Morgunblaðið - 29.08.1962, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 29.08.1962, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikndagur 29. ágúst 1962 Gjaldheimtan hefur starf- semi sína um mánaðamót Tekur við gjöldum bæjarbúa til rikissjóðs, borgarsjóðs og sjúkrasamlags UM mánaðamótin næstu verður opnuð hér í borg stofnun, sem hefur l«að hlutverk að annast innheimtu sameiginlegra gjalda til ríkissjóðs, horgarsjóðs Reykjavíkur og Sjúkrasamlags Reykjavíkur. Nefnist stofnun þessi Gjaldheimtan í Reykjavík Og verður aðsetur hennar í húsi Sjúkrasamlags Reykjavíkur að Tryggvagötu 28. Stofnunin mun- taka til starfa jafnskjótt og hún fær í hendur gögn sín frá skýrsluvélum, en álagningu skatta og útsvara er nú lokið og skattskráin komin í prentur. Hefur kaupgreiðendum þegar verið send krafa um að halda eftir hluta af launum Starfsfólks síns til greiðslu á þessum sameiginlega skatti. Eins og kunnugt er, samþykkti alþingi á síðastliðnu vori lög um heimild til sameiginlegrar jnnheimtu opinberra gjalda og á grundvelli þessara laga var hinn 26. maí sl. gerður samningur til 5 ára milli rikissjóðs, borgar- sjóðs Reykjavíkur og Sjúkra- samlags Reykjavíkur. í samn- ingi þessum segir, að samnings- aðilar hafi orðið sammála um að koma á fót stofnun til inn- hektól. al Íslundssíld Einkaskeyti til Morgunblaðsins, Nesbyen, 27. ágúst. — Heildar- síldveiði Norðmanna, þ.e. sú síld sem þegar hefur verið flufct til Noregs af fslandsmiðum á þessu sumri, náði 1.430.000 hektólítrum sl, Iaugardag. Síldveiðarnar við fsland hætfca nú renn, en þó verður veitt í salt út september. Magnið i ár er minna en á sama tíma í fyrra. Cæzlufangi slapp og náðist AÐFARANÓTT sunnudags slapp gæzlufangi út á Litla Hrauni, fiór niður á Stokkseyri og tók þar traustataki fólksbíl. Um kl. 5 um nóttina mætti vegaeftirlitið þessum bíl, sem tilkynnt hafði verið að væri horfinn, undir Ing ólfsfjalli. Og kom í ljós seinna að í honum var Jóhann Víglundsson gæzlufangi. Það tók vegaeftirlitsmennina nokkra stund að snúa við og dró sundur með bílunum á meðan, og var stoln: bíllinn mannlaus móts við Sandvík. Fann lögregl an á Selfossi fangann skömmu seinna í mýrinni skammt frá. heimtu þinggjalda, er innheimt hafa verið samkvæmt skatt- reikningi, borgargjalda og sjúkrasamlagsgjalda. Fasteignagjöld verða inn- heimt sér í lagi á sama hátt og verið hefur og verður fasteigna- eigendum sendur sérstakur fast- eignagjaldseðill á gjalddaga 15. jan. nk. Með þessu nýja fyrirkomu- lagi fá gjaldendur sendan sér- stakan gjaldareikning, svonefnd- an gjaldheimtuseðil, þar sem sundurliðuð eru þau gjöld, er þeim ber að greiða á árinu 1962, tiltekin fjárhæð þeirra samtals og til frádráttar sú fjárhæð, sem gjaldendur kunna að hafa greitt fyrirfram upp í gjöld á- lagningarársins, þar með talin sjúkrasamlagsiðgjöld 1962. Sérstök ástæða er til að vekja athygli á því, að það, sem talið er fyrirframgreiðsla á gjald- heimtuseðli er sú fjárhæð, er gjaldendur hafa greitt í þing- gjöld, útsvör og sjúkrasamlags- gjöld samtals á árinu 1962, fram að 16. ágúst. Greiðslur er kunna að hafa verið inntar af hendi frá þeim degi og fram að opnun Gjaldheimtunnar, verða færðar inn á reikning gjaldenda í Gj aldheimtunni. Það, sem ógreitt er af sam- eiginlegum gjöldum yfirstand- andi árs, ber að greiða með fjórum jöfnum afborgunum, 1. september, 1. október, 1. nóv- ember og 1. desember. Um sjúkrasamlagsgjöld sér- staklega er rétt að taka það fram, að á innheimtu þeirra verður nú sú breyting, auk þess, er áður hefur verið getið, að iðgjald hjóna er nú krafið í einu lagi. Fram að næstu ára- mótum geta menn notað sam- lagsbækur sínar sem skilríki gagnvart læknum og lyfjabúð- um, en þá mun Sjúkrasamlagið tilkynna nánar um útgáfu nýrra persónuskilríkj a. Eftirstöðvar hinna ýmsu gjalda frá 1961 og eldri, tekur Gjaldheimtan einnig að sér að innheimta og ber þeim, sem þannig eru í vanskilum að gera skil hjá Gjaldheimtunni, hvort sem um er að ræða ógreidd þinggjöld, útsvör eða sjúkra- samlagsggjöld. Kostir hins nýja innheimtu- fyrirkomulags eru einkum fólgn ir í því, að verulegur sparnaður í rekstri mun með tímanum fást hjá þeim aðilum, er áður hafa annazt innheimtu hinna ýmsu gjalda, vegna fækkunar starfsfólks og aukinnar véla- notkunar. Einnig verður gjald- endum mikið hagræði í því að geta greitt þau gjöld á einum stað nú, sem áður þurfti að fara á þrjá staði til þess að greiða. Þá er og mikið hagræði í því fyrir kaupgreiðendur, sem skyldugir eru til þess að halda eftir af launum starfsmanna sinna, að eiga nú aðeins von á einni slíkri kröfu í stað þriggja áður. Gjaldheimtustjóri hinnar nýju stofnunar verður Guðmundur Vignir Jósefsson. Starfsmenn stofnunarinnar, sem verða til að byrja með 26, auk 4 fulltrúa borgarfógeta, munu flestir hafa unnið áður í skrifstofu borgar- gjaldkera við innheimtu út- svara, en nokkrir þeirra hafa áð- ur unnið í skrifstofu tollstjóra eða hjá Sjúkrasamlagi Reykja- víkur við innheimtu gjalda þar. / 100 km. gönguför AKRANESI, 27. ágúst — Með þanin brjóst og stælta vöðva drukku þeir útiloftið 1 löngum fceytgum, sáu sólina setjast og sáu sólina koma upp. Og þvílík dýrð að hlusta á raddir nátt- úrunnar. Þetta voru tveir reyfloviskir 16 ára skátar, Grettir Gunn- laugsson og Ingibergur Sigur- jónsson. Lögðu þeir af stað úr Reykjavík laust eftir kl. 8 á Töstudagskvöld í 100 kim. göngu- för á leið fyrir Hvalfjörð til Akraness. Seinasta spölinn, fram yfir 100 km. fóru þeir í bíl. Hingað til Akraness komu þeir kl. tæplega 7 á laugardagskvöld- ið. 100 km. hafa þeir gengið á röskum 22 klst. eða rúmlega hálfan fimímta km. á klukku- stund. Þessa mynd af reyk vísku gönga görpunum tók Akranesskátinn Magnús Oddsson. — Oddup Norðmenn reyna Færeyjaflug Einkaskeyti til Morgunblaðsins, ÞórShöfn Færeyjum — 27. ágúst. BJÖRGUMFLY í Noregi hefur ákveðið að fara í reynsluflugferð til Færeyja í september, segir i viðtali starfsmanna flugfélags- ins -iorska við útvarpið í Fær- eyjum. . j Engir farþegar verða í reynslu- ferðinni. ■Jc Óviðunandi ástand Nýlega birtist fregn í blöð- unum um að fjarlægja hefði þurft geðveikan mann og vegna rúmleysis á sjúkrahúsi, þurft að geyma hann í Steinin- um fyrst. Þetta var tilefni þess að móðir ein kom hér til min, í þeim tilgangi að vekja at- hygli á því að það er ekki að- eins - þau skipti, þegar það hendir þetta fólk að gera eitt- hvað sem kemur í blöðunum, að þetta er óviðunandi, heldur er það stöðugt ástand, sem mörg heimili búa við. Kona þessi á sjálf barn, sem þannig er ástatt fyrir og þekk- ir vandræðin. — Þegar illa horfir er talað við lækni, seg- ir hún, sem ekki hefur annað ráð að gef a manni en að hringja á mæturlækninn til að gefa sjúklingnum sprautu, svo hann geti sofið. Þetta gengur kannski í viku, alltaf kemur nýr næturlæknir og gef ur sprautu. Jafnvel það er erf- iðleikum bundið, því sjúkling- urinn vill ekki slíkt, telur sig heilbrigðan. Loks gefast nætur læknar líka upp og segja að þetta sé ekki í sínum verka- hring og með hverju þeir eigi að sprauta? Og ef sjúklingur- inn hefur ekki getað sofið tím- unum saman, þá eru kannski engin önnur úrræði en að senda hann til bráðabirgða í tugt- húsið. Yfirlæknirinn á Kleppi vill gjarnan taka við honum, en getur ekki. Það sjá allir hve mikil læknishjálp er í Steinin- um, einmitt á þeirri stundu, sem sjúklingurinn þarfnast hennar mest með. ^ Allt innan fjögfurra veggja Konan vill taka fram, að henni er fullkunnugt um að vel íari um sjúklinga á Klepps spítalanum og að þeir íá par góðan bata. Ln því hryggi- legra sé að þeir komist eKki þangað strax og þeir þur-fa þess með, eða áður en þeir eru kannski orðnir meira eða minna ruglaðir. Eins sé það með þessa veiki, að ekki er aðeins hætta á að sjúklingarnir valdi tjóni á sjálf um sér og sínum nánustu, held- ur er einnig sífelld hætta á að þeir skaði nágrannana eða eyðileggi, geta jafnvel kveikt í. Slíkt fer allt fram innan veggja heimilisins og eins lít- ið áberandi og hægt er, en heimilisfólk hlýtur að verða taugaveiklað til lengdar og þannig smitar þetta út frá sér.' Annars sagði konan, að þetta væri svo mikil sergarsaga að varla væri von að aðrir skildu það. En það væri svo knýjandi vandamál að útvega sjúkra- rými fyrir geðveikt fólk, að erfitt væri að sjá að meira lægi á nokkru öðru. Gott hvað snýr að Reykjalundi Eins þyrfti Kleppsspítalinn að hafa eitthvað svipað og Vífilsstaðir hafa í Reykja- lundi, stað þar sem sjúkling- arnir eru undir eftirliti fyrst eftir að þeir útskrifast, þar sem þeir vinna stuttan tíma á dag, fá reglulegan svefn og er gætt, ef þeir skyldu geta feng- ið heilsu á ný. Meðan þeir lenda úti í lífinu með hálf- karaða lækningu, er ekki von að vel fari. — Þetta fólk á bágt, segir hún. Það er erfitt, enginn lítur til þess. Það verð- ur einmana og leggst í sama dvalann og áður en það fór inn eftir. Sjúkrahúsið getur ekki tekið við því aftur ogþað fær ekki færi til að jafna sig við hentugar kringum stæður-. Öngþveiti ríkir á fjölda heim- ila. Sem sagt, þó þetta komi ekki fram í dagsljósið, nema þegar það hendir einhvern a£ þessum sjúklingum, að gera eitthvað utan veggja heimilis- ins, þá er þetta óviðunandi og brýn nauðsyn að bæta úr, seg- ir móðirin og skorar á viðkom- andi aðila að taka í taumana.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.