Morgunblaðið - 04.10.1962, Qupperneq 22
22
MORGVNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 4. okt. 1962
Gód ferð
Þróttar
MEÐAL farþega me3 Gulltfosisi
eru 26 Þróttar -mieiMi sem eru
að koaua úx keppnisför í Skot-
landi. Léku þeir tvo leiki þar
gegn Celtic B-liði og töpuðu 10-1
og síðan við lið fná Glasgow
Rangers og töpuðu 2-1.
Fararstjórinn Haraldur Snorra
son sagði í símtali í gærkvöldi,
að förin hefði gengið vel, verdð
ánægjuleg en nokkuð erfið.
Aðspurður um ólæti og lög-
reglumál sem nokkur blöð haifa
skýrt frá eftir skozku blaði, sagði
Framhald á bls. 23.
Strákar heiðraðir
FYRSTA viðurkenningin —
fyrsta afreksmerkið — hefur
löngum verið kærkomnast
hjá þeim sem íþróttir stunda
sem keppnisgrein. Það hefur
því verið hátíðleg stunð fyr-
ir þessa 16 ungu Akurnes-
inga að hlaupa inn á leik-
vanginn sl. laugardag eftir að
„stóru strákarnir“ í KR og
frá Akranesi höfðu gert jafn-
tefli. Og til þeirra gekk form.
KSl, Björgvin Schram og af-
henti þeim hæfnismerki fyrir
knattþrautir.
Strákarnir voru 16 talsins
og hafa unnið vel og dyggi-
lega til hæfnismerkja. —
Hæfnismerkin hafa vakið á-
huga og æfingahug hjá tug-
um eða hundruðum drengja
og á næstu leikjum verða
drengjum úr Fram, KR og
Val um 20 frá hverju félagi
afhent þau merki er þeir
hafa unnið til.
Það er mikill ávöxtur af
þessu unglingastarfi KSÍ,
enda margir sem innt hafa
ósérplægt starf af höndum.
Litli drengurinn á minni
myndinni var. sá minnsti í
hópnum. Kannski er þetta
íslandsmeistari Akraness í
framtíðinni, kannski lands-
liðsmaður. Allt getur skeð
með góðri æfingu og hæfnis-
próf af lægstu gráðu er spor
í áttina.
(Myndir: Sv. Þormóðsson).
Fékk klatifamark en lið
hans vann 3:2
ÞAÐ var glaðlegur Helgi
Daníelsson, sem kom í sím-
ann er við hringdum hann
upp í Glasgow í gærkvöld, en
þá lék hann sinn annan
reynsluleik með varaliði
Motherwell. Nú gekk þetta
betur. Lið Helga, Mother-
well, vann Third Lanark með
3 gegn 2.
— En ég er ekki ánægður
með frammistöðu mína,
sagði Helgi. Síðara markið
var bölvað klaufamark og
þurfti ekki að koma. Það var
keppt í flóðljósum og þetta
er í fyrsta sinn sem ég reyni
slíkt og ég kann engan veg-
inn við það — að minnsta
kosti ekki ennþá.
★ Betra gengi
Fyrir liðið í heild gekk leikur-
inn miklu betur, hélt Helgi
áfram. Það voru mjög sæmilegir
kaflar í leiknum af okkar hálfu.
Við vorum mun meir í sókn og
það var ekki mikið að gera hjá
mér. Liðið var talsvert breytt frá
fyrri leiknum og var nú allt ann-
að og betra. Það var m. a. verið
að prófa einn nýjan, 16 ára gaml-
an, á hægri kanti. Hann stóðst
prófið mjög vel og hefur undir-
ritað samning við Motherwell
sem áhugamaður. Hann er lítill
naggur, — þeir vilja hafa kant-
mennina litla og fljóta — og lék
mjög skemmtilega.
ic Atvinnumennska
— Hefur nokkuð samizt um
þín mál?
— Nei og einnig lítið verið
um þau rætt. Ég ræddi aðeins
við framkvæmdastjórann í
gær og fékk dálítið skýrari
línur um ætlun hans. Hann
sagði, eins og ég vissi, að þeir
hefðu ágætan markvörð. En
þá vantar varamarkvörð sem
einnig léki fast í varaliðinu en
gripi svo í með A-liðinu ef á
þyrfti að halda. Að slíkum
manni eru þeir að leita.
— Og hefur þú ekki áhuga
á því?
— Ég hef ekki hugsað málið
til enda. Það er svo ungt að
árum varaliðið hér að ég veit
ekki hvað segja skal ....
Það verður að hugsa málið
nánar.
Fleiri reynsluleikir?
— Það verður leikur næst
gegn Celtic í næstu viku.
— Verður þú með þá?
— Það má vel vera. En ég
fer nú að hugsa til heimferðar
þar sem reynslutímanum er
að verða Jokið, sagði Helgi.
Frakkland —
England 1:1
FRAKKLAND og England skildu
jöfn í knattspyrnukappleik í gær
kvöldi sem fram fór í Sheffield.
Skoraði hvort lið 1 mark.
Frakkar SKoruðu á 9. mín. fyrri
hálfleiks, er Kopa sendi vel til
Goujon sem skoraði af 15 m. færi.
Englendingar jöfnuðu úr víta-
spyrnu á 12. mín. síð. hálfleiks.
Leikurinn var liður í Evrópu-
keppni landsliða (þeirri sem ís-
land og írland léku saman í).
Helga Dan var illa
vift flóðljósin í gær
Þórólfur frá
í 4—6 vikur
IÞÓRÓLFUR Beck meiddist
illa í síðasta leik sínum með
St. Mirren. Meiðslin voru
um ökla og var Þórólfur
draghaltur allan leikinn og
haltraði í útherjastöðu.
Gerðist þetta í keppni við
' Falkirk og St. Mirren tapaði
leiknum með 4 gegn 2.
Helgi Daníelsson sagði
okkur þessi tíðindi í simtali
í gærkvöldi og sagðist hafa
' lesið í blöðunum að læknar
hefðu látið svo um mælt, að
Þórólfur yrði ekki leikfær 1
fyrr en eftir 4—6 vikur. Þór-
ólf hafði Helgi ekki hitt, en
rætt var allmikið um meiðsli
hans í blöðunum og sagt að
allur máttur hefði verið úr
sókn SL Mirren eftir að
Þórólfur meiddist.
Falkirk er lélegt lið um
þessar mundir sagði Helgi J
og Ieitt fyrir Mirren að 1
tapa fynr þeim. Fyrir 1
nokkru burstaði Motherwell <
þá með 9 gegn 1. \
Flemming
IMielsen rek-
inn af velli
D ö N S K U atvinnumönnunum
nafnkunnu Harald Nielsen og
Flemming Nielsen vegnar nú vel
á ítalíu. Bologna, lið Haraldar,
hefur forystu í ítölsku deildinni
eftir 3 umferðir með 6 stig. Um
helgina vann liðið Palermo með
4—0 og skoraði Haraldur tvö
markanna.
Flemming leikur með Atlanta.
Um helgina heimsótti liðið Mil-
an til Milano og varð jafntefli
0—0. Þótti það nokkur sigur fyr-
ir Atlanta. Leikurinn varð að
hreinum slagsmálum og var
þremur vísað af leikvelli, mið-
herja og innherja Milan og
Flemming Nielsen í Atlantalið-
inu.
Æiinejar
MÁNUDAGINN 1. október s.l.
Ihiófst æfngax hjá judo-deild Ár-
manns í íþróttaihúsi Jóns Þor-
steinsisonar, Lindargötu 7. önnur
æfing er í kvöld.
Aðstaða til æfinga er nú mun
betri en verið hefur, þar sem
deildin hefur fengið stóra salinn
í íþróttaihúsi Jóns til að æfa í
og á ágætum tíma, kl. 8—10 á
mánudögum og fimmtudögum.
Áríðandi er að þeir, sem ætla
að æfa judo í vetur, mæti sem
fynst, því að hugsanlegt er, að
takmiarka verði þátttökuna. En
ailir geta iðkað judo sér til gagns
og ánægju, karlar konur og börn,
og margir iðka judo með góðum
árangri fram á gamals aldur þótt
þeir hafi ekki byrjað æfingar
fyrr en á fimmtugs aldri. Judo
er líka fyrir unga menn spemn-
í JÚDÓ
andi keppnisiþrótt, sem nú verð
ur keppt í á næstu Olympiuleik-
um.
Er bent á það, að mæta a.m.k.
15 mínútum fyrr en æfing hefst,
svo að þeir séu búnir að skipta
um föt á réttum tíma. Mætinga-
tíminn verður því þannig: Karl-
menn mæti kl. 7.45 á mánudög-
um og fimmtudögum, en kven-
fóik mæti kl. 8,30 á sömu dög-
um.
Vetrarstarf
Frjálsíþróttamenn Ármanns.
Æfingar verða á þriðjudögum
og fimmtudögum í vetur í húsi
Jóns Þorsteinssonar við Lindar-
götu M. 7—8,