Morgunblaðið - 29.12.1962, Qupperneq 12
12
MORGVNBLAÐIÐ
Laugardagur 29. desemHer 1962
Otgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavlk.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 65.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 4.00 eintakdð.
AN VIÐREISNAR -
EKKERT GÓÐÆRI
UTAN UR HEIMI
» J 'J'-'M'JJ-.-1
Sameining Pan American og
Trans World Airlines
félögin. Sögu þeir í tilkynn-
að er vitanlega elckert
undarlegt, þótt gjald-
eyriseign aukist nokkuð,
sparifjáreign einnig og at-
vinna sé næg, þegar útflutn-
ingstekjurnar aukast um 735
millj. kr. á tíu mánuðum.**
Þannig kemst Tímirm, aðal-
málgagn Framsóknarflokks-
ins, m. a. að orði í forystu-
grein sinni í gær.
Það er af þessum ummæl-
um auðsætt, að Framsóknar-
mönnum er farið að þykja
nóg um þá framleiðsluaukn-
ingu og það góðæri, sem
siglt hefur í kjölfar þeirrar
viðreisnar, sem núverandi
ríkisstjóm hefur framkvæmt
í efnahagsmálum þjóðarinn-
ar. Tíminn hefur viku eftir
viku og mánuð eftir mánuð
verið að rembast við það eins
og rjúpa við staur að telja
þjóðinni trú um, að hin mikla
atvinna, aukin sparifjármynd
un og sívaxandi útflutningur
eigi auðvitað ekkert skylt- við
viðreisnarstefnu stjómarinn-
ar!
En þetta hefur verið þung-
ur róður hjá Framsóknar-
mönnum. Yfirgnæfandi meiri
hluti íslendinga hefur gert
sér ljóst, að gott árferði, mikl-
ar fiskigöngur og góð gras-
spretta duga ekki til þess að
skapa velmegun, ef efnahags-
grundvöllur þjóðarinnar er
holgrafinn, framleiðslutækin
eru rekin með halla og gjald-
miðill þjóðarinnar er skráður
á fölsku gengi. Þetta sannað-
ist greinilega á valdatímabili
vinstri stjómarinnar. Afla-
brögð voru þá ágætt og ár-
ferði að öðru leyti hagstætt,
enda þótt síldveiði væri ekki
eins mikil og nú. En þrátt
fyrir hið góða úrferði vinstri
stjórnar tímabilsins var þjóð-
in að því komin að ganga
fram af „hengifluginu“, þeg-
ar Hermann Jónasson sagði
af sér og stjóm sinni haustið
1958. Óðaverðbólga var þá
skollin yfir, íslenzka krónan
gjörfallin, lánstraust þjóðar-
innar út á við eyðilagt og al-
ger upplausn blasti við í at-
vinnumálum landsmanna. —
Það var vegna þessara stað-
reynda, sem vinstri stjómin
hrökklaðist frá völdum, en
ekki vegna þess að landið eða
fiskimiðin umhverfis það
hefðu brugðizt. Það var for-
ysta stjómarvaldanna sem
brást.
★
Það kom svo í hlut núver-
andi ríkisstjórnar og flokka
hennar að skapa hinni fram-
takssömu og dugmiklu ís-
lenzku þjóð ný og betri skil-
yrði til þess að hagnýta nátt-
úruauðlindir landsins, snúa
hruni og upplausn vinstri
stjórnarinnar upp í velmegun
og uppbyggingu. Þetta hefur
tekizt svo vel, að sjálfur Tím-
inn talar nú daglega um að
„góðæri“ ríki á íslandi.
Án viðreisnarstefnu núver-
andi ríkisstjómar væri ekk-
ert góðæri í þessu landi í
dag. Ef haldið hefði verið á-.
fram á braut vinstri stjóm-
arinnar, uppbótakerfisins og
kyrrstöðustefnunnar ríkti hér
hallæri um þessar mundir.
Atvinnuvegirnir væru stöðv-
aðir, lánstraust þjóðarinnar
erlendis í kaldakolum, spari-
fjármyndun stöðvuð og bank-
arnir gjaldþrota.
Þannig liti myndin út, ef
vinstri stjómar stefnunni
hefði verið haldið áfram. Það
er vissulega mikill munur á
þeirri mynd og hinni, sem við
blasir í dag. Nú er það sí-
vaxandi framleiðsla, bætt
gjaldeyrisaðstaða, aukin spari
fjármyndun, sem setur svip
sinn á efnahagslífið og lífs-
baráttu fólksins.
Þegar þessar tvær myndir
verða bornar saman af ís-
lenzkum kjósendum fyrir
næstu kosningar, sem fram
eiga að fara á komandi sumri,
munu þeir ekki verða í nein-
um vafa um, hvora stefnuna
beri fremur að velja, viðreisn
arstefnu núverandi stjórnar-
flokka eða hallærisstefnu
þjóðfylkingarmanna, komm-
únista og Framsóknarmanna.
SKJÓL -HIMA-
LAYAFJALLA
0" ldum saman hafa Hima-
layafjöll verið hið nátt-
úrulega skjól og skjöldur Ind-
lands gegn ásókn Kínverja.
En þetta skjól hefur nú verið
rofið. Með árásinni á Indland
sl. haust tókst kínverskum
kommúnistum að ryðjast
gegnum fjallaskörðin, brjóta
vamir Indverja á bak aftur
og skapa sér aðstöðu til þess
að sækja niður á sléttur Ind-
landsskaga.
Þessi staðreynd getur haft
í för með sér stórfelldar og
örlagaríkar breytingar. Ind-
verjar hafa undanfarin ár,
undir forystu þeirra Nehrus
og Kristna Menons, lagt á-
herzlu á að fylgja hlutleysis-
stefnu í alþjóðamálum. Þeir
hafa reynt að vingast við
kommúnistastjómina í Pek-
ing, jafnframt þvi sem þeir
SKÖMMU fyrir jólin komust
stjómir bandarísku flugfélag-
anna Pan American World
Airways og Trans World Air-
lines að samkomulagi um sam
einingu flugfélaganna. Enn
vantar þó samþykki hluthafa
í félögunum, flugmálastjómar
Bandaríkjanna og Bandaríkja-
forseta, en ef það fæst og fé-
lögin sameinast, mynda þau
stærsta flugfélag heims og
mun það ganga undir nafninu
Pan Am World Airlines.
Það vom forsetar flugfélag-
anna, Juan T. Trippe, forseti
Pan American, og Cbarles C.
Tillinghast, forseti T.W.A.,
sem gáfu út sameiginlega til-
kynningu um það, að ákveðið
hefði verið að sameina flug-
hafa sett mikið traust á náin
viðskipti og vináttu við Sov-
étríkin.
En leiðtogar Indlands urðu
fyrir miklum vonbrigðum. —
Kínverska kommúnistastjórn
in lét heri sína ráðast á Ind-
land, og þegar Nehru leitaði
trausts og halds hjá Sovét-
stjórninni í Moskvu fékk
hann þar köld svör. Honum
var ráðlagt að verða við kröf-
um Kínverja.
Þegar Þannig var komið
átti Nehru einskis annars úr-
kostar en að fórna Krishna
Menon og snúa sér síðan til
Bandaríkjamanna og Breta
og biðja þá um vopn og hjálp
gegn árás kommúnista,
Árás kínverskra kommún-
ista á Indland hefur þegar
haft í för með sér miklu nán-
ari samv.innu Indverja og
hinna vestrænu lýðræðis-
þjóða en Indverjar töldu áð-
ingunni, að sameinuð yrðu flug
félögin færari um að keppa við
erlend flugfélög, sem flygju
heimsálfa á milli, en hlutur
bandarískra flugfélaga í því
flugi hefur minnkað um 42%
á s.l. 12 árum.
Forsetarnir sögðu, að innan
skamms yrði leitað samþykk-
is flugmálastjórnarinnar og
Bandaríkjaforseta, ef það feng
ist yrði haldinn fundur með
hluthöfum í báðum flugfélög-
unum og sameiningin borin
undir atkvæði þeirra.
Talsvert hefur verið um það
í Bandaríkjunum að undan-
förnu, að flutningafyrirtæki,
bæði járnbrautar- og flug-
félög, sameinuðust. Hafa við-
ur samrýmast hlutleysis-
stefnu sinni. Þessi aukna sam
vinna Indlands og Vesturveld
anna getur í framtíðinni haft
stórkostlega þýðingu í barátt-
unni gegn útþenslustefnu
kommúnista, ekki aðeins í
Asíu, heldur og annars stað-
ar í heiminum.
MARINER II
CJtefnumót Mariners II við
^ Venus er eitt stórbrotn-
asta afrek mannlegrar snilli-
gáfu, sem veraldarsagan get-
ur um. Með þvi mtmu vísind-
in afla sér fjölþættra upplýs-
inga um leyndardóma himin-
geimsins, svo sem um hitastig
ið á yfirborði Venusar og í
andrúmslofti hans, um að-
dráttarafl, segulsvæði og
geislabelti.
Mariner II er nú kominn á
sporbraut umhverfis sólu. Þá
komandi yfirvöld verið fús til
að veita samþykki sitt, þar til
fyrir mánuði en þá neit-
aði flugmálastjórn Bandaríkj-
anna umsókn bandarísku flug
félaganna American Airlines
og Eastern Airlines um sam-
einingu.
Ekki er enn vitað hver er
afstaða aðalhluthafans í
T.W.A. Howards Huges, til
sameiningarinnar. Hann á
78% hlutabréfa í félaginu, en
ef það sameinaðist Pan Ameri
can myndi hann ekiki eiga
nema 28% hlutabréfa í sam-
steypunni.
Forsetar Pan Am og
T.W.A. og Huges.
Charles C. Tillinghast, for-
Framhald á bls. 13.
braut mun þessi merkilegi
gervihnöttur renna, þar til
hann eyðist. En hann hefur
þegar lokið stórkostlegu hlut-
verki. Jarðarbúum hefur ekki
aðeins tekizt að eiga stefnu-
mót við Venus, heldur og að
fá skilaboð frá honurn um
36,6 milljón mílna leið.
Þetta afrek spáir góðu um
nýja sigra á sviði geimvísind-
anna. Bandaríkjamenn og
Rússar vinna nú af miklu
kappi að itndirbúningi tungl-
fara. Bandaríkjamenn gera
ráð fyrir að hafa að minnsta
kosti komið manni til tungls-
ins fyrir árið 1970, en e.t.v.
nokkru fyrr.
Hinir miklu sigrar geimvís-
indanna eru vissulega gleði-
leg sönnun mannlegrar snilli-
gáfu. Hitt er þó mikilvægara
að þessi vísindaafrek verði
hagnýtt í þágu friðar og upp-
byggingar í heiminum.