Morgunblaðið - 29.12.1962, Blaðsíða 1
24 siður
UttMðMfr
49 árgangur
291. tbl. — Laugardagur 29. desember 1962
Prentsmiðja Morgu’'iblaðsins
SÞ telja Tshombe vera að
missa tðkin á Katangaher
MM
Fimmburar
fæddir í
Argentínu?
Cordoba, Argentínu 28.
desember. (NTB)..
SKÝRT var frá því í blöðum
I Argentínu í dag, að kona
ein í borginni Simbolar hefði
fætt fimmbura í gærkvöldi.
Konan heitir Manuela Quint-
ana. Þar sem ekki er síma-
samband milli Simbolar og
Cordoba, sem er næsta stóra
borgin, hefur fregnin um
fæðingu fimmburanna ekki
enn fengizt staðfest.
Miklar óeirðir voru i Elisabethville
í gær, en i gærmorgun haföi
Tshombe lofað oð koma á vopnahléi
Leopoldville og New York, 28. des. — (NTB) —
4 MIKLAR óeirðir voru í Elisabethville, höfuðborg Katanga-
fylkis í Kongó sl. sólarhring. Herma fregnir, að á fimmtudags-
kvöld hafi Katangaher gert árás á stöðvar liðssveita Sameinuðu
þjóðanna í borginni og haldið uppi skot- og sprengjuárásum nær
sleitulaust alla aðfaranótt föstudagsins, en Uðssveitir SÞ hafi ekki
svarað árásunum.
4 Yfirmaður liðssveita SÞ í Elisabethville, Eliud Mathu, gekk
á fund Tshombes fylkisstjóra á fimmtudagskvöld og lofaði Tshombe
þá, að láta Katangaher hætta aðgerðum í birtingu í morgun, en
þrátt fyrir það hélt Katangaher uppi skothríð í allan dag og liðs-
sveitir SÞ svöruðu í sömu mynt, þegar nauðsyn bar til.
4 1 dag gekk Mathu aftur á fund Tshombes og gaf honunf einn-
ar og hálfrar klukkustundar frest til þess að skipa mönnum sín-
um að hætta aðgerðum. Þetta kom þó fyrir ekki og Katangaher
hélt skothríðinni áfram eftir að fresturinn var útrunninn. Fengu
liðssveitir SÞ þá fyrirskipun um að ráðast inn í eitt hverfi Elisa-
bethville. —
4 Eftir að þetta varð kunnugt í aðalstöðvum SÞ í New York
hermdu fregnir þaðan, að talið væri, að Tshombe hefði ekki leng-
ur stjórn á Katangaher.
Aðalstifðvar
Katangahers á valdi SÞ.
1 Yfirmaður liðssveita Samein-
uðu þjóðanna í Elisabethville
Eliud Mathu hershöfðingi til-
kynnti í kvöld, að menn hans
hefðu rutt úr vegi vegatálmum
Katangahers á einum af vegun-
um til borgarinnar, haldið inn í
hana og náð á sitt vald aðal-
stöðvum Katangahers í einu af
hverfum borgarinnar.
Fyrr í dag fengu allir óbreytt-
ir borgarar, sem starfa í Elisa-
•betville á vegum SÞ fyrirmæli
um að fara hi® bráðasta frá
borginni og þegar síðast fréttist
hafði verið hafizt handa um að
flytja menn þess á brott.
Talsmaður liðssveita SÞ skýrði
frá því, að þúsund indónesískir
fallhlífarhermenn úr liði sam-
takanna væru komnir til Albert-
K!
300
millj. tap
hjá SAS
7962
Stokkhólmi 28. des. (NTB)
REIKNINGAR SAS fyrir árið
1962 verða lagðir fraim í Osló
11. jan. n.k. á fundi stjómar
flugfólagsins, sem þar verður
haldinn.
Á árinu 1901 nam tapið S
rekstri félagsins 119 millj.
norskra króna (rúmiuim 700
milljónum ísl. kr.), en talið
er að það hafi verið tailsvert
minna á þessu ári, eða um
300 miilHj. ísl. kr.
ville, sem er skammt fyrir norð-
an Elísabethville og væru þeir
reiðubúnir að ráðast inn í höfuð-
borgina, ef þeir fengju fyrirskip-
anir um það.
SÞ reyndu að fanga
málaliða.
Fréttamaður Reuters í Eliza-
bethville var í stöðvum liðssveita
SÞ aðfaranótt föstudagsins og í
dag tókst honum að senda frá
sér fréttir þrátt fyrir mjög slæm
skilyrði. Sagði hann, að Katanga
her hefði haldið uppi skot- og
sprengjuárásum á liðssveitir SÞ
nær sleitulaust alla nóttina, en
liðssveitir SÞ hefðu ekki svarað
árásinni, en undirbúið gagnárás.
Segir fréttaritarinn að aðalmark-
mið hennar hafi verið, að reyna
að taka til fanga erlenda mála-
liða í Katangaher, en SÞ telja,
að þeir eigi hvað mesta sök á
óeirðunum.
Tshombe horfir
nauðugur á árásaraðgerðir.
Fréttamaðurinn skýrði frá því,
Framh. á bls. 23.
Starfsmenn Marienfelde flóttamannabúðanna rannsaka bifreið flóttamannanna.
Tvenn hjón með 4 bðrn
flýja til V-Berlinar í brynvarinni bifreið
AÐ morgni annars jóladags
var brynvarinni bifreið ekið
frá A-Þýzkalandi inn í V.-Ber
lín. í bifreiðinni voru átta
menn, tvenn hjón, önnur með
tvær dætur sínar 1 og 3 ára
og hin með 13 ára dóttur sína
og 10 ára son. Fjölskyldur
þessar höfðu ekið um 200 km
leið frá Neugersdorff á landa-
mærum A.-Þýzkalands, Pól-
lands og Tékkóslóvakíu. Fjöl-
skyldurnar hófu undirbúning
flóttans fyrir nokkrum vikum
og á aðfangadagskvöld var
lagt af stað. Til þess að vekja
ekki athygli a-þýzku lögregl-
unnar var bifreiðinni ekið eftir
fáförnum götum og stígum, oft
varð að stöðva hana og bíða
átekta og stundum snúa við
og aka til baka þann veg, sem
fyrst hafði verið ekið eftir og
finna annan fáfarnari.
Þegar bifreiðin nálgaðist
mörkin milli A.-Þýzkalands
og V.-Berlínar urðu a-þýzkir
landamæraverðir hennar var-
ir og hófu skothríð. Særðizt
bifreiðarstjórinn lítillega, en
aðra sakaði ekki. Áður en bif-
reiðin kom inn í V-Berlín
hafði hún rutt úr vegi nokkr-
um vegartálmum A.-Þjóð-
verja, en hún hafði verið út-
búin sérstaklega að framan
með það fyrir augum.
Flóttafólkið var mjög þreytt
eftir hina erfiðu ferð og var
strax ekið með það til flótta-
mannabúðanna í Marienfelde.
Annar fjölskyldufaðirirm,
fyrrv. hermaður, sem missti
fótinn í heimsstyrjöldinni,
átti brynvörðu bifreiðina og
hafði notað hana í þágu lítils
fyrirtækis, er hann rak þar
til fyrir skömmu, að stjórnin
tók fyrirtækið eignarnámi.
■ I
20 þús. menn heimilislausir
vegna fldöa í Grikklandl
llörkufrost víðsvegar i Evrópu
London 28. des. (NTB).
MIKLIR kuldar eru nú víða í
Evrópu og í Swiss hafa niu menn
látið lífið af völdum hans. —
Mikil hláka er aftur á móti á
Spáni og í Grikklandi. Á Spáni
hafa þrír menn látið lífið af
völdum flóða og í einu héraði í
Mið-Grikklandi hafa um 20 þús.
menn misst heimili sín
Hundruð fjölskyldna hafa flú-
ið heimili sín á Suður-Spáni
vegna flóðahættu.
Meðal þeirra, sem létu lífið í
Sviss voru tveir smyglarar, sem
ætluðu að laumast gegnum skarð
til Ítalíu, en í skarðinu féll á
þá snjóskriða.
Mikil hálka var á veginum í
Ítalíu létu 6 menn lífi í umferða-
slysum.
í Evian í Frakklandi stöðvaðist
vinna í gordrykkjaverksmiðju,
því að vatnið fraus áður en
hægt var að tappa því á flöskurn
ar.
Á einum stað í Sviss var 35
gráðu frost, þar sem kaldast var
í Austurríki var 30 gráðu frost,
í Munchen var 21 stiga frost og
í Umbria á N.-Ítalíu 20 gráðu
frost.
Flugvéí fersf
í Hollandi
Rotterdiam 28. des. (NTB).
I DAG rakst brezk farþegaflug-
vél á stíflugarð náilægt flugvelli
í Rotterdam. Flugmaður flugvél-
arinnar beið bana, og þrir af
áhöfninni særðust. 14 farþegar
voru með vélinni, en engan
þeirra sakaði.
85 tonn fyrir
6.800 pund
TOGARINN Neptúnus seldi í
Griimisiby í fyrradag 85 tonn af
fiski fyrir 6.800 sterlingspund.
Næsti íslenzki togarinn sem
selur í Bretlandi er Víkingur,
sem mun selja um áramótin.