Morgunblaðið - 13.01.1963, Síða 23
Sunnudaffur 13. janúar 1963
MORCVNBLAÐIÐ
23
Innheimtumaður
Óskum eftir að ráða innheimtumann.
Upplýsingar á skrifstofunni.
FORD-umboðið
Sveinn Egilsson
Laugavegi 105.
HOTEL
CONTINENT
N0RREBROGADE 51.
K0BENHAVN N
TELEFON 35 46 00
Nýtt hótel í miðri Kaupmannahöfn. Það leigir góð her-
bergi með sér baðherbergjum og síma. Yfir vetrarmán-
uðina er verðið niðursett. — Hótelið vill gera sér far
um að greiða fyrir íslendingiun, sem dvelja í borginni
í lengri eða skemmri tíma.
Tilkynning frá
Bæjarsímanum í Iflafnarfirði
Vegna undirbúnings nýrrar símaskrár, eru þeir,
sem eiga óafgreiddar símapantanir við stöðina,
beðnir að endurnýja þær fyrir 20. janúar 1963, ella
skoðast pantanirnar úr gildi fallnar. Endurnýjun
fer fram alla virka daga kl. 8—21 í afgreiðslu
Símastöðvarinnar, Strandgötu 24.
Stöðvarstjóri.
HeSmingur í verzlun
fil sölu
Sérverzlun sem er rekin í tveim sjálfstæð-
inn deildum er til sölu að hálfu, þannig
að væntanlegur kaupandi taki við annari
deildinni. Alveg ný innrétting er í verzlun-
inni. Þetta væri gott tækifæri fyrir karl
eða konu, sem vildi skapa sér sjálfstæða
atvinnu. Útborgun eftir samkomulagi.
Lysthafendur leggi nöfn sín inn á afgr.
Morgunbl. merkt: „Karl eða kona — 1886“
fyrir 17. jan. og munu þá verða veittar
allar upplýsingar.
inmmmm
Pétur Ólafsson:
f HAMINGJULEIT
(The Miraole), bandarísk, Laug-
arásbíó, 121 mín.
Leikstj. Irving Rapper.
Þessa dagana getur að líta tvær
nunnumyndir í kvikimyndahús-
um borgarinnar, en ærinn mis-
munur er á efni þeirra og með-
höndlun þess. Þar sem önnur —
Nunnan — fjallar af einlægni
um samvizkuspursmál, kafar hin
— í hamnigjuleit — ekki djúpt
í mannshugann, en er öll upp
á rómantíkina og ytri átökin og
skrautið. Fyrrnefnda kvikmyndin
hefst á inngöngu nunnu í klaust-
ur og lýkur á því að hún yfir-
gefur það. í þeirri síðarnefndu
er þessu algjörlega öfugt farið.
I byrjun myndarinnar sjáuim við
ungnunnuna Teresu Caroll Bak-
er), innan klausturmúranna. Ár-
talið er 1812. Herir Napóleons
vaða sigrandi um Spán. Micha-
el Stuart (Boger Moore), höf-
uðsmaður í liði Breta, sem berj-
ast við franska herinn, kemur
særður til klaustursins. Þar verð
ur hann aðnjótandi hjúkrunar
Teresu og brátt grípur ástin
báða unglingana.
Þegar hann er farinn, kastar
hún nunnuklæðunum — í atriði
sem ég hélt að mundi verða
fyrsta nunnufata „strip-tease“ í
kvikmynd — og yfirgefur klaustr
ið. En þá stígur stytta Maríu
frá Miraflores, verndardýrlings
klaustursins, niður af stalli sín-
um og íklæðiist búningi og svip
Teresu á meðan hún kannar lysti
semdir heimsins. En hún snýr
aftur til klaustursins, eftir við-
komu í helztu stórborgum Evr-
ópu sem söng og dansmær, því
henni fylgir sú ógæfa, að þeir
sem elska hana, eru dauðanum
vígðir. Til þess að Michael verði
ekki fyrir þeim álögum, snýr
hún aftur til síns guðrækilega
lífemis og verður það til þess að
Michael kemst lifandi úr hildar-
leiknum við Waterloo.
Þegar Teresa klæðist aftur bún
inigi nunnunar, stígur Maríu-
myndin aftur á stall sinn og ó-
áran þeirri, er hófst þegar hún
hvarf af stallinum, linnir og dýr
lingurinn vakir aftur yfir klaustr
inu og íbúum Miraflores.
Þessi fjölbreytilegi samsetning
ur af rómantík, kraftaverkum
og sálmasöng, ásamt heimisgleði
og herferðum, sem mun vera
gerður eftir leikriti er Max Rein-
hardt setti eitt sinn á svið, er
þrátt fyrir grunnfærnina ekki
svo ósjálegur. Kemur þar til á-
gæt sviðsetning, sem hæfir vel
breiðtjaldinu, sérlega í hópatr-
iðum og litafegurð, sem gera
myndina að kunnáttusamlega
gerðri skrautsýningu, sem feliur
aldrei niður í smekkleysi eða
leiðindi, þótt hún skilji ekki mik
ið eftir. Leifcstjóranum tekst þó
ekki að skapa andrúmsloft þeirra
tírna sem myndin á að geras-t á
og Walter Slezak, í hlutverki
vinar Teresu, sígaunans, er eins
og hann hafi villzt inn í kvik-
myndina úr þýzkri gamanóper-
ettu. Einhvern veginn hefur það
einnig farið framhjá aðstandend-
um myndarinnar, að það ku hafa
verið votviðri við Waterloo á
örlagadegi Napóleons, en þeir
láta sól skína, í heiði þann daig.
— Dillon
Framhald af bls. 15
skránni, að Dillon bar hag
dóttur sinnar fyrir brjósti, en
það sést af bókun í kirkju-
bók, að ekki lögðu allir mikið
upp úr sambandi hans við
Sire. EUn stutta og kuldalega
bókun um faðerni Henriettu
er á þessa leið: „Faðir, ensk-
ur reisandi að nafni Dillon.“
★
Arthur Edmond Dennis
Dillon fæddist 1812. Hann
var sonur 13. Vicecounts
(greifa) ættarinnar. Faðir
hans, Henry Augustus fékk
titilinn árið 1813. Henry átti
7 börn, 5 syni og 2 dætur.
Tveir bræðranna voru eldri
en Arthur og minnist hann
ekki á þá í erfðaskránni.
Lítið er vitað um Arthur
Dillon eftir að hann yfirgef-
ur Island, annað en það, að
hann verður greifi, sá 16. í
röðinni, þannig að báðir eldri
bræður hans hafa orðið greif
ar, enda var sá eldri orðinn
það, er Dillon kom til ís-
lands, þar sem faðir þeirra
lézt árið 1832. Dillon hefur
kvænzt í Englandi, þvi að
hann átti son, 17. greifann,
sem var þekktur vísindamað-
ur og safnvörður í Tower-
safninu í London. Lengra
hefur Lárusi ekki tekizt að
rekja Dillonsættina, og mun
17. greifinn hafa verið sá síð-
asti.
Það er af Sire Ottesen að
segja, að þegar Dillonshús er
fullgert um haustið, flytur
hún í það með Henriettu og
hefur þar veitingasölu eins
og hún hafði áður í Klúbbn-
um, en nú fyrir eigin reikn-
ing. Hún hafði alltaf einn
leigjanda auk kostgangara
og veturinn 1841—4i2 bjó hjá
henni Jónas Hallgrímsson
„Píuböllin" svonefndu voru
á þessum árum haldin í Dill-
onshúsi. Þau stunduðu vinnu-
konur og þeir, sem minna
máttu sín, en heldri manna
— Krúsjeff
Framhald af bls. 1.
maður í hugsjónadeiilunni við
kínverska og aibanska kommún
iista. Herima óstaðfestar fregnir,
að hann búi á sveitasetri pólsiku
stjórnarinnar, við Lansikie-vatn,
en setrið var áði'.r í eigu Her-
manns Göring. Þar í nágrenni er
hið ákjósanlegasta yeiðiland.
Ennfremur eru uppi raddir í
Póllandi um, að Krúsjeff íhuigi
jafnframt möguleikana á þvi að
bæta tengsl pólskra kommúnista
og páfastóls.
★ ★ ★
„Neues Deutschland“, miál-
gagn austur-Þýzka kommúnista-
flöksins birtir í dag yfirlýsingu
frá einum af miðstjórnaraðrlum
flokkisins, Hönnu Wolf, sem gerir
ljóst, að flokkurinn muni í einu
og öllu styðja sjónarmið Krús-
jeff, forsætisráðherra er ágrein-
ing sovézkra og kínverzkra komim
únista ber á góma.
í DAG
í GÆR birtist grein um Þor-
vald Guðmundsson sjötugan, og
sagt í fyrirsögn að afmiælið væri
í gær. Afmælið er hins vegar í
dag eins og fram kemur í grein-
inni. Hlutaðeigendur eru beðnir
velvirðingar á þessum mistökum.
böllin fóru fram í Klúbbn-
um. Fyrir dansinum hjá Sire
lék venjulega fiðlari og
Hendrichsen, lögregluþjónn,
á pípu. Á báðum stöðum var
dansað við kertaljós.
Þegar Henrietta fermist,
1849, hætti Sire greiðasölunni
og leigði út meirihluta húss-
ins og stundum allt. Voru
margir mikils metnir borgar-
ar leigjendur hennar. Sá
fyrsti þeirra var Havsteen
kaupmaður.
Henrietta giftist í fébrúar
1862 Peter Ludvig Levinsen,
sem nokkru fyrr hefur selt
Ingileifu Melsted, amtmanns-
ekkju, Dillonshús. Levinsen
var búsettur í Hafnarfirði og
Keflavík og um stuttan tíma
faktor Glasgow-verzlunarinn-
ar í Reykjavík. Hann lézt ár-
ið 1873, og birtist þá þakkar-
grein í Þjóðólfi, skrifuð af
Henriettu. Levinsen og Henri
etta áttu saman 2 börn.
Henrietta lézt í Reykjavík
árið 1885 og bjó siðast í húsi
Eyþórs Felixsonar kaupmanns
í Aðalstræti, þar sem nú er
Bókaverzlun Sigfúsar Ey-
mundssonar. Um börn henn-
ar er hins vegar ekkert
vitað eftir 1873. Grunur leik-
ur á, að þau hafi flutzt til
útlanda, en hvert? Jón Helga
son biskup getur þeirra
hvergi í hinum greinar-
góðu upplýsingum sínum um
íslendinga í Danmörku. Sire
lézt í Reykjavík 1878.
Gröf Levinsens kaupmanns
er í Reykjavík. Á henni er
legsteinn úr hvítum marm-
ara, gefinn af börnum hans
(hann átti 5 börn, 3 af fyrra
hjónabandi), en augsýnilega
aðsendur erlendis frá. Við
legsteininn eru tvö leiði, en
hvort Henriette hvílir þar
einnig er ekki vitað með
vissu en telja má líklegt að
svo sé. Ef einhver kynni að
vita eitthvað um afdrif af-
komenda Henriettu, ætti hann
þegar að hafa samband við
Minjasafn Reykjavíkur.