hamfaragarpur, að hann kæm ist yfir allar hreppsskýrslur og úrskurðaði þær á e;nu hausti, er hætt við að hann yrði ekki minni skaðvaldur, en vanfóðrunnar- fjandinn, er það þó ekkert smá- ræði ef marka má sagnir. Á öðrum og þriðja tug þessar- ar aldar voru all'háværar raddir um það, að íslenzkur jórturfén- aður væri svo úrkynjaður, eða eðlisléttur að nauðsyn bæri til að bæta hann með innflutningi, eða jafnvel að skipta alveg um Til þ ass að bændur gleyptu betur agnið var ríkissjóður látinn bjóða fram allan kostnað, svo bænd- ur þyrftu ekki fyrir öðru að hafa en 'hirða gróðann. Svo kom inn flutningurinn, lofið var ekki spar að. Skömmin dugði ekki. Veru- leikinn kom með skömm og skaða í því feni situr við enn og ekk- ert útlit fyrir að við losnum úr því fyrir árið 2000, milljón þús- undin verða þá orðin næsta mörg. Svona fer oft þegar vonuð vizka er sett ofar þekkingar. Það væri okkur mikill menn- ingarauki, ef við hefðum mann- dómskjark til að láta hverja skömm skella á réttum stað, en vera ekki að smyrja henni vítt breitt með alls konar íblöndu Eg finn það hvergi í grein Sig- urlaugar að hún vilji ekki vel en það er ekki nóg að vilja vel. Van fóður á fénaði er smán, auk skaða Slíkt stafar ekki alltaf af fóður- skorti — almennt séð. Sjúkdóm ar valda vanfóðrun „fóðurmeist- ara “ titillinn er ekkert annað en froðuhnoðri á bylgjufaldi blekkinganna, sem síðar mætti nota í sæti fyrir pólitísk tirðil- menni. Okkur vantar ekki bein- línis bóklærða menn frá ýmsum skólum, heldur menn með verks vit og glaðvakandi ábyrgðartil- finningu Það skiptir ekki máli 'hvort um er að ræða fasta mann virkjagerð, ræktun jarðar og fén aðar eða sagnasöfnuð. Mestu fjár fellar á íslandi hafa staf. 5 af innfluttum jórturdýrum á vegum þeirra sem töldu sig vita og vilja öðrum betur. En skorti svo bæði drengskap og mannvits- kjark ,þegar reynslan varð Ijós. Meðan ríkisvaldið tekur á- byrgðarlaus gaspurmenni á sína arma í einhverri mynd, og gerir þá að ráðgjöfum í þýðingarmikl- um málum, er vansæmd á borð við horfelli ekki skammlíf. Guðm. P. Ásmundsson, Krossi, Dölum. Skák fjölbreytt ttmarit NÚ, þegar tímaritið Skák (júlí- ágúst hefti) kemur út, hafa orðið á því útgefendaskipti. Birgir Sigurðsson, sem séð hefir um út- gáfuna sl. átta og háift ár, lætur af störfum en við ritinu taka Arinbjörn Guðmundsson, Guðm. G. Þórarinsson og Jóhann Þ. Jónsson. Hyggjast þeir halda áfram á sömu braut og Birgir með því að birta allar helztu innlendar og erlendar skákfréttir, einstak- ar skákir, skákdæmi og veita nokkra kennslu í skák. í fyrsta hefti þeirra þremenn- inganna er meðal annars sagt ítarlega frá móti norrænna spor- vagnastjóra, er fram fór hér á landi fyrir nokkru. Mynd er af sigurvegaranum, sem varð Þórð- ur Þórðarson. Rætt er um út- varpsskák Inga R. og Sveins Jo- hannessens. Ýmsar fleiri fréttir eru af innlendum skákmótum. Þá er Af erlendum vettvangi. — Friðrik skrifar um áskorenda- mótið í Curacao, töflur birtar Og skák Keresar og Fisohers í 28. umferð. Aiþjóðlegt mót í Rúm- eníu 8.—26. apríl. Tafla er um alþjóðaskákmótið. í Marianzke Lazne 1962. Frétt frá mótinu í Mar del Plata o. £1. Loks eru skákdæmi og Lærið að „kombin- era“. Arni Siemsen lætur af störfum ■ Hamborg UM næstu mánaðamót lætwr Árni Siemsen af störfum sem aðal- ræðismaður Islands í Hamborg. Hann hefur verið starfandi við ræðismannsskrifstofuna í Ham- borg frá 1949, fyrst sem vararæð- ismaður og síðar sem ræðismað- ur og forstöðumaður skrifstofunn ar. Árið 1957 var hann skipaður aðalræðismaður. Árni er fæddur þ. 22. sept. 1888 í Hafnarfirði. Eftir skólanám og verzlunarstört á íslandi hélt hann til Þýzkalands 1904. Síðan 1908 hefur hann verði búsettur í Lúbeck og rekið þar stórkaup- mennsku frá 1919. í Lúbeck hef- ur Árni einnig gegnt ræðismanns i störfum og heldur hann því áfram. Þeir sem þekkja til Árna Siem- sen vita, að þar fer óþreytandi fulltrúi lands síns. Hann hefur ekki talið eftir sér að fara fimm daga vikunnar milli Lúbeck og Hamborgar til að rækja störf sín fyrir ístand. Á hinum langa starfsferli í Hamborg hefur Árni aflað sér þar .nargra vina og kunningja meðal íslendinga og Þjóðverja, seni verða nú að sjá af honum til Lúbeck. Þeir þakka honum fyrir eljusemi hans og dugnað við að tengja og treysta böndin milli íslands og Hamborg- i ar. — Þ. E

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.