Morgunblaðið - 25.01.1963, Page 14
Ipstudggtjr, 25.; jfnúar |963
14
w
Skrifstofur vorar verða
lokaðar i dag
vegna jarðarfarar.
íslenzkra stórkaupmanna.
Vegna jarðarfarar Einars Ásmundssonar,
hæstaréttarlögmanns verður skrifstofa
okkar
lokuð
fyrir hádegi í dag.
E D D A H. F.
Umboðs- og heildverzlun. Grófin 1.
Lokað
í dag til kl. 1 e. h., vegna jarðarfarar.
Verksmiðjan Vífilfell hf.
Lokað
allan daginn í dag, vegna jarðarfarar.
/
Þórður Sveinsson & Co. hf.
Eiginkona mín
ÓSK GUÐMUNDSDÓTTIR
verður jarðsungin frá Akraneskirkju laugardaginn
26. janúar. Húskveðja hefst að heimili hennar Heiðar-
braut 16, Akranesi kl. 13,30.
Fyrir hönd vandamanna.
Gisli Bjarnason.
Útför konu minnar
ELÍNAR KRISTJÖNU EMILSDÓTTUR
sem andaðist í Landsspítalanum 15. þ. m. verður gerð
frá Fossvogskirkju, laugardaginn 26. janúar kl. 10,30 f.h.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna.
Sigurjón Magnússon, Klöpp í Garði.
í>ökkum sýnda hluttekningu við andlát og útför
bróður míns og föðurbróður
ÞORGEIRS JÓNASSONAR
Hallgrímur Ó. Jónasson,
Guðrún H. Hallgrímsdóttir.
Innilegar þakkir til allra hinna mörgu er vottuðu mér
samúð og vinarhug sinn við andlát og jarðarför kon-
unnar minnar
KRISTJÖNU ÞÓRÐARDÓTTUR
frá Hrafntóftum
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna.
Sigurður Þorsteinsson.
Beztu þakkir sendum við öllum þeim er vottuðu okkur
samúð vegna andláts föður okkar og stjúpföður
JÓNS HJARTARSONAR
Helga Jónsdóttir,
Margrét Frederiksen, — —
Anna Benediktsdóttir,
Hjörtur Jónsson.
/
Kristjára Eyfjörð
Valdimarsson
Fæddur 27. 2. 1935. Dáinn 12. 1. 1963.
MÓÐURKVEÐJA
Ég lít í anda þá liðnu tíð
þú leikur þér sæll í blómahlíð,
þín ýndisleg Ijóma augun blíð.
Með ávarpi til mín gengur:
„Komdu mamma og kysstu mig
komdu: mér þykir svo vænt um þig“.
Hve markviss þræddu hinn mjóa stíg
móðir og lítill drengur.
Svo lagðir þú arma um minn háls
á unaðsstund er mér varnað máls.
Þú klæddur varst ekki tötrum táls
því tárhrein var sál og hjarta.
Þá bernskunnar naut hinn blíði sveinn
svo betri og fegri var ei neinn.
Til starfa varst ekki svifaseinn
en seinn til að víla og kvarta.
Nú hefur þú fengið sjón og svör
og sorgin þig flýr, með bros á vör —
— þú fagnandi tekur þinni för
þó færurðu burt í skyndi.
Nú heimur aldrei þig hrella kann
því hefurðu hjá þér frelsar'ann
með réttlæti Drottinn dæmir mann.
Hver dagur færir þér yndi.
Hve oft þú tókst á þig annars sök
engin þó fyrir því hafðir rök.
Að varna því, aldrei nein voru tök
þér var þetta nautn að gera.
Þá fannst mér þú vera sterkur, stór
þú studdir hinn veika, er kreppti skór
og veittir þeim stoð, sem villtur fór
og vildir hans áþján bera.
Ég örugg horfi á eftir þér
og æskumynd þína í hjarta b^..
Á landi friðar þér óhætt er
þar áttu þín tár í sjóði.
Síðast þú frá mér glaður gekkst,
og gleðilegt árið nýja fékkst.
Þú framar aldrei um heiminn hrekst
hjartans vinurinn góði.
Að fræðast þráðir, sem vonlegt var,
í vanda komu mér spumingar
mér einatt fundust þær erfiðar,
þeim oft hef í prófum fallið.
Og aldrei gleymi ég einni þó
því ágætt við henni svar ég bjó.
Þú komst og kpurðir með kærleiks ró:
„Hvað er á bak við fjallið?11
En bernskan líður, og blóm í hlíð
byrja að sölna á haustsins tíð.
Og veturinn kemur með hregg og hríð
með harðfenni og dimma skugga.
Þó bíður sólin á bak við ský
hún brýst gegn um þyknið skær og hlý
hún boðar mönnunum birtu á ný
og bræðir héluna af glugga.
Við kveðjum þig öll með klökkri lund
og kveðjan er sár á hinztu stund.
En hann sem vill græða hjartans und
heldur smyrslum að sárum.
Hve heitt þér unni af hjartans rót
hin hugumprúða og bjarta snót
og sjálfa vantar nú sárabót
hún syrgir þig gullnum tárum.
En Guð einn huggar á harmastund,
hann heyrir bænir og styrkir mund.
Og ástvini kallar hann á sinn fund
eins og sjá má hér vottinn.
I kærleiksfaðm hans þú komin ert
og Kristi er líf þitt opinbert.
Ég trúi og veit að sæll þú sért,
of "áttur við þig er Drottinn.
<Sv
Innilegt þakklæti til allra, nær og fjær, sem heiðruðu
mig með heimsóknum, gjöfum, blómum og skeytum á
60 ára afmæli mínu 18. þ. m. — Lifið heil.
Magnús Benediktsson, Vallá, Kjalarnesi.
Utanríkisráð-
herra Pakistan
látinn
ÚTSALA ÚTSALA
IJtsalan heldur áfram
Undirkjólar — Náttkjólar — Náttföt —
Dömublússur — Slæður og Hanzkar —
Dömupeysur í nýju úrvali.
Nælonsokkar frá kr. 15,00.
Ennfremur meðan birgðir endast:
Naglalakk frá kr. 10,00.
Varalitur frá kr. 15,00.
Notið tækifærið og gerið góð kaup. —
Aðeins fáir dagar eftir. —
Laugavegi 19 — Sími 17445.
Dacca, 23. janúar — NTB—AP.
UTANRÍKISRÁÐHERRA Pa-
kistan, Mohammed Ali, lézt úr
hjartabiiun í dag í Decca.
Hann hefur þjáðst af hjarta-
sjúkdóm nokkur undanfarin
ár, og var lagður í sjúkrahús
í gær, alvarlega veikur.
Mohammed Ali var forsæt-
isráðherra í landi sínu 1953, en
síðar varð hann ambassador
í Japan. Honum er það fyrst
og fremst þakkað, að náin sam
vinna tókst á sínum tíma milli
Bandaríkjanna og Pakistan.
Að undanförnu hefur hann
staðið í viðræðum við fulltrúa
Pekingst j órnarinnar.
Sex bátar róa f rá
Hornafirði
Höfn í Hornafirði, 21. jan.
FYRRI hluta janúarmánaðar
fóru sex Hornafjarðarbátar sam
tals 50 róðra. Samanlagður afli
þeira var 409.5 lestir af óslægð-
um fiski.
Mestan afla hafði Ólafur
Tryggvason, 108.5 lestir í 12 róðr
um, þá Gissur hvíti 90 lestir I
11 óðrum og Svanur 84.5 lestir I
9 róðrum.
Tíð hefur allt til þessa verið
einmunagóð og aðeins einn dag-
ur fallið úr róðrum fyri utan
sunnudaga, en þá er ekki róið
hér, meðan línuvertóð er stund-
uð. — Gunnar.