Morgunblaðið - 25.01.1963, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ
Fðstudagur 25. janúar 1963 '
ÍSÍ reynir nýjar ieiðir til að
bæta úr þjáífaraskorti
Samtökin flytur
FRAMKVÆMDASTJÓRN ÍS.t
hélt fund með blaðamönnum í
gær og ræddi Gisli Halldórsson
forseti þar um þau mál sem efst
ern á baugi hjá framkvæmda-
stjórninni. Eru það húsnæðimál,
útgáfa íþróttablaðsins, keppni um
íþróttamerki, námskeið fyrir leið
beinendur, starfsemi unglinga-
ráðs og fleiri nefnda sambands-
ins o. fl. Fer hér á eftir megin-
hluti þess sem framkvæmda-
stjórnin telur efst á baugi.
íþróttasambandið flutt
í ný húsakynni
íþróttasamband fslands hefur
nú nýlega flutt í ný húsakynni,
sem það hefur tekið á leigu í
Suðurlandsbraut 4 (Hús H. Bene
diktsson og Co) eru það þrjú
herbergi á 2. hæð hin vistleg-
ustu húsakynni .
Ásamt ÍSÍ hafa þar bækistöð
sína, Frjálsíþróttasamband ís-
lands, Skíðasamband íslands,
Körfuknattleikssamband íslands,
Æskulýðssamband íslands.
Eign Í.S.f. að Grundarstíg 2A seld
Húseign sína 2. hæð í Grund-
arstíg_ 2 A, hefur íþróttasam-
band íslands selt og verður and-
virði sölunnar notað til greiðslu
upp í kostnað við byggingu á
nýju skrifstofuhúsi ÍSÍ og ÍBR.
Hið nýja skrifstofuhús fþrótta-
sambands íslands og íþrótta-
bandalags R.-víkur
í byggingu er nýtt skrifstofu-
hús inni í Laugardal við hliðina
á hinni glæsilegu íþróttahöll sem
þar er að rísa. Að byggingu þess
ari standa íþróttasamband ís-
lands og íþróttabandalag Reykja
víkur, hús þetta er nú næstum
orðið fokhelt, búið að steypa
það upp og gler í glugga verð-
ur sett á næstunni.
Gert er ráð fyrir, að halda
áfram innan-húss smíði í sumar
og ljúka við bygginguna á miðju
næsta sumri og taka hana þá
í notkun.
Grunnflötur byggingarinnar er
260 fermetrar og er hún 3 hæðir
og kjallari. Á fyrstu hæð verður
Dunir og Sví-
ar jafnir 11:11
SVÍAR og Danir léku lands-
leik í handknattleik á mið-
vikudagskvöldið og fór
leikurinn fram í Forum í
Höfn og munu 6000 áhorf-
endur ajdrei gleyma þeim
leik. Jafntefli varð 11—11
og það voru Svíarnir sem
jöfnuðu úr vítakasti sem
framkvæmt var eftir að
leiktíma lauk.
Danir náðu forystu í leikn
um og höfðu um tíma í byrj-
nn síðari hálfleiks 8—4 for-
ystu. En Svíar settu sínar
gömlu stjörnur inn á m. a.
Kjell Jarlenius og hann
vann jafnteflið fyrir Sví-
þjóð öðrum fremur, bæði
með því að saxa á forskotið
og hann framkvæmdi hið
þýðingarmikla vítakast í
leikslok. Hann var víst eini
maðurinn í húsinu sem ekki
var algerlega farinn á taug-
um vegna spenningsins.
# nýtt húsnæði
aðstaða, til tómstundastarfs og
gistingar fyrir íþróttamenn, sem
koma til keppni í höfuðstaðnum.
Á annarri og þriðju hæð verða
skrifstofuherbergi og fundarher-
bergi.
Þegar byggingu húss þessa er
lokið og íþróttahreyfingin hefur
flutt starfsemi sína í það, stór-
batnar öll aðstaða fyrir yfirstjórn
íþróttasamtakanna, sem væntan-
lega hefur öll aðsetur á þessum
eina stað. Þá verður að veruleika
hálfrar aldar draumur íþrótta-
manna um að eignast íþróttamið
stöð.
Námskeið fyrir leiðbeinendur
i íþróttum og íþróttaleiðtoga
Á sambandsráðsfundi Í.S.Í. 2.
des. sL var samþykkt, að halda
námskeið fyrir íþróttaleiðtoga og
leiðbeinendur í íþróttum. Enn-
fremur var samþykkt á sama
sambandsráðsfundi, að taka upp
sérstaka fjárveitingu til styrktar
þeirri starfsemi sérsambanda
Í.S.Í., að halda námskeið víðs
vegar um landið.
Síðan hefur verið unnið að
máli þessu og þá sérstaklega að
öflun fjár, og er tryggt, að fram-
kvæmdir verða.
Fyrirhugaður er fundur með
formönnum sérsambandanna, þar
sem nánar verður ákveðið um
námskeiðiðin. Verður héraðs-
samböndum Í.S.Í. skýrt frá áætl-
unum, þegar þær eru tilbúnar.
þá mun framkvæmdastjóm l.S.Í.
beita sér fyrir námskeiðum í
þeim íþróttagreinum, sem .S.í.
er sérsamband í, auk þess nám-
skeiðum fyrir heildina, þar sem
lögð verður áherzla á kennslu
í hinu félagslega starfi.
Fundur formanna
héraðssambanda
Framkvæmdastjórn Í.S.Í. hef-
ur ákveðið, að boða til fundar
með formönnum héraðssamband
anna á komandi vori, á góðum
stað austan fjalls. Mun sá fundur
standa í tvo daga og verður
fjallað þar um helstu mál íþrótta
hreyfingarinnar. Fræðsluerindi
um ýmis félagsleg atriði fara
einnig fram á þessum fundi.
Unglingaráð Í.S.Í.
Lögð mun í framtíðinni, sér-
stök áherzla á æskulýðsstaarfið
innan íþróttahreyfingarinnar, og
kemur það verkefni einkum í
hlut sérstaks ráðs innan Í.S.Í.,
Svíinn vann á sínum Saab
SVÍINN Eric Carlsson sigraði
í gær í hinum fræga Monte
Carlo kappakstri, lengsta kapp
akstri'sem í er keppt. Carls-
son var á Saab bíl. Hann vann
einnig keppnina í fyrra á Saab
bíl og er þetta í fyrsta sinn í
30 ár sem sami sigurvegari er
tvö ár í röð í þessari frægu
keppni. Carlsson vann með
nokkrum yfirburðum hlaut
2.976.189 stig. Félagi Carls-
sons er Gunnar Palm. 2. í röð-
inni var Pauli Toivonen og
Anssi Jærvi Finnlandi á Citr-
oen-bíl með 3.014.846 stig og
3. Aaltonen og Amferos Finn-
landi á Morris Cooper með
3.055.077 stig.
Carlsson er einn fremsti
kappakstursmaður vorra tíma
og einn sérstæðasti maður
sem nokkru sinni hefur setið
við stýri í kappakstri. Hann er
33 ára frá Trollhattan og er
tilraunabílstjóri að atvinnu.
Hann hóf feril sinn í mótor-
hjólakappakstri en keppti í
fyrsta sinn á bíl 1953. Síðan
hefur hann unnið marga sigra
og hin stærsta (auk Monte
Carlo sigranna) árið 1959 er
hann var kjörinn sem bezti
lang-kappaksturskappi
Evrópu.
Það er mikil viðurkenning
fyrir Saab bílana að hafa tví-
vegis hlotið sigur í þessari
keppni.
Keppni kvenna vann Ewy
Rosqvist, einnig sænsk. Hún
var á Mercedesbíl. Hún var
önnur þeirra kvenna er sigr-
aði í Kappakstri í Chile fyrir
skömmu en þátttakendur voru
400.
FH nálgast meistaratitil
íþrótta-
merkið
LANGAN tíma hefur stað-
ið til, að koma á keppni um
íþróttamerki Í.S.Í., en nú
hefur verið ákveðið að slík
keppni hefjist í febrúar nk.
Tilgangurinn með slíkri
keppni er, að íþróttirnar nái
til sem flestra, og árangur
sem ná þarf, til þess að
vinna íþróttamerkið, er mið
aður við það.
Slíkar keppnir hafa farið
fram á Norðurlöndum um
langan tíma, og borið mik-
inn árangur. Þess er að
vænta, að svo verði einnig
hér á landi. Sérstök nefnd
sér um framkvæmd þessa
máls.
Gísli Halldórsson forseti
Í.S.Í. sagði á blaðamanna-
fundi í gær að Í.S.Í. bindi \
miklar vonir um árangur af
þessari almenningskeppni
og heiðursforsetinn Ben. G.
Waage sagðist ætla að ef
unnt væri að vekja áhuga
ungra sem gamalla að
spreyta sig við merkin, þá
myndi þjóðin verða vel lík-
amlega þjálfuð eftir 5—lð
ár.
sem er ráðgefandi aðili um allt
það er lýtur að æskulýðsstarfi,
og hefur framkvæmdir á hendi
í þeim málum, sem framkvæmda
stjórn felur því.
Þetta þýðingarmikla ráð
KVENNAFLOKKUR FH stefnir
nú hraðbyri að íslandsmeistara-
titlinum í handknattleik kvenna.
í fyrrakvöld unnu FH stúlkurn-
ar Breiðablik með yfirburðum
skoruðu 14 mörk gegn 5.
Höfðu FH stúlkumar algera
yfirburði i öllum listum hand-
knattleiksins og virðast beztar
allra flokka kvenna, en hand-
knattleikur kvenna stendur ekki
hátt hjá okkur eins og er.
Sama kvöld kepptu Víkingur
og Ármann í kvennaflokki. Þar
var hatrömm barátta og tvísýn
og lauk reyndar með jafntefli
9 mörk gegn 9.
Víkingsstúlkurnar höfðu frum
kvæðið er á leið leikinn en Ár-
mannsdömunum tókst að jafna
á siðustu stundu._ Þetta var dýr-
mætt stig sem Ármann tapaði,
en það var eiginlega eina liðið
sem ógnaði FH stúlkunum.
í 2. flokki karla fór fram leik-
ur milli Vals og Fram. Þar var
barátta mikil og hörð og lauk
með sigri Vals 11 gegn 10.
Loks fór fram leikur í 3. flokki
karla vann Víkingur lið Ár-
manns með 13 gegn 10.
Framh. á bls. 23
--- ——------®
Her er Sigurhna að skora fyrir FH. „Vörn“ Breiðabliks
kom of seint. — Ljósm. Mbl. Sv. Þ.
María fegurðardrottning var meðal áhorfenda ao Háloga-
landi fyrrakvöló og hafði við orð að það gæti verið
gaman að prófa handknatt leik aftur, en hún lék með
KR. Hún stóð hjá Bjarna Bjamasyni ‘ ímaverði og gár-
ungar sögðu að þetta væri í fyrsta sinn sem Bjarni hefði
gleymt sér í tímavarðarstarfinu.