Morgunblaðið - 02.04.1963, Qupperneq 23
Þriðjudagur 2. apríl 1963
MORGUNBLAÐ1Ð
23
Miklar framkvæmdir
hjá Rauðku
til að nýta úrgangsefni verksmiðjunnar
Siglufirði 26. marz — Hér
standa fyrir dyrum framkvaemd-
ir á vegum síldarverksmiðjunn-
ar Rauðku. Á þar að setja upp
soðvinnslutaeki, en þau vinna
bæði mjöl og soðkjarna úr soð-
vatni, sem áður hefur runnið í
sjóinn. Ennfremux verður keypt-
16 dogo mot-
orloos í lest
Kaupmannahöfn, 1. aprfl
(NTB).
í DAG kom sænska flutninga-
skipið „Haian“ til Kaupmanna
hafnar á leið til Gautaborgar
frá Khorramshahr við Persa-
flóa. Á laugardaginn fannst
Arabi í lest skipsins. Hafði
hann verið þar innilokaður 16
daga, eða frá því að skipið
lagði af stað frá Khorrams-
hahr. Það var tilviljun, sem
réði því að maðurinn fannst
Ólag var á kælikerfi skipsins
og vélstjórinn var að athuga
það, þegar hann varð manns
ins var. Ekki átti að losa skip-
ið fyrr en á morgun, þriðju-
dag, og talið fullvíst að mað
urinn hefði ekki lifað þangað
itil. Arabinn talar aðeins móð-
urmál sitt og enginn af skips
höfninni skildi hann. Skips
;menn telja líklegt að hann
hafi unnið við að lesta skipið
í Khnorramshahr og fengið sér
blund í lestinni. Sá, sem lokaði
hennL hefur ekki orðið hans
var. Maðurinn var mjög mátt-
farinn þegar hann fannst og
fyrstu tvo dagana gat hannl
varla komið niður matarbita,
en í dag borðaði hann vel.
Hann fer heim til Khorrams-
hahr með farþegaskipi í boði
itgerðar „Haian“,
Útboð á 22 sumar-
húsum ASI
S.L. SXJNNUDAG var auglýst
útboð af hálfu A.S.Í. og tilboða
óskað í byggingu 22 sumarhúsa
1 Hveragerði með tilheyrandi
lögnum og gatnakerfi.
Gerðir hafa verið tillðguupp-
drættir að húsum þessum og
liggja þeir frammi til athugun-
ar fyrir þá er tilboð í þessar
byggingar vilja gera.
Afli
Stykkishólmsbáta
Stykkishólml, 1. aprfl.
VIKUAFLI Stykkishólmsbáta sl.
viku var 319 tonn í 30 róðrum.
Aflahæst er Þórsnes með 116
tonn og næst Straumnes með 73
ur nýr síldarsjóðari til verk-
smiðjunnar. Hefur verið samið
við vélsmiðjuna Héðin um þetta
hrvort tveggja. Áætlaður kostn-
aður við þessi tæki er 5—6 millj.
króna. Skv. vertksamningi við
Héðin eiga tækin að vera tilbú-
in til vinnslu 15. júní n.k.
Þá hefur einnig verið pantað-
ur til verksmiðjunnar frá Banda-
ríkjunum sjálfvirkur gufuketill,
sem framleiðir 6800 kg af gufu
á klukkustund. Hann á að koma
síðari hluta aprflmánaðar. Og
sic verðmæti hans hér á bryggj u
er 1.160.000 kr.
Þegar þessi tæki eru komdn í
verksmiðjuna nýtast hráefnin
mun betur og er áætlað að 4—5
millj. króna hafi runnið í sjóirrn
í verðmætum miðað við þá
vinnslu sem þá var í verkismiðj-
unni. — SteÆán.
Hér setjast þeir að fyrstu skák einvígisins Botvinnik (t.h.) og Petrosjan.
hefur kaffibrúsann sinn með sér.
Heimsmeistarinn
Sluðningur við pólitísbn fongo,
sem lntnir huln verið Innsir
Vtn, 1. apríl — (NTB) —
EINS og skýrt hefur verið frá
í fréttum hefur ungverska
stjórnin náðað þúsundir
fanga, þar á meðal er hluti
þeirra, sem dæmdir voru fyr-
ir þátttöku í uppreisninni
1956. —
—■ Guafemaía
Framhald af bls. 1.
bentu til þess að hann væ>ri
ekki mótfallinn byltingunni þó
hún hefði kostað hann völdin.
Hann sagði m.a. „Það, sem nú
hefur gerzt í Guatemala er land-
inu sjálfu til góðs og einnig öðr-
um löndum Mið-Ameríku. „Ydi-
goras Fuentis hefur verið einn
evarnasti andstæðingur Castros,
forsætisráðherra Kúbu, í Mið-
Ameríku.
Utanríkisráðuneyti Bandaríkj-
anna skýrði frá því í dag, að
Bandaríkjastjóra ráðfærði sig
nú við ríkisstjórnir Suður- og
Mið-Ameríkulanda um það hvort
viðurkenna ætti hina nýju stjórn
Guatamala.
Karlakórinn
Svanir
KARLAKÓRINN Svanir fiá
Akranesi heimsótti höfuðstaðinn
um síðustu helgi og hélt samsöng
í Gamla bíói á sunnudag. Kórinn
er skipaður um 40 söngmönnum
og lýtur öruggri, smekkvísri og
kunnáttusamlegri stjóm Hauks
Guðlaugssonar, organleikara og
skólastjóra tónlistarskólans á
Akranesi.
Efnisskré samsöngsins var
fjölbreytt. Meðal þeirra verk-
efna, sem mesta athygli vöktu,
voru þrjú íslenzk lög: „Smávinir
fagrir“ eftir Jón Nordal,
„Mamma ætlar að sofna“ eftir
Sigvalda Kaldalóns, í útsetningu
söngstjórans, og „Gesturinn"
eftir Karl Ó. Runólfsson enn-
fremur kantata eftir Mozart, og
Pilagrímakór eftir Wagner. Lag
Karls Ó. Runólfssonar mun vera
nýtt eða nýlegt, mikið í sniðum
og erfitt í flutningi, en myndar
lega uppbyggt og alláhrifamikið.
Flest hin viðfangsefnin voru af
léttara tagi.
Söngur kórslns var með mikl-
um menningarbrag, tártireinn og
fágaður, ágætlega samstilltur,
hófsamlegur Og hnitmiðaður.
Einkum komu þessir kostir skýrt
fram í veikari lögunum. Þegar
meira reyndi á, urðu átöfcin
stundum nokkuð á kostnað radd
fegurðarinnar, og gætti þá einn-
ig sums staðar misræmis milli
raddanna.
Sigurveig Hjaltested fór með
vandasamt einsöngshlutverk í
kantötu Mozarts, Jón GunnLaugs-
son söng einsöng í einu lagi og
nakkrar sópranraddir úr Kirkju
kór Akraness aðstoðuðu í öðru.
Frú Fríða Lárusdóttir var við
hljóðfærið. Allt jók þetta á fjöl-
breytni tónleikanna og fór vel
úr hendi.
Akurnesingar eru merkis- og
myndarfólk, og margt er það,
sem þeir mega vera stoltir af.
Eitt af því er karlakórinn Svanir.
Heimsókn hans hingað til Reykja
víkur var heimabyggð kórsins og
öllum þátttakendum til hins
mesta sóma.
Jón Þórarinsson.
Samkvæmt fregnum ung-
verskra blaða, sem bárust til Vín
ar í morgun, hefur mörgum
þeirra pólitísku fanga, sem
sleppt hefur verið úr haldi, bor-
izt atvinnutilboð og sum fyrir-
tæki hafa boðið þeim íbúðir og
fyrirframgreiðslur. Aðalmálgagn
ungverska kommúnistaflokksins
sagði, að pólitísku fangarnir
gætu reitt sig á stuðning yfir-
valda í heimabæjum sínum. —
Skoraði það á alla, að veita hin-
um pólitísku föngum aðstoð og
sýna þeim hlýhug.
Botvinnik með
2% vinning
FJÓRÐA skákin í einvígi þeirra
Botvinniks og Petrosjans um
heimsmeistaratitilinn í skák var
tefld á laugardaginn. Þeir sömdu
um jcLÍntefli.
Eftir fjórar skákir hefur Bot-
vinnik 2% vinning móti 1% vinn
ing Petrosjans.
Handfæraafli
glæðist
Akranesi, 1. apríl.
VÉLBÁTURINN Sigurfari fékk
300 tunnur af sfld á Hraunsvík
í nótt og 500 tunnur í fyrrinótt.
Síldin er hraðfryst.
Fjórir þorskanetabátar voru á
sjó og fengu alls 40 tonn, Ás-
björn 13,5 og Svanur 11,5.
Sex tryllubátar eru byrjaðir
róðra og hafa fiskað þrjá síðustu
dagana frá 500 kg. upp í 3 tonn
á bát í róðri.
Þegjandi synda þorskar I ála.
Tvo dagana þar á undan fékkst
ekki bein úr sjó á handfæri.
— Oddur.
Rafmagn lagt í
Breiðuvíkurhrepp
HELLNUM, Snæf 20. marz. —
Vegir eru hér góðir og kiakj far-
inn úr jörðu. Óvenju mikil um-
ferð er daglega hérna megin á
Nesinu, og stafar það m. a. af
miklum vörufiutningum til Gufu
skála.
Róðrahugur er kaminn í menn
og margir farnir að dytta að bát-
um sínum. Úerður ekki langt að
bíða og róðrar hefjist. Stutt er
á fiskimiðin en hér vantar betri
hafnir.
Flokkur frá rafmagnsveitunni
vinnur nú að því að leggja raf-
magn frá Fossárvirkjun við
Ólafsvík í Breiðuvíkurhrepp og
nokkurn hluta Staðarsveitar. Má
búast við að raflagningunni verði
lokið í næsta mánuði, ef tafir
verða ekki við iagningu heim-
tauga. — Fréttaritari.
— Alþingi
Framhald af bls. 13
vinnur utan heimilis, lækka ekki,
þótt hún dveljist í sjúkrahúsi.
Loks lagði AG tfl, að bóta-
greiðslufjárhæðir breyttust í sam
ræmi við vísitölu framfærslu-
kostnaðar.
Karl Kristjánsson (F) mælti
með samþykki frumvarpsins, um
Ieið og hann kvaðst vona, að
frumvarpið yrði fljótt tekið til
endurskoðunar á ný, þar sem lög-
gjöf eins og almannatrygginga-
löggjöfin ætti helzt alltaf að vera
í endurskoðun.
Magnús Jónsson (S) ræddi
nokkuð það atriði, að lagt er
til að allir lífeyrissjóðir verði
viðbótasjóðir við almannatrygg-
ingarnar. Lét hann í ljós nokkr-
ar áhyggjur af’því, að afkomu
lífeyrissjóðanna yrði í hættu tefit
með breytingunni, og benti á, að
ekki mætti setja á þá meiri kvað-
ir en þeir gætu risið undir.
Páll Þorsteinsson (F) spurð-
ist fyrir um, hvaða áhrif sú
kauphækkun, sem væntanleg er
hjá opinberum starfsmönnum,
mundi hafa á bótagreiðslurnar,
Emil Jónsson félagsmálaráðherra
sagði, að akki heÆði verið rætt inn
an ríkisstjórnarinnar, hvernig
við þeim vanda ætti að snúast.
Hins vegar gæti hann sagt það
sem sína skoðun, að sér þætti
ekki ólíklegt, að miðað yrði við
lægstu launaflokkana.
Að lokinni ræðu ráðherra var
frumvarpið samþykkt með breyt-
ingartillögum heilbrigðis- og fé-
lagsmálanefndar, en Alfreð Gísla
son dró tillögur sínar til baka til
3. umræðu.
Mikill fram-
kvæmdahugur
KÓPASKERI, 1. apríL — Mikill
framkvæmdahugur er í mönnuan
hér. Er gert ráð fyrir að byggð
verði þrjú íbúðarhús hér á Kópa-
skeri í sumar. Hér eru þó inn-
an við 100 íbúar og þykir þetita
mdkið í ekki stærra byggðarlagi.
Fyrir sfcönunu var hafin útgerð
hér en hefir fram til þessa gengið
illa, því lítið sem ekkert hefir
aflasL —- Jósep.
ATLÁS
Crystal Kiny
— Franska stjórnin
Framhald af bls. 1.
nokkrir kolanámumenn í Lót-
ringen að hefja vinnu á ný,
en verkfallsverðir meinuðu
þeim það. Til smávegis átaka
kom, en þau stóðu ekki lengi.
Eins og skýrt hefur verið
frá hafa menn í ýmsum starfs
greinum í Frakklandi gert
stutt verkföll að undanförnu
bæði til þess að sýna kola-
námumönnum samúð og til
þess að krefjast kjarabóta.
ÞEIR ERU KONUNGLEGIR!
glæsilegir utan og innan
rár hagkvæmasta innrétting,
sem sézt hefur: stórt hrað-
frystihólf með sérstakri
„þriggja þrepa“ froststill-
ingu, 5 heilar hillur og
grænmetisskúffa, og i hurð
inni eru eggjahilla, stórt
hólf fyrir smjör og ost og
3 flöskuhillur, sem m. a.
rúma pottflöskur
■Á sjálfvirk þíðing
■A færanleg hurð fyrir hægri
eða vinstri opnun
rár nýtýzku segullæsing
★ innbyggingarmöguleikar
ÍT ATLAS gæði og 5 ára
ábyrgð
★ eru þó LANG ÓDÝRASTIR
Ennfremur ATLAS Crystal
Queen og Crystal Prince
Góðir greiðsluskilmáiar.
Sendum um allt land.
O. KORNERUP-HANSEN
Sími 12606 — Suðurgötu 10.