Morgunblaðið - 25.01.1963, Blaðsíða 12
12
MORGZJNBLAÐ1Ð
Fðstudagur 25. janúar 1963
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson,
Sigurður Bjarnason frá Vigur
Matthías Johannessen,
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 65.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 4.00 eintakio.
KJARABÖTALEIÐIN
SIGRAR
UTAN ÚR HEIMI
i?BMFíií:WS!ÍÍÍ:*áíMíí:::l
Hér á myndinni eru Moise anríkisráðherra að skoða dyna Lualaha-fljótið. Brúin er á
Thsombe, fylkisstjóri Katanga mát-hleðslur, sem komið hefur leiðinni frá Jadotville til
og Godefroid Munongo, inn- verið fyrir á brúnni yfir Kolawesi.
Kynsjúkdómasýklar læra
að verjast fúkalyfjum
Alvarlegt mál, segja sérfræðingar WHO
'C’ins og kunnugt er hafa
^ kommúnistar stöðugt ver-
ið að tapa fylgi í Dagsbrún
síðustu árin. Þeir hafa þar
dyggilega fylgt verkfalla-
stefnunni og haldið þannig á
málefnum verkalýðsins, að
í kjaramálum hafa þeir
lægst launuðu dregizt áftur
úr. Þegar Viðreisnarstjómin
bauðst til þess í fyrra að
stuðla að kauphækkunum
verkamönnum til handa gegn
því að aðrar stéttir biðu
nokkuð, var þeirri leið hafn-
að og knúðar fram meiri
kauphækkanir til annarra en
verkamanna.
Þessar aðgerðir kommún-
ista í launþegafélögunum
hafa að vonum mælzt mjög
illa fyrir meðal verkamaríha.
Þegar það upplýstist, að
kommúnistastjórnin í Dags-
brún hafði að undanförnu
hafnað boði vinnuveitenda
um 5% kauphækkun, varð
svo mikil ólga í röðum verka-
manna, að stjórn Dagsbrúnar
treysti sér ekki til annars en
ganga frá samkomulagi um
þessa hækkun, en áður mun
hún hafa ætlað að draga mál-
ið á langinn fram yfir kosn-
ingar.
Kommúnistar hafa gert sér
grein fyrir því, að þeir
mundu gjalda mikið afhroð í
Dagsbrúnarkosningunum, ef
þeir höfnuðu enn einu sinni
kjarabótaleiðinni og héldu
þannig á málum, að verka-
menn fengju ekki raunhæfar
kjarabætur. Þess vegna hafa
þeir hopað og fallizt á bætt
kjör.
Einhverjir kynnu nú að
segja, að Dagsbrúnarstjómin
ætti að njóta þess í kosning-
unum, að hafa loks snúið frá
villu síns vegar og fallizt á að
'tryggja verkamönnum raun-
hæfar kjarabætur með kaup-
hækkun, sem þeir einir
fengju en ekki þeir, sem
hærri laun hafa. En þess er
þá að gæta, að þessa leið fór
Dagsbrúnarstjórnin einungis
vegna þess að hún hefur ver-
ið á undanhaldi í félaginu og
tapað þar atkvæðum. Afstaða
hennar nú byggist einungis á
ótta við fylgishrun.
Ef svo færi, að kommún-
istar teldu útkomu stjórnar-
kjörsins, sem framundan er í
Dagsbrún, sér hagstæða, er
hinsvegar litlum vafa bund-
ið, að þeir mundu á ný knýja
á það, að hagsmunir flokks-
ins yrðu látnir sitja í fyrir-
rúmi og hagsmunir verka-
manna víkja. Þá væri vissu-
lega hætt við því, að á ný
yrði snúið inn á verkfalla-
brautina og lægst launaðir
verkamenn látnir bera hita
og þunga dagsins til þess áð
koma fram pólitískum áform-
um kommúnista, samhliða
því sem kauphækkun til
verkamanna yrði gerð að1
engu með meiri hækkun til
annarra.
HVAÐ BER AÐ
VARAST?
ITinnuveitendasamband Is-
" lands hefur lýst því yfir,
að einungis þær stéttir, sem
lægst hafa laun og drógust
aftur úr í kapphlaupinu á
síðasta ári fyrir tilstuðlan
kommúnista og bandamanna
þeirra í Framsóknarflokkn-
um, fái nú kauphækkanir, en
fast verði staðið gegn því, að
um almennar kauphækkanir
verði að ræða.
Þetta þýðir, að fylgt verð-
ur þeirri stefnu, sem Við-
reisnarstjómin hefur viljað
fara, að tryggja hinum lægst
launuðu raunhæfar kjara-
bætur.
Þannig er í raun réttri um
það að ræða, að verkamenn
og aðrir, sem lægst hafa
launin, fá nú í sinn hlut aukn-
ingu þjóðarframleiðslunnar,
en aðrir verða að bíða þar til
meiri árangur er orðinn af
viðreisninni.
Fyrir verkamenn er aðeins
sú hætta fyrir hendi, að
kommúnistar freistist til
þess að hleypa af stað nýju
kapphlaupi um kjörin. Það
myndu þeir annað hvort gera
með því að ota verkamönn-
um út í verkfall, eða þá á
þann hátt að reyna að fá ein-
hverjar stéttir aðrar til að
ríða á vaðið og gera kaup-
hækkun verkamanna þannig
einskis nýta, því að þá færu
verðhækkanir um allt efna-
hagslífið eins og eldur í sinu.
Það er með hliðsjón af
þessari hættu, sem verka-
menn verða að veita stjórn
Dagsbrúnar öflugt aðhald.
Þess vegna er óhjákvæmilegt,
að lýðræðissinnar safni liði
og tryggi lista sínum sem
allra mest fylgi.
FREKARI
KJARABÆTUR
17 n verkamenn eiga auðvit-
^ að ekki að láta staðar
numið við þær kjarabætur,
sem þeir nú fá. Þvert á móti
á að herða á því að ná þeim
ávinningi, sem hægt er að ná
ALÞJÓÐA-heilbrigðismálastofn-
unin hefur .iðurkennt að þrátt
eftir kjarabótaleiðinni á
margan hátt.
Þannig er nauðsynlegt að
vinda bráðan bug að því að
koma á fót samstarfsnefnd-
um vinnuveitenda og laun-
þega. Jafnramt eiga báðir að-
ilar að koma sér saman uih
að setja á fót sérstaka stofn-
un, sem fylgist með fram-
leiðsluaukningu og tryggi
launþegum réttmæta hlut-
deild í henni.
Þá á einnig að leitast við
að auka afköst með meiri
vinnuhagræðingu í góðu sam
starfi launþega og vinnuveit-
enda. Jafnframt ber svo að
hraða eins og mest má verða
athugunum, sem unnið er að
til að koma á ákvæðisvinnu,
sem stórbætt gæti kjör verka-
manna.
í nokkrum frystihúsum
hefur að undanförnu verið
unnið að þessu verkefni og
hefur það borið góðan árang-
ur, eins og frá er skýrt á öðr-
um stað í blaðinu. Slíkt
vinnufyrirkomulag hefur líka
verið reynt í einstökum verk-
smiðjum í Reykjavík og gef-
izt svo vel að sízt mundi
verkamönnum detta til hug-
ar að vilja afnema það.
Skeytingarleysi um þessi
málefni er núverandi stjóm
Dagsbrúnar til mestu van-
sæmdar og eina leiðin til að
knýja hana til að sinna þess-
um verkefnum er að sýna
henni fram á, að annars muni
hún tapa völdum sínum í
Dagsbrún. Það er þetta, sem
verkamenn munu gera nú
um helgina.
fyrir almenna notkun penicillins
og annarra sterkra fúkalyfja
hafi mistekizt að hafa hemil á
kynsjúkdóminum lekanda. Þetta
eru niðurstöður í skýrslu sér-
frseðinganefndar, sem nýlega
kom saman í Genf til að ræða
tekanda-smitanir. Einasta vonin
um að þetta takist í framtíðinni
er að finnist eitthvert bóluefni,
sem geri fólk ónæmt fyrir lek-
anda, segir í skýrslunni.
Það hefur korffið í ljds að
penicillin og streptomycin hafa
minni verkanir til að kveða nið-
ur sjúkdóminn en þau höfðu fyr
ir nokkrum árum. Þ r örsmáu
lífvel’ur, sem orsaka sjúkdóminn,
eru að rækta með sér mótstöðu
gegn fúkalyfjum og jafnvel fjór-
eða fimm-faldir skammtar mið-
að við þá sem gefnir voru fyrir
10 árum bregðast nú í stöðugt
ríkara mæli.
60 millj. ný tilfelli
árlega.
Það er augljóst að af þeim 60
milljónum nýrra tilfella, er finn
ast árlega í heiminum, koma
flest fyrir hjá aldursflokknum
15—25 ára. í Mexico eru 55%
innan við þann aldur og í Dan-
mörku og Noregi er lekandi al-
gengastur hjá fólki á aldrinum
15—19 ára.
í fyrstu hrifningunni af hin-
um nýju „undrameðulum“ trúðu
menn því að nú yrði hægt að
útrýma lekanda. En helzta ástæð-
an fyrir því að það hefur ekki
tekizt, er hve stuttur meðgöngu-
tími sjúkdómsins er, 3—5 daga
eftir samfarir. Og lekandi er
miklu meira smitandi en t.d.
syphilis. Smitun er næstum örugg
við samfarir við lekandasjúkl-
ing, þar sem aftur á móti eru
50% möguleikar á að sleppa, ef
um syphilis er að ræða. Annað
atriði er, að sjúkdómurinn skap-
ar ekkert ónæmi og hægt að fá
hann aftur og aftur. í þriðja lagi
eru ekki nærri alltaf nokkur
sjúkdómseinkenni hjá konum Og
allt að 20% af smitandi konum
geta falizt fyrir jafvel beztu
rannsóknarstofum. Aftur á móti
eru fjórum sinnum fleiri karl-
menn með sjúkdóminn en kon-
ur.
Fer vaxandi hér.
Blaðinu er kunnugt um að
læknar hér hafa einnig orðið
varir þessarar vaxandi mótstöðu
sjúkdómsins gegn fúkalyfjum.
En það hefur þó ekki úrslita-
þýðingu um útbreiðslu sjúkdóms
ins, þar eð engum sjúklingi er
sleppt af sjúkrahúsi fyrr en hann
er læknaður, þó stærri skammta
af meðulum og lengri tíma þurfi
til lækningarinnar. En vaxandi
lauslæti skiptir meginmáli hvað
það snertir að sjúkdómurinn
hefur farið vaxandi.
3 fórust
í flug-
slysi
1C komust af
Las PaLmas, 23. janúar —
NTB.
10 til 13 komust lífs af, er
portúgölsk herflugvél féll í
hafið skammt undan strönd-
um Kanaríeyja í dag. Flug-
vélin var á leið frá Luanda í
Angöla til Lissabon, er henn-
ar var saknað.
Leitarflugvélar komu auga
á flakið, þar sem það maraði
í hálfu kafi. Einn maður sást
á lífi í sjónum, en er leitar-
skip komu á vettvang, kom í
ljós, að 9 aðrir höfðu komizt
úr flakinu og voru þeir á
r fleka.
Þeir þrír, sem enn er sakn-
að, eru taldir af, og munu lík
þeirra vera í skrokk flugvélar
innar, sem enn var á floti síð
degis í dag.
Belgrad, 23. janúar — NTB.
TÍTÓ, Júgóslavíuforseti, sagði
í Belgrad í dag, að Kínverjar
fylgdu stefnu Gengis Khan í
utanríkisstefnu sinni. Þeir
vildu steypa heiminum út í
nýja styrjöld.