Morgunblaðið - 20.11.1962, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 20.11.1962, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 20. nóvember 1962 MORGUNBLAÐIÐ 15 FYRIR skömmu lögðu tveir ungir menn af stað tll Afríku í fjögrurra sæta Piper Com- ance-flugvéL Þessir ungu menn eru mjög góðir vinár þó að afi annars þeirra sé Sir Vinston Churchill, en frændi hins sé Alfred Krupp, sem framleiddi vopn Þjóðverja í síðari heims- styrjöldinmi. Churchill ungi, sem er 22 ára, er alnafni afa sins, en frændi Krupps, sem er 23 ára heitir Arnold von Bohlen. Ungu mennimir kynntust er þeir stunduðu nám í Ox- ford. Þá var Arnold forseti skíðafélags skólans, en Wln- ston ritari félagsins. Flugvélin, sem þeir ferð- ast með til Afríku er í eigu Winstons. Ætla félagarnir að fljúga henni til Höfðaborgar í Suður-Afríku um Lausanne, Róm, Mið-Austurlönd og Austurströnd Afríku. Þeir hafa ekki ákveðið hve long- um tíma þeir ætla að eyða í ferðina, en Arnold ætlar að taka myndir og þegar heim kemur, ætlar Winston áð 1 skrifa um ferðalagið og von- ast þeir til, að geta borgað ferðakostnaðinn með því að selja greinar og myndir úr ferðinni. Fræðslustofnun launþega Á FUNDI efri deildar í gær var tekið til 1. umræðu frum- varp Eggerts Þorsteinssonar og Friðjóns Skarphéðinssonar um Fræðslustofnun launþega og því vísað til 2. umræðu og nefndar. Ólafur Björnsson skýrði frá því, að fjárhagsnefnd mælti ein- róma með samþykkt frumvarps um að sjúkrahúslæknar fái laun samkvæmt kjaradómi frá 1. ág. s.l. Var frumvarpið samþykkt við 2. 'umræðu og vísað til 3. um- ræðu. Félagsmálaskóli Eggert G. Þorsteinsson (A) fylgdi úr hlaði frumvarpi um Fræðskistofnun launþega. En hlutvenk þeirrar stofnunar yrði að veita trúnaðarmönnum og öðru félagsfólki launþegasamtak- anna raunhæfa fræðslu um hlut- verk slílkra samtaka í nútírna þjóðfélagi, sögu þeirra, skipulag og starfshætti. Einnig skal stofn- unin veita almenna fræðslu um efnahagslíf, atvinnu- og félags- miái þjóðarinnar og aðrar grein- ar, er stjórn stofnunarinnar tel- ur samrýmast tilgangi hennar. Stofnunin gegnir hlutverki sínu annars vegar með Félagsmála- skóilanum og hins vegar með al- mennu fræðslustarfi. ÍTÖLSKU BOLZAIMO RAKBLÖÐIN ryðja sér nú til rúms um alla Evrópu vegna þess að þau eru jafngóð og dýru blöðin en kosta mikið minna. Þægilegur rakstur — góð ending — lágt verð. Þrjár gerðir — hver annarri betri. SOTTILE (blá) SUPER (blá) SUPER (gyllt) stk. 10 kr. 16.00 1 smásölu stk. 10 - 25.00 stk. 10 - 30.00 Fæst í flestum verzlunum. Bygging Hallveig- arstaða að hefjast BYGGING kvennaheimilisins Hallveigarstaða er að hefjast um þessar mundir á lóð þess við Tún götu og öldugötu. Kvöð þeirri, sem hvíldi á lóð- inni, hefur verið aflétt eftir und angenginn dóm og skaðabótamat. Verklegar framkvæmdir h.f. mun steypa húsið og ganga frá utanhúss. Áætlað er, að verkinu verði lokið snemma á næsta sumri. í húsinu verða góðir salir fyr ir félagsfundi og skrifstofuher- bergi, fyrir þau félög og félaga- samtök, sem þess þurfa með. Full komið eldhús verður með stærsta salnum. Gert er ráð fyrir aðstöðu fyrir margs konar unglingastarf- semi. Hallveigarstaðir eru sjálfseignar stofnun. Stjórnina skipa 3 konur frá Kvenfélagasambandi Islands, 3 konur frá Kvenréttindasam- bandi íslands, 1 kona skipuð af ríkisstjórninni, 1 kona frá borgar stjórn Reykjavíkur og 1 kona frá Alþýðusambandi íslands. Ný frímerki í dag TVÖ NÝ frímerki verða gefin út í dag. Á þeim er teikning af sæ- símalínunni nýju. Verðgildið er 5 kr. og 7 kr. Frímerkin er prent uð hjá Courvoisier S/A, La Chaux de Fonds í Sviss. JL Þessi er nýjung á heims- epoca Heildsala: Þórður Sveinsson & Co. h.f. UmboSsmenn: Þórður Sveinsson & Co. hf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.