Morgunblaðið - 21.02.1963, Side 15

Morgunblaðið - 21.02.1963, Side 15
Fímmtudagur 21. febrúar 1963 MORGVNBLAÐIÐ ins með dýrmætan farm í nefi sínu. Apollo í efsta þrepi Satúrnusar verður hinu raunverulega tunglfari komið fyrir. Apollo mun rúma þrjá menn og sjá þeim fyrir öllum þörfum og vernda þá gegn öllum geim- hættum á hinni löngu leið til tunglsins, sem þó tekur ekki lengri tíma en 72 klukku- stundir. Ætlunin var fyrst lengi vel að skjóta Apollo og burðar- flauginni í tveim áföngum á braut umhverfis jörðina og sameina þau þar, til þess síð- an að halda til tunglsins. Frá þessu hefur þó verið horfið og „stoppistöðin“ ver- ið flutt á braut umhverfis mánann í staðinn fyrir jörð- ina. Tunglfarinu mun verða beint á braut umhverfis mán- ann og svífa yfir yfirborði hans í kringum 100 km hæð. Fjórir áfangar til mánans: þrjár eldflaugar og ein bjalla. myndum, og einnig koma fyr- ir ýmsum rannsóknartækjum á yfirborði tunglsins, sem skilin verða eftir til frekari rannsókna. Heimförin Þá er komið að heimför- inni. Vegna þess hve tunglið er miklu léttara en jörðin, fer miklu minni orka í upp- tak við tunglyfirborðið. — Tunglbjallan hefur því sjálf nægilega sterkar rakettur til þess að flytja hana til baka til Apollo, sem bíður á tungl- braut út í geimnum. Það verða glaðir endur- fundir um borð í Apollo, þeg- ar hinir þrír félagar mætast eftir velheppnaða tunglför. — Auðvitað er langt í frá, að það sé öruggt að ferðin heppnist. Það eru margar hættur, sem ógna hinum hug- djörfu tunglförum: deyðandi geimgeislar, ískuldi á yfir- borði mánans og loftsteinar úti í geimnum. Eða þá að út- búnaðurinn „bregðist" í ein- hverju atriði eða tunglfarið fari út af braut sinni. Ef tunglbjöllunni tekst ekki að ná aftur til Apollo, hefur þriðji tunglfarinn fyr- irskipanir um að snúa til baka til jarðarinnar — einn — með hinar dýrmætu upp- lýsingar, sem þeir félagar hafa safnað í ferðinni. Við skulum þó vona, að það verði þrír tunglfarar, sem koma til baka. Eftir að hafa kastað tunglbjöllunni og öllu ónauðsynlegu fyrir borð, mun nákvæm stefna tekin, sem flytur Apollo til baka inn í lofthvol jarðarinnar. Þegar lofthvolinu er náð, mun tunglförunum verða ó- hætt ‘að anda léttara. Merk- úri-tilraunir Bandaríkja- manna og> Vostok-tilraunir Rússa hafa sannað, að ferðir í gegn um lofthvolið séu í geimfræðilegum skilningi „auðveldar". EFTIR VIN HÓLM Tunglbjallan Þegar hér er komið munu tveir geimfaranna koma sér fyrir í einkennilegu farar- tæki, sem helzt virðist vera einhver annarleg bjölluteg- und frá öðrum hnetti. Þar sem þessi bjalla á að starfa í tómarúmi kastar hún fyrir borð öllum reglum um straum línur og þess háttar, og er því mjög óvanaleg útlits með fjórar fætur til þess að lenda á. Hún verður um 6 metrar á hæð og mun innihalda ýmis tæki nauðsynleg fyrir tungl- farana og svo eldsneyti til ferðarinnar til baka frá yfir- borði tunglsins til Apollo, sem bíður á tunglbraut með þriðja geimfarann innan- borðs. Eftir að hafa skorið úr því með hlutkesti, hvor fyrst fengi að stíga fótum sínum á mánann og verða þannig fyrsti jarðarbúinn til annars hnattar, munu hinir tveir tunglfarar aðeins dveljast 24 tíma þar við alls konar rann- sóknir og sýnishornasöfnun. Þeir munu taka mikið af Ljóðið „Eitt sinn bláum mána undir" stenst varla, þar sem tunglið okkar er oftast gulleitt. Séð hins vegar frá mánanum verður „hin bláa jörð“ algeng sjón. Það er blámi lofthvolfsins og hin blágrænu höf, sem gefa jörðinni þessa ásjónu, sem ef til vili á eftir að laða geimfara til að skrifa ný, vinsæl lög um hnöttinn okkar. TUNGLFARINU, sem Banda- ríkjamenn hafa nú í smiðum, verður beint á braut umhverf is mánann, áður en farið verð ur niður á yfirborð hins ein- manalega fylgihnattar okkar. — Við höfum mikla trú á því, að okkur takist að verða fyrstir til að heimsækja mán- ann og um leið uppfylla einn æðsta draum Kennedys Banda ríkjaforseta: að gera það á þessum tug aldarinnar, segja forráðamenn geimvísindanna í USA. — Rússar hafa verið á und- an okkur í flestum stórum geimafrekum hingað til. Með fyrsta gervihnöttinn út í geim inn: Sputnik I. Með fyrsta ómannaða tunglfarið: Lunik. Með fyrsta gervihnöttinn til Venusar: Venik, og með fyrsta manninn út í geiminn: Gag- arin. Fyrsta mannaða tungl- farið skal þó lieita Apollo, og það skulu vera Bandaríkja- menn, sem fyrstir stíga fót- um sínum á hið sendna og hrjóstuga yfirborð mánans. Bjartsýni Það gætir bjartsýni meðal Bandaríkjamanna, þegar tal- að er um væntanlega mána- för. Undirbúningur er fyrir löngu hafinn og vonazt er til að hægt verði að senda þrjá menn til tunglsins árið 1968. Leiðin er þegar hálfnuð, þeg- ar búið er að útvega það stóra risaeldflaug, að hún geti flutt yfir hundrað tonn af tækjum og útbúnaði á braut umhverf- is jörðina. Þessi risaeldflaug er þegar til á pappírnum, og smíði hafin. Hún ber hið vold- uga nafn Satúrnus. Undir stjórn hins fræga þýzka bandaríska geimfræð- ings, Werner von Braun, mun Satúrnus smám saman rísa frá grunni og teygja sig til himins, yfir 100 metra á hæð og 10 metra á breidd, í þrem aðskildum þrepum til þess að lokum að verða skotið með heljarkrafti í áttina til tungls- ' 1 1 ! 1 ' ' ' ' < i *- Landið okkar Framhald af bls. 13. -— Hann verður að gera það. Annars dregur þéttbýlið, með sína miklu atvinnumöguleika, fólkið til sín æ ríkara mæli. — Skattskýrslur sýna að tekjur bænda hafa aukizt. Samt hafa þeir ekki haft sambærilegar tekj- ur við aðrar stéttir. En það er þjóðfélagsleg nauðsyn, að land- búnaður gefi svo mikið af sér að hann verði eftirsótt atvinnugrein. Það væri háskalegt ef landbún- aðurinn drægist saman vegna þess að verðið væri of lágt á framleiðslunni. Rætt er um aS koma á stór- Iðju á íslandi, vegna þess að framleiðslan sé of einhæf og hættulegt að treysta einhliða á sjávarútveginn. Hvaða vit væri þá í því, að búa þannig að land- búnaðinum í afurðaverði að hann geti ekki eflzt og aukizt eins og bein þjóðamauðsyn er. Núgildandi löggjöf um verð- Jagsmál landbúnaðarins tryggir hag bænda á svo margan hátt, »ð ekki er rétt að kasta henni frá sér, þótt ýmislegt megi að henni finna. Mesti galli þessara laga er sá að mínum dómi, að ef meðal- búið stækkar, fá bændur ekki að njóta afrakstursins nema að litlu leyti. Það verður' ekki til lengdar hvatning til að auka framleiðsluna, að þegar bændur stækka búin almennt, leggja í fjárfestingu í því skyni að hafa meira erfiði — þá skuli það samt af þeim tekið með því að stækka meðalbúið. Þessu verður að breyta. Þá er hlutur sveitakonunnar ekki gerður mikill með núgild- andi verðlagsgrundvelli. Það er engu líkara en talið sé, að þeg- ar hún vinnur að bústörfum, þá leggi bóndinn sig og horfi á, þannig að vinnustundir hennar séu taldar með hans. Nú er verið, eftir kröfu kvennasamtakanna, að samræma kaup kvenna og karla í öllum stéttum. Ég held það væri verkefni fyrir samtök kvenfélagánna í sveitunum að leggja sitt lið til að leiðrétta þetta ranglæti. Landbúnaðurinn og laun bænda Það háir kaupgjaldsbaráttu bænda, heldur Siggeir áfram, að hún markast um of af því hvort meirihluti bændastéttarinnar, eða fulltrúar hennar í þessum málum, er í andstöðu við eða styður þá ríkisstjórn, sem er við völd hverju sinni. Þess vegna er minna mark tekið á þeim en ella. Það voru t. d. færri samþykktir gerðar á bændafúndum þegar dráttarvélin hækkaði um 20 þús. með „bjargráðunum“ heldur en þegar sömu tæki hækkuðu um svipaða upphæð með viðreisnar- ráðstöfunum ríkisstjórnarinnar. —■ Sama má raunar segja um ýmsar samþykktir, sem gerðar hafa verið í launamálum land- búnaðarins, svo og um lækkun tolla á landbúnaðarvélum. Það er fullkomið sanngirnismál að tollar á landbúnaðarvélum séu hliðstæðir tollum á bátavélum, en alveg án tillits til þess hvort fjármálaráðherrann heitir Gunn- ar eða Eysteinn. Háþróaðar iðnaðarþjóðir eins og Bretar, telja landbúnaðinn eina höfuðstoð þjóðfélagsins og ef við, með okkar fábreyttu fram leiðslu, færum að vanmeta land- búnaðinn, þá væri illa komið fyr- ir íslendingum. Sauðfé og mjólkurframleiðsla Holt er talin ein bezta fjár- jörð hér um slóðir. Þar er víð- lent og kjarngott beitiland með fjölbreyttum gróðri, enda eru Holtsdilkarnir jafnan með þeim vænstu, sem koma í sláturhúsið á Klaustri á haustin. Samt er þar kostað minnu til fóðrunar fjár- ins heldur en annars staðar. Sýn ir þetta vel landgæðin. Ef ekki væri hægt að láta sauðfjárbú- skap bera sig á svona jörð — ja, þá hvar? Þess vegna hafa þeir Holtsbændur ekki enn þá tekið upp mjólkursölu enda þótt flest- ir sveitungar þeirra og nágrann- ar séu að fjölga kúnum, séu að stækka fjósin og búnir að reisa stæðilega mjólkurpalla við alla afleggjara. Þegar ég inni Siggeir eftir áliti hans á mjólkurfram- leiðslu, segir hann: — Nei, ég held það hljóti að vera réttara að leggja áherzlu á sauðféð þar sem aðstáðan er eins og hjá okkur. Hér má framleiða marga dilka á kýrfóðrinu. Land- kostirnir nýtast betur með sauð- fénu. Héðan er líka nokkuð langt að flytja mjólkina á þjóðveginn. Það er nokkur kostnaður við að koma mjólkinni frá sér á hverj- um degi. Og það verður a.m.k. ekki annað gert á meðan. Viðreisnin hefur tekizt vel Verðlagsmál — sauðfjárbúskap ur — samgöngubætur — allt eru þetta landsins gagn og nauðsynj- ar, sem þarflegt er um að ræða. En nú vend.um við okkar kvæði í kross, fitjum upp á öðru um- ræðuefni — pólitíkinni. Siggeir í Holti hefur um langt skeið verið einn aðalforustumað ur Sjálfstæðisflokksins í Vestur- Skaftafellssýslu. Ungur fór hann að taka þátt í stjórnmála- baráttunni, var um sinn í stjórn Sambands ungra Sjálfstæðis- manna og þótti þá þegar mikið að hohum kveða. Nú er Siggeir í stjórn Kjördæmisráðs Suðurlandskjördæmis og í síð- ustu kosningum átti hann sæti á lista flokksins á Suðurlandi. Þá hefur Siggeir setið á Bún- aðarþingi fyrir Býnaðarsamband Suðurlands og sæti á hann í stjórn Verzlunarfélags Vestur- Skaftfellinga. Má af öllu þessu ráða, að flokksmenn hafa á hon- um mikið traust. Eftir að við höfðum rætt póli- tíkina á víð og dreif, sláum við botninn í þetta rabb með því að ég spyr: — Og svo að síðustu, Siggeir, viltu í fáum orðum gera grein fyrir viðhorfi þínu til stjórnar- stefnunnar og þeirra breytinga, sem orðið hafa síðan viðreisnin hófst eftir að vinstri pólitíkin beið skipbrot sitt? —• Ég tel, að ríkisstjórninni hafi tekizt vel í höfuðatriðum. Allir spádómar um eymd og at- vinnuleysi voru fljótir að hjaðna. Atvinna er mikil og tekjur og lífskjör því í góðu lagi. Fram- kvæmdir miklar samhliða því að hagur þjóðarinnar út á við hef- ur batnað og sparifé þjóðarinnar aukizt stórlega, en það er undir- staða allra útlána. Að lokum vil ég segja það, að íslenzk stjórnarandstaða þarf að gæta meira hófs en verið hefur um langt skeið. Enda er þjóðin að hætta að taka mark á henni. G. Br,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.