Morgunblaðið - 20.11.1962, Page 5
Þriðjudagur 20. nóvember 1962
MORCVNBLAÐIÐ
5
Morgunblaðið sneri sér í
gær til nokkurra myn-dlistar-
manna og bað þá að lýsa
hvað þeim væri minnisstæð-
ast við Jón Stefánsson, list-
málara.
Gunnlaugur Scheving:
ÞAÐ er erfitt að lýsa því
á skömmum tíma. Þegar ég
sá myndir hans fyrst hér í
gamla daga, vöktu þær með
manni nýjar tilfiningar. Mynd
ir hans voru kultur, seim er
að hiverfa.
Þegar ég í fyrsta skipti sá
hann sjálfan, var ég á gangi
niðri á Skúlagötu. Þegar hann
gekk framhjá mér, sá ég að
penslar með linum hárum
stóðu upp úr vasa hans. Bg
fékk mér síðan sjálfur slíka
pensla og líkaði betur að
nota þá, en þá sem ég hafði
notað áður.
Hann var sá íslenzki lista-
maður, sem hafði mest gam-
an af að diskutera og hann
byrgði aldrei inni skoðanir
sínar. Bg fór norður í land
með honum og Ragnari Jóns-
syni fyrir tveimur árum, og
þá var létt og glatt yfir hon-
um. Þó hann væri orðinn
hrumur lifnaði hann alltaf,
þegar minnzt var á listir.
Hann var umtalsgóður í garð
annarra listamanna og alltaf
ljúfur og hlýr.
Jóhann Briem:
JÓN var allra manna vand-
virkastur. Þó hann teldi sig
hafa lokið við mynd, var
hann ekki búinn að ljúka
henni, ef hann lét hana ekki
frá sér. Löngu síðar tók hann
hana síðan fram aftur og
gerði á henni breytingar, allt
þanigað til hún samræmdist
viðhorfi hans. Ég veit ek'ki
um aðra sem hafa unnið jafn
vandvirknislega.
Sumar myndir sínar lét
hann niður í kjallara, og taldi
að þær hefðu mistekizt. Löngu
seinna gat svo kona hans tek-
ið þær fram, og þegar þetta
vissa atriði, sem hann í upp-
hafi hafði gefizt upp á að ná
fram, hafði horfið úr huga
hans, taldi hann þær með sín-
urn beztu myndum.
Að baki hverri mynd, sem
hann lét frá sér fara, lá geysi-
mikil vinna. Hann málaði all-
ar myndir með litlum pensli
frá upphafi og ég held að það
■jP rfSW-. ' ■»
Sjálfsmynd Jóns Stcfánssonar.
sé gott dæmi um vandvirkni
hans.
Hann var allra manna þægi
legastur í viðræðum um
myndllist. Hann gat gagnrýnt
verk án þess að draiga þar
neitt undan og þó verkaði það
ekki óþægilega. Hann talaði
um þetta rólega, án þess að
það yrði tilfinningamái. Hann
hafði ákaflega gaman að
rabba um myndlist og gerði
sér vel grein fyrir öllu þar.
Svavar Guðnason:
ÞAÐ er svo feikimargt,
sem mér er minnisstætt, bæði
í sambandi við manninn sjálf
an og m/yndir hans. Mér varð
svo bilt við, þegar ég frétti
þetta að ég hálftruflaðist. Ég
held að einn af þeim hlutum,
sem helzt einkenndi Jón, var
sú hlífðarlausa sjálfskritikk
og þær hlífðarlausu kröfur,
sem hann gerði til sjálfs sin,
og meir en annarra. Þessu
fylgir svo sjálfsagt, að hann
gerði kröfur til listar almennt
Hann var geysilega skemmti
legur í sínu persónulega lífi,
mælskur og lifandi í sam-
ræðum og menntaður og víð-
lesinn bæði í sínu fagi og
almennt. Ég held að hann
hafi alveg fram á það síð-
asta fylgzt vel með. Ég sá
hann fyrir stuttu vera að
heimsækja mann upp á spít-
ala og þá var hann hlýr og
lifandi eins og hann var alltaf.
Jón Stefánsson hefur verið
talinn einn af alstærstu lista-
mönnum okkar, og tíminn
mun vafalaust leiða í ljós að
það var ekki röng skoðun. Ég
geri ráð fyrir að Jón hafi
verið menntaðastur myndlist-
armanna hér á landi.
Valtýr Pétursson:
ÞAÐ sem mér er minnis-
stæðast við Jón Stefánsson
er, að hann er fyrsti heims-
borgarinn í hópi ísienzkra
listamanna. Hann flutti til ís-
lands þá strauma og hræring-
ar sem voru á ferðinni í evr-
ópskri myndlist á þeim tíma
þegar hann hóf þar listmám.
Hann var síleitandi og óhemju
strangur við sjálfan sig og
sá arfúr, sem frá honum kem-
ur byggist einmitt á þeim liist-
ræna móral, sem maður var
fljótur að komast í kynni við,
bæði í verkum hans og hon-
um sjálfum.
Þorvaldur Skúlason:
MÉR er svo feiknamargt
minnistætt í samibandi við
Jón Stefánsson. Hann var
geysilega uppörvandi per-
sóna, og ég hef aldrei þekkt
no'kkurn mann, sem var eins
glóandi. Hann var sérstak-
lega uppörvandi í garð okk-
ar yngri mannanna og hirti
okkur oft, en ég varð aldrei
var við neina öfundissýki hjá
honum, eins og svo oft viii
gæta. Hann var móttækiiegur
fyrir öllu góðu og gladdist
yfir öllu, sem honum fannst
vel gert. Hann kritiseraði
mann af mikilli einlægni og
gerði yfirleitt alla hluti í svo
góðum tilgangi. Jón fiutti í
íslenzka myndlist það, sem
Þriggja herbergja íbúð óskast til kaups milliliða- laust. Tilh. er greini verð og greiðsluskilmála, send- ist afgr. Mbl. fyrir 24. þ. m. merkt: ..íbúð 108 — 3077“. Athugið Vil taka að mér húsgæzlu. Nauðsynlegt að íbúð fylgi starfinu. Tilb. með uppl. sendist Mbl. fyrir 26. nóv., merkt: „Húsgæzla — 3078“.
Sá, sem fann rautt peningaveski á 5 sýn- ingu í Austurbæjarbíói á föstudag, er beðinn að skila þvi að Bárugötu 16 eða hringja í 16139. Hafnfirðingar Óska eftir bílskúx til nokk- urra mánaða fyrir litla bifreið. Uppl. í síma 51239, milli kl. 7 og 9 þriðjudag og miðvikudagskvöld.
Aukavinna Vantar fólk til innheimtu- starfa. Tiib. sendist afgr. Mbl., merkt: „Aukavinna — 3314“. íbúð óskast 3—4 herb. ibúð óskast til leigu, í stuttan tíma eða til 14. maí ’63. Uppl. í síma 12817.
Leiguíbúð Miðaldra kona óskar eftir tveggja til þriggja herb. íbúð nú þegar. Uppl. í símá 19026 eftir kl. 20.00. Saumakona Vön að sníða og sauma kjóla o. fl. sjálfstætt. Vinn heima hjá fólki. Uppl. í dag kl. 2—5. Sími 36766.
Kápur Kápur í úrvali. Ennfremur saumað eftir máli. Kápu- saumastofan. Sími 32689. Mæðgin óska eftir að taka á leigu 2 herlb. og eldhús í kjallara á hita- veitusvæði. Uppl. í síma 37697.
Vfótatimbur Notað mótatimbur til sölu, nokkur þúsund fet. Uppl. í síma 10890 eftir kl. 18.30. Til leigu 3ja herb. fbúð með húsg. Upplýsingar kl. 5.30—6.30 í síma 34815.
Rafsuðumaður — Sigmasuða
Van^xr rafsuðumaður óskast til að sjóða með sjálfvirkri
argon-suðuvél, og til annarra rafsuðu.
Aðeins vanur rafsuðumaður kemur til greina,
en sérþekking á Sigmasuðu ekki nauðsynleg.
Vélsmiðja Björns Magnússonar
símar 1175 og 1737, Keflavík.
Helga M. Níe'sdóttir
komin heim
Viðtalstími fyrir heimilishjálpina kl. 8-9 f.h. í
síma 11877.
4ra herb. íbúð
óskast nú þegar, sem næst Miðbænum, 4 fullorðnir
í hemiili. — Góð umgengni.
Upplýsingar í síma 16697.
Guðrún Gísladóttir, tannlæknir
Steinhús við Hávallagotu
67 ferm., kjallari og tvær hæðir, til sölu. Allt laust.
Nýja fasteignasalan
Laugavegi 12 — Sími 24300.
og kl. 7,30—8,30 e. hj sími 18546.
2Ja herb. íbúðarhæð
með harðviðarhurðum í steinhúsi við miðbæinn til
sölu. Laus strax.
IMýJa fasteignasalan
Laugavegi 12. — Sími 24300 og kl. 7,30
til 8,30 e.h. 18546.