Morgunblaðið - 18.01.1963, Blaðsíða 23
Föstudagur 18. janúar 1963
MORCVNBLAfrlÐ
23
- EBE
Framh. aí bls. 1
Vilja semja viff öll aðildarríkin
— ekki Frakka eina
Meðan ráðherrar sexveldanna
sátu á fundinum raeddi brezki
ráðherrann, Edward Heath, við
fulltrúa frá samveldislöndunum
og einnig fulltrúa aðildarríkja
Fríverzl.svæðisins. Hafði hann
skýrt frá þeim áranigri, sem þeg
ar hefði náðst og helztu ágrein
ingsatriðunum. Hann kvaðst
svartsýnn á úrslitin eftir að mál
íð tók óvænt þessa nýju stefnu
tfyrir nokkrum dlögum. í aðal-
stöðvum brezku samninganefnd
arinnar er almenn svartsýni ríkj
andi, að sögn fréttaritara.
Haft er eftir nefndarmönnum,
að Heath hafi hvatt ráðherrana
fimm, sem vilja allt til vinna,
að Bretar fái inngöngu í Banda
lagið, til þess að fara að öllu
með varúð, þvi að Bretar óski
ekki eftir deilum við Frakka og
vilji ekki valda klofningi innan
Efnahagsbandalagsins.
Stjórnin í Eondon hafði stöð-
ugt samband við Heath í dag.
Var haldinn ráðuneytisfundur
rétt áður en ráðherrafundurinn
í Briissel hófst. Sagði talsmað-
ur stjórnarinnar, að honum lokn
um, að Bretar væru enn þeirrar
skoðunar að um aðild Breta að
Efnahagsbandalaginu þyrfti að
semja við öll aðildarriki þess, en
ekki Frakka eina.
Fregnir frá Bonn herma, að
utanPíkismálanefnd sambands-
þingsins, hafi einróma samþykkt
að mæla áfram með fullri aðild
Breta og áframlhaldandi samn-
ingaviðræðum.
Ályktun Evrópuráðsins.
Ráðgjafanefnd Evrópuráðsins
samþykkti á fundi sínum í dag
ályktun, þar sem þeim tilmælum
er beint til aðildarríkja Efna-
hagsbandalagsins og Bretlands að
þau leggi sig fram um að ná
sem allra fyrst samkomulagi um
aðild Bretlands. Ályktunin var
samþykkt með 81 atkv. gegn
engu, en sex fulltrúar sátu hjá.
Lögð er á það áherzla í álykt
uninni, að náist ekki samkomu-
lag minnki mjög líkurnar fyrir
aukinni einingu Evrópuríkja. —
en í nánustu framtíð muni tæp
ast gefast tækifæri til svo víð-
tæks samstarfs rikja álfunnar,
sem fyrirhugað hafi verið.
Sextugur maður
barinn og rændur
Þyrla frá varnarliðinu
sækir sjúkling til Vestf j.
— Kommúnisfar
Framhald af bls. 3.
Þjóðviljinn sagði frá því að
lýðræðissinnar hefðu farið ham-
förum í kosningunum um sl. helgi
og rak upp mikið harmakvein
yfir óförum hinna „stéttvísu"
verkamanna. Hverjir skyldu það
þá vera þeir „stéttvisu“ verka-
menn, sem tryggt hafa kommún
istum völdin í Verkalýðsfélagi
Borgarness? Þá sögu þekkir
verkafólkið í Borgarnesi það vel
að óþarfi er að sinni að birta
nöfn þessara „stéttvísu verkalýðs
leiðtoga" en ef til vill skapast
ástæða til þess síðar.
Rétt er að taka það fram, að
B-listi lýðræðissinna í Verkalýðs
félaginu í Borgamesi er skipaður
mönnum úr öllum lýðræðisflokk
unum, mönnum, sem sett hafa
hagsmuni stéttar sinnar og sam-
taka ofar innbyrðis pólitískum
deilum um þjóðmál. Það sam-
starf, sem þaraa hefur skapazt
er til fyrirmyndar, sem getur
haft ómetanlega þýðingu fyrir
verkalýðshreyfinguna. — Þess
vegna eru kommúnistar jafn reið
ir og raun ber vitni og munu
gera allt, sem í þeirra valdi er,
til að hindra sigur verkafólksins
í Borgaraesi. En lýðræðissinnar
munu standa fast saman í kosn-
ingunum á morgun og sunnudag
og gera það sem í þeirra valdi
stendur til að hnekkja lögbrot
um og yfirgangi kommúnista og
aðstoðarmanna þeirra.
í FYRRAKVÖLD var hrinigt
til Slysavarnafélagis íslands og
tilkynnt, að Ragnar Guð-
mundsson, bóndi að Hrafna-
bjönguim í Arnarfirði, hefði
fengið heilablóðfall og yrði
að grípa til skjótra ráðstaf-
ana til að koma honum á
sjúkrahús. Vegir milli fjarð-
anna eru allir ófærir, þ.á.m.
vegurinn til Dýrafjarðar, þar
sem næsti sjúkrafhigvöilur er.
Slysavarnéifélagið snéri sér
þvá til varnarliðsins og bað
um aðstoð. Var vel við þeirri
málaleitun brugðist, og lofað
að senda þyrlu á vettvang
þegar í birtingu. Kl. 9,30 í
gærmorgun kom þyrlan til
Reykjavikur, til þess að ná 1
son Ragnars, Gunnar, sem var
leiðsöguanaður í ferðinni. Að
því loknu var haldið af stað
og fylgdi þyrlunni önnur flug
vél, af gerðinni DC-3, og
flutti hún eldisneyti fyrir þyri
una, sem hefur mjög tak-
markað flugþol. Báðar véí-
arnar lentu á Hellissandi og
tók þyrlan benzín þar. Síðan
var haldið áfram norður, en
sökum dimmviðris varð að
snúa aftur til Sands og bíða
þar átekta unz rofaði til
skömmiu síðar, og þyrlan
komst aliu leið á áfangastað-
inn og lenti á túninu að
Hrafnabjörgum. Það var laust
fyrir kl. 2.
Um svipað leyti og vélin
lenti í Arnarfirði mældi
presturinn á Þingeyri við
Dýrafjörð vindlhraðann, og
reyndist hann vera 30 hnút-
ar, svo að vamarliðsmenn
hafa orðið að leggja sig í
talsverða hættu við björgun-
ina.
Ekki tók langan tíma að
koma sjúklingnum upp í vél-
ina, og var því brátt haldið
af stað til Sands, til að taka
eldsneyti, en mikill mótvind
ur var, og sóttist ferðin seint.
Ragnar var meðvitundarlaus
er hann kom upp í flugvél-
ina, en á leiðinni til Sands
fékk hann rænu, og er þang-
að var komið kl. rúml. 4, var
líðan hans orðin sæmileg eft-
ir atvikum.
Nú var tekið að rökkva og
ekki hægt að komast lengra,
þar sem þyrlum er yfirleitt
ekki flogið í myrkri. Með
hliðsjón af líðan Ragnars var
því ákveðið að bíða til morg-
uns, en halda til Reykjavák-
ux strax í birtingu. Læknir
frá varnarliðinu er með í ferð
inni og mun annast sjúfcl-
inginn þar til hann kemst á
sjú'krahús.
SL. ÞREÐJTJD AGSK V ÖLD var
ráðizt á sextugan mann, líklega
nærri Miðbænum í Rvík, hann
barinn með flösku og rændur
áfengi og peningaveski með 800
krónum L
Nánari atvik voru þau að um
kl. 22:30 um kvöldið kom
maður inn í sælgætissöluna Ad-
lon í Aðalstræti. Voru þar tveir
ungir menn að stumra yfir göml-
um manni, blóðugum í andliti, og
báðu þann, sem inn kom, að aka
gamla manninum í slysavarðstof-
una, sem hann gerði.
Taka Islendingar þátt í
sólkyrrðarrannsóknum?
ÁRK) 19©4 og 1965 standa fyrir
dyrum alþjóðlegar rannsóknir
vegna svokallaðs sólkyrrðarárs,
en það er þegar sólblettir eru
minnstir. Eru þetta almennar
rannsóknir á borð við þær sem
gerðar voru á alþjóða jarðeðlis-
fræðiárinu. Hafa alþjóðasamtök,
sem þetta annazt, skrifað Rann-
sóknarráði og mælzt til þátttöku
af íslendinga hálfu.
í gær kallaði framkvæmda-
stjóri Rannsóknarráðs, Stein-
grímur Hermannsson, saman
fulltrúa frá þeim stofnunum,
sem kæmu til með að annast
okkar hlut í rannsóknunum.
Var á fundinum valin nefnd til
að gera áætlun um hvað slík
þátttaka mundi kosta og gera
tillögur um hvort Islendingar
eigi að taka þátt í þessum rann-
sóknum. í nefndinni eru: dr.
Þorbjörn . Sigurgeirsson pró-
fessor, dr. Gunnar Böðvarsson,
Teresía Guðmundsdóttir, veður-
Drukkinn á
stolnu hjóli
f GÆRDAG gerðist það á Vestur-
götu að drukkinn maður ók á
hjóli fram af gangstéttarbrún, og
steyptist við það fram af hjólinu
í götuna. Hlaut maðurinn nokk
ur meiðsli í andliti. Lögreglan
kom á staðinn, og kom brátt á
daginn að maðurinn hafði stolið
reiðhjólinu frá SÍS. Hér er um
tvítugan pilt að ræða, og hefur
hann að undanförnu valdið ýms-
um vandræðum og verið L'ður
gestur hjá lögreglunnL
stofustjóri, Sigurður Þorkels-
son, símaverkfræðingur og dr.
Þorsteinn Sæmundsson.
— Hittast
Framh. af bls. 1
kvöld, var gefin út opirtber til-
kynning þar sem sagði meðal
annars, að . ítalir muni áfram
styðja fulla aðild Breta að Efna
hagsbandalagi Evrópu. Kveður
ítalski forsætisráðherrann svo
á, að gaumgæfilega skuli
íhugaðar tillögur Bandaríkja
stjórnar varðandi kjarnorkuher-
styrk Atlantshafsbandalagsins
Segir í yfirlýsingunni, að viS-
ræðurnar í Washington hafi ver
ið mjög vinsamlegax og gagn-
legar.
Stjórnmálafréttaritarar í Was
hington telja að þessi yfirlýsing
sé ætluð sem beint svar við af-
stöðu de Gaulle til aðildar Breta
að Efnahagsbandalaginu og fyrir
ætlunum hans um að koma á fót
eigin kjarnorkuher. Fréttaritar-
ar velta því nú fyrir sér, hvern
ig Kennedy muni haga ferð
sinni til Evrópu. Þykir líklegt,
að hann muni ganga á fund Jó-
hannesar 23. páfa og væntanlega
koma við í París og ræða þar
við de Gaulle um ágreiningsmál
Frakka og Bandaríkjamanna.
Enn telja fréttamenn, að með
hliðsjón af lausn Kúbumálsins,
undangengnum viðræðum full
trúa Rússa og Bandarikjamanna
— og ræðu Nikita Krúsjeffs
flokksþinginu í Austur-Berlín í
gær, sé ekki ólíklegt, að þeir
Kennedy og Krúsjeff hittist á
árinu, sennilega fyrr en seinna.
Skemmdir á land-
helgisvélinni
minni en á
horfðist
UNDANFARNA daga hefur far-
ið fram athugun á tjóni því,
sem varð á flugvél landhelgis-
gæzlunnar er bifreið rakst á
vænginn á henni, og hefur kom-
ið í ljós að það er sem betur fer
líklega ekki eins umfangsmikið
og haldið var í fyrstu, að því er
Pétur Sigurðsson, forstjóri Land
helgisgæzlunnar tjáði Mibl í
gær.
Sagði hann að næstkomandi
laugardag væru væntanlegir
menn frá erlendu fyrirtæki til
að lfta á skemmdimar, og vera
með í ráðum um viðgerð á þeim.
Þangað til verður ekki hægt að
segja um hve langan tíma við-
gerðin tekur. — En dragist hún
um of á langinn, sagði Pétur, þá
höfum við gömlu Katalínu í
bafchöndinni.
Var gert að meiðslum manns-
ins í slysavarðstbfunni, en hann
hafði hlotið talsverða áverka á
höfði og annað augað var sokk-
ið. Var maðurinn síðan fluttur
heim til ættingja sinna.
Mál þetta var kært til rann-
sóknarlögreglunnar á miðviku-
daginn. Segir gamli maðurinn, að
hann hafi hitt ungan mann, en
vissi ekki nákvæmlega hvar,
enda utanbæjarmaður. Piltur
þessi bað hann um að gefa sér
vín, hvað maðurinn gerði. Bað
þá pilturinn gamla manninn um
að gefa sér peninga, en því neit
aði hann. Segir gamli maðurinn
að pilturinn hafi þá barið sig í
höfuðið með vínflöskunni og rot
að sig. Næst kveðst hann muna
eftir sér er verið var að gera að
meiðslum hans í slysavarðstof-
unni, og saknaði þá veskis sfns
með 800 krónum og vínflöskunn
ar.
Rannsóknarlögreglan leitar nú
árásarmannsins.
13 dæmdir
til dauða
Tunis, 17. jan. NTB—AP •
I dag kvað herdómstóll í Túnls
upp dauðadóma yfir 13 mönnum
af 25, sem ákærðir voru um hlut
deild að tilræðinu við Habib
Bourguiba, forseta landsins nú
fyrir skömmn. Flestir hinna
dæmdu hafa farið fram á náðun.
Sjö hinna dauðadæmdu eru
liðsforingjar úr hernum í Túnis,
en hinir eru óbreyttir borgarar.
Búið að gera við
sæsímastrenginn
SÆSÍMASTRENGURINN, sem
slitnaði fyrir um það bil _viku,
sunnan við Færeyjar, var tengd-
ur saman á fjórða tímanum í
fyrrinótt, að því er Sigurður
Þorkelsson, símaverkfræðingur,
tjáði blaðinu í gær. Fór skipið
Suenson, sem er eign ivlikla nor-
ræna símafélagsins, á vettvang
til að gera við skemmdirnar.
Ekki hefur verið gefið upp með
hverjum hætti strengurinn hef-
ur slitnað, en málið verður rann
sakað.
Á meðan fór allt símasamband
við Evrópu varðandi flugsam-
göngur um hinn nýja Icecan-
streng, og einnig nokkuð af
öðrum símtölum. Annars voru
notuð loftskeyti, eins og áður,
en við það verður símasamband
miklu ótryggara og háð skilyrð-
um í ionahvolfinu.
Sýndartil-
laga
Á borgarstjómarfundi
gær flutti Guðmundur Vigfús
son (K) tillögu um athugun á
kaupum á skuttogara og veric-
smiðjutogara. Borgarstjóri
taldi nauðsyn — og í verka-
hring útgerðarráðs og BÚR —
að fylgjast með öllum nýjung
um á sviði útgerðar, og að því
leyti væri tillagan óþörf, en
meðan vinnuaflsskortur, afla-
leysi og fjárhagsafkoma tog-
araútgerðar væri slík sem nú,
væri þessi tillöguflutningur
sýndarmennska. — Frá umræð
um um tillögu þessa verður
nánar skýrt í blaðinu á morg-
un.
Germaníu kvik-
mynd um dulverar
ÞJOÐVERJAR hafa ekki síður
skapað dulverur en vér Islend-
ingar og eru þær ýmist illar eða
góðar. Ein er sú dulvera þýzku
þjóðarinnar, sem flest gott hef-
ur látið af sér leiða þar f landi
og enn lifir ótrúlega góðu Mfi
í hugum fólksins, og er það
Das Heinzelmannchen. Hvert
eðli hennar er og hvernig hún
kemur fram við mannfólkið hef-
ur verið tekið saman nýlega Og
sett á kvikmynd, er sýnd verð-
ur á vegum félagsins Germania
í Nýja bíó á morgun, laugardag.
Myndin er í litum og alllöng,
enda hefur gerzt mikil saga af
þessum hugstæðu dulverum, en
af þeim sökum verða ekki aðrar
fræðslumyndir sýndar þetta
skiptið. Kvikmyndin er e'.cki síð-
ur fullorðnum en börnum til
fróðleiks og skemmtunar.
A u k ævintýramyndarinnar
verða sýndar fréttamyndir' frá
sl. hausti.
Sýningin hefst kl. 2 e. h., og
er öllum heimill aðgangur,
bömum þó einungis í fylgd með
fullorðnum.
Saumakona óskast
til að taka að sér breytingar í tízku-
verzlun. Tilboð merkt: „Hálfsdags
vinna — 3905“ sendist afgr. Mbl. fyrir
sunnudagskvöld.