Morgunblaðið - 09.10.1962, Blaðsíða 2
2
MORGUTSBLAÐIÐ
Þriðjudagur 9. október 1962
Bandarísk vopn notuð til
að myrða náms-
menn á Kúbu
I
— segir Dorticos, Kubuforseti, í ræðu á
Allsherjarþinginu — Til uppþota kom og
varð oft að víkja burt áheyrendum
New York, 8. okt. (AP-NTB)
TIL óeirða kom í dag á alls-
herjaþingi SÞ, er Osvaldo
Dorticos Torrado, forseti
Kúbu, hélt þar ræðu. Voru
það kúbanskir flóttamenn,
er sátu á áhorfendapöllum,
sem hófu hróp að forsetan-
um. Kom þetta fyrir nokkr-
um sinnum, en jafnharðan
gripu starfsmenn inn í og
fjarlægðu óróaseggina.
Hins vegar bar svo við, er
Dorticos hafði lokið ræðu
sinni, að nokkrir áhorfenda
brugðu upp flaggi, er á var
ritað: Kennedy — hættu að
hreyfa við Kúbu.
Ræða Dorticos einkenndist
af ásökunum í garð Banda-
ríkjanna, sem hann kvað í
sífellu ógna Kúbu með fyrir-
ætlunum um árás á landið.
Minnti Dorticos á umipæli
rússneska utanríkisráðherr-
ans, Andrei Gromyko, þess
efnis, að sérhver tilraun til
að ráðast á Kúbu myndi jafn-
gilda stríðsyfirlýsingu.
„Við trúum á þessa yfir-
lýsingu og samstöðu Sovét-
ríkjanna með okkur“, sagði
forsetinn. „Ef Bandaríkin
trúa ekki á það, þá skilja þau
ekki hvað felst í stefnufestu“.
Dorticos talaði í 7 stundar-
fjórðunga, og af og til varð
hann að gera hlé á ræðu
sinni vegna mikils lófaklapps
fulltrúa kommúnistaríkjanna
og nokkurra Afríkuríkja.
Forsetinn ásakaði bandarísku
stjórnina fyrir að hafa sýnt SÞ
fyrirlitningu með því að efna
til fundar með utanríkisráðherr-
um S-Ameríkuríkja í Washing-
ton í vikunni, sem leið. Sagði
hann stjórnina, bandaríska þing-
menn og bandarísk blöð leggj-
ast á eitt í þvbað æsa almenning
og aðrar þjóðir til fjandskapar
við Kúbu. Taldi hann Banda-
ríkjamenn lítið hafa lært af inn-
rásinni á Kúbu.
Hann nefndi sem dæmi um
æsingastarfsemi ákveðinna afla
í Bandaríkjunum, að það væri
talinn stríðsundirbúningur að
verzla með síld og þorsk. Sömu-
leiðis væri litið á það sem ógn-
un við öryggi Bandaríkjanna,
þótt reist væri fiskihöfn. Slíkt
væri túlkað sem árásarathöfn
Rússa.
Þá beiddist Dorticos þess af
fundarmönnum, að þeir for-
dæmdu verzlunarbann það, sem
Bandaríkin hefðu lagt á Kúbu.
Næst vék hann að hinum
Stórstígu framförum, sem orðið
hefðu í efnahagsmálum Kúbu.
Nefndi hann sérstaklega, hve
vel hefði gengið að auka sykur-
framleiðsluna. Þá sagði hann
baráttuna gegn menntunarleysi
ganga vel — unnið væri að því
að kenna öllum landsmönnum
að lesa og skrifa. Hins vegar
væru nú á Kúbu andbyltingar-
menn, sem myrtu kennara og
nemendur með bandarískum
yopnum.
Mikið lófaklapp fulltrúa
kommúnistalandanna fylgdi í
kjölfar þessara siðustu orða.
í lok ræðu sinnar sagði Dorti-
cos Kúbumenn óska eftir friði
og þeir væru reiðubúnir að
hefja samninga um betri og
friðsamlegri sambúð, hvenær
sem væri.
Að lokinni ræðu Dorticos tók
Adlai Stevenson, aðalfulltrúi
Bandaríkjanna, til máls í stutta
stund, en forsetinn hafði krafizt
þess af honum, að hann kæmi
fram með einhverjar sannanir
fyrir því, að Bandaríkjamenn
hefðu ekki í hyggju að hertaka
Kúbu.
Stevenson kvaðst harma, að
ræðustóll allsherjarþingsins
hefði verið notaður til svo á-
kafra árása . á Bandaríkin. —
Kvaðst hann síðar mundu svara
ásökunum Dorticos, þó ekki nú,
er umræður hefðu komizt á svo
lágt stig.
í GÆR kom til Reykjavfkur
220 lesta olíuskip, sem Olíu-
félagið hf. hefur keypt frá
Grikklandi til þe&s að annast
m. a. olíuflutninga. til hafna
við Faxaflóa. Sýnir stærri
myndin skipið en sú minni
skipstjórann, Gunnar Magnús-
son, sem sigldi skipinu heim,
og Vilhjálm Jónsson. for-
stjóra Olíufélagsins hf.
(Ljósm. Mbl. Ól. K.M.)
Þing BSRB samþykkti launastiga
kjararáðs óbreyttan
Þingstö'rfum lauk i nótt
22. ÞINGI Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja var fram haldið í
Hagaskóla í Reykjavík á suniMi-
daginn og í gær. Var ráðgert að
þinginu lyki með stjómarkjöri
seint í gærkvöldi eða nótt en
fréttir um kjörið höfðu ekki bor-
izt er Mbl. fór í prentun í niótt.
Á sunnudaginn var m. a. lagt
fram álit allsherjarnefndar um
tryggingar og var það samþykkt.
Þá kom fram tillaga frá menn-
ingarmálanefnd þar sem skorað
var á ríkisstjórn og Alþingi að
taka ekiki afstöðu til aðildar að
Efnahagsbandalagi Evrópu nema
að undangenginni þjóðaratkvæða
greiðslu. Var tillögu þessari vis-
að til Bandalagsstjórnar.
Á sunnudagskvöldið var mest-
megnis rætt um launamál BSRB
Skilaði launamálanefnd áliti og
taldi launastiga kjararáðs BSRB
hæfan. Urðu miklar umræður
um launamálin og lauk svo að
Flugmenn
forfallast
Leiðrétting
NOKKRAR villur hafa slæðst
inn í grein Ólafs Ólafssonar
kristniboða, í sunnudagsblaðinu:
Þar stendur í fyrirsögn „kristni
dóms og kommúnista“ í stað
kristindóms og kommúnisma.
Þar stendur „mjalta" í stað
mjatla. Og ennfremur að starf
evangelískra kristniboða hafi stað
ið í hálfa öld, í stað. hálfa aðra
öld.
INNANLANDSFLUG lá niðri
hjá Fiugfélagi íslands á sunnu-
daginn vegna þess að flugmenn
voru ýmist forfallaðir, fjarver-
andi úr bænun. eða búnir að
fljúga umsamún flugtíma yfir
mánuðinn. 1 gær var innanlands
flug hinsvegar með eðlilegum
hætti.
Það er á almanna vitorði að
forföllin á sunnv.daginn voru
ekki af tilviljun. Þess er skemmst
að minnast að flugmenn fyrir
huguðu að stöðva Grænlandsflug
FÍ vegna uppsagnar eins flug-
stjóranna. Frá þeim aðgerðum
var hinsvegar 'horfið en ekkert
samkomulag mun enn hafa tek-
izt með félagi flugmanna og
forráðamönnum FÍ í máli þessu
Flugfélagið telur sér fyllilega
heimilt að segja manninum upp,
en flugmenn krefjast þess að á-
stæður verði tilgreindar.
Félagsheimili
Ólafsvíkur
endurbætt
FÉLAGSHEIMILI Ólafsvíkur hef
ur verið tekið í notkun, eftir að
fram hafa farið umbætur á hús
inu og settar í það nýlegar kvik-
myndavélar. Húsið var einnig
allt málað og endurbætt.
í tilefni af þessu bauð stjóm
félagsheimilisins hreppsnefnd og
stjórnum félaga hér til kaffi-
samsætis og kvikmyndasýningar
á sunnudag. Ottó Árnason, fram-
kvæmdastjóri félagsheimilisins,
stjórnaði hófinu.
Jóhann Axelsson
prófessor í Gautaborg
DR. JÓHANN Axelsson lífeðlis-
fræðingur húfur nýlega verið
settur prófessor í lífeðlisfræði
við háskólann í Gautaborg. Gegn
ir hann því starfi fyrir sænskan
prófessor, fyrst um sinn til næstu
áramóta.
Jóhann Axelsson lauk doktors-
prófi við Oxfordháskóla i fyrra
og sl. vor tók hann einnig doktors
próf við háskólann í Lundi í
Svílþjóð. Hann er aðeins 31 árs
gamall, sonur Axels Jóhannsson-
ar fiskimatsmanns og konu hans
frú Ingiveigar Þorsteinsdóttur.
Jóhann Axelsson er kvæntur
Inger Jessen, dóttur Viggo
Jessens vélfræðings og frú
Huldu Jessen konu hans. Leggur
frú Inger stund á sálfræðinám.
launastigi kjararáðs var sam-
þykktur óbreyttur um sjöleytið
í gærkvöldi.
Þá voru lagabreytingar rædd-
ar, stóð sú umræða enn á 11.
tímanum í gærkvöldi en síðan
átti að ræða fjárhagsmál BSRB
og að lokum átti að fara fram
stjórnarkjör. Höfðu fregnir ekki
borizt af því er blaðið fór í prent-
un.
Alsír f S.Þ.
ALSÍR varð í dag 109. meðlima-
ríki Sameinuðu þjóðanna. Var
landið tekið í samtökin á fundi
Allsherjarþingisins og var inn-
taka þess samþykkt með lófa-
klappi.
Utaniríkisráðherra Frakka, —
Couve de Murville, — ræddi
frelsisbaráttu Aisír. Hann kvað
það hafa verið sjö erfið ár, en
nú væri sá tími liðinn og von-
andi myndu minninigamar um
hann hverfa, er Frakkland og
Alsir tækju nú saman höndum
um lausn margra, aðkailanidi
verkefna. Lýsti ráðherrann því
yfir, að Frakkland óskaði þess
af heilum hug, að Aisír yrði
sterkt land í framtíðinni. sem
myndi þjóna sjálfstæði, bræðra-
lagi og frelsi.
Lagði de Murville áherzlu á,
að með því að kjósa sjálfstæði
hefði almenningur í Alsír lagt út
á veg framþróunar Og vinsemd-
ar.
„Fæðing nýr ríkis er aldrei auð
veld“, sagði de Murville,“ og sér-
staklega hefur svo verið um
Alsír.“
Þá vék ráðlherrann að þvi, að
Alsír þyrfti ekki aðeins á hjálp
Frakka að halda, heldur allra
þjóða.
Er inntaka landsins hafði farið
fram, tóku fulltrúar Alsír, en
fyrir þeim er Ben Bella, sæti
sín. Forseti þingsins, Zafrullah
Khan, lýsti ánægju sinni yfir að-
ild Alsír, en síðan klappaði þing-
heimur ákaft.
Alþýðusambands-
fulltrúar
KOSNIR hafa verið þessir full-
trúar á Alþýðusambandsþing:
Verkalýðsfélagið Baldur á ísa
firði:
Sverrir Guðmundsson, Sigurð
ur Jóhannsson, Guðmundur Eð
varðsson og Pétur Pétursson.
Sveiniafélag pípulagningar-
manna:
Ólafur M. Pálsson,
Fél. isl. hljóðfæraleikara:
Svavar Gests.
Fél. sýningarmanna 1 kvik-
myndahúsum
Óskor Steirnþórsson.
Fél. garðyrkjumanna:
Steingrímur Benediktsson.
Verkamannafélagið Fram,
Seyðisfirði:
Ársæll Ásgeirsson.
Verkalýðsfélag Tálknafjarðar:
Kristján Hannesson.
/ NA !S hnútar
/ SV50hnútor
X Snjökomo * úii ~ 7 Skúrir EC Þrumur mss ffuUosh'! Hitooht
H Hm$"\
LJjuL
MIKIL hæð er yfir Vestur-
Evrópu og stýrir hlýju lofti
frá Miðjarðarhafslöndum norð
vestur um Bretlandseyjar og
Norðurlönd. Þar er því til-
tölulega hlýtt þessa dagana.
í gær og fyrradag var felli-
bylurinn Daisy við suður-
strönd Nýja-Skotlands Og olli
þar ro'ki, er fór minnkandi.
Á kortinu sést útjaðar lægð-
arinnar, sem breytist strax
og mun verða komin út yfir
Atlantshafið í dag og stefna í
áttina til íslands.