Morgunblaðið - 18.04.1963, Side 3
Fimmtudagur 18. apríl 1963
MORGUNBL 4 Ð I Ð
3
FERÐ A FÓLK sunnanlands
haíði heppnina með sér um
páskana. Þrátt fyrir kulda,
rok og óveður uim mestan
hluta landsins var á þeim stöð-
um á hálendinu sem flestir
lögðu leið sína á fagurt veður
og kyrrt, svo dvölin þar varð
unaðsleg. E.t.v. er þó ástseð-
an fyrir því að þessir ákveðnu
staðir eru svo mikið sóttir
um póskana sú, hve þeir eru
mikið í skjóli og oft góðviðri
þegar annars staðar blæs og
hríðar.
Með þessum orðum er eink-
um ábt við Öræfasveitina,
Þórsmörk og _ einnig Land-
mannalaugar. í Öræfasveitina
fóru ýmsir ferðahópar, um
240—250 manns 1 um 20 bíl-
um, allt frá litlum Weeponum
upp í stóra langferðabíla.
Ferðafélag fslands fór í Þórs-
mörk, 41 maður á fimmtudag
og 16 á laugardag, og nokkrir
Farfuglar fóru í Landmanna-
laugar. Luku allir upp einum
I sólskini og logni í
Þórsmðrk og Öræfum
i
munni um, að ferðin hefði ver
ið yndael og veður dásamlegt.
Birtum við nokkrar myndir
úr þessum ferðum hér með.
— Við höifðum líklega bezta
veðrið í Þórsmörkinni, sagði
Óttar Kjartansson, einn af
fararstjórum Ferðafélagsins.
Það var alltaf logn og tiltölu-
lega hlýtt. Þegar við komum
inn eftir á Skírdag, var alauð
jörð, en þá byrjaði lognmjöll
á frosna jörðina, sem sól-
in næstum bræddi jafn-
óðum af. Á páskadag var
glampandi sól allan daginn og
gat fólkið sólað sig inni í Bás-
um. Allan dagana var farið í
lengri og skem-mri göngur í
dásamlegu veðri. Leiðin inn
eftir var einnig mjög greið-
fær, lítið í öllum ám og eng-
ar skarir eða ís til að tefja,
og jörðin hörð og þægileg und-
ir hjólin.
Farfuglum gekik ljómandi
Úr Þórsmörkinni: I fyrstu gönguferffinni á skírdag fór sólin aff sýna sig, fötum var fækkaff og
solgleraugu og sóláburður tekinn í notkun. Myndina tók Óttar Kjartanssou á Slyppugils-
hrygg. 1 baksýn eru Básar og Útigönguhöfði.
vandamálið var sandbilur á
Mýrdalssandi á leiðinni aust-
ur, sem skrapaði lakk af sum-
um bílunum.
— Þetta gektk allt vel, sagði
Guðmundur Jónasson. Einn
sem fengið 'hefur að fljóta með
á eigin bíl í morg ár, sagði
að ekkert væri gaman að
þessu, það hefði ekkert ver-
ið í ánum. Og reyndar vorum
við ekki nema 2 tíma frá
Skaftafelli út yfir vötnin að
Núpstað. Við gistum á Kirkju
bæjarklaustri og Hofi í Öræf-
um og fórum eins og venju'-
lega að upptökum Skeiðarár
og einnig austur að Jökulsá
á Breiðamerkursandi. Fólkið
gekk á fjörurnar, þar sem er
mikið af sel. Við höfðum sól-
skin í Skaftafelli á páskadag
og Hvannadalshnjúk heiðan,
svo allt var eins og bezt varð
á kosið.
— Þetta er bezta Öræfa-
ferðin, sem ég hef farið, sagði
Úlfar Jacobsen. Við fórum í
Ingólfshöfða. Þaðan var fag-
urt útsýni, sást inn á Öræfa-
jökul, inn alla Suðursveit í
Hornafjörð og á Lómagnúp,
því höfðinn er svo hár. Við
gistum hjá Gunnari í Öræfum
og fólk skemmti sér vel á
Klaustri í bakaleiðinni.
Vötnin voru enginn farar-
tálmi. En það var mjög hált
við brúna á Hólsá, þurfti næst
um að láta bílana renna á
svelli niður að þessari óþægi-
legu brú. Eins vorum við svo
óheppnir að fá hríð í skarð-
inu ofan við Vík, lentum á
eftir Víkurrútunum, sem voru
orðnar fastar í snjó og tafði
það nokkuð. En allir voru
mjög ánægðir með ferðina.
1 Landmannalaugum, Farfuglar viff
páskum. — Ljósm. Ragnar Guðmundsson.
Ferðafélagsins á
vel í Landmannalaugar. Leið-
in var snjólaus og ágætlega
fær, að því er Ragnar Guð-
mundsson tjáði blaðinu. Fxosta
staðahálsinn var að vísu ófær,
en greiðfært um Jarðfallið.
Veður var alveg ágætt.
Hjá Öræfum var úrvals veð-
ur, heiðskírt og fjallasýn og
5—6 stiga hiji. í hópnum voru
um 130 manna ílokkur Guð-
mundar Jónassonar, ferðahóp-
ur með Úlfari Jacobsen, Borg-
firðingar í tveimur bílum og
fjöldi einkabíla, sem fékk að
fljóta með yfir árnar. Einasta
Þaff er fagurt í Þórsmörklnni. Myndin tekin á páskadag og Öræfafarar fóru m. a. á Ingólfshöfffa, en þaðan er gott útsýni.
sýnir Bólfell í Básum------Ljósm. Óttar Kjartansson. — Þessa mynd tók Egill Bachman úr vitanum'út á höfðann.
STAKSTIINAR
Auðvelt val
Sjaldan effa aldrei hefur veriö
auffveldara fyrir íslenzka kjós-
endur aff gera upp hug sinn, þeg-
ar kosningar nálguðust, en ein-
mitt nú. Tvær meginfylkingar
berjast nú i islenzkum stjórn--
málum. Annars vegar eru viff-
reisnarflokkarnir, sem lýsa því
yfir, aff þeir muni halda við-
reisninni áfram, auka fram-
leiðslu og framfarir og bæta þar
meff lífsLjör þjóðarinnar jafnt
og þétt, og þeim mun örar sem
viffreisnin verffur traustari. Hins
vegar eru svo framsóknarmenn
og kommúnistar, sem lýsa því
yfir, að þeirra meginmarkmið
sé að koma hér á aff nýju stefnu
hafta, þvingana og uppbóta, sem
verst léku íslenzku þjóffina og
drógu úr framförum hér á landi.
Heilbrigð
utanríkisstefiia
í utanríkismálum er Iíka —
því miffur — djúp stafffest milli
viffreisnarflokkanna annars veg-
ar og Framsóknarflokksins hins
vegar. Um kommúnista þarf ekki
aff tala í þessu efni. Það vita
aliir, aff þeir hafa enga sjálf-
stæða utanríkisstefnu, heldur
þjóna þeir málstaff Rússa i einu
og öllu. En Framsóknarflokkur-
inn hefur freistast • til þess aff
rjúfa samstarfiff viff hina lýff-
ræffisflokkana, sem honum hef-
ur þó veriff boðið í afstöðu til
annarra þjóða.
Framkomu sinni í Efnahags-
bandalagsmálinu lýsa núverandi
leiðtogar Framsóknarflokksins
bezt, þegar þeir líkja henni viff
afstöðuna í landhelgismálinu og
segja um leiff, aff viffreisnarflokk
arnir ætli aff fara aff líkt og
þeir þá gerffu. Þaff er einmitt
mergurinn málsins, aff núverandi
stjórnarflokkar munu halda á
utanríkismálum á þann veg, sem
þeir gerffu í landhelgismálinu, og
leysa bæffi deilu- og hagsmuna-
mál íslendinga öfgalaust á þann
veg sem þjóffinni er fyrir beztu,
en ekki láta „komplexa“, minni-
máttarkennd og þjóðarrembing
ráða gerðum sínum.
Öll góð öfl í veröldinni vinna
aff því aff laffa þjóðirnar til sam-
starfs og gagnkvæny* skilnings
og virðingar fyrir þjófflegum
verffmætum og rétti jafnt smárra
sem stórra til aff lifa frjálsu og
óháðu lifi. Þessa stefnu hljóta
íslendingar aff styffja. En Fram-
sóknarflokkurinn hefur veriff
svo ógæfusamur að skera sig
þar út úr. Þess vegna nýtur hann
enn síffur trausts landsmanna í
utanríkismálum en innanlands-
málum.
Hólið.um vinstri-stjómina
Menn hafa ef til vill ekki veitt
því athygli, aff af þeim þremur
stjórmuilaflokkum, sem stóðu
aff vinstri-stjórninni, er affeins
einn, sem sýknt og heilagt hælir
henni og telur hana hafa veriff
beztu stjórn, sem hér á landi
hefur setiff viff völd. Alþýffu-
flokksmenn, sem gjörkunnugir
voru störfum stjórnarinnar vegna
þátttöku í henni, hafa lýst þar
inörgu misjöfnu. Kommunistar
hafa yfirleitt hljótt um störf
stjórnarinnar, vegna þess aff þeir
gera sér grein fyrir því, aff eymd
hennar var svo mikil, að ekki
er vænlegt til árangurs aff vera
stöffugt að minna á þá niðurlæg-
ingu. , Framsóknarleiðtogarnir
voru hins vegar svo hrifnir af
því aff fá aff starfa meff komm-
únistum, aff þeir geta naumast
um annað rætt. 1 hvert sinn, sem
tækifæri gefst minnast þeir á
vinstri-stjórnina og eru stöffugt
að stönglast á því, að þeir ætii
aftur aff taka upp það stjórnar-
far, sem þá var.