Morgunblaðið - 02.04.1963, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.04.1963, Blaðsíða 1
24 síður Framboðslisti Sjálfstæðisflokks- ins í Austurlandskjördæmi KJÖRDÆMISRÁÐ Sjálfstæðisflokksins í Austurlandskjördæmi hefir gengið frá fram- boðslista flokksins við alþingiskosningarnar í sumar. Framboðslistinn er þannig skipaður: 1. Jónas Pétursson, alþingismaður. 2. Sverrir Hermannson, viðskipatíræðingur, Rvik. 3. Pétur Blöndal, vélsmíða Hoffelli. 4. Benedikt Stefánsson, bóndi, Hvalnesi, Lóni. 5. Axel Tuliníus, sýslumaður, Eskifirði. 9. Sigurjón Jónsson, verkstjóri, Vopnafirði. 10. Ingólfur Hallgrimsson framkvstj., Eskifirði. Her Guatemala tekur in í sínar hendur Guatemala, Washington, 1. apríl (NTB) # Á sunnudaginn tók ber- inn í Guatemala völdin í sín- ar hendur. Forseti landsins, Miguel Ydigoras Fuentis, var sendur í útlegð, stjórnarskrá- in numin úr gildi, Þingið leyst upp, starfsemi stjórn- málaflokka bönnuð og for- setakosningum, sem halda átti í nóv. n.k. aflýst. Æðsti maður Guatemala er nú En- rique Peralta-Azurdia ofursti, ©g í stjórn hans eiga sæti þrír herforingjar og sex óbreyttir borgarar. • Talið er að Guatemalaher haiti ákveðið að taka völdin í landinu í sínar hendur þegar spurðist, að hinn vinstrisinnaði Juan Jose Arevalo, fyrrv. forseti landsins, væri kominn þangað frá Mexíkó, en þar hefur hann verið í útlegð. Ætlaði Arevalo að bjóða sig fram við forsetakosn- ingarnar í nóv. n.k. og var talið, að hann myndi jafnvel ná meiri- hluta. Stjórnibyltingin í Guatemala fór friðsamlega fram, en til óeirða kom í böfuðborginni skömmu áður en hún var gerð. Peralta Azurdia segir, að þær hafi orðið vegna misskilnings. Tveir menn létu líifið í óeirðunum. í dag var allt með kyrrum kjörum í Guate- mala, og lítur út fyrir að hin nýja stjórn hafi alla landsihluta á valdi sínu. Áður en stjórnarbyltingin var gerð, var Peralta-Azurdia, varn- armálaráðherra í stjóm Ydigör- as Fuentis. Eftir valdatöku hersins hélt Peralta-Azurdia fund með frétta mönnum. Sagði hann, að hin nýja stjórn myndi berjast 'gegn kommúnisma, í hvaða mynd, sem hann bjrtist. Sagði hann, að stjórn sín myndi hafa allt lög- gjafarvald og framkvæmdavald í sínum höndum, þar til tími væri kominn til þess að efna til nýrra kosninga í landinu. Peralta-Azurdia, sagði að Ydi- goras Fuentis hefði veitt litla mótspyrnu þegar hann var tek- inn höndum og honum gert að hverfa úr landi. Flugvél frá flugher Guatemala flutti hinn fyrrverandi forseta til Nicaragua og við komuna þangað lét hann orð falla, sem Framhald á bls. 23 6. Helgi Gíslason, verkstjóri 7. Páll Guðmundsson, bóndi Helgafelli. Gilsárstekk. ÖeirBir í Damaskus Ltgöngubann í Sýrlandi Beiruth, Damaskus 1. apríl (NTB). FERÐAMENN, sem komu til Beiruth í Libanon í dag frá Damaskus í Sýrlandi skýrðu frá því að skipzt i hefði verið á skotum í mörg um borgarhlutum í Dama- skus um hádegisbilið í dag. Sögðu ferðamennirnir að að mikil ólga hefði verið í borginni. Þessar fregnir hafa ekki verið staðfestar opinberlega, en í dag fyrir skipaði byltingarstjórnin, sem fer með völdin í land- inu útgöngubann 18 klst. á sólarhring. Einnig bannaði hún hópgöngur'og útifundi og hótaði þungri refsingu þeim, sem bæru vopn án leyfis yfarvaldanna. í>að var innanríkisráðherra Amine el Hafez, hershöfðingi, sem fyrirskipaði útgöngubann ið fyrir hönd stjórnarinnar, en , skömmu áður hafði hann verið útnefndur aðstoðaryfir- maður alls herafla Sýrlands. í gær kom til óeirða í Dama skus, er borgarbúar fóru hóp göngu til þess að fagna komu alsírskrar sendinefndar til borgarinnar. Útvarpið í Dama skus sagði að andstæðingar byltingarstjórnarinnar hefðu notað sér hópgöngur þessar tíl þess að koma af stað ó- eirðum. Eins og kunnugt er hafa að undanförnu farið fram í Karió viðræður um samstarf íraks, Sýrlands og Arabíska sambandslýðveldisins, en á sunnudaginn hljóp snurða á þráðinn. Hafði þá birzt í blaði einu í Kairó, viðtal við vin og samstarfsmann Nassers, for- seta, Mohammed Heikal, og þar gagnrýndi hann Baath- flokikinn í Sýrlandi, en sá flokkur tók þátt í byltingunni 8. marz s.l. og hefur átt full- trúa í viðræðunefndinni í Kairo. Franska stjórnin ræðir við verkfallsmenn í dag París 1. apríl (NTB). GERT er ráð fyrir að full- trúar franskra kolanámu- manna setjist að samninga viðræðum við frönsku stjórnina á morgun, þriðju dag. Þessir aðilar hafa ekki ræðzt við síðan fyrir átta dögum, en þá höfnuðu verkfallsmenn tilboði stjórnarinnar um 8% kaup hækkun á sex mánuðum. Kolanámumenn krefjast 11% kauphækkunar þegar í stað. Verkfall franskra kolanámu manna hefur nú staðið rúm- an mánuð. í morgun áetluðu Framh. á bls. 23

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.