Morgunblaðið - 20.11.1962, Síða 22
22
MORGVNÉLAÐ1Ð
Þriðjudagur 20. nóvember 1962
Körfuknattleiksmótið:
Ármann og ÍR hlutu
fyrstu meistarastigin
• Gróft grin.
Leikurinn þótti út af fyrir
sig skenuntilegur, en hitt er
vafasamt hvort slíkt er ekki
dálítið gróft grín að áhorfend
um, að vera að halda meist-
aramót höfuðborgarinar og vit
andi vits tefla fram liðum sem
ekki eru lögleg samkvæmt
Jón setti
enn met
2.07 m.
Á LAUGARDAGINN setti Jón
Þ. Ólafsson ÍR enn nýtt ís-
landsmet i hástökki innanhúss.í
Stökk Jón 2.07 m. Gamla met- J
ið hans var 2.06 m. Jón átti i
þrjár tilraunir við 2.10 en tókst t
ekki.
Framfarir Jóns eru mjog
jafnar og stígandi í . þessari
grein og metið er orðið mjög
gott ekki sízt miðað við þröng
ar aðstæður í ÍR-húsinu þar
sem Jón æfir og keppir.
jón sigraði einnig í keppni
í langstökki án atrennu, stökk
3,34 m, sem er jafnt og metið.
Hann vann einnig þrístökk án
atrennu, stökk 9,77 m. og í há
stökki án atrennu stökk Jón
1,70 m. Frábær árangur á einu
og sama innanfélagsmótinu.
Hér stendur hinn ungi Cass-
ius Clay yfir Archie Moore.
Leikurinn er kominn fram í
4. lotu en þetta er í þriðja sinn
sem Moore fellur í gólfið. Dóm
arinn stöðvaði leikinn, en
Moore stóð fljótt upp og komst
óstuddur til búningsklefa en
var sýnilega ruglaður.
Nú er talað um að næsti and
stæðingur Clay verði Ingimar
Johansson, en Sonny Liston
hefur einnig boðið Clay til
leiks um heimsmeistaratitil-
inn. Sennilega þykir hann
heldur ungur til þess ennþá
að Ienda I klóm Listons, en
millileikur við Johansson gæti
þó skorið úr um það.
KR tefldi fram góðu en
ólöglegu liði unglinga
KURFCKNATTLEIKSMENN
„áttu“ sl. helgi í íþróttalífi höf-
uðstaðarins. Á laugardagskvöldið
fóru fram fyrstu meistaraflokks-
leikirnir. Ármann vann sigur yf-
ir nngum KR-ingum, sem tefldu
fram ólöglegu liði. Ármann skor-
aði 43 stig gegn 35. iR-ingar unnu
síðan öruggan yfirburðasigur yf
ir KFR, skoruðu 73 stig gegn 44.
KR-liðið er skipað ungum mönn
um, andstætt reglum eru þar
fleiri piltar frá 2. aldursflokki,
en leyfilegt er. Þeir náðu góðum
leik og skemmtilegum og það
var ekki fyrr en á síðustu mínút
um að Ármann komst yfir og
tryggði sér sigurinn.
KR (A-lið) vann IR í 2. flokki með nokkrum yfirburðum. —
Hér verst IR-ingur — ólöglega þó dómarinn ei tæki eftir —
góðri sókn KR.
reglum mótsins, þótt bráð-
skemmtileg séu.
Ármenningar voru seinir í gang
— kannski af því að þeir vissu að
leikurinn var þeim unninn. Og á
síðasta stundarfjórðungi léku
þeir það bragð að vinna upp &
stiga forskot KR og síðan að
vinna með 8 stiga mun. Ármenn
ingar eiga nú sem fyrr mjög gott
og sterkt lið.
Leikur ÍR og KFR var jafn
framan af, en smám saman náðu
ÍR-ingar undirtökunum og for-
skot liðsins óx jafnt og þétt. f
hálfleik höfðu þeir 15 stig yfir,
höfðu skorað 37 stig gegn 22.
Sami stígandi hélzt í síðari hálf
leik, þá unnu ÍR-ingar með 14
stiga mun og lokatölur urðu
73:44.
1 þessum liðum báru landsliðs-
menn, sem þar er marga að finna
nokkuð af. Hjá ÍR bar sem fyrr
mest á Þorsteini Hallgrímssyni,
Framh. á bls. 23.
Erlingur (Fram) er kominn inn fyrir. Guðjón er ve! á verði.
(Ljósm. Sv. Þorm.)
Fram vann öruggan sigur
- en KR sýndi baráttuvilja
Á FÖ STUDAGSKVÖL.DID fóru
fram 8 leikir handknattleiksmóts
ins þ.á.m. meistaraflokksleikur
karla milli Fram og KR. Fram
náði snemma tökum á leiknum
og forskoti, sem dugði til sigurs,
þó KR-ingar gæfust aldrei upp
og minnkuðu bilið er á leið leik-
inn. Lokatölur urðu 17:14 fyrir
Fram; í hálfleik var staðan 10:5.
KR vann því síðari hálfleikinn
með 2 marka mun.
• FRAM — KR.
Það voru mjög góðir kaflar í
leik KR og Fram, mikil barátta,
mikill hraði og oft skemmtileg
tilþrif. Fram kom engan veginn
á óvart með leik sínum, en mikið
vantar á að liðið fái notið hæfi-
leika sinna á litla gólfinu í Há-
logalandi.
KR-lingar komu hins vegar á ó
vart með frammistöðu sinni. Lið-
ið náði sínum bezta leik í mót-
inu og keppnisskapið brást ekki
þó illa horfði á stundum. Eftir
jafna byrjun náði Fram öruggri
forystu, sem smá jókst. Hafði
Fram 5 mörk yfir í hálfleik, en í
byrjun síðari hálfleiks komust
þeir í 7 marka forskot, 15:8. Á
þetta forskot saxaði KR í lok
leiksins, svo munurinn varð að-
eins 3 mörk.
Sigur Fram var fyllilega verð-
skuldaður og aldrei í neinni
hættu. Heildarsvipur Framliðs-
ins var jafn og góður en Karl Jó-
hannsson gnæfði nokkuð upp úr
hjá KR og var sá eini, sem Fram
vörnin réði ekki fyllilega við.
• Meistarastúlkur í fyrsta sinn.
Þá fór fram fyrsti leikur í
mfl. kvenna í mótinu og mættust
Ármann og Víkingur. Ármanns-
alúlkurnar náðu í fyrri hálfleik
algerum tökum á leiknum og
gerðu út um leikinn með 5 mörk
um gegn engu frá Víkingsstúlk
unum, sem voru máttlitlar og ó-
öruggar.
Víkingsstúlkurnar hristu af sér
slenið í síðari hálfleik. Þá skor-
uðu þær 3 mörk en Ármann ekk-
ert. Ármann fór þvi með sigur-
inn 5:3 og stigin tvö frá þessum
einkennilega leik.
Þá áttu yngri flokkamir og 1.
flokkur nokkra leiki og mátti
þar sjá margan efnilegan hand-
knattleiksmanninn, ekki sízt í 2.
cj 3. flokki karla. Úrslit í þeim
leikjum urðu þessi.
2. flokkur karla:
Ármann — Þróttur 5:5.
3. flokkur karla:
Víkingur — Valur 5:3.
ÍR — Þróttur 9:5.
2. flokkur kvenna:
Valur — KR 4:5.
Víkingur — KR 3:8.
ÍR — Fram 6:5.
' Síðast taldi -leikurinn var
hörkuspennandi og jafn og í hon
um skemmtilegir kaflar, ekki
sízt línuspil Fram.