Morgunblaðið - 18.01.1963, Síða 22

Morgunblaðið - 18.01.1963, Síða 22
22 MOR'crr v ni’aðId Fostudagur 18. janúar 1963 Danskt-sænskt lið móti Brasilíuliði Frægasta knattspyrnulið heims væntanlegt til Norðurlanda A SKRIFSTOFU knattspyrnu- sambands Brasílíu í Rio de Janeiro verður innan fárra daga tekin ákvörðun um það, hvort Danir og Sviar fái að sjá heims- meistarana > knattspymu á sumri komanda. Þá verður rædd spuming um það hvort taka eigi boði um leiki í Dan- mörku og Sviþjóð en landslið Brasiliu hefur tvívegis unnið heimsmeistaratign með sína snillinga, Pele, Zagallo, Santos og Garrincha í broddi fylkingar. Landsleikjaför Brasilíumenn hafa ákveðið landsleik við England í maí í Lundúnum. „Scandia Pool“ sam tök danskra og sænskra félaga hafa af þeim sökum viljað fá Brasilíumennina heim — stutt að fara frá London. Brasilíumenn hafa tilkynnt að þeir muni leika 9 leiki í Evrópu 21. apríl til 19. maí. Einn þeirra er landsleikurinn við England 8. maí en hann á að vera hápunktur hátíðahalda enska knattspyrnusambandsins vegna 100 ára afmælis sambands ins. í fyrsta sinn Brasilíumenn fóru svipaða kappleikjaför árið eftir að þeir unnu heimsmeistaratitilinn í fyrsta sinn og komu þá m. a. við í Kaupmannahöfn. Nú hafa Danir og Svíar bundizt samtök- um á sviði knattspyrnu (nokkur félög) og þessi samsteypa telur líkur á að Brasilíumenn leiki Þjóðverjui onni Sviss 23-17 VESTUR-ÞJÓÐVERJAR og Svisslendingar léku lands- leik í handknattleik í gær og fór Ieikurinn fram í Basel í Sviss. Úrslitin urðu þau að Vestur-Þjóðverjar báru sigur úr býtum með 23 mörkum gegn 17. Eins og menn muna kom- ust íslendingar í úrslit heims meistarakeppninnar síðustu með sigri yfir Svisslending- um og þann leik vann ísland með 18 gegn 16. einn eða fleiri leiki á Norður- löndum. Verði aðeins um einn leik að ræða verður hann í Kaupmannahöfn eða Gautaborg og þá verður reynd samsteypa sem aldrei fyrr hefur verið reynd, úrvalslið knattspyrnu- manna frá þessum stöðum. IVIOLAR EINN eina helgi í viðbót hefur öllum laugardags-knattspyrnu- leikjum í Englandi verið frestað til mánud'ags. Hið „ófæra“ vetr- arveður gefur sig hvergi og að- eins einn leikur af fyrirfram á- kveðnum leikjum á morgun, laugardag, er enn á kappleikja- listanum — Carlisle gegn Grave- send. Nokkrir helztu kappanna í lyftingunum. Aftari röð frá vinstri: Ólafur Björgúlfsson, stjómar- maður í deildinni, Gunnar Alfreðsson, Óskar Sigurðsson og Gabor þjálfari. — Fremri röð frá vinstri: Guðmundur Sigurðsson, sem 16 ára lyfti 94 kg, og Svavar Carlsen, sem iyfti þyngsta hlassinu, 124 kg. j Sá þyngsti lyfti 124 kg. og einn 16 ára lyfti 94 kg. Nýrri íþróttagrein hleypt af stokkunum á kappmóti Guðmundur Sigurðsson beitir ítrustu kröftum til að ná 94 kg í jafnvægi. - . Myndir: Sv. Þormóðsson. 7 Brasilíumenn í heimsllöi Pele og Garrincha „knattspyrnumenn heimsins 19624 UNGVERSKA íþróttablaðið „Nepsport" hefur látið fram fara atkvæðagreiðslu meðal 32 leiðandi- íþróttablaða og fréttastofnana víðsvegar um heim til að kjósa „bezta knatt spymulið heims 1962“ svo og „bezta knattspymulið Evrópu 1962“. Úrslitin urðu sem hér segir og eru atkvæðatölur leikmanna í svigum. Heimsliðið. Schroiff (Tékkóslóvakíu, 20) D. Santos (Brasilíu, 22) Jusufi (Júgóslavíu, 10) Zito (Brasi- líu, 13) Marfo Brasilíu, 11) Masopust (Tékkóslóvakíu, 21) Garrincha (Brasilíu, 32) Sek- ularec (Júgóslavíu, 14) Vava (Brasilíu, 10) Pele (Brasilíu, 24) og Zagallo (Brasilíu, 14). Evrópuliðið. Schroiff (Tékkóslóvakíu, 19) Armfield (England, 17) Jusufi (Júgóslavíu, 9) Solymost (Ung verjalandi, 6) Maldini (ftalíu, 12) Masopust (Tékkóslóvakíu, 18) Sandor (Ungverjal., 13) Sekularec (Júgóslavíu, 10) Seeler (Þýzkalandi, 14) Tichy (Ungverjalandi, 11) og Gento (Spáni, 14). f atkvæðagreiðslu um það hver væri „knattspyrnumaður heimsins 1962“ deildu Pele og Garrincha sigri með 32 atkv. hvor, Masupost fékk þriðja sætið með 27 atkv. Masupost hlaut titilinn fyrir Evrópu með 17 atkv., Sekularev, Júgóslav- íu hlaut 10 og Eusebio Portú- gal 9 atkvæði. LYFTINGAMÓT var haldið á vegum ÍR í fyrrakvöld, en fé- lagið stofnaði lyftingadeild inn- an sinna vébanda í októbermán- uði síðastliðnum og hafa um 25 menn á ýmsum aldri þjálfað þessa íþrótt, sem telja má eina hina elztu er á fs- landi hefur verið lögð stund á. Baráttan við amlóða, hálfsterk og fullsterkan hefur löngum verið metnaðarmál hvers ein- staks, en er roeð lyftingum tek- in upp í alþjóðlegu formi og eftir fastmótuðum reglum. Gabor tekur við þjálfun XR stofnaði lyftingadeild í október sl. en þá hafði myndast nokkur hópur manna sem vildi leggja stund á þessa fornu íþrótt. Hvatamaður var Finnur Karlsson Og hefur hann miðlað af þeirri þekkingu á íþróttinni sem hann bjó yfir sem byrjandi. Nú hefur deildinni eflzt fylgi og munu um 25 menn á ýmsum aldri sem leggja stund á íþrótt- ina. Það var deildinni mikill feng- ur að fá ungverska þjálfarann Gabor, en hann hefur nú hafið starf hjá deildinni sem þjálfari. Þó hann sé ekki sérmenntaður í lyftingum kann hann góð skil á íþróttinni, enda hefur hún um áraraðir verið Olympíugrein og stundum allsstaðar þar sem íþróttir eru iðkaðar. Keppni í lyftingum fer eftir alþjóðlegum reglum og á Olym- píuleikum er keppt í þremur þrautum. Úrslit Þetta fyrsta mót ÍR var hins vegar byrjun að öðru meira og einungis keppt í einni þrautinni, þreklyftingum, þ.e.a.s. jafnhend- ingu. Keppendum var skipt í flokka eftir þyngd ao alþjóða- lögum. Úrslit urðu þessi. Milliþungavigt 85—90 kg Hver keppandi fær þrjár til- raunir og getur þyngt lóðin á áhaldinu að vild, en hann má aldrei láta fækka lóðum á því. Úrslit í gær urðu þessi: Milliþungavigt: 1. Svavar Carlsen 124 kg. 2. Þorsteinn Lbve 10814. Léttþungavigt: 1. Gunnar Alfreðsson 10214. i Millivigt: 1. Óskar Sigurðsson 95 kg. 2. Eiríkur Caælsen 96 kg. I annarri tilraun. 3. Bergur Björnsson 83 kg. Léttavigt:' Guðmundur Sigurðsson 94 kg. 1 annarri tilraun. Góður árangur Árangur Svavars Carlsen f milliþungavigt er mjög góður hjá byrjanda. Hann er í sér- flokki þessa hóps sem hefur byrjað æfingarnar og á vafa- laust eftir að ná miklu lengra undir góðri þjálfun. Sérstaka at- hygli vakti og Guðmundur Sig- urðsson í léttvigt. Hann er að- eins 16 ára gamall — en lyftl þó 94 kg. Það verður að teljast mjög gott. Björt framtíð Á æfingum að undanförnu hafa þessir nýju ÍR-ingar náð mjög góðum afrekum. Svavar hefur t. d. lyft 130 kg á æfingu og brautryðjandi deildarinnar Finnur Karlsson sem lagt hefur sérstaka áherzlu á svonefnda „krull“ að ferð sem er í þvi fólgin að lyfta með ákveðinni aðferð að brjósti, lyfti á þann hátt 130 kg en Norðurlandamet í þeirri grein er 126 kg. Afrek Finns er hins vegar æfingaafrek sem ekki hlýtur staðfestingu. En allt þetta sýnir að lyfting- ar eiga hér marga og góða iðk- endur og afrekin í byrjun lofa góðu um framtíðina. Gabor þjálfari á án efa að geta kennt piltinum undirstöðuatriði til frek ari framfara. MOLAR Heimsmethafinn í stangar- stökki, Finninn Pennti Nikula hefur tilkynnt að hann sé fús að fara á vegum finnska í- þróttasambandsins í keppnis- ferð til Bandaríkjanna. Hin fyrsta verður 23. febrúar. ★ Danny Blanchflower fyrir- liði Tottenham, sem slasaðist í leik fyrir mánuði var í gær lagður inn í sjukrahús til uppskurðar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.