Morgunblaðið - 13.02.1963, Page 20
20
M O R G V N B L A Ð l Ð
Miðvikudagur 13. febrúar 1963
PATHICIA WENTWORTH:
KEMUR I HEIMSÓKN
— Þá skal ég segja yður það.
Hr. Lessiter haíði verið að heim
an meira en tuttugu ár. Hann
hitti ungfrú Cray hér, heima
hja yður, og gekk svo með
henni heim til hennar. Samtal
þeirra snerist um ráðstöfun
móður hans á ýmsum munum
hennar. Kvöldið, sem morðið
var framið, áttuð þér símtal við
ungfrú Cray, sem stóð í tíu mín-
útur. Snerist það samtal líka um
ráðstöfun á munum frú Lessiter?
Katrín hló. — Hvers vegna
spyrjið þér ekki heldur ungfrú
Cray?
— Eg er að spyrja yður. Eg
held, að einhver deila hafi átt
sér stað milli ykkar Lessiters.
>að er að minnsta kosti al-
mannarómur í þorpinu. Það er
almennt vitað, að frú Lessiter
léði yður húsgögnin, sem hér
eru inni.
Katrín blés enn frá sér raykj-
arstrók. — Já, hún gaf . íér dá-
lítið af húsgögnum, en ég sé
ekki, að yður varði mikið um
það.
— Ungfrú Cray hefur falið
mér að gæta hagsmuna sinna.
En hér eru augsýnilega tvö sjón
armið um að ræða. Eg hef heyrt,
að húsgögnin hafi verið að láni
— en þér segið, að þau hafi ver-
ið að gjöf. Hr. Lessiter talaði
við ungfrú Cray um ráðstöfun
muna móður sinnar. Kvöldið,
sem morðið var framið, hringd-
uð þér hana upp í áríðandi er-
indum. Síðar sama kvöld lenti
hún í harðri stælu við Lessiter
um viðskiptamál, sem varðaði
vinkonu hennar. Getur yður
undrað, að ég leggi saman tvo
og tvo og komist að þeirri nið-
urstoðu, að Lessiter hafi talið
munina vera að láni? Hann
reyndi að fá staðfestingu á þessu
hjá ungfrú Cray. Og svo ein-
hverntíma, rétt áður en hann
var myrtur, fann hann þetta áð-
urnefnda minnisblað móður
sinnar, skrifað með hennar
hendi. Eg tel það liggja í augum
uppi, að minnisblaðið hafi stað-
fest sjónarmið hans. Og ég held
líka, að hann hafi hringt yður
upp og skýrt yður frá þessu,
I Og þér síðan hringt upp ungfrú
Cray. Seinna — í samtalinu við
Lessiter — kom ungfrú Cray
aftur að þessu efni og tókst að
hafa hann ofan af því að fara
þá leið, sem hann haði hugsað
sér að fara í málinu. Eg held, að
hún hafi haft alvarlegar áhyggj-
ur af þessari fyrirætlun hans.
Hún sagði mér, að deila þeirra
hafi verið viðskiptalegs eðlis en
jafnfiramt snúizt um vinkonu
hennar. Þér getið ekki orðið hissa
þó að ég álykti, að þessi vinkona
hafi verið þér. Og þá kemur
líka öll atvikajröðin heim og sam-
an.
Katrín Weltoy var ekki eins
bráðlynd og Rietta Cray. Hún
gat tekið sár eins vel og hún
gat veitt það. En undir öllu
þessu samtali hafði reiðin smám
saman verið að stíga, í henni,
enda þótt hún reyndi í varúðar-
skyni að stilla hana og einu sinni
eða tvisvar var það óttinn, sem
hélt henni í skefjum. En samt
fór hún stigandi. Og nú var eins
og hún væri orðin köld. Heinni
fannst rétt eins og hún hefði
verið skorin og plokkuð sundur,
taug fyrir taug — hugsanir henn-
ar, tilgangur og hugarhræring-
ar. Og það var ekki einungis
það, sem sagt var, sem orkaði
þannig á hana, heldur kannski
öllu fremur kænlegu augun i
gömlu konunni, sem sáu alveg
fyrir sér, hvað hún var að
hugsa. Hún hafði það meira að
segja einkennilega á tilfinning-
unni, að það gæti verið léttir að
gefa reiði sinni alveg lausan
tauminn — opna huga sinn af
eigin frjálsum vilja, breiða úr
hugsunum sínum, hinni til at-
hugunar, svo að hún gæti vegið
þær, metið og dæmt. En þetta
var ekki nema andartak — og
var horfið samstundis.
Og Katrínu Welby tókst að
Nú er rétti tíminn ad panta
20ára reynsla hérlendis
SIM111400 EGGERT KRISTJANSSON &CO HF
stilla sig þangað til löngunin var
liðin hjá. Njt rak reiðin ekki
lengur á eftir henni. Hún gaf
sér góðan tíma, áður en hún
svaraði.
— Þér hafið raðað þessu skipu
lega niður, finnst yður ekki? Og
ekki dytti mér í hug, að fara að
rugla þessari 'mynd fyrir yður!
Hún lét vindlingsstúfinn detta í
öskubakka, og bætti við: — Og
nú viljið þér kannski gera svo
vel að fara.
Ungfrú Silver var alvön að
svara ósvífni. Hún horfði þannig
á Katrínu, að henni hefði getað
fundizt hún vera komin í barna-
herbergi aftur — barnaherbergi,
sem var illa stjórnað, þar sem
börnunum höfðu ekki verið
kenndir mannasiðir. Hún stóð
upp rólega, setti upp fornlega
loðkragann og hneppti að sér
kápunni. Þegar hún var komin
út að dyrum, sagði hún rólega:
— Ef yður skyldi snúast hug-
ur, vitið þér, hvar mig er að
finna.
XXXIII. \
Þegar ungfrú Silver kom út
milli háu hliðstólpanna við Mell-
inghúsið, féll snögglega Ijósgeisli
beint framan í hana. Þetta kom
henni dálítið á óvart, en svo var
samstundis tautuð einhver af-
sölunarbeiðni með unglegri karl-
mannsrödd, og hún komst að
þeirri niðurstöðu, að maðurinn,
hefði aðeins verið að reyna að
þekkja einhvern kunningja sinn
— eða kunningjastúlku. Þetta
var líkast því sem um stefnu-
mót væri að ræða —- en sjálf not-
aði hún annars aldrei það orð.
Hún gekk svo yfir veginn og
fann stíginn í útjaðrinum á vell-
inum, en sá stígur lá heim til
frú Voycey.
Þegar hún heyrði fyrst fóta-
takið á eftir sér, veitti hún því
enga eftirtekt. Taugaveikluð
kona hefði aldrei lagt fyrir sig
spæjarstarfsemi, og ungfrú Sil-
ver kom ekki til hugar að vera
hrædd. Það var nógu bjart til
þess að geta greint stíginn frá
vellinum, sem hann lá um. Þess
vegna notaði hún ekki vasaljós-
ið sitt. Fótatakið fylgdi henni enn
og loksins nálgaðist það enn
meir og rödd sagði:
— Eg bið yður að fyrirgefa
Þetta var sama röddin, sem
hafði beðið hana afsökunar áð-
an, tunguleg rödd og vandræða-
leg.
Ungfrú Silver stóð kyrr og
lofaði komumanni að kcmast
móts við hana, og sagði síðan:
— Hvað var það?
Maðurinn hlaut að hafa slökkt
á luktinni, því að hún sá ekki
Ég mundi allt í einu eftir skemmtilegri sögu, sem ég gleymdi
að segja ykkur.
annað en svartan skugga við
hlið sér. Og röddin sagði:
— Eg bið yður afsökunar, en
eruð þér ekki hjá henni frú
Voycey, Og þér heitið ungfrú
Silver .... ?
— Hvað get ég gert fyrir
yður?
— Eg bið yður innilega fyrir-
gefningar, ef ég hef gert yður
hrædda. Eg heiti Alan Grover.
Pabbi og mamma hafa matvöru-
búðina — ég býst við, að þér
hafið hitt þau. Eg er í skrif-
stofunni hjá hr. Holderness í
Lenton.
Ungfrú Silver tók að gerast
forvitin. Þetta var ungi maður-
inn, sem frú Voycey hafði verið
að minnast á, greindi unglingur-
inn, sem hafði fengið námsstyrk-
ina. Hún minntist þess, að hann
hafði eitthvað verið að skjóta
sig í Katrínu Welby, sem var
meira en nógu gömul til að vera
mamma hans, eins og frú Voy-
cey hafði ekki látið hjá liða að
benda á. En af því að þetta var
nú svo algengt, að kornungir
menn yrðu skotnir í rosknum og
veraldarvönum konum, hafði
ungfrú Silver látið það um eyr-
un þjóta sem hverja aðra mark-
leysu. En nú fór hún að hugsa
um, hvers vegna hann hefði ver-
ið þarna á vakki fyrir utan hús
Katrínar. Var það bara gamla
sagan um mölfluguna og kerta-
ljósið, og ef svo væri, hvers
vegna var hann þá að elta hana
sjálfa nú? Hún sagði:
— Já — frú Volcey hefur
minnzt á yður. Hvað get ég gert
fyrir yður, hr. Grover?
Hann stóð nú alveg hjá henni,
'og röddin var enn vandræðaleg.
— Eg þurfti að tala við yð-
ur ....
aiíltvarpiö
Miðvikudagur 13. febrúar.
8.00 Morgunútvarp.
12.00 Hádegisútvarp.
13.00 „Við vinnuna": Tónleikar.
14.40 „Við sem heima sitjum": Jó-
hanna Norðfjörð les úr ævi-
sögu Gretu Garbo (18).
15.00 Síðdegisútvarp.
17.40 Framburðarkennsla í dönsku
og ensku.
18.00 Útvarpssaga barnanna; L
(Helgi Hjörvar).
18.20 Veðurfregnir.
19.30 Fréttir.
20.00 Varnaðarorð: Garðar Pálsson
skipherra talar um leit úr
lofti og af sjó og aðstoð við
björgun.
20.05 Tónleikar: Eugen Tajmer
syngur með kór og hljóm-
sveit Ole Mortensens .
20.20 Kvöldvaka:
a) Lestur íornrita: Ólafs saga
helga; XV. (Óskar Halldórs-
son cand. mag.).
b) íslenzk .tónlist: Lög eftir
Áskel Snorrason.
c) Hallgrímur Jónasson kenn
ari fer með frumort kvæði
og stökur.
d) Arnór Sigurjónsson rit-
höfundur flytur fyrri hluta
frásöguþáttar: Þorrakvöld
1912.
e) Sigríður Hjálmarsdóttir
kveður ferskeytlur eftir Step
han G. Stephansson.
21.45 íslenzkt mál (Jón Aðalsteinn
Jónsson cand. mag.).
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Passíusálmar (3).
22.20 Kvöldsagan: „Sýnir Odds
biskups" eftir Jón Trausia,
áyrri hluti (Sigurður Sigur-
mundsson bóndi í Hvítár-
holti).
22.50 Næturhljómleikar: Síðari
hluti tónleika Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands í Háskólabíói
7. þ.m. Stjórnandi Ragnar
Björnsson. Sinfónía nr. 8 í
F-dúr op. 93 eftir Beethoven.
Fimmtudagur 14. febrúar.
8.00 Morgunútvarp.
12.00 Hádegisútvarp.
13.00 „Á frívaktinni": sjómanna-
þáttur (Sigríður Hagalin).
14.40 „Við sem heima sitjum" (Dag-
rún Kristjánsdóttir).
15.00 Síðdegisútvarp.
17.40 Framburðarkennsla í frönsku
og þýzku.
18.00 Fyrir yngstu hlustendurna
(Margrét Gunnarsdóttir og
Valborg Böðvarsdóttir).
18.20 Veðurfregnir.
19.30 Fréttir.
20.00 íslenzkir söngvarar syngja
lög eftir Franz Schubert, I;
Þuríður Pálsdóttir syngur
átta lög við undirleik Jór-
KALLI KÚREKI — * — * —
Teiknari: Fred Haiman
THAT ISM’T THE H
SAMB HOR.SE VOU
ROOE OUTOHf
JtíAHIDDEV CAMP,
JAMESALLE/U, ALIAS TH£
PHDPESSOe", ESCAPED COW/CT,-
AWAíTS THEEETU2N OE THE
MEEP M/LLER HEHAS SEHT
“~TOMUB.DER THESHEZIFP
■ FJZOM TASCOSA •-
ioope' my Hoese &crr HitJ
AFTElt r DOWMED TH’
SHEEIFF.' THEM TH'
COWBOYAWPAW INJUW
KID TRAILEDMEOUTA
T0WW' I LAID A TRAP
FOR'EM AN'TOOKTH’
COWBOYS HORSRf
Á góðum felustað bíður Jakob Al-
▼itur, sem gengur undir nafninu
„Prófessorinn" og er raunverulega
fangi á flótta, þess, að leigumorðing-
inn sem hann hafði sent til að myrða
lögreglustjórann í Tascosa.
— Skjóttu ekki, prófessor. Það er
ég, Bikkju-Bjarni.
— Hvar hefurðu verið? Ég bjóst
við þér fyrir tveim dögum.
— Ég lenti í vandræðum. Lenti í
klónum á stórum rauðhærðum kú-
reka sem samsvaraði lýsingu þinni á
iögr eglust j ór anum
— Þetta er ekki sami hesturinn og
þú fórst á?
— Nei. Hesturinn minn var skotinn
eftir að ég var búinn að gera upp
sakirnar við lögreglustjórann. Kúrek-
inn og einhver indíánakrakki eltu mig
úr borginni, en ég lagði fyrir þá
gildru og tók hestinn hans.
unnar Viðar.
20.35 „Fyrr var oft í koti kátt“:
heimilisvökukynning á veg-
um Æskulýðsráðs Reykja-
vikur. — Ávarp, upplestur,
leikþættir, leikir, söngur,
helgistund og talað um fönd-
ur og veitingar. — Flytjend-
ur: Séra Bragi Friðriksson,
Klemens Jónsson, Bessi
Bjarnason, Árni Tryggvason,
Hrefna Tynes, Jón G. Þórar-
insson og barnakór, séra Ólaf
ur Skúlason, Jón Pálsson,
Elsa Guðjónsson o. fl.
21.40 „Þjóðhvöt", kantata eftir Jón
Leifs (Söngfélag verkalýðs-
samtakánna í Reykjavík og
Sinfóníuhljómsveit íslands
flytja. Stjórnandi: Dr. HaU-
grímur Helgason).
22.00 Fréttir og veðurfregnir .
22.10 Passíusálmar (4).
22.20 Kvöldsagan: „Sýnir Odds bisk
ups“ eftir Jón Trausta, sið-
ari hluti (Sigurður Sigur-
mundsson bóndi í Hvítár-
holti). <
22.50 Harmonikuþáttur (Reynir Jón
asson).