Morgunblaðið - 07.10.1962, Blaðsíða 1
44 síður (I. og II.)
Pompidou
biðst lausnar
Stjórn hans mutn sitja þar til
kosningar hafa farið fram
París, 6. okt.
AP —
GEORGES Pompidou, for-
sætisráðherra Frakklands,
baðst í morgun lausnar fyrir
sig og stjórn sína. De Gaulle
forseti hefur ákveðið að rjúfa
þing og efna til kosninga í
Frakklandi. Forsetinn fór
þess á leit við Pompidou, að
hann og stjórn hans sæti við
viild þar til kosningarnar
hefðu farið fram.
Pompidou lagði lausnarbeiðni
sína fyrir de Gaulle forseta í
Elyseeihöllinni í morg'un. Rædd-
ust þeir við um stund og varð
að samkomulagi að Pompidou og
stjórn hans sætu þar til þing-
kosningar hefðu farið fram í
landinu. Eins og kunnugt er sam-
þykkti franska þingið vantrausts
tiilögu á stjórn Pompidous að-
faranótt föstudagsins. Allir stjórn
málaflokkar Frakklands að flokki
de Gaulles forseta undanskildum
greiddu tillögunni atkvæði.
Eftir að de Gaulie hafði rætt
við Pompidou í morgun kallaði
hann á sinn fund forseta beggja
deilda þingsins, en samkvæmt
stjórnarskrá landsins verður for-
setinn að ræða við þá áður en
hann ákveður að rjúfa þing og
efna til nýrra kosninga.
Sem kumnugt er verður gengið
til þjóðaratkvæðagreiðslu í Frakk
landi 2®. þ.m. um stjóirnarskrár-
breytingu, sem felur það í sér, að
þjóðin öll skuli kjósa forseta, en
ekki þar til nefndir kjörmenn.
De Gaulle beitti sér fyrir því
að atkvæðagreiðsla færi fram
um þetta atriði, en allir flokkar
landsins nema flokkur hans
sjálfs eru á móti því. Teija þeir
atkvæðagreiðsluna brot á stjórn
arskránni og var það vegna henn
ar, sem borin var fram van-
trauststillaga á stjórnina.
Ekki hefur enn verið ákveðið
hvenær þingkosningar fara fram
í Fralkklandi, en nefndir hafa ver
Talið er, að ef breytingin á til-
ið dagarnir 4. og lil, nóv.
högun forsetakosninganna nær
fram að ganga, en fylgismenn de
Gaulle tapi þingkosningunum
verði ástandið í stjórnmálum
Frakklands mjög alvarlegt.
>.••: ' -b .v
■OÍ :i , i*í ;■ ÍSfe- ^ '•»
Þyrla og árabátur, sem tóku þátt í því að ná geimfari Schirra úr sjónum. Geimfarið sést lengst
til hægri og er froskmaður að festa taug við það til þess að hægt væri að lyfta því upp úr
sjónum.
Schirra kom til Hawaii í gær
Mikill mannfjöldi íagnaði honum
U.S. Kearsarge 6. okt (AP).
GEIMFARI Bandaríkjanna —
Walter M. Sohirra — er væriit-
anlegur til Honolulu á Hawaii
í dag og hefur fjöldi manns
safnast saman á Hickam flug-
velli til að fagna honum.
Schirra kemur til Hickam
flugvallar með flugvél frá
flugvélamóðurskipinu „Kears-
arge“, en hanm hefur verið
um borö í skipinu frá þvi að
hann lenti geimfari sínu á
Kyrrahafi sl. fimmtudags-
kvöld. Frá Hawaii heldur
Schirra til Bandaríkjanna og
er gert ráð fyrir að hamii ræði
við fréttamenn í Houston í
Texas á morgun.
Sex aðrir geimfarar Banda-
ríkjanna eru með Schirra um
borð í „Kearsarge“ og hefur
han rætt við þá um geimferð
sína einmig hafa geimfararnir
rætt við forystumenn Mercury
áætlunarinnar um borð í skip-
inu. Schirra er fimmti Banda-
ríkjamaðurinn, sem senidur er
út í geiminn og er talið af
niðurstöðunum af þessum
geimferðum, að Bandaríkja-
menn muni eftir áramótini
senda mann í geimfari 18
hringi umhverfis jörðu.
KRÚSJEFF ÁRNAR HEILLA
Þegar Walter M. Schirra
hafði lokið hinni velheppnuðu
geimferð sinmi sendi Krúsjeff
forsætisráðiherra Sovétríkj-
anna Kennedy Bandaríkjafor-
seta svohljóðandi heillaóska-
skeyti: — Kæri hr. forseti.
Fyrir mína hönd og hinnar
rússnesku þjóðar óska ég yður
til hamingju með hina vel-
velheppnuðu geimferð geim-
farans Schirra. Flytjið honum
vinsamlegast kveðjur mínar
og beztu óskir. — Krúsjeff.
EINSTÆÐ MYND
Eins og skýrt hefur verið
frá lenti Schirra geimfari sínu
mjög nálægt þeim stað, sem
ákveðið hafði verið og tókst
að ná mynd af því á niður-
leið í fallhlíf. Aðrir geimfarar
hafa lent það langt frá fyrir-
fram ákveðnum lendingarstað,
að ljósmyndarar hafa ekki
náð slíkum myndum áður.
A.-þýzkir verðir skjóta
á V.-Beríínarbúa
Sjúkrobifreið fær ekki að koma
honum til aðstoðar
Hófu þeir verkið í kjallara
veitingahúss í V-Berlín og í
mmmmmm%mmmm%mmmm
morgun höfðu þeir lokið við
göngin, sem enduðu í kjallara-
íbúð klæðskera eins í A-Berlín.
Klæðskerinn og kona hans voru
heima, þegar V-Berlínarbúarnir
komu inn 1 íbúð þeirra og flýðu
Framhald á bls. 2.
Berlín, 6. okt. — AP —
Austur-þýzkir verðir við
múrinn í Berlíu skutu í dag
á ungan V-Lj_ n-ja, sem
kominn var til A-Berlin__um
göng, sem grafin höfðu veri„
undir múrinn. V-Þjóðverjinn
særðist og sjúkrabifreið sú,
sem staðsett er við varðstöð-
i an„Charlie“ á bandaríska
svæðinu var send inn í A-
Berlín til þess að athuga
hvort hinn særði maður hefði
notið læknishjálpar. Austur-
þýzku verðirnir hleyptu
sjúkrabifreiðinni inn í A-
Berlín, en stöðvuðu hana
þegar hún átti stutt eftir ó-
farið til staðarins, þar sem
hinn særði maður var.
Rauði krossinn í V-Berlín
-;íi-ði einnig að senda sjúkra-
bi----: manninum til hjálpar, en
hún fékk ekki að fara inn í A-
Berlín og v-þýzk yfirvöld sögðu,
að manninum yrði veitt læknis-
hjálp.
Maðurinn, sem skotið var á,
hafði ásamt átta félögum sínum
unnið að því I þrjár vikur að
grafa göng undir múrinn í
Berlín
jKosið í Sjómanna-
sambandinu
KOSIÐ verður í Sjómanna-
sambandinu á eftirtöldum
stöðum:
Skrifstofu Sjómannafélags
Reykjavíkur, Hverfisg. 8—10,
skrifstofu Sjómannafélags
Hafnarfjarðar, Vesturgötu 10,
skrifstofu Verkalýðsfélags
Akraness, í Ungmennafélags
húsinu Keflavík (uppi) og í
Grindavík í Kvenfélagshús-
inu.
Félagar í Matsveinafélagi
S.S.Í. geta kosið, þar sem kosn
ing fer fram á viðkomandi
stöðum. Eins geta þeir félagar
S.S.f. sem ekki eru staddir í
heimabyggð, en á einhverjum
framangreinum stöðum.
Kosning hefst kl. 10 árdegis
framantaldra staða kosið á
á laugardag og stendur til kl.
22 og á sama tíma á sunnu-
dag og er þá lokið.
Upplýsingasímar A-listans
eru 18192 og 17807 einnig
15020 og 16724.
Sjómenn! Listi ykkar er
A-listi.
Komið snemma á kjörstað
og neytið réttar ykkur
X A-listann.
Þessi mynid var tekin aí
geimfari Schirra á niðurleið
í fallhlíf. Er þetta fyrsta
skipti, sem slík mynd næst
af geimfari.
SKRIFSTOFA skyndihappdrætt-
isins í Sjátfstæðishúsinu verður
opin í dag, sunnudag, kl. 2—6
e.h. — Vinsamlegas* lerið skil
sem allra fvrst