Morgunblaðið - 20.11.1962, Síða 3

Morgunblaðið - 20.11.1962, Síða 3
wiðjudagur 20. nóvember 1962 M O RG t IV BL AÐIÐ <Jr pökkunarsalnum. Fyrsta síldin til Reykjavíkur Hugrún, sem er búin að salta á mörgum vertíðum, saltar í fyrstu tunnuna á þessari ver- tið. FYRSTA SÍLDIN barst til Reykjavíkur í fyrrakvöld. Hún var yfirleitt heldur góð, 17 til 18% að fitumagni, en veidd djúpt úti og bátarnir því lengi í land með hana. Alls munu fimm bátar hafa komið þennan fyrsta dag með samtals um 2950 tunnur. í>etta skiptist síðan niður á fjórar vinnslustöðvar, Anna frá Siglu firði lagði upp 350 tunnur í Sðenska Frystihúsið og 300 tunnur til Bæjarútgerðarinn- ar, sem allt fór til frystingar. Seley lagði upp 1000 tunnur og Helgi Flóventsson 429 tunn ur hjá Júpiter og Marz og Sæ fari frá Stykkishólmi 70 tunn ur hjá Guðmundi Jörundssyni á Kirkjusandi. Loks lagði Skarðsvík upp 801 tunnu, 540 til frystingar og afganginn í salt, hjá ísbirninum. Allir töldu, að þetta væri einhver bezta síldin, átulaus og með þeirri stærstu sem hefur komið á land hér við Suðurland. Fitumagn hennar var milli 17 og 18%. Síldin veiddist djúpt úti, m.a. veiddi Anna síldina um 40 mílur N-NV af Jökli. Þegar Skarðsvík kom inn brugðu fréttamenn Morgun- blaðsins við og tóku á móti bátnum og fylgdu síðan aflan um inn í ísbjörn, þar sem hann var unninn. 120 til 130 mann voru þarna við vinnu og glatt var á hjalla. Starfs- fólkið var krakkar frá 8 ára til áttræðs, eins og ein sölt- unarstúlkan komst að orði. — Látið frá ykkur þetta drasl og komið að hjálpa mér að panna, sagði þessi unga stúlka við Morgunblaðsmenn- .— Snorri, komdu og brýndu fyrir mig, var kallað úr öll- um áttum. Verið er að skipa upp úr Skarðsvík frá Ilellissandi, sem kom með 801 tunnu. Cr söltunarsalnum. 3 STAKSTEIHAR Mikilvægar kafbátaleiðLr. Eins og MbL hefur greint fri gera Rússar sér fulla grein fyrir hemaðarþýðingu íslands. í rúss nezku tímariti sagði í sumar um þetta mál: „Þetta sýnir hina hernaðar- legu þýðingu íslands, sem liggur við mikilvægar samgönguleiðir á sjó, sérstaklega kafbátaleiðir.“ Bjami Benediktsson, dómsmála ráðherra vakti athygli á því á þingi, að Ísland væri þanig stað sett, að aðstaða hér mundi verða ómetanleg fyrir þann, sem ætl- aði sér að nota kafbáta að nýju til eyðileggingar siglingum yfir Atlantshaf, — en Rússar eiga nú gífurlegan kafbátaflota — og eins gæti aðstaða á íslandi ráðið úrslitum um það, hvort hægt væri að stöðva siglingar þessara drápstækja út á út- hafið hér fyrir sunnan landið. Kommúnistar risu upp á aftur- fæturnar með miklum gaura- gangi út af þessum ummælum ráðherrans, þótt það liggi skjal- fest fyrir, að Rússar sjáSfir við- urkenna þessa staðreynd og skýr ingin á því, að kommúnistar hér berjast af alefli gegn því að við leggjum Atlantshafsbandalaginu til aðstöðu hér á landi er auð- vitað líka sú, að þeir vilja um- fram allt rjúfa þennan mikilvæga hlekk í varnarkeðjunni. Þá mundi hemaðaraðstaða Rússa styrkjast á kostnað frjálsra þjóða. Hih óábyrga afstaða. Við umræðurnar á Alþingi að undanförau hefur Efnahags- bandalagsmálið skýrzt, og er gott til þess að vita, þótt hitt beri að harma, að lýðræðisflokkur, sem fram að þessu hefur tekið þátt í umræðum við' stjómar- flokkana um möguleika á því að hafa lýðræðislega samstöðu í þessu mikla máli, skyldi nú kljúfa sig út úr í von um að geta þannig aflað sér fylgis. Hin óábyrga afstaða Framsókn- arflokksins er samt þess eðlis, að allir menn sjá, að þar getur ekki verið um sannfæringu að ræða. Framsóknarmenn segja í fyrsta lagi, að við eigum að bíða með viðræður við bandalagið til þess að sjá, hvemig samningum við önnur ríki reiðir af. En í sama orðinu segja þeir, að við eigum að fara ákveðnar leiðir til að ná tengslum við Efnahags bandalagið, en loka öðrum. Menn hljóta að spyrja, hvers vegna við eigum að bíða og fylgjast með framvindu mála, ef ekki til þess að átta okkur betur á, hvaða leið henti okkur. Þess vegna er fjarstætt að slá föstu, hvað við eigum að gera, en rökstyðja frestun samt með því, að við þurfum að kynnast málunum betur. Þora ekki að tala. Jafnframt segja Framsóknar menn, að við eigum alls ekki að ræða við erlenda aðila til að kynna málsstað okikar, og þeir bæta því við, að það hafi verið rangt að taka þátt í þeim viðræðum, sem þegar hafa átt sér stað. Naumast eru Fram- sóknarmenn svo barnalegir, að þeir haldi, að stjórnendur Efna hagsbandalagsins hafi ekkert annað að gera en að kynna sér af sjálfsdáðum málsstað íslands. Mbl. er sannfært um að sér- staða okkar nýtur skilnings með- al helztu ráðamanna Efnáhags- bandalagsins, einmitt vegna þess að þeim hefur verið kynnt hún. Þannig höfum við undir- búið jarðveginn og getum vænzt betri skilnings þegar á reynir, auk þess sem sjónarmið okkar liggja fyrir, þegar sérstaklega verður rætt um viðskipti með sjávarafurðir, en auðvitað hefði það alls ekki verið svo, ef farið hefði verið að ráðum Framsókn armanna, sem boða stefnu þagn- arinnar. ir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.