Morgunblaðið - 20.11.1962, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 20.11.1962, Blaðsíða 23
Þriðjudagur 20. nóvember MORCVNBf 4Ð1Ð 23 Fimm ráöherrar Vestur- Þýzkalands segja af sér Bonn og Niirnberg, 19. nóv. — AP — NTB — Reuter Spiegel-málið svonefnda hefur nú haft þær afleið- ingar í för með sér, að 5 ráðherrar Frjálsra demó- krata í stjórn Vestur- Þýzkalands hafa sagt af sér. Var ákvörðun um af- sögn þeirra tekin á fundi stjórnar og þingflokks Frjálsra demókrata, sem haldinn var í Niirnberg í dag. Á hinn bóginn var einnig ákveðið, að flokkur- inn haldi áfram samvinnu við Kristilega demókrata, á þeirri forsendu, að báðir flokkarnir vilji fylgja stefnu víðsýni og fram- fara í innan- og utanríkis- málum þjóðarinnar. 1 atkvæðagreiðslu, sem fram fór um ákvörðun þessa, samþykktu hana 89 fundarmenn af 90 — einn sat hjá. Konrad Adenauer, kanzlari V-Þýzkalandis kom, sem kunn ugt er, heim frá Ban<laríkjun- uim á töstudag og á lauigar- d'ag allan sat hann á fundum með ráðherrum sínum og freistaði þess að halda stjórn- inni saman. Hann neitaði þó með ödlu að víkja úr emibætti Franz Josef Strauss, land- varnaráðherra, sem svo mjög er um deilt, — en hann hefur af mörgum verið tailinn lfk- legastur eftirmaður Adenau- ers. Þess ber að minnast í þessu sambandi, að áður en mynduð var samsteypustjórn Kristi'legra demokrata og Frjálsra demókrata fyrir réttu ári, gerðu hinir síðarnefndu sitt ítrasta til þess að flá Dr. Ludwig Erhard, aðstoðar kanzlara og viðskiptamá'laráð herra kjörinn í kanzlaraem- bættið. Þegar það tókst ekki, reyndu þeir að semja við Ad- enauer um, að hann gegndi embaettinu aðeins takmarkað- an tíma, eða 2-3 ár af kjör- tímabilinu, en þá tæiki Er- hard við af honum. En Aden- auer sat fast við sinn keip og fór með sigur af hólrni í þeiin átöbum. Nú er sennileig- ast, að Frjálsir demoíkratar vd-lji notfæra sér Spiegel-mál- ið tiil þess að þvinga Aden- auer úr kanzlarastólnum. Má segja, að þeim hafi verið feng in góð spil í hendur, þar sem er framkoma landvarnaráð- herrans. (Sjá Morgunblaðið sunnud. 18. nóv. bls. 12). Aðförin að tímaritinu oig handtaka útgefanda þess og ritstjóra vakti mikinn úlfa- þyt í öllum helztu daigblöð- um V-Þýzkalands, sem töldu aðgerðir saksóknarans gegn ritinu brot á stjórnarskrá landsins og bera sterk merki athafna einræðisstjóra. Al- menningsálitið hefur einnig verið á öndverðum meiði við stjórnina vegna þessa, og með an funöurinn í Núrnberg stóð yfir í dag, fóru stúdent- ar þar hópgöngu að fundar- staðnum og báru fyrir sér spjöld með áletruninni „Franz Josef Strauss og Adenauer skulu úr stjórninni“. ★ ★ ★ Ráðlherrarnir fimm, sem lagt hafa lauisnarbeiðni sína fyrir Adenauer kanzlara eru: Hans Lenz, ráðherra sá, er fjallar um eignir rJkisins, Wolfgang Misohniok, flótta- máilaráðherra, Heinz Starke, fjármálaráðherra. Wolfgang Stamimberger, dómsmálaráð- herra og Walther Scheel, ráð- herra sá, er fer með mál, er varða efnahagslega samvinnu Taki Adenauer lausnarbeiðn- ir þeirra til greina verða þær sendar áfram til Lúbke for- seta, sem samkvæmt stjóm- arskránni skipar ráðherra og leysir þá frá embætti, — en Lúbke er um þessar mundir á ferðalaigi í Asíu og ekki væntamlegur heim tii Þýzka- lands fyrr en 5. desember nk. Stammberger dómsimálaráð- herra hafði á fyrra stiigi þessa máls hótað að segja af sér em bætti, — það var eftir að hann komst að því, að hin um fangsmikla lögregluiherferð var hafin á hendur tímarit- inu, án þess að hann, hefði haft hugmynd um. En þá var tilkynnt, að um misskilning hefði verið að ræða og sök lýst á hendur tveggja réðu- neytisstjóra, Volkmars Hops, ráðuneytiisstjóra vamamáda- ráðuneytisins og Walthers Strauss, ráðuneytisstjóra dómsmálaráðuneytisins. Var þeim báðum vikið úr embætti í yfirlýsingu, sem samþyfckt var á fundinum í Núrnberg, en í honum tóku þátt níutíu manns, segir m.a. að sérstaða hins tvískipta Þýzkalands og ástandið í alþjóðamálum krefj ist þess, að í Vestur-Þýzka- landi ríki stjórn, er aðeinis hugsi um velferð þjóðarinnar. Fulltrúar Frjálsra demo- krata frá Bayern lýstu því yfir á fundinum, að þeir muni krefjast þess, að Strauss segi af sér fyrir kosningarnar, sem fram fara í Bayern um næstu hielgi. Strauss er for- maður Kristilega sósíalista- flokksins, sem er stærsti flokk urinn í Bayern og raunvem- lega deiild eða dótturflokkur Kristilegra demokrata. Flokks menn Strauss hafa á hinn bóginn staðið við hlið hans Franz Jósef Strauss, landvarnaiáðherra, svarar spurningum vestur-þýzkra þingmanna um Spiegel-málið. Myndin var tekin í Bonn 8. nóvember. og hótað að slíta tengslin við Kristilega demokrata, vlki Ad enauer Strauss úr embætti. ★ ★ ★ Stjórnmálafréttaritarar í Bonn töldu í kvöld, að Aden auer muni biðja ráðherrana fimm að gegna em.bættum sínum fyrst um sinn, eða a.m.k. þangað til forsetinn bemur heim frá Asíu. í dag átti Adenauer viðræður við Kurt-Georg Kiesinger, sem gegnir embætti forseta í fjar- vem Lúbkes, en þær viðræð- ur em aðeins taldar hafa ver- ið fonmsatriði. Formaður flobks Sósíal— demókrata, Erioh Ollehhauer sagði í viðtali við fréttaimenn MMIMMMMMMMMMM í kvöld, að samvinna Kristi- legra demokrata og Sósíal- demokrata væri óhugisandi eins og nú væri málum hátt- að. Á hinn bóginn væri rétt að taka til athugunar, að nýju stjórnarsamvinnu allra flokk- anna þriggja, ef ebki tækist samkomulag milili stjórnar- flokkanna. Rannsóknin í ritstjórnarskrif stofum tímaritsins „Der Spieg el“ hefur nú staðið yfir í þrjár vikur. Var frá því skýrt í Skrifstoflu saksóknara ríkis- inis í Karlsruhe, að enn hefði fundizt verulegt magn hinna athyglisverðustu skjala, en nú væri rannsókninni senn lokið. Rússneskt skip á síld- veiðisvæði ísl. flotans Endurskinsborðar settir á hesta JÓNAS Ólafsson, sendibíl- stjóri hefur gert þær merku varúðarráðstafanir að vefja teygjubandi máluðu endur- skinsmálningu um fætur hesta sinna. Það gerist æ tíð- ara, að hestar verði fyrir bif- reiðum, vegna þess hve erfitt er að koma auga á þá í myrkri. Á myndinni sést Jón- as á Blesa sínum með Rauð í taumi. Snjólfur Páimason, umferðarlögregluþjónn, held- ur á stöðvunarskilti, af því tagi, sem lögreglan notar, og má því gera samanburð á endurskininu. Snjólfur kvað framkvæmdasemi Jónasar mjög lofsverða og ættu hesta- menn að taka hann sér til fyr- irmyndar í þessu efni. (Ljósm. Sv. Þ.) SÍLDVEIÐIFLOTINN er um þess ar mundir að veiðum vestur af Jökli. Flotanum fylgir síldarleit- arskipið Pétur Thorsteinsson. í fyrradag var varðskipið Ægir ennfremur á þessum slóðum. Har aldur Björnsson, skipherra, tjáði blaðinu í gær, að vart hefði orðið við rússneska hafrannsóknarskip ið Academic innan íslenzka síld veiðiflotans. Það er sama skipið og stundaði síldarrannsóknir með rússneska flotanum fyrir norðan í sumar og mætti á fundi haf- rannsóknarskipanna á Siglufirði. Talið er, að Academic sé nú að skyggnast eftir síldinni, sem veið ist vestur af Jökli, og mun það — íbráttir Framhald af bls. 22. sem einn fárra manna getur leik ið klukkustundarleik án hvíldar. Guðm. Þorsteinsson var og góður í vörn og Hólmsteinn var drjúg- ur að skora. Annars er ÍR-liðið sennilega jafnasta lið mótsins, og sigurstranglegast eins og í fyrra, KFR liðið átti sína góðu kafla, en heildarsvipur leiks liðsins er ekki eins góður og hjá ÍR. Einar Matthíasson er meistari langskot anna og margir aðrir liðsmenn t.d. Ólafur eru góðir að byggja upp og fjölhæfir í leik sínum, en liðið hefur þó lent í kyrrstöðu. eitthvað stunda veiðar, svo sem hafrannsóknarskip gera. — Loftleiðir Frarnlh. af bls. 1. — Hvenær mun SAS tafca end anlegar ákvarðanir í málinu? — Ástandið er þannig, að við 'höfuim samþykkt IATA-fargjöld in yfir Atlantshaf með fyrirvara. Samkvæmt þeim fyrirvana verð um við að ákveða, bvort við samþyikkjum fargjöldin. fyrir 15 desember, eða hvort við drögum fyrirvarann til baka. Þetta þýð ir, að við verðum að hafa ákveð ið oikfcur fyrir 15. desember og haifa allar áætlanir okkar til- búnar. — Við verðum þá að biða til 15. desember eftir fréttum af á- kvörðun ykkar? — Að minnsta kosti verða þær ekki gerðar opinberar fyrir þann tíma. — Er nokkuð, sem þér vilduð að lokum koma á framfæri I M)bl? — Ekkert sérstaikt annað en það, að við leggjum áherzlu á, eins og ég sagði áðan. að fá leyfi til að keppa á sama grund velli. Ir.nan þess ramma viljum við hafa sem bezta samvinnu við Loftleiðir, sagði Karl Nils- son að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.