Morgunblaðið - 29.08.1962, Qupperneq 20
Fréttasímar Mbl
— eftir loknn —
Erler.dar fréttir: 2-24-85
Innlendat fréttir: 2-24-84
VAXBRUÐAM
Sjá blaðsíðu 8.
196. tbl. — Miðvikudagur 29. ágúst 1962
Humarbátur
sökk í fyrrinótt
Gúmbátur bjargaði áhöfninni
1 FYRRINÓTT sökk 64 tonna
humarveiðibátur, Stella, frá
Grindavík skyndilega norður af
Eldey. Áhöfnin, fimm manns,
komst í gúmbjörgunarbát og
bjargaðist yfir í annað skip.
Mbl. náði í gaer tali af stýri-
manninum á Stellu, Haulki Krist-
jánssyni í Hafnarfirði. Sagðist
honum svo frá, að bátiurinn hefði
verið staddur á 80 faðma dýpi
10—'15 mílur norður af Eldey
kl. tvö um nóttina þegar mikils
leka varð vart. Skipverjar luku
við að koma humarnum úr fyrsta
holinu fyrir um kl. hálftólf um
kvöldið, en lögðust síðan til
svefns nema vaktmaður. Á hum-
arveiðum þýðir lítt sem ekki að
Tonni af
lifandi
ál stolið
MIÐVIKUDAG í fyrri viku
urðu r..enn, sem starfa við
álaútgerð Jóns Loftssonar hf.
austur í Hvalnesi í Lóni varir
við það, að heilt tonn af ál-
um hafði horfið úr birgt .
fyrirtaekisins. Álarnir voru
geymdir lifandi i kistu, sem
lágu fyrir framan land Hval-
ness.
Benedikt Stefánsson hrepps
L'.jóri í Hvalnesi, tók málið.
iþegar til rannsóknar. Ekkert
ihefur enn upplýstst í málinu,
en ekki er ólíklegt, að hér
(hafi verið um skemmdarverk
að ræða, því að öruggt má
telja, að upp mundi komast,
ef reynt er að selja svo mikið
magn á ekki stærri markaði
en álamarkaðurinn er.
veiða yfir mesta dimmutímann,
svo að venja er að sjómennirnir
leggist til hvíldar á meðan. Kl.
rétt fyrir tvö voru vaktaskipti.
Skömmu síðar taka vaktmenn-
irnir eftir því, að sjór flæðir af
miklu afii úr lestinni og inn í
vélarrúmið. Var greinlegt, að
allhátt myndi véra orðið í lest-
inni. Skipstjóri, Einar Jónsson,
var nú vakinn og eins þeir, sem
frammi í sváfu. Skipti það eng-
um togum, að svo mikill sjó
flæddi í vélarrúmið, að hátt var
orðið á véliníii eftir stutta stund.
Flugeldi var nú skotið á loft og
gúmbáturinn blásinn út. Ekki
vannst tími til þess að kalla í
talstöðina, enda hæpið, að hlust-
að sé á þessum tíma. Kom það í
ljós síðar, að flugeldurinn sást
frá einum báti, Stafnesi, sem fór
þegar að leita. Stukku skipverj-
ar, fimm að tölu, nú út í gúm-
bátinn, og greip skipstjóri um
leið með sér skilrúmsborð (stíu-
fjalir). Var róið með þeim í átt-
ina að næsta skipi. Gott var í
sjóinn og blankalogn. svo að ljós
nærliggjandi humarbáta spegluð-
ust í sjónúm. Þegar klukkuna
vantaði 23 mínútur í þrjú, sökk
Stella. Nokkru síðar kom áhöfn-
in af Stellu að Flóakletti, þar
sem hún fékk forkunnar góðar
móttökur hjá Einari Símonar-
syni skipstjóra og mönnum hans.
Hélt Flóaklettur síðan til lands
og var komin* þangað um kl.
hálfsex í gærmorgun. Að lokum
sagði Haukur, að ekki væri nokk
ur vafi á þvi, að gúmbáturinn
hefði bjargað lífi þeirra Stellu-
manna.
Stella var 64 tonna bátur, smíð
aður árið 1934 á Norðfirði.
Aðalfundur
Aðalfundur „Jörundar“, félags
ungra Sjálfstæðismanna í Austur
Húnavatnssj'slu verður haldinn í
nýja félagsheimilinu á Blöndu-
ósi sunnudaginn 2. sept. n.k. kl.
8 síðdegis.
HÉRAÐSMÓT
jálfstæðismanna
á Siglufirði 1. sept.
HÉRAÐSMÓT Sjálfstæðismanna á Siglufirði verður haldið
næstkomandi laugardag kl. 8,30 e. h.
Einar Ingimundarson, hæj-
arfógeti, og frú Ragnhildur
Helgadóttir, alþingismaður,
flytja ræður.
I»á verður sýndur gaman-
leikurinn „Heimilisfriður“
eftir Georges Courteline, í
þýðingu Árna Guðnasonar,
magisters. Meó hlutverk fara
Ieikararnir Rúrik Haraldsson
og Guðrún Asmundsdóttir.
Ennfremur veróur til skemmtunar einsöngur og tví-
söngur. ' Flytjendur eru óperusöngvararnir Guðmundur
Jónsson og frú Sigurveig Hjaltested, oe undirieik annast
Fritz Weisshappel, píanóleikari.
. Dansleikur verður um kvöldið.
Ragnhildur
Einar
Vb Sfcella í höfn í Grindavik.
6 þús. volta spenna
við flugvélina
Flugmonnunum mikil hætta buin
EINS og skýrt var frá i blað-
inu í gær, rakst ein af kennslu
fiugvélum Flugskólans Þyts á
háspennulínu við Varmaland í
Mosfellssveit sl. mániudag. —
Slifcnaði línan við áreksturinn,
flugvélin hrapaði til jarðar og
kom niður í um 2 m fjarlægð
frá þeim enda hennar, sem lá
á jörðinni með fullri spennu.
Lá linan nokkurn fcima á jörð-
innii áður en Rafmagnsveitan
fékk fregnir af slysinu og tók
línuna úr sambandi.
Blaðið sneri sér í gær til
Indriða Einarssonar, verk-
fræðings hjá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur og spurðist fyrir
um hve mikil hætta hefði
stafað af línunni, þar sem hún
lá slitin á jörðinni með fullri
spennu.
Indriði sagði, að spennan á
línunni væri 6 þús. volt, en
svo há spenna væri lífshættu-
leg. Hefði þeim, sem komu
of nálægt línunni á meðan að
hún lá á jörðinni með spennu,
verið mikil hætta búin, sér-
staklega ef þeir hefðu snert
X
hlut, sem var í leiðandi sam-
bandi við línuna eða línuna
sjálfa. Flugmönnunum hefði
verið mikill háski búinn, ef
sá endi línunnar, sem spenna
var á 'hefði snert flugvélina
þar sem hún lá á jörðinni.
Einnig hefði getað kviknað í
flugvélinni, ef neisti frá lín-
unni hefði komizt í benzínið.
Indriði sagðist ekki vita hve
lengi línan hefði legið slitin
á jörðinni áður en hún var
tekin úr sambandi. Sam-
Frh. á bls. 19
Vestur-Þjóðverjar
kaupa Suðurlandssíld
í GÆR voru undirritaðir samning þús. tunnur. en í fyrra, þegar
ar iim cnln á Vn*ÍQ fnnrmm nf z- 'i j OiK
ar úm sölu á 25 þús. tunnum af
flakaðri Suðurlandssíld til V-
f>ýzkalands.
I>á er talið líklegt, að samning
ar takizt við Sovétríkin um sölu
á 20 þúsund tunnum af saltsíld.
Alls hefur nú verið saltað í 340
Hreyfill bHur
í flugvél yfir
Akureyri
Akureyri, 28. ágúst
U M kl. Mlftíu í kvöld var Snæ
faxi, leiguflugvél Flugfélags ís-
lands af gerðinni DC-4, að hefja
sig til flugs á Akureyri. Þegar
hún var nýkomin á loft, fór einn
hrey-illinn af fjórum skyndilega
úr sambandi. FLugstjórinn, Henn
ing j:.rnason lenti flugvélinni
þegar aftur. Tókst lendingin vel,.
og hlekktist engum nelit á.
Slökkvilið.óíll beið til taks á
flugvellinum. Fáir fariþegar voru
með flugvélinni.
Verið er að athuga bilunina,
en ekki er vitað, hvort unnt reyn
ist að gera við bilunina hér
nyrðra i skjóty bragðL — G.G.
mesta síldarsöltunarár var um 26
ára skeið, var alls saltað í 363
þúsund tunnur. Allt magnið er
þegar selt.
Nýtt kjöt
í dag
NÝTT kindakjöt kemur á
markaðinn í dag. 1 gær var
slátrað í Reykjavík, Hafnar-
firði, Borgarnesi og eitthvað
fyrir ausltan fjalL Ekki er
ákveðið enn, hve miklu magni
verður slátrað, en eftirspurn
mun ráða þvL
HERAÐ8MÓT
Sjálfstæðismanna
á Dalvík 2. september
HÉRAÐSMÓT Sjálfstæðismanna á Dalvík, Eyjafjarð-
arsýslu, verður haldið sunnudaginn 2. september næst-
komandi klukkan 9 eftir hádegi.
Ingólfur Jónsson, landbún-
aðarráðherra, og Jónas G.
Rafnar, alþingismaður, flytja
ræður.
Þá verður sýndur gaman-
leikurinn „Mótlætið göfgar“
eftir Leonard White, í þýð-
ingu Vals Gíslasonar leikara.
— Með hlutverk fara leik-
ararnir Valur Gíslason og
Helga Valtýsdóttir.
Ennfremur verður til skemmtunar einsöngur og tvísöng-
ur. — Fiyijendur eru Kristinn Hallsson, óperusöngvari,
Þórunn Ólafsdóttir, söngkona, og Skúli Halldwast>'\ píanó-
leikari. — Dansleikur verður um kvöldið.
Jónas
Ingólfur