Morgunblaðið - 20.11.1962, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 20.11.1962, Blaðsíða 6
6 MORCUNBLAÐ1Ð Þriðjudagur 20. nóvember 1961 Þ~óðleikhúsið: Dýrin ■ Hálsaskógi Barnaleikrit eftir Thorbjörn Egner Leikstjóri: Klemens Jónsson Bessi, Ævar og Gísli Alfreðsson í hiutverkum. PJÓÐLEIKHÚSIÐ frumsýndi sl. íimmtudagskvöld barnaleikritið „Dýrin í Hálsaskógi" eftir norska rithöfundinn og lista- manninn Xhorbjörn Egner. Þenn an fjölhæfa snilling þarf ekki að kynna reykvískum leikhús- gestum, því að hann vann hug þeirra allra, ekki sízt barnanna, með hinu bráðskemmtilega og yel samda barnaleikriti sínu „Kardimommubænum", sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu á ár- inu sem leið og árið áður. Egner hefur ásamt Christian Hartmann, samið tónlistina við leikinn og hin mörgu skemmtilegu kvæði sem þar eru sungin um aðal persónur leiksins. Og Egner hef- íir líka teiknað búningana og leiktjöldin og ber hvort tveggja hugkvæmni hans og snilli fag- urt vitni. Það mátti heyra á sumum á- horfendum, bæði ungum og öldnum, að þeim þættí leikur þessi ekki eins skemmtilegur og „Kardimommubærinn“. Má vera að nokkuð sé til í því, en það sem á kann að skorta í því efni bætir höfundurinn fyllilega upp með þeirri tímabæru og hollu hugvekju, sem er að baki gam- anseminm og mótast í hinum stuttu en gagnorðu lögum, sem Bangsapabbi setur skógardýrun- um með aðstoð Lilla og Mar- teins skógarmúsa. En lögin eru eitthvað á þessa leið: Öll dýr í skóginum eiga að vera vinir, ekkert dýr má eta annað dýr og sá sem ekki nennir að afla sér fæðu má ekki taka hana frá öðr- um. Lög þessi eru ekki marg- brotin, en eru þó vissulega þess virði að fleiri en dýrin í skógin- um hugleiddu þann siðalærdóm sem í þeim er fólginn. Hlutverkin í þessum leik eru serið mörg og því ógerningur að gera hér grein fyrir þeim öll- um. Verð ég því að láta mér nægja að geta aðeins þeirra sem mest kveður að. Ber þá fyrst að nefna Mikka ref, þann vonda skelmi, sem öll dýrin í skógin- um óttast, sem von er, því hann hugsar ekki um annað en munn og maga og er alltaf reiðubú- inn að háma í sig litlu dýrin, sem verða á vegi hans. Og auð- vitað er hann slóttugur eins og refir eru vanir að vera og enn hættulegri fyrir það. En undir lokin tekur Mikki sinnaskiptum vegna laganna góðu, verður mesti sómarefur og drýgir jafn- vel dáð, sem hann hlýtur allra lof fyrir. Bessi Bjarnason leikur Mikka af mestu snilld og hefur vissulega ekki brugðizt sínum ungu aðdáendum nú frekar en endranær, og reyndar ekki held- ur okkur sem eldri erum. Þá er það Lilli klifurmús, sem Árni Tryggvason leikur. Lilli er glaðleg og snyrtileg mús og á- kaflega léttur í hreyfingum, en sá er ljóður á ráði hans að hann er í meira lagi latur til allrar vinnu, en hins vegar skrambi sníkinn. Einkum þykir honum góðar kökur, en það þykif fleir- um, eins og öll börn vita. Árni er mjög skemmtilegur í þessu hlutverki, enda mátti varla á milli sjá hvor vakti meiri fögnuð barnanna, hann eða Bessi. Martein skógarmús leikur Baldvin Halldórsson. Marteinn er ekki aðsópsmikill meðal dýr- anna, en hæglátur og tillögugóð- ur þegar vanda bér að höndum og þessir eiginleikar Marteins komu prýðilega fram í leik Baldvins. Amma skógarmús, sem Nína Sveinsdóttir leikur, er líka góð og elskuleg. En amma gamla er ekki öll þar sem hún er séð, því að þegar Mikki refur ætlar að klófesta hana, gerir hún sér lítið fyrir og flýgur upp í rjáfur í leikhúsinu og þótti mörgum það vel af sér vikið. Bangsa- pabbi og Bangsamamma eru stór og kröftug hjón eins og gamlir bangsar eru alltaf, radd- mikil og ekki sérlega lipur í hreyfingum en traust og föst fyr- ir. Þessi ágætu hjón sóma sér vel í túlkun þeirra Jóns Sigur- björnssonar og Emilíu Jónas- dóttur. Bangsi litli sonur þeirra er ljómandi skemmtilegur og snotur bangsi, pg því var ekki nema von að foreldrar hans yrðu sorgbitnir þegar maðurinn (Lár- us Ingólfsson) og konan (Anna Guðmundsdóttir) stálu honum og ætluðu að selja hann í fjölleika- hús. En þá var það sem Mikki kom til sögunnar og bjargaði Bangsa litla. Kjartan Friðsteins- son leikur Bangsa litla og stend- ur sig vel. Þá eru mjög skrýtnir náungar og broslegir, þeir Héra- stubbur bakari og lærlingur • Harðneskjuleg móðir Enn um drenginn, sem kast- aði snjó í bílinn. „Kæri Velvakandi. Ástæðan fyrir því, að ég tek mér penna í hönd, er sú, að ég er bæði sár og gröm vegna blaðaskrifa frúarinnar, sem nefnir sig bæði móður og kennara. Börn- in hennar eiga líklega ekki sjö dagana sæla, en þau eru e.t.v. svo vel alin upp, að þau gera aldrei neitt nema það, sem þau eiga að gera. Ekki vildi ég eiga barnið mitt undir svona harð- stjórn, og hýgg ég, að fleiri séu sama sinnis. Ég er meira en hissa á því, að nokkur móðir skuli geta látið sér þetta um munn fara. Mér er þetta mál ekkert skylt og þekki ekkert til þessa drengs, sem var ekið upp á öskjuhlíð og skilinn þar eftir. Ég er heldur enginn sál- fræðingur, en trúað gæti ég, að drengurinn muni búa alla ævi sína að svona lagaðri meðferð. Menn, sem þetta gera, eiga að sæta ábyrgð fyrir sínar gjörð- hans, Bakaradrengurinn, sem þeir Ævar B. Kvaran og Gísli AlfreSsson leika. Og svo er það Húsamúsin, sem þorir ekki ann- að en gefa Mikka ref heilt reykt svínslæri þegar hann laumast inn til hennar. Hana leikur Mar- grét Guðmundsdóttir. Mörg fleiri dýr eru þarna í skóginum, svo sem Elgurinn, Kráku-Pétur, Uglan, Patti brodd- göltur, Hundurinn Habakúk, margar mýs, hérar, íkornar, bjarndýr, tveir aðrir elgir, enn einn broddgöltur, kráka og ugla. 1 leiknum er mikið dansað og listilega, en dansana hefur Eliza- beth Hodgshon samið og æft, en hún er kennari við ballettskóla Þjóðleikhússins. Kvæðin í leikn- um eru átta og við þau skemmti- leg lög, sem aðalleikendurnir syngja. Undirleik annast tónlist- armenn úr Sinfóníuhljómsveit íslands undir stjórn Carls Billich. Hulda Valtýsdóttir hefur þýtt leikinn, nema ljóðin. Þau hefur Kristján frá Djúpalæk þýtt. Hefur þeim tekist þýðingin mjög vel. Gunnar Bjarnason hefur málað leiktjöldin eftir teikning- um Egners. Klemenz Jónsson hefur með leikstjórn sinni nú eins og er hann setti „Kardimommubæinn“ á svið, sýnt það að honum lætur sérstaklega vel að stjórna barna- leikjum, skilur vel anda þeirra og veit hvað til þess þarf að ná til hinna ungu áhorfenda. Hefur þó áreiðanlega verið erfitt að koma öllu svo vel og eðlilega fyrir á sviðinu sem raun ber vitni, með öllum þeim fjölda sem þar er saman kominn. Þess skal getið að lokum að þetta er í fyrsta sinn sem leikur þessi er sýndur á leiksviði (ur- ir. Það er hægt að taka börn öðrum tökum. Ég sé ekki ástæðu til að orðlengja þetta frekar, en vonandi lætur frúin af beizkju sinni gagnvart börn- unum. Virðingarfyllst. Rannveig Kristj ánsdóttir“. • Síðbúnir forystumenn Forystumenn Rauða kross fslands voru seinir að átta sig á því, að fslendingar vildu leggja lið hinum hungruðu börnum í Alsír, og þessvegna hóf eitt af dagblöðum borgar- innar söfnun meðal almenn- ings í þessu skyni. Nú hefur Rauði kross íslands „tekið við söfnuninni“, eins og eitt blað- anna orðaði það. Vonandi tek- ur almenningur vel undir beiðni blaðanna um að styðja þessa söfnun, en almenningur ætlast til að Rauða kross-menn vorir séu það vakandi, að ein- staklingar þurfi ekki að gang- ast fyrir slíku. Rauða kross-félagi. premiere). Hann hefur aðeins verið sýndur í brúðuleikhúsi áð- ur, í Noregi, en mun á næstunni verða sýndur í Danmörku og Þýzkalandi og ef til vill víðar. Sagan um dýrin í Hálsaskógi hefur verið lesin í barnatímum Ríkisútvarpsins hér. • Sjoppurnar í skólana Elsku Velvakandi! Af því ég er nú vinur þinn og les alla þína pistla eins og góði Skaftfellingurinn, þá vona ég að þú takir eftirfar- andi hógvær orð um velferð skólaæskunnar okkar elsku- legrar. Húsráðandi einn segir nýlega frá því í dálkum þínum, að blessuð skólaæskan verði að verja frímínútum sínum í það að sækja sínar lífsnauðs- synjar í næstu mjólkurbúð og varði síðan veginn með um- búðum nauðsynjanna og brotn- um flöskum. Rennur húsráð- anda að vonum til rifja að horfa upp á blessuð börnin, sem þurfa að verja sínum knöppu frímínútum til þess að sækja lífsnauðsynjar, s.s. gos, sígarettur, mjólkurís o. fl. Ég er þar fullkomlega sammála húsráðanda, að þetta ófremd- arástand þurfi, og eigi, að hverfa úr menningarborg okk- Sýning þessi var í alla staði hin ánægjulegasta og eins og jafnan á barnaleiksýningum, tóku ungu áhorfendurnir lifandi þátt í öllu því sem fram fór á sviðinu. Það hlýtur hver skynbær maður að sjá hve illt það er fyrir blessuð börnin að þurfa út í hvaða veður sem er til þess að sækja þessar vörur, sem þau mega alls ekbi án vera, ef æskan vill halda sinni reisn, sem Vormenn íslands. Til þess að ráða bót á þessu ófremdarástandi parf að inn- rétta sjoppu innan allra barna- skóla og gaggóa, sem hefðu á boðstólum fyrrnefndar lífsnauð synjar nemendanna og það fleira, sem nemendur kynnu að æskja eftir. Hljóta allir að sjá hve þetta mundi létta nem- endum námið og glæða áhuga þeirra á því, auk þess sem það skapar kennurunum tómstunda starf að tína upp af göngum og í skólastofum umbúðir nauðsynjanna. Er þeirri tillögu hér með beint til forráða- manna skólamála, að héðan af skuli ekki reist barnaskólahúa eða gaggó að þar sé ekki um leið innréttuð sjoppa í híbýlum skólans. Eins er vert að taka til athugunar hvernig slíkum sjoppum verði bezt að koma fyrir í hinum eldri skólum, sem þegar hafa verið byggðir. Ekki má hika við þó taka verði í hverjum skóla eina kennslu- stofu til þessara nota. 1 góðu trausti til allra, sem hér eiga hlut að máli, læt ég þessa stórmerku tillögu koma fyrir þjóðarinnar sjónir, vænt- andi þess að þeir sjái að með þessu skapast hraust sál í hraustum skrokk. Með fyrirfram ástarþökk fyrir birtinguna. Þinn einlægur cx. „öllu gamni fylgir nokkur alvara“, er sú eina athugasemd, sem Velvakandi hefur við þetta bréf að gera „á þessu stigi málsins“, eins og forráðamenn flugfélaganna SAS og Loftleiða segja um þessar mundir. Sigurður Grímsson. Sendisveinn óskast Vinnutími frá 1 — 6 eh. HtorgiiiinÞIitfrifr iéááiiiiááMiMi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.