Morgunblaðið - 25.09.1962, Side 8
8
MOTtcrrniTtL AÐIÐ
Þriðjudagur 25. sept. 1962
Friðrik V. Ólafsson
Skólastjóri — Minning
HINN 19. b m. andaðist Friðrik
V. Ólafsson, skólastjóri. Með hon-
um er fallinn í valinn einn af
merkustu mönnum sjómanna-
stéttarinnar. Hann var fæddur 19.
" febrúar 1895 á Vopnafirði, sonur
Ólafs F. Davíðssonar, verzlunar-
stjóra þar og síðar á ísafirði, og
feonu hans Stefaníu Þorvarðar-
dóttur. Friðrit fluttist ungur með
foreldrum sinum, fyrst til Reykja
víkur, þar sem faðir hans vann
í 2 ár sem bókari við Landsbank-
ann, og síðan til ísafjarðar.
Um 15 ára aldur hóf Friðrik
sjómennsku og stundaði hana á
ýmsum skjpum, en síðan lá leið-
in í Stýrimannaskólanum, eins og
þá var háttur ungra og framtaks-
samra manna, sem ætluðu að
gera sjómennskuna að ævistarfi.
Hann lauk hinu meira stýri-
mannaprófi, eins og farmanna-
prófið hét þá, árið 1914, með
mjög hárri einkunn. Stundaði
hann eftir það sjómennsku áfram
og varð fljótlega yfirmaður. Hann
var 1. stýrimaður á gamla Þór,
fyrsta íslenzka varðskipinu, er
hann kom tii landsins árið 1920.
Árið 1925 lauk Friðrik prófi
frá Reserve Kadetskolen í Kaup-,
mannahöfn. Eftir það var hann
skipherra á varðskipum ríkisins,
fyrst á garnla Þór til 1929, en þá
fór hann aftur utan til náms, nú
við Sökort Arkivet í Kaupmanna
höfn, op’ þaðan lauk hann prófi
1931. Eftir það varð hann aftur
skipherra á varðskipum ríkisins,
síðast á Ægi Jafnframt var hon-
um falin forstaða sjómælinganna
1932 og var áfram ráðgefandi um
þau mál, eftir að hann tók við
skólastjórn.
Friðrik Ólafsson var því einn
menntaðasti rnaður í sjómanna-
stétt, og þegar Páll Halldórsson,
skólastjóri Stýrimannaskólans, lét
af skólastjorn árið 1937, fyrir ald
urs sakir, var Friðriki falin skóla
stjórnin, og því starfi gegndi
hann til dauðadags, óslitið í 25
ár.
Það var mikið lárt fyrir stýri-
mannaskólann að fá að njóta
starfskrafta Friðriks Ólafssonar.
Menntun hans og frábærir hæfi-
leikar til að stjórna nutu sín
einkar vel á þeim vettvangi! Á
fyrstu skólastjóraárum hans var
skólinn til húsa í gamla stýri-
mannaskólahúsinu að Öldugötu
23, en haustið 1945 fluttist hann
í hinn nýbyggða og myndárlega
sjómannaskóia á Vatnsgeymis-
hæð. Friðrik var frá upphafi for-
maður byggingarnefndar hins
nýja skólanúss, og á honum
mæddi því mest um allar fram-
kvæmdir.
Hann fyigdist vel með öllum
nýjungum á sviði siglingamála,-
og að frumkvæði hans hafa orðið
ýmsar breybngar á kennslutil-
högun og námsefni til samræm-
ingar við hina nýju siglinga-
tækni. Hanri samdi kennslubók í
siglingafræði 1947 og viðauka við
hana síðar. .
Um skóiastjórn Friðriks þarf
ekki að fjölyrða. Þar tala verkin
sjálf. Allt hans starf einkenndist i
af einstakri nákvæmni og reglu-
semi. Þar var ekki kastað hönd ;
um til 'neins. Kennari var hann |
frábær, og get ég dæmt um það j
af eigin reynslu, sem gamall |
nemandi hans. Hjá því varð ekki
komizt að læra í tímum hjá hon-
um, enda leiðst engum að sýna
þar tómlæti gagnvart náminu. En
þótt Friðrik væri strangur í
kennslustundum og skólastjórn
sinni, bar hann hag nemenda
sinna mjög fyrir brjósti og mér
er kunnugt um, að margir þeirra
sóttu til hans holl ráð og styrk,
þegar erfiðieikar steðjuðu að.
Hann fylgdist einnig með starfi
þeirra eftir að skólavist lauk og
gladdist inníiega, þegar vel gekk
hjá þeim. Hann hvatti nemend-
urna til regiusemi og trúmennsku
í starfi og Jagði ávallt ríka á-
herzlu á, hversu mikil ábyrgð
fylgdi starfi þeirra, er þeim yrði
trúað fyrir skipstjórn, og hve al-
varlegar afleiðingar kæruleysi og
mistök í því starfi gætu haft.
Friðrik var mjög vel lesinn
maður og fróður um margt. Sér-
staklega unní hann öllum þjóð-
legum fróðleik. Hann skrifaði
sérlega vandað íslenzkt mál.
Það lætur að líkum, að manni
eins og Friðriki Ólafssyni væru
falin ýmis trúnaðarstöi f. Haun
var forseti slysavarnafélagsins
1937—1940 og í stjórn þess félags
í 25 ár. Ráðgefandi sérfræðingur
í landhelgisniálum fyrir Hæsta-
rétt frá 1937. í bæjarstjórn fyrir
Sjálfstæðisflokkinn. Hins gætti
hann þó ávailt að taka ekki að sér
önnur trúnaðarstörf en þau, sem
hann gat annað, án þess, að skóla
stjórnin biði nokkurn hnekki af.
Slíkt hefði verið mjög fjarri skap
lyndi hans.
Ég veit, að ég mæli einnig
fyrir munn samkennara minna,
er ég nú, við leiðarlok, þakka fyr-
ir samstarf á undanförnum árum,
samstarf, sem vissulega hefur ver
ið ánægjulegt og þroskandi fyrir
okkur kennarana. Betri yfirmann
hefði ég ekki getað kosið mér.
Friðrik Ólafsson kvæntist árið
1927 eftirlifandi konu sinni Láru
M. Sigurðardóttur læknis á Sauð
árkróki, Pálssonar, og konu lians
Þóru Gísladóttur, mikilhæfri og
myndarlegn konu. Börn þeirra
eru: Sigurður; Þórunn, gift Ind-
riða G. Þorsteinssyni og Þóra,
gift Jóni Sigurbjörnssyni. Eina
dóttur misstu þau skömmu eftir
fæðingu.
Frú Lára hefur verið manni
sínum ómetanleg stoð í hinu, að
mörgu leyti þreytandi starfi hans,
og með aðdáunarverðu þreki
stímdaði hún hann í hinum erfiðu
veikindum hans, sem hann átti
við að stríða undanfarið. Ég vil
votta henni, börnum hennar og
barnabörnum innilega samúð í
sorg þeirra.
Jónas Sigurðsson.
Verkamenn og loftpressumaður
*
óskast strax.
Sandver sf.
Sími 20122.
T I L S Ö L U
3ja herb. íbúð
*
í fjölbýlishúsi við Sólheima.
Fasteignasala Áka .Takobssonar
og Kristjáns Eiríkssonar
Sölumaður: Ólafur Ásgeirsson
" Laugavegi 27 — Sími 14226.
Orðsending
frá Stjörnuljósmynduni
Eins og að undanförnu önnumst við allar myndatökur
á stofu og í heimahúsum, svo sem: Barna-, passa-,
fjölskyldu-, samkvæmi- og brúðkaup að ógleymdum
blóma og afmælismyndum á svart hvítt og í ekta litum.
Mynd af blómum á svart hvítt er ei mynd á móts við
litmynd. — Passar og prufur afgreitt mjög fljótt,
stækkanir með 7 til 10 daga fyrirvara.
Portrett frá okkur í cotaklitum hafa þegar hlotið
aðdáun, enda eru þær fullkomlega samkeppnisfærar því
bezta á heimsmarkaðinum. Eina stofan er getur boðið
slíka þjónustu hér á landi.
Myndir á svart hvítt eru lÖngu kunnar fyrir lægra
verð, betri og snyrtilegri frágang en víðast annars staðar.
Velkomin með viðfangsefnin. Við leysum þau fljótt,
vel, ódýrt og í ekta litum.
Virðingarfyllst
STJÖRNULJÓSMVNDIR
Flókagötu 45 — Sími 23414.
Elías Hannesson.
LÍTIÐ NOTUÐ
Olíukynditæki Rexoil
(blásari, ketill vatns- og olíutankur) fyrir fjölbýlis-
hús. — Upplýsingar í síma 24673.
Til sölu
70 tonna vélbátur. Báturinn er í góðu ástandi.
ÁRNI GRÉTAR FINNSSON, HDL.
Strandgötu 25, Haínarfirði sími 50771.
Stúlkur óskast
til afgreiðslustarfa í bið- og söluskýli í Reykjavík,
Kópavogi og Hafnarfirði. Þrískiptai vaktir. Yngri
en 20 ára koma ekki til greina. Umsókn — meðmæli
ásamt mynd sendist Mbl. sem fyrst merkt: „Biðsýli
— 7913“.
c^NGfy
SVlMIIMG
KYIMIMIIMG
.Vér höfum opriað sýningu á Singer prjónavélum og saumavélum í Sýningarsalnum
í Kirkjustræti 10.
Á sýningunni starfa fjórar konur og sýna hvernig vélarnar vinna og veita gestum
hvers konar leiðbeningar um meðferð þeirra.
Sýningin verður opin frá klukkan 2—7 e.h. næstu daga.
VELADEILD