Morgunblaðið - 23.03.1963, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 23.03.1963, Qupperneq 2
M 2 M O R C V N Tt T. 4 f) f O L'augaradagur 23. marz 1963 Málarameistaraféiag Reykjavíkur 35 ára HINN 26. febrúar 1928 er Mál- arameistarafélag Reykjavíkur stofnað, og var Einar Gíslason aðalhvatamaður að stofnun þess. Stefnendur félagsins voru 16 að tölu, en fyrstu stjórn félagsins skipuðu: Einar Gíslason formaður, Helgi Guðmundsson gjaldkeri og Ágúst Lárusson ritari. Þeir Helgi og Ágúst eru nú látnir fyrir nokkr- um árum. Starfsemi félagsins fyrstu ár- in var mjög margþætt. Eitt fyrsta og helzta málið var að samræma kaupgjald og verðlag innan stétt- arinnar, e»> fram til þessa hafði ríkt hinn mesti glundroði í þess- um efnum. Þá kom og mjög til kasta félagsins að kveða á um réttindi til handa þeim mönn- tim, sem starfað höfðu að iðn- ittni án réttinda og sóttu nú fast að fá réttindi, vegna hinna nýju og endurbættu iðnlöggjafar. Ýms um þessara manna var gefinn kostur á styttum námstíma og gengizt fyrir námskeiði fyrir þá, en síðan luku þeir tilskyldu prófi í iðninni. En jafnhliða gekkst félagið í það að hafa eftirlit með því að öfaglærðir menn innu ekki við i&nina, en eftirlit hefur verið með því ætíð síðan. Félagið beitti sér fyrir námskeiðum til þess að efla kunnáttu námssveina og má segja að það hefur verið eitt af áhugamálum félagsins að efla þekkingu stéttarinnar. Með til- komu hinnar veglegu byggingar Iðnskólans rættist sá draumur, sem félagið stefndi að, er málara skóli tók til starfa í hinni nýju skólabyggingu, og telur félagið að með tilkomu málaraskólans hafi opnazt möguleikar til mennt unar fyrir stéttina sem ættu að endast henni um ókomna fram- tíð. Félagið hefur frá fyrstu tíð tekið þátt í og stuðlað að stofn- un ýmissa samtaka iðnfélaga. Má þar tilnefna Landssamband iðn- aðarmanna, Meistarasamband byggingamanna, þá er og félagið aðili að Vinnuveitendasambandi tslands og Norræna málarameist- arasambandinu. Félagið hefur um tíu ára skeið gefið út tímaritið „Málarann". Hefur ritið flutt margvíslegan fróðleik um fagleg efni, auk þess sem ritið er þegar orðið góð heim ild um félagið og stéttina. Að sjálfsögðu er margt ótalið af margþættu starfi félagsins þessi 35 ár og margt á félagið að sjálf- sögðu ógert, en mun halda á- fram viðleitni sinni til þess að auka veg og gengi stéttarinnar, bæði í verklegum og félagsleg- um efnum. Félagsstjórn skipa nú þ essir menn: Jón E. Ágústsson, formaður, Sæm. Sigurðsson, varaform., Kjartan Gíslason, ritari Ólafur Jónsson, gjaldkeri og Valdimar Bæringsson, aðstoðargjaldkeri. Félagar eru nú 100 að tölu. Félagið minnist afmælisins með hófi í Sjálfstæðishúsinu fimmtudaginn 14. marz. Flenza í rénun en snjó- mugga á Siglufirði SIGLUFIRÐI 20. marz. HÉR á Siglufirði hefur inflúenz- an herjað að undanförnu og hafa margir bæjarbúar lagzt og kom- ið til vinnustöðvunar á stundum. Bólusett var en hefur líklega Næg atvinna á Blönduósi BLÖNDUÓSI, 20. marz. — Tíðar- far hér hefur verið mjög gott, þó aðeins hafi gránað í veðri í dag. Má segja, að veturinn hafi verið framúrskarandi góður. Blönduós- þúar hafa einnig sloppið við in- flúenzuna til þessa, og er búið að bólusetja marga gegn henni. Hér er næg atvinna við bygg- ingar og fleira. Stöðugt er unnið við félagsheimilið, sem verður með stærstu og fullkomnustu fé- lagsheimiluin á landinu. Var lok- ið við annan salinn, sem ætlaður er fyrir dans og samkvæmi, á síð- asta ári, en itikhús- og kvik- myndasalurinn er enn í byggingu. — Fréttaritari. verið of seint, því veikin hefur gengið hér mjög ört yfir, tekið heilu heimilin og mundi láta nærri að 2/3 bæjarbúa hafa lagzt. Bæði barnaskólinn og gagn- fræðaskólinn voru lokaðir í heila viku vegna veikinnar og til vinnustöðvunar hefur komið á ýmsum vinnustöðum. Til dæmis lágu í einu 17 starfsmenn tunnu- verksmiðjunnar, þannig að hætta varð starfrækslu hennar. Flensan er nú heldur á undan haldi þótt enn liggi allmargir bæjarbúar. Hér er nú eilítil snjómugga og þoka, en hægviðri hefur verið að undanförnu og mikið um þokur. Snjó gerði í síðustu viku en tók strax upp aftur og er nú hvergi snjór fyrr en langt uppi í Skarði eða Hvanneyrar- skál og hafa Siglfirðingar orðið að fara þangað til að komast á skíðL Afli hefur verið rýr enda slæmar gæftir, norðan bræla og þoka. — Guðjón. Ánægjuiegt félagsiíf Bæ á Höfðaströnd. SKAGFIRÐINGAR eru þekktir að því að vera gleðimenn og fé- lagslyndir þegar því er að skipta. Jafnvel þó víða sé þunnskipað um ungt fólk vegna þess að fjöldi fer til atvinnuleitar suður og t.d. í Hofsósi standa nokkur hús auð yfir veturinn, þá er þó töluvert um glaðværð og skemmtanir í sveitinni og þorpinu. Fólk kemur saman, spilar félagsvist og bridge, drekkur oft saman kaffi, sem það kemur með sér að heiman, dansar og svo er það söngurinn. Eg held að ég taki ekki of djúpt í árinni þó sagt sé að að minnsta kosti annar hver Skagfirðingur sé söngmaður. Á öllum samkomum þar sem fólk kemur saman til gleðskapar, er sungið af líf og sál og oftast nær með öllum röddum. Og þá mun það fátitt að í einu héraði og það bara í framhéraðinu, séu starfandi tveir karlakórar með allt að 80 söngmönnum, allt sam an bændur og búaliðar. Bænda- kórinn Heimir, sem starfar í vestursýslunni, er nú 35 ára og hefur minnzt þess á veglegan hátt. Karlakórinn Feykir er stofn aður að Frostastöðum 15. febrúar 1961 og er því réttra tveggja ára. Stefnendur voru um 20 en félag- ar eru nú nær 40. Söngstjóri er Árni Jónsson frá Víðimel, gam- all Blöndhlíðingur. Hann hefir errfffremur annazt raddæfingar. Hans hlutur er því langstærstur KennaraskóSinn brantskrái stúdenfia RÍKISSTJÓRNIN hefur lagt fram frumvarp á Alþingi um Kennaraskóla íslands, þar sem m. a. er gert ráð fyrir þeim möguleika, að skólinn búi nem- cndur þá, sem þess óska, undir stúdentspróf, og taki sú deild til starfa eigi síðar en fjórum árum eftir gildistöku laganna. Aðrar helztu breytingarnar, sem í frum varpinu felast, eru þær, að kom- ið sé á fót framhaldsdeild við skólann, að stofnuð sé undirbún- ingsdeild fyrir sérkennara, að æfingakennsla sé aukin og að nokkurt kjörfrelsi verði um náms efni. AÐSÓKN MUNDI STÓRAUKAST í athugasemdum við frúm- varpið er vikið að nokkrum rök- um, er hníga að því, að kennara- skólinn brautskráí stúdenta. Má þar m. a. nefna, að líklegt er tal- ið, að aðsókn góðra nemenda að skólanum mundi stóraukast. Þá er og útskrifuðum kennurum oft nauðsynlegt að geta kennt í ungl ingaskólum, og væri því æskilegt, að þeir hefðu notið framhalds- menntunar í kennslugreinum sín um. Fyrir þá, sem ætla sér að fara í háskóla til þess að búa sig undir kenarastarf, er heppilegra að hafa fengið menntun sína í skóla, sem miðar kennslu sína við undirbúning undir kennara- starf. Samanburður á námsefni máladeildar og námsefni til al- menns kennaraprófs og saman- lögðum vikustundum í náms- Hnúajárn ~ lækningatæki? MIKIL trú er nú á málmum til lækninga allra meina. Slík trú kom manni nokkrum í koll á laugardagsnóttina. Hann var eitthvað við skál og fór heim til fyrrverandi konu sinnar. Hún sa málmútbúnað á hendi hans, varð hrædd og sló því umsvifalaust föstu að þetta væri hnúajárn og ætlaði hann að nota það til að lumbra á henni. Kærði hún því til lögreglunnar. Maðurinn hafði allt aðra skýr- ingu á þessum útbúnaði. Hanr stundar vinnu, sem reynir nokk- uð á hendurnar, en hann er eitt- hvað slæmur í þeim. Trúði hanu því nú að ef málmur væri lagð- ur við þær, þá mundi þetta lag- ast og smíðaði sér emhvers konar málmhylki. Taldi hann þetta bæta sig mjög. En það átti sem sagt eftir að koma honum í koll, eins og að ofan greinir. greinum sýnir, að á einum vetri til viðbótar við kennaranámið mætti búa útskrifaða kennara undir stúdentspróf á fullnægj- andi hátt, ef tekið væri tillit til sérgreina Kennaraskólans og öðrum mætti sleppa, sem þeim svaraði. Undirbúningur undir stúdentspróf mundi því á engan hátt trufla námið til almenna kennaraprófsins. Þá er í frumvarpinu gert ráð fyrir framhaldsnámi fyrir þá, sem lokið hafa almennu kenn- araprófi. Slíkt íramhaldsnám hafa kennarar hingað til orðið að sækja til útlanda með ærnum tilkostnaði. Er til þess ætlazt, að nemendur í þessari deild geti sérhæft sig í einstökum grein- um. Ennfremur á nám þetta að veita þeim rétt til inngöngu í BA-deild Háskólans. í þessu starfi, enda fer þar sam* an áhugi og hæfileikar góðir. Kórfélagar eru dreifðir um 65 km svæði, allt frá Sleitustöðum og fram á Kjálka í Skagafirði. Fjórir bræður eru frá einum bæ, allir í fyrsta tenór. Æfingar eru að kvöldinu, því að flestir þurfa að sinna fénaði, og ganga æfipg- ar oftast fram á nótt. Nýlega veitti ég mér þá ánægju að fara fram að Ökrum og vera á sam- æfingu hjá Feyki að Héðins- mynni. Þarna eru samankomnir söngmenn allt frá unglingum til vel fullorðinna manna.. Raddir hafa þeir prýðilegar og söng- stjórn ágæt. Arni hefir á þessum stutta tíma leyst af hendi mikið starf og gott, og heyrði ég þarna ágætlega vel sungin lög, sem tví- málalaust má jafna við það sem bezt er sungið annars staðar. Að slepptum karlakórunum eru svo kirkjukórar, sem margir starfa af miklum áhuga og glæsibrag. Eitt skyggir á í þessu syngjandi héraði. Það vantar tilfinnanlega aðstöðu til söng- og hljóðfæra- náms, þ. e. tónlistarskóla, sem gæti tekið að sér uppfræðslu hinnar skagfirzku syngjandi æsku. Árni á Víðimel og ef til vill fleiri hafa lengi haft huga á að hrinda þessu í framkvæmd og vonandi á hann eftir að sjá þenn an draum sinn rætast. Ein mæt húsmóðir segir mér að allt þetta mikla félagslíf leiði ótrúlega mikið gott af sér. Fólkið færist nær hvert öðru, verður frjálslegra, hjálpi hvert öðru, þegar því er að skipta, og í raun og veru er fámennið að nokkru brotið á bak aftur með þessu. Þessi frú sagði mér að konurnar í Akrahreppi hefðu saumaklúbb. Tækju þær bændur sína stund- um með sér og meðan þær saum- uðu tækju þeir spilahring og röbbuðu um landsins gagn og nauðsynjar. Svona msn þetta raunar vera víðar í héraðinu. Laugardaginn 10. febrúar var þorrablót haldið á Hofsósi að frumkvæði verkamannafélagsina þar. Var húsfyllir enda sótt víða að, ánægðra gesta. — Björn. Kort af nýja vellinum. IMýr golfvöllur tilbúinn ■ vor MORGUNBLAÐIÐ átti í gær tal við Þorvald Ásgeirsson, formann Golfklúbbs Reykjavíkur, og spurði hvernig framkvæmdum við hinn nýja golfvöll klúbbsins við Grafarvog liði. Þorvaldur skýrði svo frá, að 9 holur yrðu leikhæfar í vor og hinar 9 tilbúnar síðari hluta sum- ars. Áformað er að hefja bygg- ingu nýs skála fyrir félagsstarf- semina, og mun stefnt að því, að hann verði tilbúinn haustið 1964, en þá á Golfklúbburinn 30 ára afmæli. Ennfremur kvað Þorvaldur að látið yrði til skarar skríða til að auka félagatölu klúbbsins, en það hefur hamlað mjög útbreiðsla hans, hve þröngt var á gamla vellinum. í sumar verður útlendur golf- kennari ráðinn til Golfsambands ins og mun hann skiptast á að vera hjá klúlbbum og kenna. Innnanhússkennsla hefur verið starfrækt á vegum Golfklúbbs- ins í vetur og sagði Þorvaldur, að hún væri tilvalin fyrir þá, sem hyggðumst byrja að leika golf i vor. »•>

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.