Morgunblaðið - 25.01.1963, Qupperneq 24
-s
DftrogmttMð&ifr
20. tbl. — Föstudagur 25. janúar 1963
Vandfátir velja
Félagsdóm-
* a
ur LID í vil
Reiknmgsskil Mb. Auduns skulu mið-
ast við ákvæði geröardóms
1 GÆR féll í Félagsdómi dómur
í máli Farmanna og fiskimanna-
sambands íslands gegn LÍÚ varð
andi reikningsskil stýrimanna og
vélstjóra á bátnum Auðunni í
Hafnarfirði, og gekk dómurinn
LÚ í viL
Málsatvik voru þau að í Hafn-
arfirði hafði samningum verið
ságt upp milli sjómanna og út-
vegsmanna 1S61, en nokkru áður
hafði Farmanna og fiskimanna-
sambandið samþykkt að skip-
stjórar, stýrimenn og vélstjórar
skyldu hafa ákveðið margfeldi
af hásetahlut.
Þegar skráð var á síldveiðar
24. júní í sumar, er bráðabirgða-
lögin voru sett, var skráð upp á
væntanlega samninga milli LÍÚ
ag stéttarfélags sjómanna. Að lok
inni vertíð í sumar gerði útgerð
Auðuns upp við stýrimenn og
vélstjóra á þeim grundvelli að
miðað var við hásetahlut sam-
kvæmt ákvæðum gerðardóms.
Farmanna og fiskimannasam-
bandið taldi hinsvegar að miða
bæri reikningsskilin við að há-
setar fengju hlut samkvæmt
þeim kjarasamningum, sem í
gildi voru milli sjómanna og út-
vegsmanna er Farmanna og fiski-
mannasambandið samdi 1961.
Dómur féll á þá leið að þar
sem eigi voru í gildi kjarasamn-
ingar milli háseta og útgerðar-
manna og að skráð hafi verið
upp á væntanlega samninga
hefðu ákvæði gerðardóms komið
til framkvæmda um hlut háseta,
og sé LÍÚ samkvæmt því heimilt
að miða hlut stýrimanna og vél-
stjóra á umræddu skipi við hlut
hásetanna á sama skipi sam-
kvæmt ákvæðum gerðardómsins.
Þannig mnn Útvegsbankinn líta út. — Að teikningum bafa unnið Eiríkur Einarsson, húsa-
meistari, og Hörður Björnsson, byggingarverkfræðingur.
Útvegsbankinn stækkar og
endurbætir húsakynni sín
Jeppinn sem varð fyrir vörubifreiðinni I Mosfellssveitinni í gær. Einn maður var í jeppan-
um og beið hann bana
Tvö banaslys í um-
ferðinni í gær
d vegum i Mosfellssveit og Kópavogi
I GÆR urðu tvö banaslys á
vegunum í nágrenni Reykja-
víkur. Ungur maður beið
bana er jeppi hans snerist á
hálkunni og lenti fyrir þung-
um flutningabíl á Vestur-
landsvegi. Og 13 ára gömul
telpa varð fyrir jeppabifreið
á Reykjanesbraut í Kópavogi.
Bæði biðu samstundis bana.
Jeppi rakst á flutningabíl
Fyrra slysið varð um sex
leytið síðdegis. Maðurinn sem
var 25 ára gamall, var einn í bif-
reiðinni á leið upp í Mosfells-
sveit. Er hann kom móts við
Korpúlfsstaði fór hann yfir
krapaelg og rétt á eftir mætti
hann flutningabíl frá Hvamms-
tanga. Virðist jeppinn þá hafa
snarsnúist á hálkunni, sem var
á veginum,' og lenti flutninga-
bíllinn á hægra framhorni hans.
Beið maðurinn samstundis bana.
Vörubifreiðin var fullhlaðin
vörum og var kona í framsæti
hjá bílstjóranum.
Fermingartelpa fyrir bíl
Síðara slysið gerðist á tíunda
tímanum í gærkvöldi. Telpan,
sem var 13 ára gömul, hafði
farið til prestsins um kvöldið.
Hvasst var og' mun hún hafa
hrakist út á götuna eða elt húfu
sína þangað. Rétt í því kom jeppi
úr Reykjavík eftir veginum á
suðurleið og lenti telpan undir
honum. Jeppinn fór út af með
eitt hjólið. Bílstjórar sem komu
þarna að, lyftu honum ofan af
telpunni, en hún mun þá hafa
verið látin. Vantar Kópavogs-
lögregluna vitni að slysinu.
Lögreglan í Reykjavík og lög-
reglan í Kópavogi óskuðu eftir
að nöfnin yrðu ekki birt strax
í dag og gerir blaðið það því
ekki.
Bankahúsið hækkar um 4 hæðir — fram-
kvæmdir munu hefjast 1 aprílmánuði nk.
BANKASTJÓRAR Útvegs-
banka íslands boðuðu í gær
fréttamenn á sinn fund í
Þjóðleikhúskjallaranum, og
var þar skýrt frá því, að bank
inn hefði ákveðið að byggja
við húsakynni sín við Lækj-
artorg og Austurstræti.
Ætlunin er, að fjórar hæð-
i verði byggðar ofan á gamla
bankahúsið, og verði hver
hæð rúmir 400 fermetrar,
nema efsta hæðin, sem verð-
ur nokkru minni. Jafnframt
verða afgreiðslusalir á neðstu
hæð stækkaðir og byggt nýtt
stigahús út í Kolasund með
starfsmannainngangi, inn-
gangi frá Austurstræti og sér-
stökum lyftum.
Verkið verður boðið út í
næsta mánuði . og stefnt er
að því að hefja framkvæmd-
ir í apríl n. k.
Jafnframt því, sem skýrt var
frá fyrirhuguðum breytingum á
húsakynnum bankans, var birt
skýrsla um afkomu hans, og sagt
frá væntanlegu útibúi 1 Kefla-
vík, auk þess, sem grein var gerð
fyrir starfsemi Fiskveiðasjóðs
íslands, sem er deild í bankan-
um.
Fer hér á eftir nánari lýsing
á væntanlegum byggingarfram-
kvæmdum ,en á öðrum stað í
blaðinu er gerð nánari grein fyr-
ir afkomu o. fl.
Það eru nú nokkur ár síðan
að athuganir hófust á möguleik-
um til þess að auka húsnæði Út-
Kjördæmisráð
Suðurlands-
kjördæmis
KJÖRDÆMISRÁB Sjálfstæðis-
flokksins í Suðurlandskjördæmi
heldur fund sunnudaginn 27.
þ. m. að Hellu. Fundurinn hefst
kL L — Stjórnin.
vegsbankans með því að byggja
ofan á gamla bankahúsið. Mikill
vöxtur bankans á síðari árum
hefir leitt til þess fyrr en ella
að óhjákvæmilegt er að auka
húsnæði bankans, og er nú svo
komið, að plássleysi háir bein-
línis starfseminni.
Gamla bankahúsið var byggt
1905, — t eiknað £Lf dönskum
húsameistara.
Árið 1938 var bankahúsiS
tengt vdð húsið Lækjartorg 1,
sem bankinn hafði keypt af Páli
Stefánssyni frá Þverá. Sigurður
Guðumndsson, húsameistari,
teiknaði þær breytingar, sem
nauðsynlegt var að gera.
Upp úr 1950 er farið að hugsa
til þess að byggja ofan á gamla
1 ■ Framhald á bls. 3.
Ákvæð-
isvinnan
gefst vel
Vestmannaeyjum, 24. jan.
HER hefur að undanfömu
farið fram víðtæk athugun á
ákvæðisvinnu við ýmis störf
í hraðfrystihúsum og þá fyrst
og fremst flökun og pökkun.
Ekki verður annað séð en
reynslan sé góð á þessu fyrir-
komulagi, þótt enn sé ekki að
fullu gengið frá samningum
um þessa vinnutilhögun. Af-
kastamikið fólk hefur borið
mun meira úr býtum með
þessari tilhögun. — vig.
Alþingi saman á
þriðjudaginn
Á FUNDf ríkisráðs í Reykjavík
í dag staðfesti forseti íslands
ýmsar afgreiðslur, er farið höfðu
fram utan fundar, þ. á. m. að
kveðja Alþingi til framhalds-
fundar 28. janúar.