Morgunblaðið - 21.10.1962, Side 15
Sunnudagur 21. október 1962
15
MORGVNBLAÐIÐ
Guðmundur Guðjónsson
heldur söngskemmtun
söng Guðmundar voru mjög lof-
samlegir.
- •
Guðmundur Guðjónsson er
fæddur í Reykjavík árið 1922.
Söngnám hóf hann hjá Guð-
mundi Jónssyni 1951 og hefur
einnig numið hjá Kristni Halls-
syni og Vinzenzo M. Demetz.
• Fjöldi góðra söngvara
og mikil samkeppni
Nokkrir vinir Guðmundar
boðuðu fréttamenn á sinn fund
í gær og skýrðu frá fyrirhuguð-
um hljómleikum. Á efnisskránni
eru óperuaríur eftir Hándel,
Gluck, Mozart, Verdi og Puccini,
lög eftir Jón Leifs, Árna Björns-
son og Sigvalda Kaldalpns og ís-
lenzk þjóðlög í útsetningu Dr.
Róberts A. Ottóssonar og Karls
Ó. Runólfssonar.
Guðmundur er maður afar
hæverskur og kom það fram í
viðtali hans við fréttamenn, að
hann vildi sem minnst gera úr
þeim möguleikum, sem vitað er,
Atli Heimir Sveinsson
Brotning brauðsins kl. 4.
Almenn samkoma kl. 8.30.
Karl Erik Moberg talar og
syngur.
Allir velkomnir!
Hjálpræðisherinn
Kl. 11: Helgunarsamkoma
Kl. 2: Sunnudagaskóli.
Kl. 8.30: Hjálpræðissamkoma.
Majór .Svava Gísladóttir og
majór Ingibjörg Jónsdóttir
stjórna. Heimiliasambandsstjórn
irnar taka þátt í samkomum.
Bræðraborgarstíg 34
Sunnudagaskóli kl. 1.30.
Almenu samkoma kl. 8.30.
Allir velkomnir.
Á MÁNUDAGINN næstkomandi
kl. 7,15 heldur Guðmundur Guð-
jónsson óperusöngvari söng-
skemmtun í Gamla híói við undir
leik Atla Heimis Sveinssonar, en
þeir eru báðir nýkomnir heim
frá námi í Köln í Þýzkalandi.
Guðmundur fór til söngnáms í
nóvember 1961, er honum bauðst
styrkur til farinnar frá þýzka
utanríkisráðuneytinu. Kennari
hans þar var prófessor Clemens
Glettenberg, yfirkennari söng-
deildar tónlistarháskólans í Köln.
Áður hafði Guðmundur þegar
skipað sér traustan sess meðal
íslenzkra söngvara, hann er að
góðu kunnur fyrir söng sinn í
óperunum „Rakarinn frá Sevilla“
eftir Rossini, „Don Pasquale" og
„Ritu“ eftir Donnizetti og óper-
ettunum „Betlistúdentinum“ og
„Sígaunabaróninum“. Auk þess
hefur Guðmundur verið einsöngv
ari með Karlakór Reykjavíkur
um árabil og m. a. farið söngför
xneð kórnum til Bandaríkjanna.
Þegar Guðmundur var í Köln
bauðst honum að syngja annað
aðalhlutverkið — Alfredó, í óper
unni La Traviata eftir Verdi, á
fimmtán ára afmælishátíð óper-
unnar í Árósum. Voru ellefu sýn-
ingur á óperunni og ávallt fullt
hús. Dómar gagnrýnenda um
Fíladelfía
Guðmundur Guðjónsson og ítalska söngkonan Maria Manni
Jottini, sem sungu í Árósum aðalhlutverkin í óperunni La Tra
viata eftir Verdi.
að honum buðust til frama í | framhaldsnám í Þýzkalandi í sex
Þýzkalandi. Hann kvaðst hafa
kynnzt og gert sér ljósa þá
óhemju samkeppni, sem væri um
frama á sviði söngsins, góðir
söngvarar væru á hverju strái og
það tæki Iangan tíma að skapa
sér nafn og verulega góð laun.
Hann kvaðst sjálfur hafa yfir-
stigið byrjunarerfiðleika einu
sinni í lífinu í sinni atvinnugrein
sem trésmiður. Hann væri nú
kvæntur maður með hálf upp-
komin börn í skóla og teldi það
of mikið og áhættusamt rask að
flytjast utan og brjóta sér þar
braut sem söngvari. — Ég veit
ekki, hvað ég myndi gera ef ég
væri enn kornungur, sagði Guð-
mundur, þetta er ekki nema fyrir
unga menn, sem hafa tímann
fyrir sér og hafa ekki um aðra
að hugsa en sjálfa sig.
Hann tók sem dæmi um hina
miklu samkeppni, að af 80 nem
endum í söngdeild skólans
Köln,-væri yfirleitt gert ráð fyrir
að 3—4 yrðu söngvarar, sem eitt
hvað kvæði að.
★ ★ ★
Frá því hefur áður verið sikýrt
hér í blaðinu, að Guðmundur var
ásamt tveim öðrum söngvurum
valinn til að syngja á hljómleik-
um er haldnir voru í lok kennslu
tímabilsins. Voru þeir valdir úr
hópi 22 söngvara er valdir voru
til þátttöku í svonefndri „Meister
kurs“.
Annar söngvaranna, sem á
hljómleikunum sungu, var banda
rískur bariton söngvari William
Pearsson, sem stundað hefur
ár og getið sér gott orð m. a.
fyrir flutning nútimahljómlistar.
Hann hélt til Ítalíu í hljómleika-
ferð að kennslu lokinni í haust.
Guðmundi var, boðið að syngja
fyrir forráðamenn óperunnar í
Mainz og hafði verið óskað eft-
að hann kæmi þangað öðru
sinni, en Guðmundur ákvað
að fara heldur heim og taka til
aftur við iðngrein sína, trésmíð-
ina. Guð ^ dur kvaðst óska eftir
að láta í xjós þakklæti sitt til
þeirra aðila, sem styrktu hann
til utanferðarinnar. Sér hefði
verið mikið gagn og ánægja að
förinni, bæði kennslunni sjálfri
og þeim fjölmörgu óperusýning-
um, sem hann sá.
Hljómleikarnir á mánudaginn
hefjast kl. 7,15 eins og fyrr segir
og verða aðgöngumiðar seldir í
bókaverzl. Lárusar Blöndal og
Sigfúsar Eymundssonar og um
helgina í blaðsöluturni Sigf. Ey
mundssonar.
Við píanóið er að þessu sinni
ungur listamaður Atli Heimir
Sveinssori, sem fæddur er í
Reykjavík 1938. Hann stundaði
nám í píanóleik við Tónlistar-
skólann hjá Rögnvaldi Sigur-
jónssyni og lauk þaðan prófi 1957.
Árið 1959 fór hann til Köln og
hefur þar lagt stund á tónsmíðar,
píanóleik og hljómsveitarstjórn
við tónlistarháskólann þar. f
sumar brautskráðist hann þaðan
með tónsmíðar sem aðalfag.
Samkomur
VEGUR Egggy ALLT
Sjálfvirkar iðnaðarvogir
í öllum stærðum.
AÐALUMBOÐ:
Ólafur Gíslason & Co
Hafnarstræti 10—12 — Sími 18370.
hf
VOGIR! VOGIR!
GETUM VIÐ VEITT
YÐUR FYRIRGREIÐSLU?
Við bjóðum nú íslenzkum verzlunar-
og iðnfyrirtækjum leiðsögn og leið-
beiningar Mr. J. Core, sém dveluir í
Reykjavík þessa dagana, en hann er-
sérfræðingur okkar í Evrópu-
viðskiptum.
Gjörið svo vel að sí*na á skrifstofu
umboðsmanna okkar og fyrirspurnum
yðar verður greiðlega svarað.
W. & T. AVERY LTD.
BIRMINGHAM.
Iðnaðarvogir með færilóðum,
250—500 — 1000 kg.
VIÐGERÐIR & ÞJÓNUSTA:
*
Arni Jónasson
A VERY - verkstæðið
Bjargarstíg 15.