Morgunblaðið - 25.01.1963, Síða 20
20
MORCUNBLAÐIÐ
__ /
Fðstudagur 28. Janftar 19SS
PATRIC I A WENTWORTH:
MAUD
KEMUR í HEIMSÓKN
Hún ásetti sér að svara ekki
lleiri spurningum. Og hún var
fullkomlega einbeitt í þessum
ásetningi sínum, stóð upp og
horfði beint framan í hann.
— Ég hef sagt yður sannleik-
ann og hef engu frekar við að
bæta .... Jú, ég skal undirrita
þennan framburð minn, ef þér
óskið þess, en ég svara ekki
fleiri spurningum.
Hann braut saman regnkáp-
una, lagði hana á bekkinn við
gluggann og bað um að fá að
tala við ungfrú Frances Bell.
XIX.
Faney kom inn í stofuna og bláu
augun voru galopin. >au gaum-
gæfðu lögreglustjórann vand-
lega og létu sér ekki margt um
finnast. Fancy var sama sinnis
og frú Mayhew: henni fannst
ekki mikið til um manninn með
refssvipinn. Ungi maðurinn, sem
sat við borðið með vasabókina
fyrir framan sig, var snöggt um
skárri — hann var bara laglegur.
Hún fór að geta sér til um hann
— eins og aðra unga menn, sem
hún sá í fyrsta sinn — hvort
hann mundi dansa vel. Það voru
svo margir lögulegir strákar,
sem voru alveg ómögulegir
dansmenn, en hinir, sem döns-
uðu vel, voru oftast leiðinlegir.
Með þessar hugsanir efst í hug-
anum, settist hún á stólinn, sem
sneri að glugganum, svo að báð-
ir mennirnir gátu vel séð hinn
naestum ótrúlega hörundslit henn
ar.
Það var ekki laust við, að
Whitcombe lögregluþjónn væri
snortinn. Hann starði á hana —
fyrst í nokkrum vafa, en því
næst með ódulinni aðdáun. Ef
Drake var með einhverjar slíkar
tilfinningar innanbrjósts, þá
leyndi hann þeim að minnsta
kosti fullkomlega, og kom með
spurningar sínar á jafn ópersónu
legan hátt og töframaður sem er
að láta kanínur koma upp úr
hatti.
Þessar kanínirr voru nú smá-
ar til að byrja með, og Fancy
tók á móti þeim, fyrirhafnar-
laust og blátt áfram. Hún sam-
þykkti, að hún væri ungfrú
Frances Bell, og væri kunningi
Carr Robertsons. Hér væri hún
stödd í stuttri heimsókn. Nei hún
væri ekki trúlofuð Carr Robert-
son — ekkert því líkt — þau
væru bara kunningjar. Hún
þekkti alls ekki hr. Lessiter.
F.kki einu sinni í sjón — fyrr
en hún sá myndina af honum í
blaðinu.
— Og hvenær var það, ung-
írú Bell?
— Nú, það var bara í gær-
kvöldi.
Hann laut í áttina til hennar
yfir borðið.
— Jæja, ungfrú Bell, nú vil
ég, að þér segið mér, hvað gerð-
ist í gærkvöldi.
Bláu augun opnuðust, hægt
Og hægt.
— Hvað eigið þér við, að
gerðist?
— Jú, hvað þið höfðust að,
öll þrjú — þér, ungfrú Cray og
hr. Robertson.
— Jú, við Carr fórum til
borgarinnar og vorum þar um
daginn. Við komum aftur rétt
fyrir klukkan sjö, borðuðum
kvöldverð Og þá kom hann séra
Ainger með myndablöð. Var
það það, sem þér vilduð vita?
— Já. Og um hvaða leyti ætli
þetta hafi verið?
— Líklega svona stundarfjórð
ungi yfir átta.
— Haldið þér áfram.
— Séra Ainger fór svo - hann
var á leið til einhv’errar konu
sem var veik. Og þá fór ung-
frú Cray í símann — hann er
þarna inni — en við Carr fórum
að kíkja í blöðin hans séra
Aingers.
— Var það þá, sem þér sáuð
myndina af hr. Lessietr?
— Já..annars var það bara
Carr, sem sá hana, en ekki ég.
Ég get sýnt yður hana ef þér
viljið.
— Það getur beðið ofurlítið.
Svo að hr. Robertson sá mynd-
ina. Hvað sagði hann þegar
hann sá hana?
Bláu augun litu undan. Sann-
leikurinn var sá, að það var
fyrst í þessu andartaki, sem
Fancy datt í hug, að, að orð
Cari's gætu staðið í nokkru sam-
bandi við dauða James Lessiter,
tveim klukkustundum síðar. Ef
Carr sjálfur eða Rietta Cray
hefðu bent henni á þetta sam-
band og ráðlagt henni að nefna
það ekki einu orði, sem gerzt
hafði frá því að séra Ainger
fór og þangað til Carr rauk út,
þá hefði hún vafalaust gert sitt
bezta til að verjast spurninga-
hríðinni, en líklega orðið að
lúta í lægra haldi. En hvorki
Carr né Rietta höfðu komið sér
að því að gefa henni neina slíka
viðvörun. í augum þeirra beggja
hefði það verið sama og sektar-
játning. Þessvegna varð Fancy
að bjargast upp á eigin spýtur.
Hræðsla og fum greip hana. Hún
minntist greinilega hörkulegrar
raddarinnar í Carr, þegar hann
sagði. „Svo það er þú — svín-
ið!“. En það gat hún ekki sagt
lögreglustjóranum. En hvað átti
hún þá að segja honum? Þegar
maður getur ekki sagt sannleik-
ann og hefur enga æfingu í að
ljúga, hvað er þá hægt að gera?
Um það hafði hún enga hug-
mynd. Roðinn steig upp undir
slétta, fallega hörundinu og bláu
augun fylltust tárum. Whit-
combe lögregluþjónn gat ekki
haft af henni augun, en full-
trúinn lét ekki hrærast. Honum
fannst telpan vera heimsk og
hann var einráðinn í að hafa
eitthvað upp úr henni. Hann
endurtók því spurninguna, hvöss
um rómi:
— Hvað sagði hann?
Það varð þögn og roðinn
hvarf. Fancy sagði:
— Ungfrú Cray kom inn aftur
og Carr fór út að ganga.
Drake barði í borðið.
— Þér hafið ekki svarað
spurningu minni, ungfrú Bell.
Hr. Robertson sá myndina af hr.
Lessiter. Hvað sagði hann, þegar
hann sá hana? Virtist hann
þekkja hana?
— Já, að vissu leyti....
— Þér þurfið að útskýra það
nánar. Ég vil fá að vita, hvað
hann sagði.
Fancy gerði það, sem hún gat.
— Hann virtist verða hissa.
Drake var fljótur til.
— Eigið þér við, að hann hafi
þekkt myndina, eða að hann
hafi orðið hissa á, að þetta
skyldi vera hr. Lessiter?
— Já, að vissu leyti.
— Varð hann hissa? Reiður?
Hvað gat hún sagt við því?
Reiður var ekkert orð yfir það.
Hún vissi ekkert, hvað hún átti
áð segja. Hún sagði því ekkert.
Þögnin var sama og samþykki.
— Hann varð þá reiður, þegar
hann þekkti hr. Lessiter —
mjög reiður?
Hún sat og horfði niður á
borðið en vot augnahárin skýldu
augunum.
Drake barði aftur í borðið.
— Hann þekkti hr. Lessiter og
hann varð reiður. Hversvegna?
Ég geri ráð fyrir, að þér vitið
það. En ef þér ekki segið mér
það gerir það bara einhver ann-
ar.
Fancy rykkti upp höfðinu.
Hún hristi reiðilega af sér tvö
tár, en augun leiftruðu.
Þá er yður bezt að fara og
spyrja hahn! sagði hún. Uppeld-
ið í Stepney var komið upp á
yfirborðið.
— Ungfrú Bell..!
Hún ýtti frá sér stólnum og
stökk upp. ,
— Eg hef slæmar fréttir að færa. Klukkan er orðln hálf tólf
og það er ekkisunnudagur.
— Það þýðir ekkert að vera
að spyrja mig allra þessara
spurninga, sem ég get ekki svar-
að. Ef þér haldið, að aðrir geti
svarað þeim, er bezt að spyrja
þá. Ef þér viljið vita, hvað Carr
sagði, er bezt að spyrja hann —
hann veit það betur en ég!
Fulltrúinn gætti stillingar.
Hann sagði: -
— Ég get ekki neytt yður til
að svara spurningum mínum,
ungfrú Bell, en þegar að réttar-
haldinu kemur, verðið þér að
svara þeim undir eiðs tilboð. En
þangað til er það auðvitað
skylda yðar að hjálpa lögregl-
unni á hvern þann hátt, sem þér
getið.
Hún stóð kyrr. Nú, er hann
hafði gert hana reiða, var hún
ekki hrædd lengur. Hann gat
ekki neytt hana til að tala —
það hafði hann sjálfur sagt. Og
hún skyldi ekki svara neinum
spurningum um það, hvort Carr
hefði Orðið reiður.
En nú tók hann aftur til máls.
— Hr. Robertson fór út og
svo fór ungfrú Carr út?
— Já.
— Hve lengi voru þau úti?
— Þau fóru ekki út saman.
Hann fór út um framdyrnar en
hún um bakdyrnar.
— Jæja, við skulum taka þau
hvort í sínu lagi. Hvenær kom
ungfrú Cray inn aftur?
— Hvað vildi hann með öllum
þessum asnaspurningum? Hvað
var hann að snuðra um? Hún
svaraði:
— Það var kortér yfir níu
— fréttirnar voru rétt nýbúnar.
— Og hr. Robertson?
— Það veit ég ekki. Sg fór að
hátta.
— Þér heyrðuð hann ekki
koma inn?
— Nei, það gerði ég ekki og
ég veit ekkert frekar um þetta.
Hann sagði: — Eitt andartak
enn, ungfrú Bell — hr. Robert-
son fór út eftir að hann kannað-
ist við myndina, var það ekki?
— Jú, það var ég búin að
segja yður.
— Hvað var klukkan þá?
— Hún var hálfníu. Ég gáði
KALLI KUREKI
Í JUST NOTICEP How MUCH VOU
TWO LOOK AUkE' SAME SlZE ,
SAME BUIUU-IF RED WAS T’ PYE
HIS HAIR BLACk, YOU COULP
ALMOSTBETWINS'
* ~
Teiknari: Fred Harman
— Mér finnst einkennilegt, hversu
mjög þið líkist hvor öðrum. Þið virð-
ist vera alveg jafn stórir og hafa
sama líkamsvöxt. Þið gætuð alveg
verið tvíburar.
— Já, ég tók eftir því, þetta g^fur
manni ákaflega skemmtilega tilfinn-
ingu, eða hitt þó heldur, Davíð.
— Já, þið eruð sannarlega líkir.
Jæja, ég verð víst að hefjast handa.
Ef þú sérð einhvern, sem myndin
getur átt við, bið ég þig eindregið um
að gera aðvart.
— Já, ég skal lofa því.
— Og mundu það, að allir nefna
hann próíessorinn. Ég setti hann eitt
sinn undir lás og slá. Hann var þá
vopnaður byssu, en fyrir hálfum
mánuði brauzt hann út úr fangels-
inu, og skildi eftir þau skilaboð, að
hann ætlaði að skjóta mig. Það er því
eins gott fyrir mig að vera á undan
honum til þess að ég fái ekki kúlu
í bakið.
að því vegna sj ónvarpsdagskrár-
innar.
— Hr. Robertson þekkti mynd
ina og fór svo næstum strax út.
Hahn var reiður, var það ekki?
Skellti hann hurði .ni?
Hann ætlaði að veiða hana,
eða hvað? Nú gaus reiðin upp
í Fancy.
— Þér skuluð spyrja hann
sjálfan! æpti hún og þaut út úr
stofunni. Og hurðin skelltist
aftur, svo að glumdi í húsinu.
Whitcombe lögregluþjónn
gleymdi sér nægilega til þess að
fara að blístra.
XX.
Carr hafði farið gangandi til
Lenton með svipuðum hraða og
kvöldinu áður. Hann hitti
Jónatan Moore i búðinni, þar
sem hann var að skrafa i róleg-
heitum við gömlu frú Filchett.
Hefði öðruvísi staðið á, hefðl
þessi andstæða hinnar grófgerðu
og sterkbyggðu konu og hinnar
slípuðu kurteisi Jónatans komið
honum til að hlæja. En eins og
á stóð, tók hann þann kostinn
að renna sér svo lítið bar á,
innar eftir búðinni og gegnum
dyr, sem þar voru.
En gamla konan hafði nú tek-
ið eftir honum samt, þótt hún
væri að þjarka við kaupmann-
inn, og spurði með ákafa:
— Hver var þetta?
Jónatan fór undan í flæmingl.
— Ég tók ekki eftir honum, og
er ekki viss um, hver það var.
— Nú, hann gekk inn um
einkadyrnar yðar, rétt eins og
hann ætti þær sjálfur.
ailltvarpiö
8.00 Morgunútvarp.
12.99 Hádegisútvarp.
13.15 Lesin dagskrá næstu viku.
13.25 „Við vinnuna": Tónleikar.
14.40 „Við, sem heima sitjum“:
Jóhanna Norðfjörð les úr ævi
sögu Gretu Garbo (10).
15.00 Síðdegisútvarp.
17.40 Framburðarkennsla í esper-
anto og spænsku.
18.00 „Þeir gerðu garðinn frægan“:
Guðmundur M. Þorláksson
talar um séra Jón Steingríms-
son.
18.20 Veðurfregnir. — 18.30 Har-
monikulög. — 19.00 Tilkynn-
ingar.
19.30 Fréttir.
20.00 Frá tónleikum f Austurbæjar
bíói 7. þ.m.: Enska söngkonan
Ruth Little syngur gamla
söngva og þjóðlög frá Bret-
landseyjum og „A Charm of
Lullabies" - 5 vögguljóð eftir
Benjamin Britten. —Við pí-
anóið: Guðrún Kristinsdótt-
ir.
20.35 í ljóði, — þáttur í umsjá
Baldurs Pálmasonar, Karl Guð
mundsson les kæði eftir Jó-
hann Gunnar Sigurðsson og
Guðrún Ásmundsdóttir úr
ljóðabókum Sigurðar Einars-
sonar.
21.00 Ástralía: Samfelld dagskrá,
tekin saman af Vilbergi Júlíus
syni skólastjóra. Flytjendur
með honum: Ragnheiður Heið
reksdóttir, Guðjón Ingi Sig-
urðsson og Jón Ingvarsson.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Efst á baugi (Björgvin Guð-
mundsson og Tómas Karlsson)
22.40 Á Síðkvöldi: Lét* >»lassisk
tónlist.
23.25 Dagskrárlok. .