Morgunblaðið - 29.08.1962, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 29.08.1962, Blaðsíða 16
16 MORGVyBLAÐIÐ Miðvrkudagur 29. ágúst 1962 HOWARD SPRING: _ 25 RAKEL ROSING Hinumegin húsagarðsins vOru hesthúsin — nú bílskúrar, en úti fyrir sumum þeirra stóðu snotr- ir bílar og menn, sem voru að þvo þá og fægja. Ailar gömlu hurðirnar höfðu verið málaðar með sterkum litum, og eins gluggaumgerðirnar í litlum íbúð unum, sem voru á efri haeðunum, svo að ef manni tókst að gleyma auða múrveggnum hinumegin, var þetta einna likast snyrtilegu brúðuhúsi, en símaskápur úti fyr ir lokaði útsýninu til þeirrar handarinnar. Julian hafði skilið eftir opnar mjóu dyrnar við hliðina á breiðu bílskúrsdyrunum. Akbar hafði þotið upp stigann innan við dyrn ar og nú kom hann með allan framhluta-nn út í glugga, másandi með opinn kjaftinn, rétt eins og hann aetlaði að fara að flytja einhverjar fréttatilkynningar. — Julian sagði ekkert en færði sig að dyrunum, og Rakel á eftir. Hann veik til hliðar og hún gekk inn og svo hægt upp tréstigann fyrir innan. Þegar hún var kom- in alia leið upp, heyrði hún hurð ina lokast og um leið varð al- dimmt. Það var vindstroka, sem hafði skellt aftur hurðinni eftir að Afebar var kominn inn. Stattu kyrr, sagði Julian. Eg rata. Eg skal opna dyrnar. Hún var enn að fálma eftir hurðarlásnum, þegar hún fann, að hann var kominn til hennar, upp á litla ferhyrnda stigapall- inn, í dimmunni. Hönd hans rakst á hennar hönd og hún kippti henni að sér, og varð þess vör, að hjartað í henni hamaðist engu síður en tungan í Afebar. Og henni fannst einhvernveginn, að hjá Julian mundi vera sama sag- an. Ef hann rataði þarna al- mennilega, var hann að minnsta kosti lengi að opna dyrnar. Hann straukst við hana og hún sagði: Opnaðu dyrnar. Orðin voru hvOrttveggja í senn játning og ásöfeun, en hún þurfti ekki að vera lengi í vandræðum, |>ví að Julian hratt upp hurðinni í sama vetfangi og sagði: Voilá! Entrez, madame! En hvað hér er vistlegt, sagði hún um leið og hún gekk inn á undan honum. Þetta var allstór stofa, en ekki mikið inni i henni. Veggirnir voru sítrónugulir, en timburklæðningin svört. Á gólf- inu var kókosábreiða, og eld-ur brann í arni úr grófgerðum múr- steinum. Tveir körfustólar, sem virtust ætlaðir grannvöxnum mönnum stóðu sitt hvorum meg- in arinsins. Bækur voru þarna ekki margar. Ennfremur var þarna lítill flygill og skrifborð. Julian sýndi henni ofurlítið svefnherbergi með tveim rúmum og svo baðherbergi, sem var enn Þá minna. Þá er nú upptalið, sagði hann. Við borðum úti. En við höfum gasplötu til þess að hita okfeur kaffi og þessiháttar. Og nú ætla ég að sýna hvað hún getur, með því, að hita okkur kaffi. En ég má ekkert standa við, mótmælti Rakel. Eg ætlaði alls ekki að koma hingað. Það var allt honum Akbar að kenna. Stóllinn þarna til vinstri sagði Julian, á betur við vaxtarlag þitt. Hanaka og handtösku má setja á gólfið eða í glugg-ann eða arin- inn. Hún lét það eftir honum, að aetjast. Julian opnaði hurð og þá kom í ljós stór skápur með gas- plötu, ketið, kaffikönnu og bolla Hann var brátt önnum kafinn við þetta. Síðan setti hann kaffið á lítið borð milli stólanna og sett- ist svo niður og teygði löngu íæturna að arninum. Jæja þá, sagði hann. Ekki datt mér í hug, að þú yrðir komin til London svona fljótt. Hefðirðu litið inn til mín, eða hafðirðu gleymt minni aumu tilveru? Eg býst við, að ég hefði heim- •ótt þig fyrr eða seinna. Hún reyndi að vera eins kæruleysis- leg og hún gat. Segðu mér — lastu bókina? Já. En ég botnaði ekkert í henni. upp eða niður. Með grönnum vísifin-gri sló hann öskuna áf vindlingnum sín- um í eldinn og hló hátt. Jæja, ég ætla nú ekki oftar að gera þjóðina að einu spurningarmerki. Eg held ég sé búinn að hitta á það rétta nú — lofesins. Nokfeuð, sem fólk vill heyra Og skilja — og borga. Hann veifaði hendi og benti á skrifborðið, sem var þak- ið blöðum. Þarna liggja auðæfin mín. Það er efeki nema tímaspurn ing. Já, þau eru náttúrlega alltaf auðveld þessi auðæfi, sem eru ekki nema tímaspurning, sagði Ra-kel. Er ekki svo. En það er bara gallinn, að þessi tími verður oft svO langur. Hún smellti fingr unum eins og til að láta í ljós fyrirlitningu sína á hégómagirnd fólks og metorðagirnd. Julian horfði á hana með ein- beittri eftirtekt. Veiztu það sagði hann, að þú gætir unnið þér inn mikið fé, bara með því að segja orð á þennan kæruleysislega og vonsvikna hátt? Hefur nokkur sa-gt þér, að þú værir fædd leik- kona? Seiseijá! Það hefur oft verið sagt við mig. Þú sjálfur hélzt að ég væri að leika, þarna um kvöldið, þegar ég kom niður stig- ann niður í forsalinn í gistihúsinu í Blackpool. Var það ekki? Hann mundi þetta: Hún hafði bomið inn eins og aðals- mær. Jæja, svaraði hann, hvort sem það var leikur eða leikur ekki, þá var það fullkomið í sinni röð. Hver sem getur komið þannig inn á svið, get-ur haft áhorfendurna alveg í vasanum. Þeir mundu halda niðri í sér and anu-m og bíða eftir fyrstu orð- unum. Og hvað er það, sem þú vilt segja mér — eru þetta kannske orðin? sagði hún og benti á blaða hrúguna á skrifborðinu. Ertu kannske að semja leikrit? Julian roðnaði. Já, satt að segja er ég það, Og ég get trú-að þér fyrir því, að það er fjandans gott. Ekkert skýjabull í þetta sinn. Eg er kominn yfir það. Slíkt ger- um við allir meðan við erum ungir. Þú skalt trúa því, að nú loksins kemur eitthvað almenni- legt frá mér. Til hamingju með það, sagði Rakel, og röddin var ekki laus við kald-hæðni. Hún setti frá sér bollann og stóð upp. Nú verð ég að fara. Æ, nei, farðu ekki .... — Ég á ekkert til að fara í á ballið í kvöld. Gallabuxurnar v' ...g eru allar nýjar. Jú, víst. Hvað heldurðu að maðurinn minn segði .... daginn eftir brúðkaupsdaginn okkar? Það kom mér nú heldur betur á óvart. Efeki hafði ég nokkra hugmynd um, að þið hr. Banner- mann ætluðuð að gifta ykkur. En það hafði ég, sagði Rakel. En það var heldur efeki nema hugmynd. Eg var alls ekki viss. Eg held, að þú sért einhver furðulegasta kona, sem ég hef nokfeurntima hitt. Og sú falleg- asta um leið. Hann stamaði dálít ið á orðu-num, er hann snerti rjómagulu rósina, sem hún var með. Gefðu mér þessa. Hú-n var með hanzkana í hend inni og sló þeim nú framan i ■hann. Hann hörfaði aftar á ba-k, hissa, en hún sagði: Þetta er ann- að, sem menn gera meðan þeir eru ungir. Eg ky-nni miklu betur við þig ef þú kynnir betur að stilla þig. Og svo brosti hún svo yndislega, að það var líkara því, að hún hefði kysst hann en löðr ungað. Þú ættir að minnsta kosti að láta sem þú tækir mig ekki sem sjálfsagðan hlut. Hún tók í tauminn á Afebar. Julian opnaði dyrnar. Er mér fyrirgefið? spurði hann. Hún yppti ofurlítið öxl-um og fór. Marilyn Monroe eftir Maurice Zolotov S3I Hvað marga diska þvoði hún upp? „O, hún þvoði aldrei neina diska og skúraði heldur aldrei salerni. Það mesta, sem hún gerði var að hjálpa til að þurrka diska, einn klukkutíma á viku. Það var nú allt og sumt. SvO varð hún að búa u-m rúmið sitt og halda sinum hluta af telpnastofunni hreinum. Þá er upp talið. „Og hvað var henni borgað? „Þetta var ekki raunverulegt kaup. Það hefði verið helmingi hægara fyrir okkur að sletta bara tíu sentum í krakkana á viku og láta þar við sitja, vegna þess að þau gera í rauninni ekki annað en aukna fyrirhöfn, þeg- ar þau eru að hjálpa í eldhúsin-u. Þau eru bara fyrir. En okkar skoðun er sú, að það að gefa barn inu fimm sent á viku — eins og Marilyn fékk — sé gott fyrir börni-n siðferðilega, því að þá finnist þeim þau vera til einhvers gagns. Engin up>peldisstofnun get ur fullkomlega komið í stað góðs heimilis eða fósturheimilis. Það vitum við sjálfar manna bezt. Við vitum, að börnin hérna þjást af útskúfunarkennd. En með því að fá þeim smáverk í hendur, sem þau fá borgun fyrir, gefum við þeim ofurlitla sjálfsmeðvit- und. Við gerum þetta enn í dag. Á sama hátt og Marilyn Monroe talar jafnan um munað- arleysingjahælið með hatri, þannig talar hún sjalda-n með ást eða virðingu um Grace McKee Goddard og minnist yfirleitt sjaldan á hana. Samt kom Grace að heimsækja hana á hverjum la-ugardegi, og færði henni bæði sælgæti og leikföng. Það lætur einkennilega í eyr-um, þegar hún segir við ungfrú Wolfson, að frú Dewey hafi verið fyrsta mann- veran sem sýndi henni ást. — Graee frænka elskaði hana inni- lega — allt frá fæðingu hennar, og ennfremur brá hi-n-u sama fyr ir hjá móður hennar og jafnvel lika hjá ensku leikarahjónunum. Síðusta innfærsla í skýrslurn- ar er dagsett 4. október 1947, tíu árum eftir að Marilyn fór úr hælinu. Norma Jean Baker var þá orðin 21 árs og var ekki leng- ur skjólstæðingur hins opinbera, en frú Dewey var enn ekki meira sama um hana en svo, að hún skrifaði frú Goddard, til þess að vita, hvernig henni liði. Aðeins tvær setningar hafa vprðveitzt úr svari frú Goddard: „Norma Jean Baker hefur átt velgengni að fagna í kvikmyn-dum og líkur til, að hún verði stjarna. Hún er mjög fögur kona, og leikur nú undir nafninu Marilyn Monroe“. m. f móður stað Þegar Norma Jean var orðin lil ára, 1937, efndi Grace frænka loforð sitt og frelsaði hana úr munaðarleysingjahælinu. Hún kom að sækja hana einn dag síðdegis. Hún fór með hana í fomfálegt hús á svæðinu milli Santa Monica ög Culver City, þar sem bjó frænka Grace, Ana Lower, piparmey, 62 ára að aldri, og Norma Jean kallaði hana alltaf fræn-ku. Hún heldur því fram, að Ana hafi haft mest og varan- legust áhrif á sig, allra manna, i uppvextinum, enda hlustaði hún ekki einungis á dagdrauma telpunnar, heldur hafði líka trú á fegurð hennar og gáfum, og þóttist viss um, að Norma Jean mundi komast það, sem hún ætl- aði sér. Ana frænka trúi ekki á raun- veruleik lasleika, veikinda, mót- lætis, mistaka eða d-auða. En hún trúði á óendanleik sálarstyrksins til að framkvæma hvað það, sem hver setti sér. Atvinna hennar var huglækningar, og hún lækn- aði sjúka með handaálagningu og fyrirbænum. „Guð er í öllu og Guð er kærleikur". Norma Jean, sem var nú tekin að dýrka sína eígin spegilmynd og hafði sökkt sér í alls konar drauma sem hún sjálf bjó til skildi þetta þannig, að guð elskaði hana og mundi áreiðanlega hjálpa henni til að verða kvikmyndastjarna, en það hafði verið efst í huga hennar allt frá því að hún heyrði móður sína og Grace frænfeu minnast á slíkt fyrst. Hverjum þeim, sem „móður- sýkiaðferðin" hefur orðið hjálpar hella til að komast af í fjandsam legu umhverfi, geta kenningar Shristan Science komið að gagni á annan hátt, jafnvel þótt þær nægi ekki til að lækna sjúkdóma. Sá ,,móðursjúki“ hallast oft að þeirri trú, að veruleikinn kring um hann, sé það, sem hann gerir hann að í huga sínum. Og einmitt þessi móðursýki- eiginleiki er nauðsynlegur hverj- um leikara. Leikkona getur kom- izt af án tilfinninganæmi, án feg- urðar, án sterkrar raddar — en hún getur ekki fært áheyrendum sínum ímyndaða reynslu án „móðursýki“-gáfunnar. En þar sem „móðursýki" þýðir venjulega það, að mannvera sleppi töfeum á sjálfri sér skal það tekið fram, að hvað Marilyn snertir, á ég alls ekki við það, að hún fái eða hafi nofckurntíma fengið köst og sleppt sér. Því fer svo mjög fjarri, að sjálfsstjórn hennar er augljós jafnvel þeim, sem þekkja hana lítið. En það, sem ég á við, er eiginleiki í skapgerðinni, sem er nauðsynlegur, ekki einungis leikurum heldur og öllum ska-p- andi mönnum, sem fjalla um til- finningar skáldskaparpersóna. Það var þessi gáfa, sem gerði Tilstofry það kleift á fullorðins- aldri að setja sjálfan sig í spor Natasha, unglingsins, og finna fyrstu ástarhræringarnar. Það er þessi gáfa, sem fær leikkonuna til að rétta þannig út höndina eft- ir vatnsglasi, að áheyreradum finnist h-ún hljóti að vera að fram komin af þorsta, enda þótt hún hafi ef til vill d-rufekið mörg glös af vatni áður en hún kom inn á sviðið. Eg spurði einusinni Lee Stras- Fyrsta giftingin berg, einn helzta fræðimann una leiklist nú á tímum, hvaða ei-gin- leika hann teldi leikaranum vera •nauðsynlegastan. Hann svaraði: — Það er hæfileikinn til að láta gervi-hressingarmeðöl verka á sig jafnsterkt og raunveruleg æsimeðöl. Það er að svara óraun verulegum atvi-kum, eins og þau væri raunveruleg. Manni finnst sjálfum þau vera raunveruleg,* og það finnst lei-karanum lífca meðan hann er að leika atriðið.-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.