Morgunblaðið - 25.09.1962, Page 17

Morgunblaðið - 25.09.1962, Page 17
Þriðjudagur 25. sept. 1962 M O R C V N B L 4 Ð f Ð 17 Björn Rögnvaldsson byggingarmeistari — Minning Fæddur 21. des. 1896 — Dáinn 17. sept. 1962. í dag er jarðsettur Björ.i Rögnvaldsson byggingarmeistari en hann andaðist í Landspítalan- um 17. þ.m. eftir allþunga legu. Björn Rögnvaldsson fæddist 21. dies .1896 að Gröf á Höfðaströnd í Skagafirði. Foreldrar hans voru Rögnvaldur Jónsson og kona hans Jónína Kristín Björnsdóttir, er bjuggu að Gröf. Ungur að árum fór Björn úr foreldrahúsum og lagði leið sína til Reykjavíkur, þar sem hann lauk námi í húsasmiði. Ebki nægði Birni þessi kunnátta í iðn sinni og hélt hann því til Kaup- mannahafnar, þar sem hann divaldi 2-3 ár við framhaldsnám í byggingafræði. Að því búnu sneri hann heim aftur og hóf nú vinnu við húsa- smíðar, og stóð hann þá fyrir smíði fjölda húsa 0g ger5; jafn- tframt uppdrætti að mörgum þeirra. Árið 1936 réðist hann til starfa hjá embætti húsameistara ríkis- intf, og starfaði á vegur.. þess til dauðadags. Starf hans var fólgið í því að hafa eftirlit með bygg- ingum rí'kisins og sjá um við- hald og annast um breytingar á þeim, í samráði vib húsameist- ara ríkisins. Björr tók þarna við mjög eril- sömu og vandasömu starfi, en hann leysti bað af hendi með dugnaði og samvizkusemi. Þá hafði og Björn umsjón með bygg ingu fjölda prestsetra, læknis- bústaða og annarra opinberra bygginga úti á landsbyggðinni. Hann var því á sífeldu ferðalagi é sumrin við þessi störf og var þá oft langur vinnudagur og ekki altaf tekin sumarfríin. Samstarf Björns við yfirboð- ara sína var ávallt traust og gott og fyrir vel unnin störf var hann sæmdur riddarakrossi Fálkaorðunnar. Björn Rögnvaidsson var tví- kvæntuar. Fyrri konu sína, Ingi- t'jörgu Siigr'ði Steingrímsdótt- ur, missti nann eftir fremur stutta sambúð. og eignuðust þau 4 börn, sem öll eru á lífi. Síðari kona nans, Sigríður IHallgrímsdóttir lifir mann sinn ásamt dóttur þejrra. Ssmstarfsmepn Björns hjá em bætti húsameistara ríkisins, senda honum hinztu kveðju með þökk fyrir gott og traust sam- starf liðinna ára, enfremur votta þeir eftirlifandi konu og börn- um innilegustu samúð. B. ísleifssoá. HINN 17. þ.m. andaðist í Lands- spítalanum Björn Rögnvaldsson byggingameistari og fer útför hans fram frá Fossvogskirkju ,í dag. Hann var gkagfirðingur að ætt Fæddur að Gröf á Höfðaströnd hinn 21. des. 1896. Til Reykja- vtíkur fluittjst hann árið 1917 eða 21 árs að aldri og réðist þá til náms í húsasmíði hjá hinum jnerka og þjóðkunna manni Stein grími Guðmundssyni húsasmíða meistara, sem flestir eldri Reyk- víkingar muna eftir. Hann lauk prófi í húsasmíði og jafnframt burtfaraprófi ir Iðnskólanum í Reykjavík árið 1920, og á námsárum sínum tók hann einnig drjúgan þátt í í- þróttamálum. Hann var formað- ur Glímufélagsins Ármanns um nokkurt skeið. Arið 1921 hélt hann til Kaup- mannahafhar til framhaldsxiáms í iðngreien sinni við Tekniske Sel skabs Skole. Alls var hann í 3V2 ár við nám og vinnu í Höfn, en sneri þá aftur heim til íslands. Eftir heimkomuna varð hann fljótt eftirsóttur byggingar- meistari hér í bæ og víðar. Dugnaður og smek'kvísi Björns Rögnvaldssonar skipaði honum fljótt í fremstu röð byggingar- meistara, og var h\nn bvi strax yfirhlaðinn ýmsum trúnaðarstörf um bæði innan sinnar stéttar og utan. Formaður Trésmiðafélags Reykjaví'kur var hann um skeið og' prófdómari við sveinspróf húsasmiða nær 30 ár. Hann gegndi einnig mörgum trúnað- arstörfum fyrir Iðnaðarmanna- fólag Reyikjavíkur. Árið 1936 réðst hann til starfa sem byggingarmeistari hjá Húsa meistara rikisins og starfaði þar óslitið til dauðadags. Jafnframt fyrrnefndu starfi var hann eft- irlitsmaður með opinberum byggingum fyrir Húsameistara- embættið og naut í því starfi, sem öðrum, bæði t austs og vin- áttu. Starfsdagur ham. var lang- ur og erilsamur en bráfct fyrir það var hann fús til að rétta fram hjálparhönd. Fyrir störf sín var hann sæmd ur heiðursmerki hinnar íslenzku Fálkaorðu. Björn heitinn var tvíkvæntur Fyrri kona hans ar Ingibjörg Sigríður Steingrímsdóttir, en hún dó árið 1934, og áttu bau saman börn. Síðari konu sinni, Sigríði Hallgrímsdóttur giftist 'hann árið 1937 og lifir hún mann sinn. í>au áttu saman 1 dóttur. Á heimili Björns var gott £.ð koma, enda heimili hans rómað fyrir myndarskap og gestrisni. Björn heitinn var Ijúfmenni og prúður í allri framgöngu. Hann var dulur í skapi og flíkaði ekki tilfinningum sínum, en þeir sem þekktu hann bezt vissu vel að þar fór góður og heilsteyptur maður sem vildi öllum vel. Og nú er ég kveð þig Björn minn hinztu kveðju, þá þakka ég þér allar samverustundirnar, sem við höfum átt saman og ljúfar endurminningar. Eftirlifandi eiginkonu Björfts, börnum og öðrum ættingjum sendi ér mínar innilegustu sam- úðarkveðjur. Ólafur Pálsson Sendisveinn \ óskast hálfan eða allan daginn frá 1. okt. Smith & INiorland hf. Suðurlandsbraut 4. Skrifstofustúlka Óskum eftir að ráða vana skrifstofustúlku. Enskukunnátta æskileg. Skriflegar um- sóknir með uppl. um menntun og fyrri störf ásamt meðmælum ef fyrir hendi eru sendist í pósthólf 1438 Rvk fyrir 1. okt. næstkomandi. Skrifstofumaður Stórt fyrirtæki hér í bænum óskar eftir reglusömum og duglegum skrifstofumanni. Uppl. um menntun og fyrri störf óskast send Mbl. fyrir fimmtudags- kvölá merkt: „Skrifstofumaður — 3399“. Stúlka óskast til afgreiðslustarfa í veitingasal. HÓTEL TRYGGVASKÁLI Selfossi.N Sendisveinn xViljum ráða röskan og duglegan sendisvein strax. Umsækjendur komi til viðtals í apótekið. INGÓLFS APÓTEK. Skrifstofustúlka Skrifstofustúlka óskast að stóru fyrirtæki í Reykja- vík. Þarf helzt að vera vön vélritun og almennum skrifstofustörfum. Uppl. um menntun, og fyrri störf óskast sendar Mbl. fyrir fimmtudagskvöld merktar: „Skrifstofustúlka — 3400“. Balletskóli Sigríðar Ármann KENNSLA HEFST I BYRJUN OKTÓBER. INNRITUN OG UPPLÝSINGAR í SÍMA 3-21-53 kl. 2 — 6 dag- lega. Sigríður Ármann. AUGLVSIIMGAR ÚTSTILLIIMGAR SILKIPREMT BÓKAKAPUR TEIKMIMGAR BÍÓAUGLVSIMGAR TJARNARGÖTI) 3 SÍMI 18400

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.