Morgunblaðið - 25.01.1963, Blaðsíða 23
Föstudaffur 25. ianúar 1963
MORCriVRL AÐIÐ 1
23
Hvassviðri og hrí
andi um SV-land
í GÆR var allhvasst um vestan-
vert landið og gekk á með hríðar
byljum, er kalt loft streymdi inn
yfir landið úr vestri, og í gær-
kvöldi var orðið mjög hvasst í
verstu hryðjunum. Veðurstof-
an sagði að þetta mundi væntan-
lega ekki standa iengi, því önn-
ur lægrð væri á leiðinni og mundi
því lægja í dag.
Gamli vegurinn lokaðist
Mikil hálka var á veginum og
síðdegis lokaðist gamli Hellis-
heiðarvegurinn. Ekið var um
Þrengslaveginn nýja yfir Hellis-
heiðina. Aðrir veigir voru allir
opnir, skv. upplýsingum vega-
xnálastjóra. Skafrenningur var á
Holtavörðuheiðinni, en vegurinn
var enn fær í gærikvöldi.
Innanlandsflug
stöðvaðist
Flugferðir innanlands lágu
niðri í gær vegna veðurs, nema
hvað ein flugvél fór til Akur-
eyrar, en bíður þar. Reykjavíkur
flugvöllur lokaðist öðru hverju
í hryðjunum, en Kaupmannahafn
arvél F.í. Ienti þar siðdegis. Loft
leiðavél, sem væntanleg var í
gærkvöídi, átti að lenda á Kefla-
víkurflugvelli.
Bátar komu inn
Reykjavíkurbátarnir lágu inni
í gær" svo og Akranesbátar. Frá
Keflavík voru 30 bátar á sjó,
en vom allir að koma inn í gær-
kvölidii. Grindavíkurbátar voru
einnig að koma inn.
S*ndigerðisbátar fóru inn til
Keflavíkur. Þrír voru ókomnir,
en samband við þá alla.
Þrír Hellissandsbátar voru á
sjó. Gekk þeim illa að draga og
misstu eitthvað af línu, því hauga
sjór var á miðunum og vestan
stormur. Tveir voru komnir að
og einn rétt ókominn, er Mbl.
hafði samband við fréttaritara
Níu bílar teknir
úr umferð
Herferð lögreglumanna í Miðbænum
Á TÍMABILINU frá kl. hálf j
tólf til kl. hálf tvö í fyrrinótt |
stöðvuðu lögreglumenn alls 9
bíla í miðbænum, seip öllum var
ábótavant í einu eða öðru, hljóð
dunkslausir o.s.frv. var farið
með bílana að lögreglustöðinni
þar sem tveir Bifreiðaeftirlits-
menn athuguðu þá, og voru skrá-
setningarnúmerin tekin af sjö bíl
um, sem lögum samkvæmt voru
óökuhæfir, og urðu eigendurnir
að láta draga þá burt. Eigendum
tveggja bíla var leyft að aka
heim með þeim fyrirmælum að
ekki mætti nota bílana frekar
fyrr en tilteknar viðgerðir hefðu
— De Gaulle
Framh. af bls. 1
hindraði, að viðræðurnar við
Breta væru til lykta leiddar, því
að auðvelt myndi reynast að
jafna hinn tæknilega ágreining.
Að lokum sagði upplýsingamála-
ráðherrann, að de Gaulle og Ad-
enauer hefðu komizt að sam-
komulagi varðandi viðræðurnar
í Briissel.
Stjórnmálafréttaritarar í Par-
ís segja, að de Gaulle og Aden-
auer hafi komizt að samkomu-
lagi um það, að, hindra ekki að
viðræðum Breta við EBE verði
haldið áfram. Þó telja þeir, að
franska stjórnin sé ennþá þeirr-
ar skoðunar, að viðræðurnar
beri ekki árangur nema Bretar
samþykki stefnu EBE varðandi
stjórnmálalega einingu Evrópu.
FuII aðild Breta
ekki tímabær
Utanríkisráðherra Frakka,
Couve de Murville, lýsti því yf-
ir í franska þinginu í kvöld, að
Bretum stæðu ennþá opnar dyrn
ar að Efnahagsbandalagi Evrópu.
Hins vegar sagði ráðherrann, að
hætta væri á því, að slitnaði upp
úr viðræðunum við Breta áður
en árangur næðist.
Ráðherrann sagði, að i Bret-
landi væri nú ör þróun og Frakk
ar væru vissir um það, að sá
dagur myndi koma, að Bretar
yrðu undir það búnir að samein-
ast Evrópu en þeir væru ekki
undir það búnir nú. Murville
sagði, að þetta væri ástæðan til
þess, að Frakkar hefðu borið
fram tillögu um það, að Bretar
fengju fyrst um sinn aukaaðild
að bandalaginu, en fengju fulla
aðild, þegar það yrði tímabært.
Þegar öldurnar hefur lægt, sagði
ráðherrann, er ég sannfærður
um það, að þessi t-illaga verður
tekin til athugnar. Murville
sagði, að Frakkar hefðu lagt
fram tillöguna vegna þess að þeir
teldu, að hún gæti leyst vanda-
málin varðandi aðild Breta að
EBE. Sagði ráðherrann það
rangt, að Frakkar hefðu hindrað
viðræðurnar um aðild Breta að
EBE af ásettu ráði. Aðgerðir
þeirra væru I fullu sanvæmi við
Rómarsamninginn.
farið fram.
Hér var aðallega um að ræða
bíla, sem unglingar hafa ekið
„rúntinn" á kvöld eftir kvöld
og lögreglan hefur marg kært og
sektað. Virðist þessi nýja aðferð
vera hin eina, sem dugar til þess
að lona við þennan ófögnuð úr
kvöldumferð Miðbæjarins.
varpsstöðin CBS lét taka þar
eystra. Er þetta fróðleg og
opinská nt.ynd, fréttamaður á
þar viðtöl við fólk þar eystra
og loks kemst hann í skrif-
stofu sjálfs Ulbrichts og legg-
ur fyrir hann ýmsar brenn-
andi spurningar. Eru viðbrögð
Ulbrichts athyglisverð og þyk
ir þetta ein bezta kvikmynd
sinnar tegundar. .
Það er félagið Varðberg og
Samtök um vestræna sam-
vinnu, sem gangast fyrir þess
ari kvikmyndasýningu. Allir
félagsmenn eru velkomnir
svo og aðrir, meðan húsrúm
leyfir. Aðgangur er ókeypis.
Kennedy-Ulbrichf
á kvikmyndasýningu í Nýja bsói á morgur,
KVIKMYNDIN af hinu fræga
og marg umtalaða sjóvarps-
viðtali Kennedys verður sýnd
í Nýja bíói kl. 3 e.h. á morg-
un. Kennedy drepur þar á
allt það helzta, sem nú er
efst á baugi á sviði alþjóða-
mála og ræðir hann vanda-
málin af miklu hispursleysi.
Einnig verður sýnd kvik-
mynd frá A-Þýzkalandi,
mynd, sem bandaríska sjón-
Samstarfsvilji Frakka
og Vestur-Þjóðverja
Um samninginn, sem Adenau-
er kanzlari Vestur-Þýzkalands
og de Gaulle Frakklandsforseti
undirrituðu í París, sagði Mur-
ville, að í honum væru ákvæði
um samvinnu ríkjanna og í hon-
um væri tilgreint eftir hvaða
leiðum sé hægt að ná virku sam-
starfi ríkja án þess að sérstakar
stofnanir komi til. Murville
sagði, að það mikilvægasta við
samninginn væri þó, að hann
sýndi hve mikill samstarfsvilji
ríkti með Frökkum og Vestur-
Þjóðverjum.
Utanríkisráðherrann skýrði
frá því að öllum aðildarríkjum
Efnahagsbandalagsins hefði ver-
ið skýrt frá efni samningsins og
þau gætu rætt hann við Frakka
og Vestur-Þjóðverja ef þau ósk-
uðu. Murville sagði, að þegar sá
dagur kæmi, að Ítalía, Holland,
Belgía, Luxemburg og Bretland
yrðu þátttakendur í samstarfi
því, sem nú hefur verið komið
á milli Vestur-Þýzkalands og
Frakklands, yrði Evrópa samein-
uð og reiðubúin til samstarfs við
Bandaríkin innan takmarka At-
lantshafsbandalagsins.
Eiginn kjarnorkuher
Um stefnu Frakklands í varn-
armálum sagði utanríkisráðherr-
ann, að Bandaríkin hefðu oft lát-
ið í ljósi óánægju með þá ákvörð
un Frakka, að koma á fót eigin
kjarnorkuher og haldið því fram
að Frakkar væru ekki tæknilega
færir um slíkt.
Murville sagði, að Bandaríkin
vildu, að endanlegar ákvarðan-
ir varðandi notkun kjarnorku-
vopna yrðu teknar í Washington,
en Frakkar vildu eiga aðild að
slíkum ákvörðunum.
Ráðherrann sagði, að meðan
Vestur-Þjóðverjar væru bundnir
af samningunum frá 1954, sem
kveða svo á, að þeir megi ekki
búast kjanrorkuvopnum, og Bret
ar af Nassau-samningunum,
gætu Frakkar ekki hvikað frá
þeirri stefnu, að koma sér upp
eigin kjanrorkuher. Ráðherrann
sagði ennfremur, að Frakkar
gætu ekki tekið tilboði Banda-
ríkjamanna um Polaris eldflaug-
ar fyrr en eftir mörg ár.
Tvö símaskip í erfið-
leikum í ís og roki
Reyna oð gera v/ð sæsimastrenginn
Vestmannaeyjum, 24. janúar.
í GÆR átti fréttamaSur blaSs-
ins tal viS Magnús Magnússon,
símstjóra í Vestmannaeyjum og
Þorvarð Jónsson, verkfræSing
hjá Stóra norræna símafélaginu,
en hann er nú staddur hér í
Vestmannaeyjum í sambandi
við tengingar og byrjunarþjón-
ustu meS sæsímastrengunum
nýju austur og vestur um haf.
M.a. skýrSu þeir frá þvi, eins
og komið hefur fram í fréttum,
aS Ameríkustrengurinn Icecan
slitnaði í fyrrinótt við Friðriks-
dal á suðurodda Grænlands.
BæSi landtökin slitnuSu og olli
því rekís.
Tvö dönsk sæsímaskip eru
stödd á þessum slóðum. Annað
Edouard Suenson, er komið inn
fyrir ísinn upp að ströndinni og
— íbróttir
Framh. af bls. 22.
íþróttahreyfingarinnar er ungl-
ingaráð Í.S.Í.
Lokaorð
Þau atriði, sem hér hafa verið
talin á undan leggur fram-
kvæmdastjórn Í.S.Í. megin-
áherzlu á. íþróttasambandið er
nú fjölmennasta æskulýðshreyf-
ing landsins. í sambandinu eru
230 félög, 27. héraðlssambönd,
7 sérsambönd með samtals um
2.000 meðlimum. Þar af eru
1.000 virkir félagar.
En þrátt fyrir þennan fjölda,
sem æfir og leggur stund á
íþróttir í tómstundum sínum, er
það staðreynd, að sérstaka
áherzlu þarf að leggja á það, að
ná til enn fleiri á aldrinum
12 — 15 ára og gera þá að virk-
um félögum. Til þess að það sé
hægt, verður að auka verulega
alla útbreiðslustarfsemi Í.S.Í. Þá
þarf að fá fleiri íþróttakennara
til starfa, svo og auka allt starf
íþróttasambandsins, svo það
verði þess umkomið, að valda
því þýðingarmikla hlutverki, er
það hefur að gegna í þjóðfélag-
inu fyrir allan æskulýð landsins.
bíður þess að geta hafizt handa
um viðgerðina. En við það að
komast í gegnum ishrönglið,
kom að því leki, sem fyrst verð-
ur að ráða bót á.
Hitt viðgerðarskipið var statt
utan við ísinn, er bilunin varð.
Var þá 9 vindstig og særok mik-
ið, svo skipið .safnaði á sig
mikilli ísingu og siglir nú suð-
ur á bóginn í heitara loftslag,
til að losna við ísinguna.
• Borað 105 m niður við
landtak.
Sæsíminn liggur á land upp
að klettum á þessum stað og
getur borgarísinn því auðveld-
lega slitið hann þótt hánn þoli
hinsvegar högg. Næsta sumar er
ætlunin að bora niður í klett-
ana við ströndina, a.m.k. 105
metra djúpt og verður þá streng-
urinn tekinn út í sjóinn sem þvi
svaratr undir yfirborðln Fram-
kvæmd þessi er talin kosta -stór-
fé.
Úti í sjónum um 7 mílur frá
landi er skiptistöð þannig að
skipta má milli landtaka er ann-
að bilar. En þessi stöð kom nú
ekki að gagni þar eð strengur-
inn slitnaði upp við land — vig.
Frumsýning Grímu
á þriðjudagskvöld
Frumsýning Grímu áleikritinu
„Vinnukonurnar" eftir Jean
Genet verður í Tjarnarbæ á
þriðjudagskvöld kl. 8,30, en ekki
á mánudagskvöld, eins og skýrt
var frá í blaðinu í gær. —
Flestir Sand-
gerðisbótor
d línu
Sandgerði, 24. janúar.
ALLIR bátar héðan eru nú hæbt-
ir á síldveiðum og komnir á
línu, nema tveir, Víðir II og Jón
Garðar. Hætti síðasti báturinn
í gær. Línubátarnir hafa haft
misjafnan afla, frá 5 lestum upp
í 10 eða 11 í róðri. Bátarnir voru
á sjó i dag.
Eggert Gíslasön, skipstjóri á
Viði II, er um það bil að fara
utan, til að sækja nýjan bát
til Svíþjóðar. Er ætlunin að hann
fari á síld. — P.P.
Þorrablót
Sjálfstæðismanna
á Akureyri
AKUREYRI, 24. jan. — Árshátíð
Sjálfstæðisfélaganna á Akureyri,
sem jafnframt verður þorrablót,
er ákveðið að halda næstkom-
andi laugardag, 26. jan. kl. 19.30.
Þar mun Jónas G. Rafnar
alþingismaður ávarpa gestina
og Guðmundur Jónsson, óperu-
söngvari, mun skemmta með
söng. Mörg önnur skemmtiatriði
verða á dagskrá þorrablótsins.
Að þeim loknum verður stiginn
dans.
Sjálfstæðisfólk í Eyjafirði eða
nágrenni Akureyrar er hvatt til
að mæta á þessum fagnaði og
taka með sér gesti.
3 einhleypar stúlkur óska eftir að taka á
leigu 3 — 4 herb. íbúð
Tilboð, merkt: „3934“, sendist afgr. Mbl. fyrir
29. janúar n. k.