Morgunblaðið - 02.04.1963, Side 8
8
MORCVJS BL AÐIB
Þriðjudágur 2. apríl 1963
í tilefni 25 ára afmælis Málfundafélagsins Óðins barst félaginu fjöldi blóma og skeyta.
Mynd þessi er tekin af Sveinbirni Hannessyni, form. Óðins, á sunnudaginn.
Afmœlisfagnaður Óöins
s. I. sunnudag
HINN 29. man s.l. voru 25 ár
siðan Málfundafélagið Óðinn var
stofnað og var þess minnzt í
Sjálfstæðishúsinu á sunnudag
með því að Óðinsmenn komu þar
saman til sérstaks fundar, drukku
þar kaffi og röbbuðu saman.
Óðinn var stofnaður hinn 29.
marz 1938. Stofnendur hans voru
41 verkamaður og var höfuðtil-
gangurinn sá að tryggja skoðana-
frelsi verkamanna innan verka-
lýðssamtakanna.
t lok hófsins færði formaður
Óðins, Sveinbjörn Hannesson,
formanni Sjálfstæðisflokksins,
Bjarna Benediktssyni, 25 þús. kr.
I kosningasjóð Sjálfstæðisflokks-
ins fyrir þær alþingiskosningar,
sem í hönd fara.
Hófið sett
Sveinbjörn Hannesson, form.
Óðins, setti hófið með ávarpi, þar
sem hann veik m. a. að stofnun
félagsins. En aðalhvatamenn
þess voru þeir Sigurður Halldórs-
son, fyrsti form. þess, Sigurður
Guðbrandsson og Magnús Ólafs-
Bon.. Auk þeirra þremenninga
áttu Ingvi Hannesson, Hans Guð-
mundsson og Axel Guðmundsson
sæti í fyrstu stjórninni.
Látið ekki dragast að athuga
bremsurnar séu þær ekki i
lagi..
Fullkomin bremsupjónusta.
Ræddi Sveinbjörn síðan nokk-
uð þau tímamót, sem stofnun
Óðins markaði í sögu verkalýðs-
samtakanna á íslandi, en fyrir
ötula forystu þess var Alþýðu-
sambandinu breytt á þann veg,
að allir eiga sama rétt innan
verkalýðssamtakanna.
Þá þakkaði Sveinbjörn þrem
mönnum sérstaklega fyrir það,
að þeir hefðu ávallt frá byrjun
verið tilbúnir til að leiðbeina.
Loks lét hann í ljós þá ósk sína
og von, að Málfundafélagið Óðinn
mætti halda áfram að eflast og
blómgast og að sá félagsandi og
bróðurhugur, sem hefði einkennt
það frá byrjun, mætti alltaf vera
því að leiðarljósi.
Sagði hann síðan hófið sett og
bað menn að neyta þess, sem á
borð var borið.
Síðan var setzt að borðum og
lék hljómsveit Sjálfstæðishússins
létt lög á meðan, en einnig söng
bandaríski negrasöngvarinn,
Marcel Achille, nokkur lög.
Gegn pólitiskri misnotkun
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, flutti stutt
ávarp, þar sem hann veik m. a.
að ástæðum þess, að verkalýðs-
hreyfingin, sem er eitt sterkasta
aflið í þjóðfélaginu, hefur ekki,
þrátt fyrir mikil umsvif, uppskor-
ið í samræmi við fyrirhöfnina.
En það stafar ekki sízt af því,
að forystumenn hennar hafa ekki
fyrst og fremst beint áhuganum
að sameiginlegum kjarabótum,
heldur haldið uppi harðri og of-
stækisfullri pólitískri baráttu.
Sagðist hann því ekki geta
fært Málfundafélaginu Óðni
betri árnaðarósk en þá, að það
mætti losa íslenzka verkalýðs-
hreyfingu úr viðjum pólitískra
misnota og beina afli hennar í
annan farveg, landi og lýð til hag
sældar.
Sjálfstæð skoðanamyndun
Geir Hallgrímsson borgarstjóri
minnti á, að fyrsta hlutverk Óðins
hefði verið að koma í veg fyrir
pólitíska misnotkun verkalýðsfé-
laganna og hann hefði verið
því hlutverki sínu trúr. Stofn-
endur Óðins hefðu átt þá sfefnu-
festu að rísa gegn slíkri misnotk-
un og átti Óðinn mikinn þótt í
að stuðla að sálfstæðri skoðana-
myndun meðal launþega.
Þá drap hann á þá staðreynd,
að Sálfstæðisflokkurinn á meira
fylgi að fagna meðal launþega
en nokkur annar stórnmálaflokk
ur og hefði Óðinn þannig með
starfi sínu gert Sálfstæðismönn-
um kleift fremur en ella hefði
verið að gera að körorði okkar
stétt með stétt.
Þakkaði hann síðan Óðni hinn
mikla þátt, sem hann hefði átt
í viðgangi Sjálfstæðisflokksins.
Nýr vandi á höndum
Sigurður Halldórsson fyrsti for-
maður Óðins, færði málfundafé
laginu síðan árnaðaróskir sínar.
Rakti hann sögu félagsins og hver
vandræði verkalýðshreyfingunni
voru búin, þegar Óðinn var
stofnaður, en þá mátti ekki einn
einasti maður setjast á Alþýðu-
sambandsþing nema hann væn
Alþýðuflokksmaður. Á þessum
misrétti hefði verið sigrast og
ekki sízt fyrir baráttu Óðins, en
nú væri okkur nýr vandi á hönd-
um, þar sem einn af lýðræðis
flokkunum, Framsóknarflokkur-
inn, hefði tekið höndum saman
við kommúnista í verkalýðshreyf-
ingunni. Gegn slíku bandalagi
yrði Óðinn að berjast og sigra.
Ótrúlega mikil áhrif
Friðleifur I. Friðriksson rakti
þá sögu, hvernig áhrif Sjálfstæð
isflokksins hefðu smám saman
aukizt innan verkalýðshreyfing-
arínnnar, svo að nú væru þau
órðin ótrúlega sterk. Hefði það
ekki sízt verið að þakka hinu
mikla starfi Málfundafélagsins
Óðins.
25 þús. kr. í kosningasjóð
Þá bað Sveinbjörn Hannesson
Bjarna Benediktsson, formann
Sjálfstæðisflokksins, að taka við
25 þús. kr., sem stjórn Óðins
hefði ákveðið að gefa í kosninga-
sjóð Sjálfstæðisflokksins fyrir
þær, alþingiskosningar, sem
hönd fara.
Atvinna
Vantar karlmann til verksmiðjustarfa.
Nýja skóveíksmiðjan
Bræðraborgarstíg 7.
Samsöngur í Keflavík
Karlakór Keflavíkur og kór SVFÍ
héldu tónleika
FYRSTI samsöngur Karlakórs
Keflavíkur og Kvennakórs Slysa
varnafélagsins á þessu ári fór
fram í Bíóhöllinni í Keflavík sl.
íöstudag. Húsið var þéttskipað og
kórunum ákaft fagnað, enda var
frammistaða þeirra rneð ágætum
og ferskur blær yfir söngskrá
og framkomu allri.
Á söngskránni voru kaflar úr
óperum og útdrættir úr óperett-
um eftir meistarana Weber,
Nicolai, Puccini, Donisetti, Lehar
og Strauss — og var þar sann-
arlega um auðugan garð að
gresja, falleg fljúgandi músík,
flutt af einlægni og þrótti. —
G.reinilega lágu allir þræðir um
styrkar hendur stjórnandans,
Herberts Hriberschek Ágústsson-
ar og mátti þar gjörla greina mik
ið starf að baki. Kórarnir báðir
leystu sín hlutverk eins og bezt
verður á kosið, með dugnaði, ná-
kvæmni og mýkt, sem féll vel
við það efni, sem var flutt, sér-
staklega í lokakafla óperunnar
Töfraskyttunnar eftir Weber og
Nótt í Feneyjum eftir Strauss.
Það er undravert hve góðum
árangri er hægt að ná við svo
erfið skilyrði, sem þessir kórar
hafa til samæfinga, þar sem 50
km. eru á milli heimkynna
þeirra.
Einsöngvararnir höfðu sínu
stóra hlutverki að gegna og
leystu það vel af hendi, enda
engir aukvisar á ferð — það
voru þau Eygló Viktorsdóttir,
Erlingur Vigfússon, V. Demetz,
Hjálmar Kjartansson og Þórunn
Ólafsdóttir, sem tók við hlut-
verki Snæbjargar Snæbjarnar,
vegna veikinda hennar, svo og
einsöngvarar frá Karlakórnum,
þeir Böðvar Pálsson og Haukur
Þórðarson.
Það má segja að of mikið hafi
verið á einsöngvarana lagt, bæði
sem einsöngvara, kvartett og
sextett — en verkefnin kröfðust
þess og þeir stóðu sig með prýði,
sérstaklega naut sín vel hin
glæsilega rödd Erlings Vigfússon
ar.( — Það má deila um efnis
valið, að hafa engih af hinum
hefðbundnu íslenzku kórlögum
á söngskránni, en þessi viðfangs-
efni voru falleg og sýndu þakk-
arverðan stórhug.
Undirleikur Ásgeirs Beinteins
sonar var öruggur og viss — en
alltof hávær. Eitt flygel getur
ekki komið í stað hljómsveita
óperuverkanna, með sínar básún
ur og sibala. — Það sem mjúkur
kór þarf með er mjúk og sam-
ræmd leiðsaga en ekki trjónandi
tækni á nótnaborðinu.
Þessir hljómleikar karlakórsins
eru okkar árlega eftirvænting
hér syðra, og stöðugt eru gerðar
til þeirra meiri og meiri kröfur,
þrátt fyrir erfiðar .aðstæður
þeirra einstaklinga, sem hlut
eiga að máli.
Karlakór Keflavíkur og sanv-
kór hans, Kvennakör Slysavarna
félagsins, hafa verið vaxandi
með hverju ári, enda notið hinn-
ar öruggu og ágætu leiðsagnar
Herberts Hriberschek Ágústsson-
ar.
Það er gott og gleðilegt fyrir
okkur hér í fásinninu á Suður-
nesjum, að senda frá okkur svo
snjalla fulltrúa, sem þetta söng-
fólk er. — Það verður enginn
svikinn að eyða kvöldstund með
því í heimi söngsins.
Helgi S.
Árnína Guð<
jónsdóttir
Fædd 3. maí 1879.
Dáin 24. marz 1963.
Kveðja frá dóttur
Nú skal móður kæra kveðja
kveðjustund er oftast sár.
Móðurstarf að græða og gleðja
grátnar alltaf þerra brár.
„Mamma" orð sem allir skilja
orð sem börnin læra fyrst.
Mörnmu allir eiga vilja
atíhvarl bezt í jarðar vist.
Móðurstarfið hér í heimi
helgað er af drottins náð.
Móðir, þína mynd ég geymi
minning ljúf í hugan skráð.
Þú varst búin börn að missa
börnin fimm þér hurfu frá,
hrein og tál'laus trúarvissa
traust og huggun veittu þá.
Þörf er mér að þakka og minnast
þú varst hugljúf fyrirmynd,
þeim sem heimsins hörmum
kynnast
hressast bezt við þroskanslind.
Svifin burt til sólarlanda
sál þín hress og fögur er.
Laus við allan lífsins vanda
Ljóssins englar fylgi þér.
L. B.
KLEPPSVECUR!
Röskan ungling eða krakka vantar nú
þegar til að bera Morgunblaðið til kaup-
enda við
Kleppsveginn
Gjörið svo vel að tala strax við af-
greiðsluna eða skrifstofuna.
u«t>laí»ib
sími 22-4-80.