Morgunblaðið - 20.01.1963, Qupperneq 2
2
MORGUWBL AÐIÐ
Sunnudagur 20. janúar 1963
j
Hverjar eru framtíðarhorf-
ur í Hafnarfirði?
Viðtal við Hafstein Bald-
vinsson, bæjarstjóra
Spánska danstríóið Queta Barcelo hefur að undanförnu i
skemmt í Sjálfstæðishúsinu og notið mikilla vinsælda. — f
tríóinu eru dansmærin Queta Barcelo, dansarinn Fransisco
Yimnenz og gitarleikarinn Antonio Romero. — Þau munu
skemmta gestum Sjálfstæðishússins þar til um næstu mán-
aðamót, en þá tekur við danskur söngvarL
ÞAÐ hefur að vonum vakið mikla
aUiygli, að Framsóknarrr.:nn í
Haflnarfirði skyldu rjúfa sam-
starf það við Sjálfstæðisflokk-
inn, er tókst um stjóm bæjar-
ins að loknum síðustu bæjar-
stjórnarkosningum. Morgunblað-
ið hefur al þvi tUefni átt við-
tal við Hafstein Baldvinsson,
bæjarstjóra í Hafnarfirði um við-
horf mála og þau viðfangsefni,
sem efst hafa verið á baugi og
einkum verið unnið að í sam-
starfi flokkanna,
Við víkjum fyrst að fjármál-
uflum.
— Svo sem öllum var ljóst í
upphafi og glöggt kom fram í
kosningabaráttunni í Hafnarfirði
fyrir bæjarstjórnarkosningarnar
Ihíutu fjármálin að verða höfuð
viðfangsefni flokkanna. Þar báru
fjártoagsörðuf’eikar bæjarútgerð
arinnar að sjálfsögðu hæst..
Mikill halli hafði verið á rekstri
fyrirtækisins undanfarin ár, þann
ig að heildartapið á árunum
1960—1961 og frarn til 1. júlí 1962
hafði numið samtaús um 50 millj.
króna, en þess ber að geta, að
fyrirtækið hafði fengið greidd-
ar um 10 milljónir króna úr afla-
tryggingasjóði og útflutnings-
sjóði vegna aflabrests og vá-
trygginga togaranna. Eitt af
Rússneskar lista-
konur hjá Tón
TÓNMSTARFÉLAGIFÐ gengst
fyrir tónleikuim n.k. mánudags-
kvold og miðvikudagskvöld kl.
7 s.d. í Austurtoæjarbíói fyrir
styrktarfélaga sína. Koma þar
fraim sovéaku listaikonumar Zer
mena Heine-Wagner og Vitaia
Zirule.
Zenmena Heine-Wagner er sópr
ansöngkona og er ættuð frá borg
inni Riga í Lettlandi, og þar
starfar hún sem óperusöngkona
við óperu og balletleikhús ríkis-
ins.
Aiuk þess að njóta álits sem
óperusöngkona, kemur Zarmena
Heáne-Wagner einnig oft fram
sem konsertsöngkona í Sovét-
ríkjunum, jafnframt því sem bún
hefur farið í tónleikaferðir til
ýmissa landa.
Ungfrú Heine-Wagner hefur hlot
ið margvislega viðurkenningu
fyrir list sína. Árið 1956 var
henná t.d. veitt heiðursnafnbót-
in ,,Alþýðulistamaður Sovétrík-
isins Lettlands“, og ári síðar
hlaut hún hin svonefnáu „Rik-
isverðlaun landsins."
Vitana Zirule oíanóleikari ann
ast undirieik.
fyrstu verkum hins nýja meiri-
hluta var að láta fara fnam heild-
arupipgjör á rekstrarafkomu og
rekstrarhæfni fyrirtaekisins, svo
að unnt væri að gera sér grein
fyrir, hvort fyrirtækið væri starf
hæft. Að þessum málum hefur
unnið Árni Vilhjálmsson prófess-
or, ásamt end urskoðendum. Verk
þetta reyndist umfangsmeira, en
menn höfðu gert sér grein fyrir
í upphafi, en þess er þó að vænta,
að þvi verði lokið nú mjög bráð-
lega. En við lauslegt mat, sem
fram hefur farið á eignum fyr-
tækisins, munu skuldir þess
umfram eignir nema liðlega 55
milljónum króna. Bæjarsjóður
stendur ábyrgur fyrir skuldbind-
ingum bæj arútgerðarinnar, og
má öllum ljóst vera, hversu hér
er um alvarlegan hlut að ræða,
þegar það er haft í huga, að nettó
eignir bæjarsjóðs Hafnarfjarðar
voru bókfærðar um 34 milljónir
króna um áramótin 1961—1962.
í ágústmánuði var Othar Hans
son, fisvinnslufræðingur, ráðinn
framkvæmdastjóri bæjarútgerð-
arinnar, en hann hafði áður
starfað hjá Sölumiðstöð Hrað-
frystihúsanna og getið sér þar
hið bezta orð. Ég vil fullyrða,
að Othar hefur leyst störf sín
í þágu þessa fyrirtækis betur af
hendi en bjartsýnustu menn
þorðu að vona í upptoafi. Hefur
stöðug vinna verið við fyrirtæk-
ið frá því það hóf rekstur sinn
á ný í ágústmánuði.
— Hvað um bæjarsjóð? Við
(höfum frétt, að þar hafi 13 millj.
króna skuldir verið í vanskilum,
er hinn nýi meirihluti tók við,
1. júli s.L
Fjárhagsafkoma bæjarsjóðs
var mjög erfið við apphaf kjör-
tímabilsins og hefur verið lögð
megin áherzla á að grynna á
skuldum og semja um þær erfið-
ustu, svo unnt yrði að koma
heilbrigðum rekistri á bæjarsjóð-
inn. Ef stilla á álögum almennt
á bæaitoúa í hóf, er ekki ósenni-
legt, að það taki nokkurn táma
að losa sig við þær vanskila-
skuldir, sem enn er ósamið um
og í því efni má benda á, að í
flárhagisáætlun þeirri, sem flokk-
arnir stóðu að fyrir árið 1963 og
lögð hefur verið fram í bæjar-
stjóm, er miðað við að verja á
næsta ári um 3,3 milljónum króna
til greiðslu stókra skulda. En
traust afkoma bæjarsjóðs er að
sjálfsögðu megin florsenda fyrir
þróttmiklum frairtkvæmdum og
heilbrigðu stjómarfari.
En önnur bæjarfyrirtæki, hvað
með fjármál þeirra?
— Að undantekinni Rafveitu
Hafnarfjarðar, mé segja ,að fjár
hagur þeirra sé nokkuð góður,
en það fyrirtæki hefur valdið
nokkrum erfiðleikum, með hlið-
sjón af því, að ekki hafði verið
útvegað lánsfé til nauðsynlegra
framikvæmda þar, sem leitt hef-
ur til söfnunar lausaskulda. Von-
ir standa þó til, að unnt verði
að leysa fjáxhagsvandamál henn
ar nú á þessu ári. Fyrr á árinu
1962, haifði verið lögð fram í
rafveitustjórn allt að 15% hækk-
un á raflorkusölu til Þ©ss að mæta
þeim halla, sem var á rekstri
rafveitunnar. Með því að gera
sér grein fyrir fjárhag rafveit-
unnar og dreifa greiðslubyrð-
inni á lausaskuldum yfir fleiri
ár, taldi meirihlutinn ekki ástæðu
til að hækka rafmagnið um meira
en 8% frá 1. janúar s.l.
— Em einhverjar framkvæmd-
ir í undirbúningi?
—- Svo sem sjá má af því, sem
að fráman er rakið, hafa fjár-
málin verið höfuð verkefnið
fram til þessa, og erfiðleikum
bundið að standa í miklum fram-
kvæmdum, bæði með hliðsjón af
fjóitoagsgetu bæjarsjóðs og svo
'hinu, að enginn undiitoúningur
að framkvæmdum hafði átt sér
stað á árinu 1962, er hinir tveir
flokkar tóku við stjóm bæjar-
ins. í ágústmánuði var þó hafizt
handa um vatns- holræsa og
gatnagerð við Óseyrarbraut og
Fornubúðir til þess að skapa
þeim fískvixuxslufyrirtækjum,
sem þar vom að hefja byggingar,
nauðsynlega aðstöðu til þess að
geta starfað nú í haust og vetur.
Endanlegum frágangi er þó ekki
lokið en mun verða lokið þegar
á næsta vori.
í undirbúningí eru nú ýmsar
framlcvæmdir. Þannig mun þeg-
ar í vor verða hafin bygging á
öðrum áfanga við barnaskólanm
á Öldunum, en þar verða reist-
ar 8 kennslustofur, auk sér-
kennslustofa í kjallara. Er áætl-
aður kostnaður við bygginguna
um 7 milljónir króna og hefur
þegar verulegt fé verið tryggt
til framkvæmdanna. Er hér um
mjög þýðingarmikla fram-
kvæmd að ræða fyrir bæjarflél-
agið, þar sem fyrirsjéanleg vom
alvarleg húsnæðisvandræði hjá
skólunum, hefði eigi verið úr
bætt.
Þá hefur verið unnið að því
að unnt verði að úthluta lóðum
fyrir 70—80 íbúðir þegar í vor,
en lóðaúthlutanir hafa verið
takmarkaðar síðan á árinu 1960.
í samíbandi við væntanlegar lóða
úthlutanir má og geta þess, að
nú vinnur sérstakur arkitekt
Jón Haraldssom að skipulagn-
ingu miðbæjarsvæðisins, enskort
ur skipulags á því svæði var
orðið knýjandi vandamál, vegna
þarfa verzlunar og viðskiptalífs
í Hafnarfirði. Tillögur arkitekts-
ins um skipulag miðbæjarins
munu væntanlega liggja fyrir í
vor.
Þá er áformað að gera átak
í skipulagsmálum bæjarins á
þessu ári, svo að unmt verði að
úthluta lóðum undir íbúðarhús
og aðrar byggingar á næstu ár-
um og beinast áformin einkum
að landinu sunnan Jófríðarstaða.
Þá hefur verið unnið að
undirbúningi gatnagerðarfram-
kvæmda og er ætlunin á þessu
ári, að hefja framkvæmdir við
varanlega gatnagerð við Hring-
braut sunnanverða, Suðurgötu
frá húsi Prentsmiðju Hafnar-
fjarðar suður eftir, koma Álfa-
skeiði í tengsli við Amarhraun,
nýtoygging Þrastarhrauns og
Smyrlahrauns, og Strandgötu
frá Dröfn og suðureftir.
— Hafnarframkvæmdir eru
aðkallandi í Hafnarfirði. Er ekki
eitthvað fyrirhugað í þeim mál-
um?
__Því miður liggur ekkert
heildarskipulag fyrir af höfn-
inni, þótt því verði ekki neitað,
að tilvera bæjarfélagsins bygg-
ist að megin efni á góðum hafn-
arskilyrðum. Til undirbúnings
slíku skipulagi hefur nú í haust
og vetur verið unnið að botn-
mælingum í höfninni á vegum
vitamálaskrifstofunnar, svo að
unnt verði að gera sér grein
fyrir heildarskipulagi hennar í
samræmi við heildarskipulagn-
ingu miðbæjarins. Þessum botn-
mælingum er nú lokið, og stend-
ur nú fyrir dyrum fundur hafn-
arnefndar með vitamálastjóra
um skiplag hafnarinnar. Þá hefur
verið unnið að skipulagi vöru-
flutningahafnar í vestanverðri
höfninni Og er í undirbúningi
bygging um 1800 fermetra vöru-
skemmu á komandi vori, sem á-
ætlað er að muni kosta tæpar 5
milljónir króna. Það er Hafn-
firðingum mikið áhuga og hags-
munamál, að vaxandi vöruflutn-
ingar fari fram um Hafnarfjarð-
arhöfn og á þann hátt nýtist bet-
ur þau mannvirki, sem þegar
hefur verið lagt L
Það var fyrirsjáanlegt, að við
undirtoúning svo umfangsmikilla
framkvæmda var bænum nauð-
synlegt, að tryggja sér hæfan
mann til þess að standa fyrir
framkvæmdum. í ágúst sl. réði
því Hafnarfjarðarbær til þess-
ara starfa Jón Bergsson, verk-
fræðing, sem áður hafði starfað
hjá bænum, en enginn verkfræð-
ingur hafði verið hjá Hafnar-
f jarðarbæ um eins árs - :eið.
Meginn þunginn af undirbún-
ingi þessara framkvæmda hefur
því hvílt á hans herðum.
— Þið eigið góða íþróttamenn,
Hafnfirðingar, en vatnar íþrótta-
hús. Hvað um fraimkvæmdir á
því sviði?
— Nú í haust hefur verið unn-
ið að byggingu sameiginlegs
íþróttahúss og félagsheimilis fyr-
ir æskuna í bænum. Áætlaður
kostnaður við byggingu húss-
ins, mun nema um 24 milljónum
króna. Nú hefur hins vegar ver-
ið skipuð nefnd til þess að gera
tillögur í þessum málum, ef það
mætti verða til þess að draga
úr kostnaði við bygginguna og
flýta fraimkvæmdum. Hafa þeir
Gísli Halldórsson arkitekt og
Sigurður Thoroddsen verkfræð-
ingur fyrir milligöngu íþrótta-
fulltrúa ríkisins skilað tillögum
um breytingu á því húsi, sem
nú er í smíðum. Mun áætlaður
kostnaður lækka samkvæmt
þeim tillögum um allt að 6
millj. króna, án þess að
notagildi þess sé að nokkru
skert. Munu ákvarðanir vænt-
anlega teknar innan skamims.
Þá má geta þess í sambandi
við ofangreindar framkvæmdir,
að nú liggja fyrir bæjarráði til-
lögur frá bæjarverkfræðingi um
endurskipulagningu bæjarvinn-
unnar, en án efa munu fram-
kvæmdir þessar hagkvæmari og
kostnaður minni fyrir bæjarfé-
lagið. Er þar lögð áherzla á, að
taka aukna tækni í' þjónustu
bæjarins, með öflun stórvirkra
tækja, en notuð hafla verið.
__ Hvernig hefur nú samstarf
Sjálfstæðisflokksins og Fram-
sóknarflokksins verið í sambandi
við lausn á þessum málum?
__ Ég held að mér sé óhætt
að fullyrða, að full eining hafi
ríkt I samstarfi flokkanna um
þessi mál og þar ekki verið in
neinn málefnaágreining að ræða,
sem marka má af þvi, að sú
fjárhagsáætlun, sem lögð hefur
verið fram í bæjarstjórn af þess-
um flokkum, var sameiginlega
undirbúin af þeim með það i
huga, að hún markaði þá stefnu
sem flokkarnir höfðu komið sér
saman um að vinna að, er þeir
hófu samstarf sitt.
— Hvað olli þá samstarfs
slitunum? Voru framsóknarmenn
ef til vill hræddir við að taka
á sig ábyrgðtaa og horfast í
augu við þá erfiðleika, sem við
blasa?
— Um það vil ég ekkert full-
yrða, en sú ástæða, sem látin
hefur verið í veðri vaka af
framsóknarmönnum, það er að
segja uppsögn eins verkstjóra
hjá bæjarútgerðinni, finnst mér
á engan hátt réttlæta, að hláup-
ist sé frá þeim vanda, sem þeir
tókust þá á herðar i upphafi kjör
timabilsins.
— Að lokum Hafsteinn hver
verður framvinda mála nú í ná-
inni framtíð? Er líklegt að tak-
ast muni að mynda samstæðan
meirihluta á ný innan bæjar-
stjórnarinnar?
— Það er ekki aðeins æskl-
legt, heldur og brýn nauðsyn á,
að hér skapist sterkur og sam-
hentur meirihluti, svo að mál-
efnum bæjarfélagsins verði fær-
sællega til lykta ráðið, hvort svo
sem flokkarnir kjósa heldur, að
mynda með sér samstarf um
ábyrgan meirihluta innan þeirr-
ar bæjarstjórnar, sem nú setur,
eða skjóta málunum til kjósenda
enn á ný til endanlegs úrskurð-
ar og freista þess, að tryggja
meirihluta eins flokks.
Hafnarfjörður
V ORBOÐINN, fél. Sjálfstæðis-
kvenna í Hafnarfirði, heldur
spilakvöld í Sjálfstæðishúsinu
annað kvöld kl. 3.S0. Þar verður
spiluð félagsvist og kaffi fram-
reitt. — Ailt Sjálfstæð^sfólk er
velkomið.