Morgunblaðið - 18.04.1963, Page 1
50. árgangur
mM
87. tbl. — Fimmtudagur 18. apríl 1963
24 síður
Prentsmiðja Mor^inblaðsins
„Látum viðreisnina leiða til velmegunar"
sagbi forsætisrábherra, Ólafur Thors,
um í gærkvöldi
IVIáttlitEcir varnir Framsóknar
og kommúnista
ALMENNAR stjómmálaum-
ræðiur fóru fram í sameinuðu
Alþingi í gærkvöldi, og var
þeim útvarpað. Helztu ein-
kenni umræðnanna voru
bjartsýni og sóknarhugur
ræðumanna stjórnarflokk-
anna annars vegar, og böl-
sýni og linlegar varnir and-
stæðinga þeirra hins vegar.
Hafa líklega aldrei heyrzt
jafn dauflegar ræður þing-
manna I stjórnarandstöðu.
Helzt var það Eysteinn Jóns-
son, sem reyndi að manna sig
upp, en fjármálaráðherra,
Gunnar Thoroddsen, rakti
firrur Eysteins og rangfærsl-
ur svo rækilega, að þar stóð
ekki steinn yfir steini. Ræð-
ur kommúnista einkenndust
af meiri hölmóð en menn eiga
að venjast að heyra túlkaðan
á Alþingi. Áttu þéir það
reyndar sameiginlegt með
Framsóknarmönnum að
reyna að hræða almenning
með grýlusögum. T. d. var
engu líkara en Karl Guðjóns-
son hefði fengið einhverja op
inberun um það, að til stæði
að hinda ísland Efnahags-
bandalaginu á versta hugsan-
legan hátt. Hefur óskhyggja
ræðumanns e.t.v. valdið þar
einhverju um, nema í stað
Sovétríkjanna setti hann
Efnahagsbandalagið.
Ræða Ólafs Thors vakti
mikla athygli, en þar lýsti
hann stefnu viðreisnarstjórn
arinnar, rakti einstök mál og
málaflokka, skýrði frá því,
hvað framundan væri, og
hvert stefna hæri. Magnús
Jónsson sýndi fram á það,
hve rækilega hrakspár and-
stæðinganna hefðu afsannazt.
í stað stöðnunar, samdráttar
og atvinnuleysis, væru aukn-
ar í Accra
Accra Ghana, 17. april.
— NTB-AP.
• í DAG voru dæmdir til I
dauða í Accra, fimm menn er l
ákærðir höfðu verið fyrir land /
ráð. Sérstakur stjórnskipaður'
dómstóll fjallaði um mál'
þeirra og er ekki unnt að (
áfrýja málinu. Hinir ákærðu i
voru sjö talsins, en tveir voru)
dæmdir til fimm og átta ára'
fangelsisvistar. Mennimir I
fengu ekki að leita aðstoðar(
lögfræðinga.
ar framkvæmdir á öllum
sviðum og meira athafnalíf
en dæmi eru til í sögu lands-
ins.
Alit að þakka „sanngirni SÍS“
FYRSTUR tók til máls af hálfu
Framsóknarflokksins, Eysteinn
Jónsson. Kvað hann þann spá-
dóm Framsóknarmanna, að verð
bólguöldurnar mundu rísa, hafa
rætzt. Launakerfið væri úr skorð
um gengið sökum verðbólgu og
vonlaust að lifa mannsæmandi
lífi með venjulegum vinnudegi.
Taldi Eysteinn enn fremur, að
menn hefðu ekki enn séðviðreisn
ina eins og hún átti að verða og
það sé að þakka „sanngirni sam-
i útvarpsumræhun-
vinnufélaganna". Allt gott, sem
segja mætti um núverandi
stjórn, væri hægt að rekja til
„pressu Framsóknarmanna".
Vinnuþrælkun, sagði Eysteinn,
að væri mdkið þjóðfélagsvanda-
mál, en mikil uppbygging hefði
hins vegar verið fyrir viðreisn-
ina.
Eysteinn sagði, að aldrei hefði
neinn forsætisráðherra kveðið
upp eins þungan dóm yfir sinni
eigin stjórn og Ólafur Thors hafi
gert á gamlárskvöld í ræðu
sinni. Einnig kvað hann það hel-
ber ósannindi, að allt hefði ver-
ið á heljarþröm árið 1958, og
væru skuldir þjóðarinnar erlend
is meiri nú en þá, þótt um 930
milljónir ísl. kr. hafi verið greidd
ar af þeim á valdatíma viðreisn-
arstjórnarinnar. Sparifjáraukn-
ing landsmanna væri og furðu-
lítil en ekki furðumikil.
Á næsta kjörtímabili sagði
Eysteinn að taka yrði afstöðu
til Efnahagsbandalags Evrópu.
Sú þróun, sem þegar væri hafin
Framih. á bls. 8.
Pekingstjórnin bauð
Kúbu sjúliboðaliða
Peking, 17. apríl. (NTB-Reuter)
• TALSMAÐUR stjórnar Fid-
els Castro á Kúbu sagði í Peking
í dag, að Pekingstjórnin hefði
boðið að senda sjálfboðaliða til
Kúbu, er deilan vegna eldflauga
stöðva Sovétstjómarinnar stóð
sem hæst. Sagði talsmaðurinn,
að Kúbustjóra yrði Kínverjum
eilíflega þakklát fyrir boðið.
>að var Jose Matar, formaður
nefndar þeirrar á Kúbu, sem
ætlað er að varðveita byltinguna
óg áhrif hennar, sem viðhafði
þessi ummæli á fjöldafundi í
Peking. Þar var hann heiðurs-
gestur, en einkunnarorð fjölda-
fundarins var: „Stuðningur við
þjóðir Suður- og Mið-Ameriku.“
Þátttakendur voru nærri tíu
þúsund talsins, og meðal við-
staddra Chou en-Lai, forsætis-
ráðherra Kína og borgarstjórinn
í Peking, Peng Chen.
Þessi óvenjulega mynd var
tekin i Jakarta í Indónesíu
fyrir nokkrum dögum. Þar
fór fram flugsýning í heiðurs-
skyni við Liu Shao-Chi, for-
seta Kína, sem þar var stadd-
ur i opinberri heimsókn.
Meðal sýningaratriða var list-
flug nokkurra rússneskra
MIG-19 þota, en ein þeirra
hrapaði skyndilega til jarðar.
Myndina tók Horst Faas, ljós-
myndari AP, aðeins sekúndu-
broti áður en þotan stakkst
á nefið í jörðina.
„Þetta er auðvitað
viðkvæmt málé4
— segír faðir Þórunnar í
samtali við IVforgunblaðið
• •
MORGUNBLAÐIÐ átti í gær
símtal við Jóhann Tryggva-
son, föður Þórunnar Jóhanns
dóttur og spurði hann hvern-
ig ákvörðun Þórunnar og
manns hennar, píanóleikar-
ans Askenazys hefði verið
tekið í Bretlandi. Jóhann
sagði, að þau hefðu gefið upp
dvalarstað sinn í Liverpool í
gær og þá átt fund með frétta
mönnum, og að því er hann
bezt vissi hefðu þar verið við-
staddir um 40 fréttamenn.
Hefði samtal við þau birzt
í útvarpi og sjónvarpi og
jafnframt hefðu hlöð gert
mikið úr málinu og mætti
einnig húast við miklum
blaðaskrifum á fimmtudag.
Þá sagði Jóhann, að hann
hefði ætlað að vera í fríi um
þessar mundir, en það hefði síð-
ur en svo verið frí á sínu heim-
ili, því blaðamenn hefðu verið
þar tíðir gestir.
Enn fremur sagði Jóhann, að
samtalið, sem Mbl. hefði átt við
Þórunni og mann hennar á
þriðjudagskvöldið hefði verið hið
fyrsta, sem þau hjón hefðu veitt
blaði eða fréttastofu. Því má
bæta inn í hér, að samtal Mbl.
við þau hjón hefur vakið mikla
athygli, enda hið fyrsta, sem frá
Þórunni og Askenazy heyrðist
eftir að vitað var, að þau hefðu
beðijS um dvalarleyfi í Bretlandi,
og má þess m.a. geta, að hin
stóra fréttastofa Associated Press
notaði það sem kjarna í sínum
fréttum um mál þetta í gær
(miðvikudag).
Jóhann Tryggvason sagði m.a.,
er Mbl. spurði hann að því í
gærkvöld, hvort Askenazy hefði
haft samband við foreldra sína
heima í Rússlandi, að svo hefði
verið. Hann hefði eftir að á-
kvörðunin um dvalarleyfið var
tekin átt tvö samtöl við foreldra,
sína heima í Rússlandi.
„En þetta kom þeim dálítið á
óvart“ sagði Jóhann ennfremur.
„Þið skiljið það. Þau voru ekki
sérstaklega vel búin undir slíkar
fréttir. En í seinna skiptið, sem
hann talaði við þau, höfðu þau
jafnað sig nokkuð og voru ró-
iegri. Auðvitað er þetta mál
þannig lagað, að hann hefur þurft
að hugsa sig rækilega um. Það
veldur honum áhyggjum að fara
frá foreldrum sínum, hvað sem
síðar kann að verða upp á tening
unum. Þetta er auðvitað mjög við
kvæmt mál“.
Þá spurði fréttamaður Mbl. Jó-
hann að því, hvort ekki væri rétt
frá hermt, að þau hjón hefðu
farið frá Lundúnum 11. apríl s.l.
og sagði hann að svo væri. Bað
hánn Mbl. um að leiðrétta þann
misskilning, sem kom fram í Visi
í gær (miðvikudag), þar sem
blaðið hefur það eftir honum, að
þau hafi dvalizt á heimili hans
í Lundúnum þangað til kl. 3 að-
faranótt mrðvikudags, en þá fyrst
farið til Liverpool. Kvaðst hann
hafa sagt fréttamanni blaðsins,
mjoíj
að þau hefðu farið viku áður tíg
bað um leiðréttingu á því, þar
sem annað gæti valdið alvarleg-
um misskilningi.
Þá spurði fréttamaður Mbl. að
því, hvort Jóhann teldi, að þjóð-
erni Þórunnar hefði verið hénni
til hjálpar í þessum erfiðleikum.
Hann svaraði hiklaust: „já,
áreiðanlega. Það er tvennt sem
hefur haft stórkostlega þýðingu
í þeim efnum, þjóðerni Þórunnar
og einnig hitt, hve lengi hún hef-
ur dvalizt hér í Bretlandi“.
Þegar Mbl. talaði við Jóhann
hafði hann nýverið hlustað á
píanóhljómleika tengdarsonar
síns, sem fluttir voru í brezka
sjónvarpinu í gærkvöldi (mið-
vikudagskvöld).
— Og hvaða verk lék hann?
— Hann lék Ballötu nr. 4
í F-moll eftir ’Chopin og tvær
etýður eftir sama höfund, svaraði
Jóhann.
Að lokum spurði fréttamaður
Mbl. Jóhann Tryggvason að því,
hvort honum fyndist ekki Þórunn
og Askenazy hafa samúð fólks
í Bretlandi. Hann svaraði:
— Jú það hefur komið mjög
áþreifanlega fram. Við höfum
fundið meira en samúð. Og einnig
hefur málið vakið svo mikla at-
hygli, að ekki er annað hægt að
segja, en það hafi verið „sensat-
iion“ hér í landi.