Morgunblaðið - 20.11.1962, Page 13

Morgunblaðið - 20.11.1962, Page 13
Þriðjudagur 20. nóvember 1962 MORGVNBLAÐIÐ 13 Nokkrir hinna 33ja fulltrúa Landssambands íslenzkra verzlunarmanna á fundi í gper. Frá vinstri: Ragnar Guðmundsson, Reykjavík, Kristján Kristjánsson, Reykja- vík, Jón Þorgilsson, Hellu, Ottó J. Ólafsson, Reykjavík, Andreas Bergmann, Reykjavík, Gísli Gíslason, Reykjavík, og Reynir Eyjólfsson, Hafnarfirði. — ASÍ þing Framh. af bls. 24. yrðu teknir í þau og hverjir ekki. Þeim rétti mættu samtökin aldrei sleppa úr hendi sér, og Félagsdómur væri ekki bær um það að segja fyrir um innri mál- efni ASÍ. „Og ég lít svO á“, sagði Hannbal Valdimarsson, „að þeg- ar dómstóll, sem á að dæma í máli milli atvinnurekenda og launþega, fer að skipta sér af innra skipulagi og lögum annars aðiljans, þá sé hann kominn út fyrir sinn ramma. Þá hlýtur hann fyrr eða síðar að rekast á ákvæði laga og stj órnarskrár". í framhaldi af þessu sagði H.V., að ASÍ myndi hafa í huga orðtakið „gjör rétt, þol ei órétt“ í þessu sambandi. Einnig kvaðst hann vilja rifja upp sem dæmisögu Bögnina af því, þegar íslendingur einn kraup konungi á annað kné og sagði: Yðar hátign, ég lýt há- tigninni en stend á réttinum. i;Við skulum nú gæta þess, að við föllum ekki á bæði knén fyrir hinum virðulega Félags- dómi, hvað þá að við látum okk- ur falla flöt fyrir honum“. — xxx — Að setningarræðu forseta lok- inni, skýrði hann frá skipun í kjörbréfanefnd og nefndanefnd, en síðan ávörpuðu gestir eða á- heyrnarfulltrúar þingið. Voru það Kristján Karlsson, fltr., Stétt arsambands bænda; Kristján Thorlacius, fltr., BSRB; Þorkell Sigurðsson, fltr., Farmanna- og fiskimannasambands fslands og Guðbjartur Einarsson, fltr., Iðn- nemasambands fslands. •- XXX -- Forseti ASÍ skýrði frá þvf, að alþýðusamböndum á Norðurlönd um hefði verið boðið að senda fulltrúa á þingið. Boðin hefðu verið þökkuð, en ekkert samband anna gat sent fulltrúa. -- XXX -- Þá var gengið til afgreiðslu kjörbréfa. Áður en þinghlé var gert kl. 18.10, höfðu 311 kjörbréf verið samþykkt mótatkvæðalaust, enda hafði enginn ágreiningur orðið um þau í kjörbréfanefnd. marsson, setur 28. þing sam- bandsins í gær. Starfslítill kvöldfundur — fyrsta atkvæðagreiðslan. Þingfundur hófst að nýju kl. 21. Fór kvöldið í það að bíða eft ir því, að kjörbréf kæmu frá kjörbréfanefnd, og kl. 23.35, þeg- ar þingfundi var frestað, höfðu 11 kjörbréf komið frá nefndinni og verið samþykkt á þinginu til viðbótar þeim 311, sem samþykkt voru fyrr um daginn. Þessi 11 kjörbréf komu að lokum ágrein- ingslaust frá nefndinrd. Meðal þeirra kjörbréfa, sem ekki hafa enn verið tekin til afgreiðslu, eru kjörbréf fulltrúa LÍV, HÍP og Frama. Kjörbréfanefnd vísaði 2 kjör- bréfum til þingsins. Voru það bréf tveggja fulltrúa Verkalýðs- og Sjómannafélags Miðneshrepps (-andgerði), sem kosnir höfðu verið á ólöglega boðuðum fundi, og barst kæra um það til ASÍ frá verkamönnum í félaginu. í ljós kom, að það mun sök Land- símans, að fundarboð barst ekki Ríkisútvarpinu í tæka tíð, og taldi stjórn ASÍ réttara, efti'r að hafa kynnt sér málavexti, að kosið yrði aftur í félaginu á lög- legum fundi. Ekki gerði stjórn félagsins það. Fór forseti ASÍ þess á leit við þingið, að það legði dóm sinn á kjörbréfin skv. tilmælum kjörbréfanefndar. Jón Sigurðsson, form. Sjó- gær, segir fréttaritari AP, að óháða dagblaðið Verdens Gang ráðist harðlega á SAS í forystugrein fyrir aðgerðir þær, er Norðurlandaflugfé- lagið hefur í hyggju gegn „ó- þægilegum íslendingum“. — Segir blaðið að það skilji eft- ir óbragð þegar leitað er á náðir stjórnarvaldanna í stað þess að taka upp heiðarlega samkeppni og brjóta einok- unarsamninga IATA um far- gjöld yfir Atlantshafið. Og blaðið segir að þessar að- gerðir séu sennilega gerðar í nafni norrænnar samvinnu. Frá Kaupmannahöfn sím- aði Gunnar Rytgaard, frétta- ritari Mbl., að SAS hafi til umráða sex flugvélar af gerð- inni DC-7C, en það er sú gerð, sem þeir ætla sér að nota í samkeppninni við Loft- leiðir, ef til kemur. Segir Ryt- gaard að áður en endanleg á- mannasambands íslands, taldi þessa málsmeðferð óeðlilega. — Kjörbréfanefnd ætti að leggja sinn dóm á málið og veita þing- inu leiðbeiningar. Auðsætt væri, að fundurinn hefði verið ólög- mætur, hverjum sem það væri að kenna, og stjórn félagsins hefði ekki orðið við þeim tilmælum ASÍ að boða til nýs fundar. Lagði kvörðun verður tekin um flug SAS með lágum far- gjöldum muni málið lagt fyr- ir ríkisstjórnir viðkomandi þriggja landa. Af þremur flugleiðum, sem til greina koma hjá SAS, er ein yfir ís- land, en til þess þarf sam- þykki yfirvaldanna hér. Skeyti AP frá ósló hljóðar svo: óháða óslóarblaðið Verdens Gang ræðst í dag harkalega á Norðurlandaflugfélagið SAS. Á- sakar blaðið SAS fyrir að „rjúka til ríkisstjórna Noregs, Svíþjóð- ar og Danmerkur og biðja um aðstoð gegn þessum óþægilegu íslendingum. Og það verður sennilega gert í nafni norrænnar samvinnu", segir blaðið í for- ystugrein. „íslenzka félagið Loftleiðir er alls ekki að yfirhlaða markað- inn, heldur þvert á móti hagnast það á ferðunum. Það er SAS, sem heldur sér við of há far- gjöld. SAS hefur alla möguleika á að rjúfa einokunarsamningana um fargjöld yfir Atlantshaf. Hvers vegna gerir félagið það ekki og tekur upp samkeppni á heiðarlegum grundvelli? Það skilur eftir óbragð í munninum, þegar leitað er á náðir stjórnar- yfirvaldanna í þessu máli“, segir Verdens Gang. Úr lausu lofti Blaðið segir ennfremur að Norðmenn hafi hér hagsmuna að gæta. Viðhald véla Loftleiða sé að mestu framkvæmt í verk- stæðum Braathens á Sola-flug- velli í Vestur-Noregi. „En við erum alls ekki vanir því að SAS hafi mikil afskipti af flugmál- um í Noregi“. Blaðið bætir því við að þegar SAS heldur því fram að það tapi árlega um 300 millj. króna vegna þess að fs- lendingar hafi lægri fargjöld á flugleiðunum yfir Atlantshaf, hljóti sú tala að vera úr lausu lofti gripin. Frá Kaupmannahöfn símar Rytgaard: SAS hefur sex flugvélar af gerðinni DC-7C til umráða. En það er þessi gerð flugvéla, sem félagið hefur í hyggju að nota til samkeppni við Loftleiðir á leiðunum yfir Atlantshafið. Ekki vill SAS láta neitt uppi um það Jón fram tillögu um að málið yrði sent aftur til kjörbréfanefnd ar. Tillaga Jóns var síðan sam- þykkt með 147 atkvæðum gegn 127. Nokkrar tillögur voru lagðar fram í lok fundarins, sem síðan var frestað til kl. 13,30 í dag, þriðjudag. hvort samningaviðræður eru hafnar við flugstjóra á þessum leiðum, og heldur ekki hvað öðrum undirbúnirgi miðar á- fram, en segja að ekki sé enn ákveðið hvort úr þessari sam- keppni verður. Áður en ákvörðun verður tekin, verða yfirvöld flugmála í löndunum þremur að samþykkja hin nýju fargjöld, og er úrslita- valdið hjá viðkomandi flug- málaráðherrum. En talið er að málið verði fyrst lagt fyrir ríkis- stjórnir landanna, vegna þess hve breytingar á ákvæðum Al- þjóðasamtaka flugfélaganna (IATA) um fargjöld á þessum leiðum geta haft víðtækar af- leiðingar. SAS hefur frest til að taka endanlega ákvörðun til 15. desember, en flugið getiu- ekki hafizt fyrr en 1. apríl næsta ár, því SAS hefur samþykkt vetrar- fargjöld IATA yfir Atlantshaf. Þrjár flugleiðir Ef úr verður að SAS taki upp flug með sömu fargjöldum og Loftleiðir, er um þrjár flugleið- ir að ræða. Er það yfir fsland, eins og Loftleiðir, en til þess þarf samþykki íslenzkra yfir- valda, yfir Grænland, eða án viðkomu. Ef flogið er án við- komu, er flugtíminn 12 klukku- stundir, sem gefur SAS bætta aðstöðu gagnvart Loftleiðum varðandi flugtímann, að því er sagt er í Kaupmannahöfn. Karl Nilsson sagði í ræðu, sem sjónvarpað var í Svíþjóð og Danmörku á föstudag, að SAS vilji ekki taka upp óheiðarlega samkeppni. „Ef við hefjum flug með ódýrum fargjöldum, verður það með sömu flugvélagerðum og sömu fargjöldum og þjón- ustu og Loftleiðir". Þrír Rússar til Bandaríkjanna ÞRÍR af fremstu íþróttamönnum Rússa, Brummel, heimsmethafi í hástökki, Ter-Ovanesian, Ev- rópumethafi í langstökki og Bulyshev «00 m- hlaupari hafa þegið boð Bandaríkjamanna um að koma og keppa á 6 innanhúss- mótum í Bandaríkjunum. Með þeim í förinni verður landsþjálf- ari Rússa Korobkov. Keppnis- förin tekur 3 vikur. Séð yfir salinn í KR-skálanum við Kaplaskjólsv eg, þegar 28. þing ASI var sett þar í gær. SAS á sex DC-7C skrúfuvélar til að keppa við Loftleiðir Engin dkvörðun tekin fyrr en ríkis- stjórnirnar haia rætt mdlið í EINKASKEYTI til Mhl. í

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.