Morgunblaðið - 13.02.1963, Side 1
24 síður
sinn í landhelgi
Ekkert haffærisskýrteini — engin lög-
skrdning — talstöð innsigluð
Vestmannaeyjum, 12. febrúar.
TVEIR togbátar voru teknir að ólöglegum veiðum innan
fiskveiðimarkanna undan Hjörleifshöfða sl. nótt. Þeir eru
Vestmannaeyjabátarnir Frigg VE-316, og Sævaldur SU-2,
frá Djúpavogi, sem nú var tekinn í þriðja sinn á fáum dög-
um fyrir landhelgisbrot.
haffærisskýrteini og ekki er
skráð á bátinn lögum samkvæmt
og loks, að talstöðin er innsigluð
vegna skuldar við Landssímann.
Þetta kom ekki fram fyrr en
við réttarhöldin í dag, þegar
Kristján Gústafsson skýrði frá
því, að bróðir hans væri skip-
stjóri. Þá voru gögn bátsins at-
huguð.
Sem fyrr segir, er Sævaldur
SU frá Djúpavogi, en hann mun
aðallega hafa verið gerður út
frá Höfn í Hornafirði.
Réttarhöldunum í málí Sæ-
valdar SU var frestað um kl. 7
í kvöld og hefjast réttarhöldin
að nýju á morgun. — Bj. Guðm.
Varðskipið Þór kom með bát-
ana hingað til Eyja í morgun og
hófust réttarhöld í máli skip-
stjóranna eftir hádegi.
Skipstjórinn á Frigg, Svein-
björn Hjartarson, viðurkenndi
brot sitt, en hann var tekinn nú
í fyrsta skipti í landhelgi, Svein-
björn hlaut 20 þúsund krónur í
sekt og afli og veiðarfæri báts-
ins voru gerð upptæk. Svein-
björn áfrýjaði dóminum til
Hæstaréttar.
Þegar mál Sævaidar SU kom
fyrir réttinn bar Kristján Gúst-
afsson það, en hann var skip-
stjóri á Sævaldi í bæði skiptin
sem báturinn hefur verið tekinn
í landhelgi, að bróðir hans,
Björn Gústafsson hefði verið
skipstjóri í síðustu veiðiferðinni.
Að sögn Freymóðs Þorsteins-
sonar, setzts bæjarfógeta, kom
ennfremur fram við réttarhöld-
in, að Sævaldur SU hefur ekki
U Thant
NJssnari úr Inndi
SL. SUNNUDAG, 10. febrúar,
fór sovézki njósnarinn Ivan
Skripov flugleiðis frá Sydney í
Ástralíu ásamt konu sinni Veru
og syni. Var meðfylgjandi mynd
tekin er þau voru að ganga út
í flugvélina.
Rétt eftir að flugvélin — þota
af gerðinni Boeing 707 — var
komin á loft, var hringt til flug-
Stöðvarinnar í Sydney og sagt,
að tímasprengja væri í vélinni.
— Starfsmenn flugstöðvarinnar
töldu að hér væri um blekkirigu
að ræða, enda reyndist svo vera.
Flugvélin var látin halda áfram
til Darwin, en þar gerð ýtarleg
leit í öllum farangi — nema far-
angri Skripovs, en það var ekki
heimilt vegna réttar hans sem
sendimanns erlends ríkis. Flug-
vélin hélt síðan áfram til Ja-
karta, samkvæmt áætlun, en þar
fór Skripov með rússneskri vél
heim til Moskvu.
Vinna að einingu
Araba-ríkjanna
Ferðamenn frá Bagdad telja, að 5000
manns hafi látið lífið í byllingunni
Beirut, Teheran, 12. febr. ■—sbiðiA um hríð heiðursvörð með
AP — NTB — Reuter. —
• Fregnir frá Teheran í morg
un hermdu, að hinn nýji þjóðar-
leiðtogi íraks, Abdul Salam Aref
hafi sent herdeild að gröf Feisals
konungs, sem drepinn var í upp
reisninni 1958 — og hafi hermenn
Skrifstofu IMBC
í Moskvu lokað
Moskvu, 12. febrúar.
(NTB-AP)
SOVÉZK yfirvöld hafa á-
kveðið að loka skrifstofu
bandarísku útvarpsstöðvar-
innar NBC, „National Broad-
casting Company“, í Moskvu
og færir fyrir þeirri ráðstöf-
un þau rök, að útvarpsstöðin
hafi breitt út illviljaðan and-
sovézkan áróður.
Jafnframt var fréttamanni út-
varpsins. sem nú er í Moskvu,
Russ Jones, skipað að fara úr
landi, en ekki tilgreint fyrir
hvaða tima. — Aðalfréttaritari
stöðvarinnar í Moskvu, Frank
Bourgholtzer, er um þessar
mundir í París og er haft eftir
Framh. á bls. 2
fána í hálfa stöng í virðingar-
skyni við minningu konungsins.
• Þá er haft eftir útvarpinu í
Kairo, að meðan loftárásir bylt-
ingarmanna stóðu yfir á aðsetur
landvarnaráðuneytisins í Bagdad,
hafi Kassem, fyrrverandi forsæt-
isráðherra haft símasamband við
Aref, ofursta, og beðið hann að
þyrma lífi sínu.
Kairo-útvarpið segir, að Kass-
em hafi lagt til að þeir tveir
kæmust að einhverri málamiðlun,
en Aref svarað, að hann yrði
fyrst að gefast upp, áður en til
greina kæmi að ræða nokkra
málamiðlun.
Nýtt dagblað i írak, kallað „A1
Hamahir“ sem mun þýða „Fjöld-
inn“ segir í dag ítarlega frá stjórn
arbyltingunni í sl. viku, að sögn
Bagdad-útvarpsins, sakar blaðið
Kasssem, hershöfðingja um að
hafa reynt að eyða þjóðernistii-
Jfinningu fólksins í landinu, og
segir, að sú stéfna, sem þjóðin var
í þann veginn að taka, undir for-
Framh. á bls. 2
Flugslys
í Florida
Óttazt að 43
hafi farizt
Miami, Flórida, 12. fébr.
— (AP) —
í KVÖLD fój-st skammt frá
Miami í Flórida farþega-
flugvél með 35 farþegum
og átta manna áhöfn. Er
óttazt að allir hafi farizt.
Flugvélin, sem var af gerð-
inni Boeing 720 B, var að fara
frá Miami til Chicago. Hún
hóf sig á loft í fremur slæmu
veðri kl. 17.35 og var væntan-
leg kl. 20.20 til Chicago. Um
það bii 10 mínútum eftir flug-
tak var haft samband við
flugvélina og virtist þá allt í
lagi. Er hún ekki lét frá sér
heyra á tilsettum tíma var
farið að grennslast fyrir um
afdrif hennar og umfangs-
mikil leit hafin. Skyggni var
slæmt og rigning og hamlaði
það mjög björgunarflugvél-
um. Vélin fannst í mýrlendi
um 70 km suðvestur af Miami
og var hvergi sjáanlegt lífs-
mark nærri flakinu.
Khartoum, 12. febr NTB—AP
InmanríkisráJ larna Súdan,
Mohamed Ahmed Irwa skýrði
frá því í dag, að 143 erlendir
trúboðar, sem jafnframt hafa
stundað kennslu, hafi verið
beðnir að fara úr landi. Munu
sudanskir kristnir kennarar
taka við störfum þeirra. Ráð
herrann segir ráðstöfun þessa
gerða í samræmi við laga-
ákvæði um, að súdanskir taki
sem víðast við störfum af er-
lenduim mönnum í landinu.
Móðgaði
sendi-
herrann
U. Thant?
1 KVÖLDVERÐARVEIZLU
er haldin var í Metropolitan
Museum í New York 8. febrú
ar sl, bar það til tíðinda, að
mikill hluti boðsgesta, allt
, sendim.snn hjá Sameinuðu
1 þjóðunum komu ekki til boðs
ins eins og ráð hafði verið
fyrir gert. Ástæðan er talin
sú, að franski sendiherrann
Herve Alphand hafði móðgað
U Thant, framkvæmdastjóra
Sþ — i fyrsta lagi með því, að
ætla honum ekki sæti vjð að-
alborðið — og í öðru lagi með
Herve Alphand
því að fallast á, að hann sæti
næst aðalborðinu, við hlið
frú Alphand, með því skil-
yrði, að ekki yrði tekin mynd
af þeim saman.
Veizla þessi var haldin *af 1
því tilefni, að verið var aði
koma málverkinu fræga
,Mona Lisa“ fyrir í safninu,
sn myndin hefur að undan-
förnu verið til sýnis í Wasihing
ton. Ekki hefur tekizt að
nakvæmar fregnir af þvx, sem
/ið bar og olli því, að U
Thant framkvæmdastjóri og
fleiri fulltrúar S.þ. ekki komu
iil boðsins.
Er þó haft eftir áreiðanleg-
um heimildum, að sendiherr-
inn hafi raðað niður gestun-
um við matarborðin og þegar
xtjórn safnsins hafi tilkynnt
iramkvæmdastjóiranum skil-
Framh. á bls. 2