Morgunblaðið - 13.01.1963, Qupperneq 17
r> Sunnudagur 13. janúar 1963
MORCV1SBLAÐ1Ð
17
«1
Dansskóli
Heiðars Ástvaldssonar
Kennsla hefst mánudaginn
14. janúar. — Eldri nem-
endur mæta á sömu dög-
um og tíma og fyrir jóL
Nýir nemendur geta sótt
skírteini sín í Alþýðuhúsið
mánudaginn 14. jan.
Guðrún, Guðbjörg og
Heiðar Ástvaldsson.
Kópavogur
Fundur verður í Fulltrúaráði Sjálfstæðisfélaganna í
Kópavogi sunnudaginn 13. janúar 1963, stundvís-
lega kl. 15:00 í Sjálfstæðishúsinu við Borgarholts-
braut.
Mjög áríðandi mál á dagskrá
í fundarhléi starfar kaffisala EDDU.
Stjórn Fulltrúaráðsins.
Konur - Saumaskapur
Konur óskast strax til að sauma létta herrafrakka
í fataverksmiðju, helzt vanar. (Akvæðisvinna.) —
Tilboð merkt: „Góðir tekjumöguleikar — 3792“
sendist Morgunblaðinu fyrir 17. janúar n.k.
r w
Utgerðamenn
Reynsla nágrannaþjóðanna hefur sýnt, að það borgar
sig bezt að þekja lestar fiskiskipanna með glertrefja-
plasti. Með því er tryggð betri ending skipanna og
gæði aflans. — Trefjaplst h.f. hefur fullkomnustu
fáanlegar vélar til samskeytalausra trefjaplasthúð-
unnar bæði á járn- og tréskipum. Nú þegar er eitt
stálskip til sýnis. Trefjaplast sparar tugir þúsunda
á ári í hreinsunar- og viðhaldskostnaði.
Allar uppl. gefnar á skrifstofu vorri Laugavegi 19,
3. hæð sími 17642 pósthólf 1324.
TREFJAPLAST H.F.
Elísabet Bjarnason
— minningarorð
HÚN FÆDDIST að Galtarholti í
Borgarfirði 3. ágúst 1899, dóttir
merkishjónanna, er þar bjuggu,
Sigríðar Guðmundsdóttur frá
Kvíum og Jóns pósts Jónssonar.
í föðurgarði ólst hún upp með
glaðværum systkinum og uppeld
isbróður, þar til hún giftist, þann
10. júní 1921, eftirlifandi manni
sínum, Hjálmari Bjarnasyni
bankafulltrúa, og áttu þau heim
ili sitt æ síðan hér í Reykjavík.
Þau eignuðust 5 mannvænleg
börn, 3 syni og 2 dætur, sem öll
eru gift og 16 inndæl barnabörn.
Sitt ævistarf vann hún innan
heimilisins í kyrrþey, en með
stjórnsemi og festu. Hafði hún til
að bera allt það, er prýða má
glæsilega og góða húsmóður,
enda leið henni aldrei betur en
þegar börnin og barnabörnin
söfnuðust saman á heimili henn-
ar. Þá heyrðist oft kallað „amma
Lísa“, og þá færðist alltaf hlý
legt, vingjarrilegt og fallegt bros
á andlit ömmu. Hún var söngelsk
og hrókur alls fagnaðar og naut
þess að taka á móti gestum, enda
var hún gestrisinn svo af bar, og
naut hún þar sem á öðrum svið
um stuðnings manns síns, og hef
ég ekki þekkt samhentari hjón
en Lísu og Hjálmar né heimili,
sem betur var tekið á móti gest
um. Og ég veit, að þeir eru
margir, sem nutu þeirrar ánægju
að vera gestir þeirra, og þeir
eiga allir bjarta og fallega minn
inga um hina gestrisnu, glæsi-
legu húsmóður. Hún var ein af
þeim, sem aldrei sá annað en
það bezta í fari hvers eins, og ef
það kom fyrir, að einhverjum var
hallmælt, svo hún heyrði, þá var
hún ætíð sú fyrsta, sem and-
mælti slíku, og það þannig, að
maður sannfærðist um, að hún
hefði á réttu að standa. Það er
alltaf erfitt að sjá á bak elsku
legum vini og förunaut, en þakk
látur' má maður vera fyrir, að
ekki skuli vera eftir annað en
fagrar og góðar minningar, og
vil ég votta eftirlifandi manni
hennar, börnum og barnabörnum
og öðrum aðstandendum, mína
innilegustu hluttekningu. Kæra
mágkona, far þú í friði og friður
Guðs þig blessi.
Þorst. Bjamason.
SUM\RNÁMSKEID í ENGLAMDI
Skólastofnunin Scanbrit efnir til sumarnámskeiða í Eng-
landi næsta sumar. Dvelja nemendur á heimilum,1
aldrei fleiri en einn af hverju þjóðerni á sama heimili,
og ganga í skóla þaðan. Farið verður 7. júní og komið
heim aftur 27. ágúst. Flugferðir báðar leiðir, fæði og
húsnæði á heimilinu og skólagjöld kosta £ 185. — Aðeins
takmarkaður fjöldi getur komizt með, og er því ráðlegt
að sækja um sem fyrst. Allar upplýsingar gefur Sölvi
Eysteinsson, sími 14029.
ÚTSALA
kventöskum
kápum og
kjólaefnum
Laugavegi 116.
Á morgun fer fram frá Foss-
vogskapellu bálför frú Elísabet-
ar Jónsdóttur Bjarnason. Hún
andaðist 1 Landakotsspítala,
mánudaginn 7. þ. m. Hafði hún
legið þar rúmföst frá því á
þriðja dag jóla en átt alllengi við
vanheilsu að búa, enda þótt hún
hafi eigi hlíft sér við heimilis-
störfin meðan hún gat til hins
síðasta notið fótavistar.
Elísabet ólst upp í heimahús-
um sem var þekkt og orðlagt
myndarheimili, enda í þjóðbraut.
Þangað leituðu margir ferða-
langar gistingar, greiða og margs
konar fyrirgreiðslu, sem ljúflega
var látin í té. Fyrir hinni ungu
dóttur átti eftir að liggja að eign
ast slíkt heimili í Reykjavík.
Þann 10. júní 1921 giftist Elísa
bet eftirlifandi manni sínum,
Hjálmari Bjarnason, bankafull-
trúa í Reykjavík. Hafa þau alla
búskapartíð sína búið hér í höf
uðborginni. Þau eignuðust fimm
börn, sem öll eru á lífi og upp
komin, væn börn og mesta mynd
arfólk. Elzt þeirra er Gunnhildur,
sem dvelzt í foreldrahúsum,
Haukur, starfsmaður í Sendiráði
íslands í París, kvæntur franskri
konu, Hörður, símvirki í Reykja-
vík, kvæntur Bryndísi Bjarna-
dóttur, Sigríður gift Sverri Guð-
varðssyni, stýrimanni og Emil bú
fræðikennari við háskóla í Banda
ríkjunum, kvæntur danskri konu.
Barnabörn Elísabetar og Hjálm-
ars eru 16 að tölu.
í minningu þeirra kynna, sem
vér vinir þeirra hjóna eigum
geymdar frá ótal gleðistundum,
kemur ávalt fram í hugann hið
hlýja viðmót og örláta gestrisni,
er vér mættum á heimili þeirra.
Húsmóðirin hafði yndi af að
veita ríkulega og af sönnum vin
arhug. Hún bjó manni sínum og
börnum myndarlegt heimili og
laðaði að sér vini, sem mátu
mikils hið glaðværa andrúmsloft,
sem einkenndi heimili Elísabetar
og Hjálmars allar stundir.
Þegar leiðir hafa skilið í þessu
lífi, verður söknuður hins eftir
lifandi eiginmanns sár, að sjá
skyndilega að baki ástkæran. vin,
eftir rúmlega fjörutiu ára ein-
læga og snurðulausa samfylgd og
samhjálp í blíðu og stríðu.
Vér sendum honum, börnum
hans, barnabörnum og öllum öðr
um ástvinum einlæga hluttekn-
ingu og samúðarkveðjur.
A. B.
GABOOIM SPÓNAPLÖTUR HARÐTEX KROSSVIÐUR HUSGAGNASPÖNN
16 — 19 — 22 — hör limba Teak
og 25 mm 19 og 22 m/m 4’ x 9’ 4 — 5 og 10 m/m Eik
Sendum gegn póstkröfu um land allt. beyki 3 og 4 m/m Maghogny
FYRIRLIGG JANDI:
Hjálmar Þorsteinsson & Co. hf.
Klapparstíg 28. — Sími 11956.
SÍ-SLETT P0PLIN
(N0-IR0M)
MINERVAc/XWö~
STRAUNING
ÓÞÖRF