Morgunblaðið - 02.04.1963, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 02.04.1963, Qupperneq 2
2 MORCVISBL 4 Ð1Ð Þriðjudagur 2. aprfl 1963 Sæluvikan hafin Sauðárkróki, 1. april. SÆLUVIKA Skagfirðinga hófst hér sl. sunnudag með guðsþjón- ustu í kirkjunni kl. 14. Sóknar- presturinn, séra Þórir Stephen- sen, predikaði. Kl. 15 hófst starfsfræðsludagur unglinga í barnaskólahúsinu á vegum Rotaryklúbbs Sauðár- króks undir stjórn Ólafs Gunn- arssonar sálfræðings. Alls komu 224 gestir til starfs- fræðslunnar, þar af 35 frá Blönduósi, 30 frá Skagaströnd og 6 úr Reykjaskóla í Hrútafirði. Veittar voru upplýsingar um 60 starfsgreinar. Flestir leiðbeinend ur voru heimamenn. Tveir leið- beinendur voru frá Flugmála- stjórninni og flugfreyja frá Flug félagi íslands. Frá Akureyri komu arkitekt, verkfræðingur og prentari. Sýndar voru fræðslumyndir frá Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna og Samlagi skreiðarfram- leiðenda. Auk þess kynnti Sam- vinnuskólinn starfsemi sína með litmyndum. Mest var spurt um: flugfreyj- ur 50, hárgreiðslu 43, hjúkrun 39, flugmál 29, ráfvirkjun 28, sjávarútveg 23, húsgágnasmíði 15 og kennslumál 14. Þetta er fyrsti starfsfræðslu- dagurinn, sem haldinn er á Sauð árkróki. Kl. 20 var sæluvikunni fram haldið með því að frumsýning hófst hjá leikfélaginu á Fjalla- Eyvindi Jóhanns Sigurjónssonar undir leikstjórn Eyþórs Stefáns- sonar. Uppselt var á sýninguna og varð fjöldi frá að hverfa. Þetta var hátíðasýning, því um þessar mundir eru liðin 75 ár frá stofnun Leikfélags Sauðárkróks, hinu eldra. Leiknum var mjög fagnað af áhorfendum. Eva Snæbjörnsdóttir leikur Höllu. Kári Jónsson Eyvind, Kristján Skarphéðinsson Bjöm hreppstjóra og Haukur Þorsteins son Arnes. 1 dag eru ýmsar skemmtanir fyrir börn. Vegir eru eins og á sumardegi. Verið er nú að ryðja snjó af Siglufjarðarskarði og búast má við miklu fjölmenni á sæluvik- una. — jón. Frá þvi var skýrt hér í blað- inu fyrir nokkru, er islenzkur' sjómaður, Guðmundur Helga-' son, lenti í sjávarháska fyrirj ströndum Marokko, en skip hans, norska flutningaskipið Með Morgunblaðið „Högh Ardonde" sökk þar að næturlagi í illviðri. Guðmundi var bjargað, eftir að hafa ver- ið rúma 12 tima einn í sjón- um, í björgunarbelti sinu. Grískt skip, „Penelope", flutti hann til Barcelona á Spáni. Þar naut Guðmundur fyrir- greiðslu íslenzka konsúlsins, Ole Lökvik. Er myndin hér að ofan tekin er Guðmundur dvaldist í Barcelona, og er hann að lesa Morgunblaðið. Guðmundur mun nú vera í Osló. Góður afli Ólafsvíkurbáfa Ólafsvík 1. apríl. AFLI Ólafsvíkurbáta hefur ver- ið með ágætum síðasta hálfan mánuð. Frá tímabilinu 15. marz til 31. marz var hann alls 2.285 tonn af 8 bátum í 106 róðrum. Hæstu bátar: Steinunn 38014 tonn i 14 róðr- um. Hrönn 366% tonn í 14 róðr- Enn meðvitundarlaus BLADIÐ hafði í gærkvöldi samband við Keflavik og spurðist fyrir um líðan stúlk- unnar, Kolbrúnar Árnadóttur, sem varð fyrir bíl á sunnudags kvöldið, svo sem frá segir á öðrum stað í blaðinu. Kolbrún var enn meðvitund- arlaus í gærkvöldi. Landskjálftinn: Ekkert bendir enn til jorð- rnsks ú sjóv- orbotni VARÐSKIPIÐ Þór hefir ver- ið að kanna hvort jarðrask hafi orðið við landskjálftann norður af Skagafirði sl. mið- vikudag. Varðskipið hafði leitað undan veðri inn á Siglu fjörð, í fyrradag Oig fyrrinótt sigldi það um svæðið sem tal ið hefir verið að breytzt hafi við landskjálftann. Hefir skip ið enn sem komið er ekki fund neitt sem bendir til jarðrasks. Ekkert varður fullyrt um þetta mál að svo komnu, en hér gæti verið um mislestur á dýptarmæli að ræða. um. Jón Jónsson 321 tonn í 14 róðrum. Bárður Snæfellsás 293 % tonn í 14 róðrum. Sæfell 287% tonn í 12 róðrum. Heildarafli bátanna hér fró áramótum er 4.420 tonn í 330 róðrum. Hæstir eru þeir bátar, sem róið hafa allan tímann bæði með línu og net: Hrönn 787, Bárður Snæfellsás 650 og Sæfell 630. Á þessum síðasta hálfum mán uði er afliiín til jafnaðar 21% fconn á bát og er það mjög góður aflL — Hjörtur. Afli Eskifjarðarbáta Eskifirði, 1. apríl. ÚTTLBGUBÁTARNIR héðan hafa afiað sem hér segir frá ára- mótum. Seley 443 tonn, Vattaimes 379 og var að landa í dag 46 tonn- um, Hóknanes 392 og Guðrún Þorkelsdóttir 271 tonn. Afli bátanna er miðaður við slæ.gðan fisik með baus. Margir teknir fyrii* ölvun við akstur ENGAR stórfregnir voru frá slökkviliði eða lögreglu um helg ina. Kviknað hafði í skúrræfli í Laugarnesi við Kleppsveg, en eld urinn olli engu tjóni, í skúrnum var ekkert verðmæti. Frá föstudegi til sunnudags voru teknir alls 14 menn, sem grunaðir voru og aðrir staðreynd ir við ölvun við akstur. Voru þeir allir fluttir til blóðrann- sóknar. Togaroi eyði- leggja neta- trossui UNDANFARNA daga hefir verið mikill afli á miðunum allt frá Eldey að Snæfellsnesi. Hafa bæði togarar og netaveiðibátar verið að veiðum á þessum slóð- um. Sl. laugardagsmorgun höfðu nokkrir bátar orðið fyrir veiða- færatjóni og töldu togurum að kenna. Missti vélbáturinn Eldey að sögn útgerðamannsins 5 tross ur. Sagði báturinn trossur sínar um 2% mílu innan fiskveiðilínu Var þetta tilkynnt til landhelg- isgæzlunnar. Blaðið átti í gær tal við land- helgisgæzluna og sagði hún varð skip til eftirlits á þessum slóð- um hverja nótt og flugvél að deginum. Net bátanna væru lögð um línu mörkin, en fyrir skip væri erfitt að ákvarða línu svo langt frá landi, sem þama er. Gætu því staðsetningar bæði báta og tog- ara verið ónákvæmar á þessum slóðum. Sogsraf- magn til Víkur Vík í Mýrdal, 28. marz. FYRIR nokkru var hafizt handa um að koma Sogsrafmagninu austur í Mýrdal og til Víkur, en það var komið austur í Skógar- skóla. Búið er nú að dreifa rafmagns- staurunum á allt línusvæðið yfir Skógasand og að bænum Skeið- fleti í Mýrdal. Verið er að ganga frá staurum við Jökulsá á Sólheimasandi. Er þess vænzt, að hið lang- þráða Sogsrafmagn komi hingað austúr í vor eða sumar og fagna menn þessum þörfu framkvæmd- um. í stuttu máli Fjórir farast í jarðskjálfta Teheran, 1. april (NTB). JARÐSKJÁLFTAR lögðu í gær í eyði smáþorp í Norð austur-íran. Fjórir menn fór- lust og tveir særðust í jarð- skjálftunum, en 83 hús hrundu til grunna. • Bidault fær landvist í Brazilíu Rio de Janeiro, 1. apríl. (NTB). TALSMAÐUR utanríkisráðu- neytis Brazilíu tilkynnti í dag, { að stjórn landsins hefði til-1 kynnt Georges Bidault, fyrrv.) forsætisráðherra Frakka, að' honum væri heimil landvist I þar. Bidault er enn í Portúgal, | en hefur verið beðinn um að | fara úr landinu hið bráðasta. • Prentaraverkfallinu í New York lokið New York, 1. apríl (NTB—AP). - BLÖÐIN í New York komu út í fyrsta skipti í dag eftir 115 daga langt verkfall prentara og prentmyndasmiða. • Sendiherra Sovét- ríkjanna með boð- skap til Peking Peking, 1. apríl (NTB). SENDIHERRA Sovétríkjanna í Peking, Stefhan Sjervon- jenko, kom í dag til borgar- innar frá Moskvu. Hafði hann meðferðis boðskap til kín- verska kommúnistaflokksins frá miðstjórn Sovétríkjanna. Ekki er vitað hvert er inni- hald boðskaparins. Bonn, 1. apríl (NTB). f GÆR fóru fram þingkosning-1 ar í Rheinland-Pfalz í Vestur- Þýzkalandi og unnu Sósíal- demókratar 6 þingmenn af demókrötum, en þeir hafa haft hreinan meirihluta í fylkinu1 um ímbil. Sósíaldemókratar fengu 43 ( þingmenn við kosningamar í gær, Kristilegir demókratar 46 og Frjálsir demókratar 11.1 Sósíaldemókratar hafa hoðið FrjáLsum demókrötum að mynda með þeim samsteypu- stjórn í fylkinu. Féll af hestbaki Akranesi 1. aprfl. Á sjöunda tímanum sl. laugar- dagskvöld bar það við að Þórar inn Einarsson féll a*f hestbaki Oig meiddist. Þórarinn býr að Heið arbraut 31 og er starfsmaður olíustöðvar Esso. Hann hefði farið inn á tún sitt við Leirvogslæk. Á hann góða reiðhesta og hafði brugðið sér á bak. En sem hann kom inn í Holtin, hleypur hestur hans þvert út undan sér á beinum vegi, Hrökk Þórarinn af baki og skarzt á höfði. Var hann fluttur i sjúkrahús og gert að sárum hans. Þórarni, sem er 45 ára að aldri, líður eftir atvikum. — Oddur i NA 15 hnúiar\ X Snjiiama [ SV 50 hnútar \ » ÚÍi 17 Siúrir K Þrumur 'W&z, KuUaatii ZS* Hitatirf UM hádegið í gær var frem- ur grunn og nærri kyrrstæð lægð skammt frá sauðaustur- strönd íslands. Olli hún hægri NA-átt um allt land, en nokkr um éljum á annesjum norðan, lands með aðeins 1—2 st. hita. Sunnan lands var hins vegar þurrt og bjart veður með 5—7 sL hita. (KL 14 var 10 st. hiti á Klaustri). Veðurlag mun haldast með svipuðu móti næsta sólarhring. — Um há- degið var 2 st. hiti í Kaupmh. og 0 st í Osló en 8 st. í Lond- on. I New York var 5 si. hitL

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.