Morgunblaðið - 02.04.1963, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 2. apríl 1963
M n v r.r \ TtL 4 Ð l Ð
5
í vel búinni setustofu
heimavistar M.A. undi glað-
vært samkvæmi, alls um eitt
hundrað manns, við góða
skemmtan, sl. miðvikudags-
kvöld. Röskir þrír tugir náms
meyja úr húsmæðraskólanum
að Laugalandi höfðu þegið
hefðbundið heimboð 6. bekkj.
ar MA, sem nú.,skemmti gest-
um sínum á ýmsan hátt.
Meðal skemmtiefnis var
atriði úr 2. þætti Gullna
hiiðsins, þar sem fram komu
Jón bóndi, kerlingin og Ó-
vinurinn. Sigurður Guðmunds
son frá Sauðárkróki fór tryllt
um hamförum í hlutverki Ó-
vinarins, enda bæði með hóf
og hala, horn og klær. Hann
hafði tekið sér stöðu við dyr
setustofunnar, brýndi nú
raustina og hóf upp hinar
hroðalegustu .særingar, svo
að hrollur fór um samkvæm-
isgesti:
„Ég öskra í þrumunni hærra
og hærra,
og. hamrana myl ég duftinu
smærra.
Og þá skal úr læðingi leysast
orka,
sem ljóssins fursta þorir að
storka.
Hver hersveit skal rofin,
heillum þrotin,
himinninn klofinn og sundur-
brotinn
byltast niður í botnlaust
díki--------
MeSfylgjandi mynd sýnir Sigurð Guðmundsson í hlutverki
óvinarins að kvöldi 27. fm. Myndina tók Þráinn Þorvaldsson.
Úvenju kröftugur Övinur
Þegar hér var komið, vita
menn ekki fyrri til en jörðin
tekur að ganga skykkjum
og húsið gnötrar og hriktir
allt með feiknalegum gný og
glumrugangi. Var þá áhorf-
endum nóg boðið; þeir þustu
til dyra og höfðu nær troðið
Óvininn sjálfan undir, svo
að hann átti fótum fjör að
launa.
Sjálfur vissi leikarinn ekki
hvaðan á sig stóð veðrið, er
hann sá allan áhorfendaskar-
ann koma þjótandi í fang,
sér. Svo gjörsamlega var
hann á valdi hlutverksins, að
h'ann varð ekki var landskjálft
ans, sem eihmitt hafði riðið
yfir í þessari andrá. 1
Eftir á luku gestir og heima
menn upp einum munni um
það, að hér hefði verið sýnd-
ur sá kröftugasti óvinur, sem
þeir hefðu heyrt eða séð, enda
er Sigurði spáð miklum frama
á leiklistarbrautinni. Sv. P.
Nýlega hafa opinberað trúlof-
un sína Hjördís Smith, Hring-
braut 74, og Ólafur Sigurðsson,
Jfjarðarhaga 13.
Nýlega hafa opinberað trúlof-
un sína Stefanía Baldvinsdóttir,
Þjórsárgötu 7, Reykjavík, og Har
eldur Þorvaldsson, sjómaður,
Grundargötu 22, Siglufirði.
Nýlega hafa opinberað trúlof-
un sína Ester Árelíusdóttir, verzl
unarmær, og Sveinn Jóhannsson,
r af virkj ameistarL
Sl. laugardag opinberuðu trú-
lofun sína Jónína Kristjánsdóttir
skrifstofumær, og Jón Ásgeir
Jónsson, frá ísafirðL
Sl. laugardag opinberuðu trú-
lofun sína ungfrú Erla Sigur-
björnsdóttir og Eysteinn Jóns-
son, nemandi Handíða- og Mynd-
listarskólans.
Nýlega opinberuðu trúlofun
sína Ingveldur Ingvadóttir, Hjarð
arhaga 64, Reykjavík, og Sigfús
Steingrímsson, Patreksfirði.
23. marz voru gefin saman í
hjónaband Guðrún E. Kristjáns-
dóttir og Guðbrandur Elífasson.
Heimili þeirra er í Skála við
Vatnsgeymi.
Altarisganga
Hafnarfjarðarkirkja: Altarisganga í
kvöld kl. 8.30. Séra Garðax Þorsteins-
son.
Reykvlngingar, sem ólust upp
í sveit sáu fjörmikið ungviði
á götum- borgarinnar, sem lék
sér þar líkt og þegar kálfum
«r sleppt út á vorin að undan-
teknu því að kálfar eru sjald-
an tengdir saman með bandi,
þegar þeir bregða á leik.‘Hér
var ungviði úr Menntaskól-
anum í Reykjavík, nánar til-
tekið fjórðu og fimmtu bekk-
ingar, sem hlupu fyrsta apríl
til þess að fagna vorinu. Ljós-
myndina tók Haukur Sig-
tryggsson er hann rakst á
þennan fríða flokk á leið
þeirra úr Kvennaskólan-
um í morgun.
Unglingur
eða roskinn maður óskast
á gott sveitaheimili, sem
fyrst. Tilboð merkt: „Sveit
— 6759“ leggist inn á afgr.
Mbl. fyrir 5. apríl.
Hjónarúm
ásamt náttborðum til sölu,
Laugateig 37. Sími 33698.
Feningaskápiir
til sölu. Upplýsingar í
síma 33698.
Hafnarf jörður
Stúlka óskast til heimilis-
starfa einu sinni í viku.
Upplýsingar í síma 50770.
Reglusamur
verzlunarskólagenginn
maður óskaf eftir atvinnu
eftir kl. 5 á daginn. Tilboð
óskast sept afgr. Mbl.,
merkt „Atvinna 24 — 6764“
íbúð óskast
2—3 herbergi. IJúshjálp og
barnagæzla l:smur til
greina. Fyrirframgreiðsla.
Reglusemi. Uppl. í síma
23605.
Hafnfirðingar
Veizlubrauð, kaffi, snittur,
heitur matur. Gjörið svo
vel að panta fermingar-
brauðið tímanlega. Brauð-
stofan, Reykjavíkurvegi 16.
Sími 50810.
2ja eða 3ja herb. íbúð
óskast strax eða í vor. —
Þrennt fullorðið. Uppl. i
símum 17254 og 35195.
GRAFOPRESS
Höfum til sölu
- GRAFOPRESS-prentvél.
Hagstætl verð
C.OIISIIIHSSOH t JOIHSIH F
Grjótagötu 7. — Sími 24250.
Einbýlishús
Til sölu er mjög vandað einbýlishús á góðum stað á
hitaveitusvæði í Austurbænum. — Á 1. hæð eru 4—5
herb., eldhús og bað, og í risi' eru 2 herb. — í
kjallara eru 4 herb. og W.C., þvottahús og geymslur.
Lóðin ræktuð og girt. Allar nánari uppl. gefur:
EIGNASALAN
■REY K JAVIK
'fiórður (§. 3-£alldóröi>on
löOQlltur [aótetgnaóall
INGÓFSSTRÆTI 9.
SÍMAR 19540 — 19191.
eftir kl. 7, sími 30446 og 36191,
8—12 lesta vélbátar nýir og nýlegir.
22 lesta vélbátur með nýrri vél.
28 Iesta vélbátur með nýrri vél.
36—40 lesta vélbátar með nýjum og nýlegum véluxn.
Dragnótaveiðarfæri geta fylgt ef óskað er.
47 lesta vélbátur, smíðaár 1956 með miklum línu-
veiðarfærum.
60—80 lesta vélbátar, búnir öllum nýjustu tækjum
til síldveiða.
100 lesta vélbátar nokkrir rúmlega 100 lesta vél-
bátar búnir öllum tækjum til síldveiða.
Síldarnætur geta fylgt.
Nýsmíði
250—300 lesta vélskip frá fyrsta flokks hol-
lenzkum skipasmíðastöðvum til afgreiðslu í
september mánuði n.k. — Sikipin verða búinn
900 ha Dutz dieselvélum.
Höfum góða kaupendur að bátum af ýmsum stærðum.
Iiöfuni góða kaupendur að RÚML. 100 LESTA stálbát.
A"*turstræti 10. 5. hæð.
Símar 24850 og 13428.