Morgunblaðið - 10.01.1963, Blaðsíða 2
2
MORGVtSBLAOlÐ
Fimmtudagur 10. januar 196?
Eldur í Empire State
New York, 9. jan. (NTB—AP).
í MORGUN brauzt út eldur í
hæstu byggúngu heims Empire
State-byggingunni í New York.
Tókst að ráða niðurlögum hans
á tæpri klukkustund og engin
siys urðu á mönnum.
Empire State byggingin er 102
hæðir og varð fólk, sem var að
störfum á 84. hæð fyrst eldsins
vart. Slökkvilið var kallað á vett
vang, en þvi tókst ekki strax að
finna hvar eldurinn hafði komið
upp.
Eftir að slökkvistarfinu var
lokið, var tilkynnt, að elds hefði
orðið vart á 25., 26., 64., 66., 68.,
og 69. hæð. Talið er að kviknað
hafi út frá rafmagni.
Allt fólk, sem var í bygging-
unni, þegar eldurinn kom upp
komst auðveldlega út, en að-
eins lítíll hlutí þeirra 25 þús.
manna, sem starfa í bygging-
unni daglega, var mættur til
vinnu, þegar eldsins varð vart.
Tvær útvarps og sjónvarps-
stöðvar, sem eru tíl húsa í Empire
State-byggingunni urðu að hætta
útsendingum á meðan að verið
var að slökkva eldinn.
Lélegar veiöihorfur
Slldin komin sunnar
ÁKAFLEGA gott veður var á
síldarmiðunum aðfaranótt nuð-
vikudags. 34 skip fengu þá sam
tals 29.700 tunnur. Aðalveiði-
svæðið var vestur undan Vest-
mannaeyjum, og þótti fótki á
Heimaey fagurt að lita út á sjó-
inn í vesturátt; þar var ljóshaf
mikið, og eins og einn sjómað-
ur komst að orði: Þetta er alveg
það sama og að koma til Man-
hattan! Löng löndunarbið er nú
i Heimahöfn í Vestmannaeyjum
eins og víðast á Suðvesturlandi,
nema kannski helzt í Reykjavík,
þótt miklu sé landað þar.
Blaðainlltrúi
IflTfl róðinn
hjt SAS
S. RALPH Cohen, sem verið
hefur blaðafulltrúi IATA (Al-
þjóðasambands flugfélaga) frá
1946, hefur nú verið ráðinn
blaðafulltrúi við New York
skrifstofu Norðurlandaflugfé
lagsins SAS. Verður Cohen
jafnframt aðstoðarmaður Tore
H. Nilerts framkvæmdastjóra
í New York.
Ralph Cohen er mjög vel að
sér í öllu, er varðar flugmál.
Hann var um skeið ritstjóri
National Aeronautics Maga-
zine, eða frá 1943 þar til hann
réðist til IATA. Og sem for-
stjóri upplýsingadeildar IATA|
hefur hann setið allar ráð-
stefnur sambandsins og átt
náið samstarf við sir William
Hildred framkvæmdastjóra. <
Cohen tekur við starfi sínu
hjá SAS hinn 25. febrúar n.k.
í gærkvöldi var síldveiðiflot-
inn aðallega sitt hvoru megin við
Vestmannaeyjar. Nokkrir höfðu
kastað á tólfta tímanum og feng-
ið dálítið, en allur fjöldinn hafði
ekki fengið neitt. Þarna eru þung-
ir og stríðir straumar og verra
að eiga við veiði en á fyrri veiði-
miðum. Lélegar veiðihorfur voru
þar í nótt.
í gærdag „melduðu** þessir
bátsir sig inn til Reykjavíkur
(tunnur í svigum): Hafrún ÍS
(1400), Halldór Jónsson (1300),
Framh. á bls. 23
Biskupinn yfir Islandi, herra Sigurbjörn Einarsson og séra Ölafur Skúlason, æskulýðsfull-
trúi, ásamt amerísku unglingunum, sem hingað komu í júní sl. og hluta af þeim íslenzku ung-
mennum, sem fóru vestur í sama mánuði. Myndin er tekin eftir messu í Árbæ.
Ungmennaskipti á vegum
ÞjóÖkirkjunnar
ÁRIÐ 1961 hóf íslenzka kirkjan
þátttöku í starfi, sem miðar að
því að auka samskipti og skiln-
ing milli þjóða með því að gefa
ungmennum tækifæri til ársdval
ar í framandi landi. Strax þá
héldu níu íslenzkir unglingar
vestur um haf og s.l. sumar voru
þeir fimmtán, sem valdir voru
tíl þess að taka þátt í þessum
ungmennaskiptum. Og hér á
landi hafa dvalizt samtals sjö
bandarisk ungmenni, þrjú fyrra
árið, en fjögur þetta yfirstand-
andi ár, en skiptin hefjast í júlí
ár hvert
Næsta sumar er ætlunin að
halda þessu starfi áfram og er
því ungu fólki á aldrinum 16
til 18 ára, sem áhuga kynni að
Rússarnir 32 ofbeldismenn
sem misþyrma börnum
segir sovézk fréttastofa
Moskvu, 9. jan. (AP—NTB).
í DAG birti sovézka fréttastof-
an Novosti frásögn af mönnun-
um 32, sem flýðu á náðir banda-
riska sendiráðsins i Moskvu og
báðu um aðstoð við að komast
úr landi vegna trúarofsókna eins
og skýrt var frá í fréttum.
Segir fréttastofan, að þetta séu
ofstækismenn, sem tilheyri
flokki, er nefndur sé „síberíski
aðskilnaðarflokkurinn“ og sé
starfsemi flokksins ólögleg. For-
ingja flokksins í Chernogorsk,
heimaþorpi flóttamannanna, segir
fréttastofan vera afbrotamann,
sem hafi ásamt flokksmönnum
sínum, er kalli sig kristna menn,
haft peninga af fjölda manna
með svikum.
Eins og kunnugt er kvörtuðu
flóttamennirnir undan því í
bandaríska sendiráðinu, að stjórn
in vildi taka börn þeirra frá
þeim.
Fréttastofan skýrir þetta
þannig, að fólkið hafi misþyrmt
börnum sínum. T. d. hafi sá, sem
var foringi mannanna, er fóru til
Moskvu, bundið son sinn við rúm
með rafmagnsvír, barið hann og
svelt í einn og hálfan mánuð
Varazt að gefa Primoiut of
lengi vegna hættu á vansköpun
segir Pétur Jakobsson
Kaupmannahöfn (NTB)
DÖNSK heilbrigðisyfirvöld
bönnuðu fyrir skömmu að
auglýsa í Iandinu hormóna-
lyfið Primolut, sem er m.a.
gefið vanfærum konum til
þess að koma í veg fyrir fóst-
urlát. Danska fréttastofan
Ritzau hefur það eftir dönsku
beilbrigðisyfirvöldunum, að
lyfið orsaki í 19 tilfellum af
100 vansköpun á fóstrum
kvenna, sem gangi með stúlku
börn. Hormónalyfið inniheld-
ur karlkynshormóna og van-
sköpunin, sem það getur vald-
ið er sú, að stúlkuböm
mæðra, sem tekið hafa inn
lyfið, fæðist með vott ytri
karlkynseinkenna
Bannað var að auglýsa lyf-
ið vegna þess, að í auglýsing-
unni um það er sagt, að það
hafi ekki sömu aukavirkan-
ir og önnur lík hormónalyf,
en notkun þess ekki bönnuð.
Blaðið snéri sér til Péturs
Jakobssonar, yfirlæknis fæð-
ingardeildar Landsspitalans,
vegna þessarar fréttar og
spurði hann um notkun Pri-
molut hér á landi.
Pétur Jakobsson sagði, að
lyf þetta væri talsvert notað
hér á landi, en varazt að gefa
vanfærum konum það of lengi
Og I of stórum skömmtum, því
að fyrir mörgum árum hefði
komið í ljós, að ofnotkun lyfs
ins gæti orsakað vansköpun.
Pétur Jakobsson, sagði, að
vansköpun, sem orsakaðist af
völdum lyfsins, læknaðist
sjálfkrafa þegar börnin eltust.
Aðalvandamálið fyrir
lækna þegar um slík tilfelli
væri að ræða, væri að ganga
úr skugga um hvort börnin
væru vansköpuð af völdum
hormónalyfsins eða af öðrum
orsökum, því að hættulegt
væri að gefa börnum, sem
vansköpuð væru af völdum
hormónalyfs annars konar
hormónalyf, en slík lyf þyrftí
að gefa börnum vansköpuðum
af öðrum orsökum.
og drengurinn orðið geðveikur
af meðferðinni. Segir fréttastof-
an, að um 30 börn hafi orðið
fyrir misþyrmingum af hálfu
ofstækismannanna og flest börn
þeirra séu blóðlítil og vannærð.
Almenningsálitið í heimaþorpi
ofstækismannanna sé mjög mót-
snúið þeim og vegna þess hafi
nokkrir þeirra verið sviptir for-
eldrarétti sínum og börn þeirra
flutt í heimavistarskóla.
Fréttastofan sagði, að ofstækis
mennirnir störfuðu í nokkrum
þorpum Síberíu og reyndu^ að fá
íbúa þeirra á sitt band. í einu
þorpi töldu þeir fólki trú um að
heimsendir væri í nánd og varð
fólkið skelfingu lostið og byrj-
aði að brenna eignir sínar til
þess að því yrði ekki álasað
fyrir að safna jarðneskum auði,
sagði fréttastofan.
Að lokum segist fréttastofan
harma, að blöð á vesturlöndum
hafi varpað píslarvættisljóma á
þá úr hópi ofstækismanna, sem
fóru til Moskvu. Eins og kunnugt
er voru það 6 karlmenn, 12 kon-
ur og 14 börn, sem leituðu að-
stoðar bandaríska sendiráðsins.
Ekkert hefur verið minnzt á at-
burðinn opinberlega í Sovétríkj-
unum fyrr en að fréííastofan birtí
fregn sína í dag.
hafa á því að dveljast í Banda-
ríkjunum í eitt ár, bent á að
kynna sér nánar möguleikana
með því að hafa samband við
æskulýðsfulltrúa Þjóðkirkjunn-
ar, séra Ólaf Skúlason, á Biskups
stofu, Klapparstíg 27, sími 12236.
Mun hann veita allar nánari upp
lýsingar og afhenda umsóknar-
eyðublöð. Ennfremur gefst ís-
lenzkum heimilum kostur á þvl
að veita amerískum ungmenn-
um móttöku tíl jafnlangrar dval
ar hér á landi.
Vestra dveljast íslendingarnir
sem gestir þeirra heimila, sem
taka þátt í skiptunum, en auk
þess eru söfnuðirnir virkir aðiiar
að boðinu. Munu unglingarnir
því kynnast amerísku kirkjulífi
og eru það vonir þeirra, er að
þessu standa, að þeir haldi áfram
kirkjulegu starfi, er heim kemur.
Unglingarnir munu stunda nám
í bandarískum skólum, svonefnd-
um High Schools. En fyrst eftir
að lent er á amerískri grund,
munu skiptinemarnir taka þátt i
námskeiði, sem ætlað er öllum
þeim, er valdir hafa verið til
þátttöku. Sxðan heldur hver til
þess staðar, sem honum hefur
verið úthlutaður, en það getur
verið í næstum hvaða fylki
Bandaríkjamia sem er.
Umsóknarfrestur um þessi
skipti er til 1. febrúar n.k.
(Frá Biskupsstofu).
Framhaldsaðal-
fundur Oðins :
Hættan af komm-
únistum í verka-
lýðshreyfingunni
FRAMHALDSAÐALFUNDUR
Málfundafélagsins ÓÐINS, félags
Sjálfstæðisverkamanna, var hald
inn í gærkvöldi. Fundurinn var
mjög fjölsóttur og urðu miklar
umræður um lagabreytingar og
fleira.
Pétur Sigurðsson, stýrimaður
og alþingismaður, hélt erindi um
efnið „Hættan af kommúnistura
innan verkalýðshreyfingarinnar".
Spunnust miklar umræður af
þessu erindi, og var þeim ekki
lokið, er Morgunblaðið fór í
prentun í nótt.
Finnar fá eldflaugar
Helsingfors, 9. jan. (NTB)
FINNSKA varnarmálaráðuneytið
skýrði frá því í kvöld, að sam-
ið hefði verið við Rússa og Breta
um, að þeir létu Finnum í té
eldflaugavopn til varraa. Rússar
munu láta Finnum í té flugvélar
af gerðinni MIG-21 búnar eld-
flaugUm, en frá Bretum fá þeir
eldflaugar, sem notaðar eru gegn
skriðdrekum.
í friðarsamningnum, sem ger?
ur var við Finnland 1947, ve
kveðið svo á, að Finnar maett
ekki hafa eldflaugavopn und:
höndum, en nú hafa löndin, set
gerðu friðarsamninginn, sa»
þykkt, að Finnar megi búast elc
flaugavopnum, sem aðeins aé
notuð til varnar.