Morgunblaðið - 18.04.1963, Side 6
6
MORCV1SBLAÐ1Ð
Fimmtudagur 18. aprH 1963
Jój . Gaufti:
Fyrri hlufti
Hugleiðingar um tækni-
skdla á íslandi
framhaldsnámi I forskóla tækni-
háskólans danska, geta ungling-
ar tekið inntökupróf þar“. Gæti
komið til greina að Háskóli
íslands gerðist svo alþýðleg-
ur gagnvart verkfræðinemum?
Ég hef orðið nokkuð langorð-
ur um erlenda tækniskóla, en
hefi þá afsökun að ýmsir hafa
f TILEFNI þess að fyrir Al-
þingi liggur nú frumvarp um
tækniskóla á íslandi, tel ég að
ekki sé úr vegi að frumvarp
þetta, — sem er meingallað að
formi og hugsun, — sé tekið til
athugunar víðar en innan veggja
hins háa Alþingis.
XJm tæknimenntun á Islandi
hefir lítið verið rætt eða ritað,
því flestir sem um þessi mál
hafa hugsað og reynslu hafa að
baki, til að gera sér mynd af
núverandi aðstæðum, — hafa
talið að ekki væri tímabært að
stofna hér æðri tekniskan skóla
vegna smæðar okkar öðru megin
og fjárfrekra framkvæmda
vegna stofnunar slíks skóla
hinu megin. Þó hefir einn mað-
ur rætt þessi mál af glöggu
raunsæi, en það er Ásgeir Þor-
steinsson verkfræðingur.
Greinar hans hafa þó mest
gengið út á undirbúningsmennt-
un ungra manna fyrir æðra
tækninám.
Þetta mál er mjög á dagskrá
í hinum háþróuðu Norðurlönd-
um og Þýzkalandi, en hér á ís-
landi hefur í stað raunsærra
umræðna — staðið yfir eins kon-
ar „kalt stríð“ á milli hinna
tveggja tæknimenntuðu hópa:
verkfræðinga og tæknifræðinga.
Hófst það með álíka meingöll-
uðu frumvarpi á sína vísu —
sem núverandi frumvarp um
tækniskóla á íslandi er, — og
varð að lögum 1937. Það tók
háttvirt Alþingi yfir tvo áratugi
að bæta að nokkru fyrir þá
skyssu með lögum frá yfirstand-
andi Alþingi, en „kalda stríðið“
heldur áfram.
Eins og áður getur eru þessi
mál mjög á dagskrá, t.d. í Dan-
mörku og Þýzkalandi. Athyglis-
vert er að þessar tvær þjóðir
(sem segja má að séuforustuþjóð
ir um tæknimenntun í Evrópu),
komast að sömu niðurstöðu í
samanburði á tæknimenntuðum
mönnum frá æðri tekniskum
skólum og tækniháskólum.
„Deutsche Kommission fúr
Ingenieurausbildung“, kemst að
þeirri niðurstöðu á fjórða alls-
herjarþingi nefndarinnar í
Dússeldorf þann 4. okt. 1962 að:
„Tæknifræðingar og verkfræð-
ingar, sem vinna að margvísleg-
um verkefnum í vísindum, at-
vinnulífi og stjórn fyrirtækja,
hljóta í Þýzkalandi menntun
sína í verkfræðiskólum (Techn-
ische Hochschule) og tækni-
fræðiskólum (Ingenieurschule
eða Höhere technische Lehran-
stalten). Verkfróðir mexm, sem
hafa fengið menntun sína í skól-
um hvorrar tegundar sem er,
hafa í grundvallaratriðum jafna
möguleika til starfa og til að
komast áfram í starfi“.
Síðan danska „Teknikerkom
missionen“ gaf út athuganir sín-
ar í lok ársins 1959, hefir tækni-
fræðslukerfi Danmerkur verið
efst á baugi“ og mikið um þau
mál rætt og ritað, og virðist
málið nú komið í hendur 17
manna nefndar sem hefir til at-
hugunar framkomnar tillögur og
ábendingar varðandi tækni-
fræðslukerfið danska í heild.
Væri það freistandi að gera
þeim málum nokkur skil hér,
en þar sem það yrði of langt
mál í smá grein, verður það að
bíða betri tíma, en taka í þess
stað nokkra liði úr grein eftir
V. Nörgaard Nielsen, er hann
hefur ritað í tímaritið Ingeniörog
bygningsvæsen, 1. hefti 1963. 58.
árg. Grein hans nefnist „Ingeni-
öruddannelse 1 Tidehverv eller
hvad?“
' I grein hans kemur fram, að
frá öllum hliðum séð, leiði sam-
anburður í ljós að viðurkenna
verður að verkfræðimenntun
(Civilingeniör-menntun) og
tæknifræðimenntun (Ingeniör-
menntun) séu jafnar að gæðum
og jafn ómissandi. I þessu sam-
bandi segir hann, að ekki sé úr
vegi að gera samanburð á
kennslustunda og æfingastunda
fjölda á 3 flokkum tæknimennt-
aðra manna, en það eru: Civil-
ingeniörer, Akademiingenitörer
og Teknikumingenitörer. Þessi
samanburður er frá dönsku
teknikerkommissionen.
Samanburðurinn lítur þannig
út:
Háskólaverkfræði Akademiverkfræði Tæknifræði
Civilingeniörer (nýleg tilraun) Teknikumingeniörer
Fyrri hluti Bygg. Raf. Véla Bygg. Raf. Véla Bygg. Raf. Véla
stundir 1648 Siðari hluti 1606 1606 1314 1221 1122 1760 1760 1760
stundir Alls 2933 2462 2674 2368 2415 2310 3560 3520 3520
stundir 4581 4068 4280 3682 3636 3432 5280 5280 5280
F. hl. % 93,6 91,3 91,3 74,7 69,4 63,8 100 100 100
S hl. % 83,3 69,9 76,0 67,3 68,6 65,6 100 100 100
Alls % 86,8 77,1 81,1 69,7 68,9 65,0 100 100 100
Það sem þessi samanburður
leiðir í ljós, mun verða mörgum
nokkurt undrunarefni.
Þessar tölur einar saman eru
auðvitað ekki beinn samanburð-
ur um sjálft námið. í Danmörku
er krafizt góðs gagnfræðaprófs,
eða hliðstæðrar menntunar og
sveinsprófs í handverksiðn (í
flestum tilfellum) er veiti nauð-
synlega verkþekkingu í hlið-
stæðri grein tæknifræðinámsins
áður en það hefst, eða ef nægi-
legt bóklegt nám er ekki fyrir
hendi verða viðkomandi Teknik-
umnemendur að fara í forskóla
sem veitir þá nauðsynlegu und-
irbúningsmenntun sem skólinn
krefst til tæknifræðinámsins.
f Þýzkalandi er yfirleitt kraf-
izt Ober.-Sek.-Reife (samsvar-
andi 4. bekk menntaskóla) eða
hliðstæðrar menntunar í for-
skóla.
Vekja má athygli á því, að t.d.
tækniháskólinn í Kaupmanna-
höfn krefst ekki stúdentsprófs
til verkfræðináms þar, samanber
grein Ásgeirs Þorsteinssonar
verkfræðings í Morgunblaðinu
31. jan. 1963, en þar segir hann:
„I Danmörku er gagnfræðapróf
þess eðlis, að með eins vetrar
viljað láta I það skína að ís-
lenzkir tæknifræðingar (Ingeni-
örer), séu hálfgerðir „punga-
prófsmenn“ í tæknifræðum. Er
ekki örgrannt að það hvarfli að
manni að hinir ágætu aðstand-
endur frumvarpsins um tækni-
skóla á íslandi, hafi þessa
„pungapró fshugsun", ef dæma
má eftir frumvarpinu og grein-
argerðinni er því fylgir.
Nafnið „rektor“ bendir þó til,
að þetta eigi að vera nokkuð
virðulegur „pungaprófsskóli".
Námstíminn er 3 ár
„Námstíminn í skólanum er 3
ár“, segir í 5. gr. frumvarpsins.
Þessi árafjöldi er settur í frum-
varpið líklega vegna þess að er-
lendis eru tæknifræðiskólar
(Teknikumingeniörskoler) taldir
þriggja ára skólar eða sex sem-
ester. En ef gerður er saman-
burður á íslenzku námsári og t.d.
námsári á dönskum tæknifræði-
skólum, þá kemur í ljós að í ís-
lenzku námsári eru um 140 til
150 aktivir kennsludagar, en í
dönsku tæknifræðinámsári eru
240 aiktivir kennsludagar. Sam-
kvæmt þessu, ef ná ætti sama
námsárangri hér og í dönskum
tæknifræðiskólum, þá þyrfti £s-
lenzki skólinn að vera nálægt
því 5 ára skóli.
Hér er þó miðað við það að
Tækniskóli Islands veiti tækni-
fræðimenntun. En því miður
kemur ekki fram í frumvarpinu
hvaða tæknimenntur. verðandi
skóli á að veita að öðru en því,
að í 1. gr. frumvarpsins stendur:
„Markmið skólans er að veita
nemendum tæknilega og al-
menna menntun, sem gerir þá
hæfa til að takast sjálfstætt á
hendur tæknileg störf og ábyrgð
arstöður í þágu atvinnuvega
þjóðarinnar.“
Þetta segir manni vissulega
ekkert um, hvaða stig tækni-
menntunar skólinn á að veita.
I greinargerð með frumvarp-
inu segja hinir ágætu aðstand-
endur þess, að eftir þetta þriggja
ára nám eigi skólinn að hafa
veitt nemendum sínum „fræði-
legan skilning og þekkingu á al-
mennum undirstöðulögmálum
tækninnar.“
Segir þetta manni nokkuð
méira en það er segir um mark-
mið í 1. gr. frumvarpsins? Ég
held ekki, og ég verð að segja
að ég hefi borið þessa merki-
legu setningu undir lærða og
leika en hvergi fengið svar við
því hvað þeir muni í raun og
veru meina, hinir ágætu að-
standendur frumvarpsins.
Enn segir í greinargerð:
„Nefndin hefur m.a. kannað
tæknifræðslukerfi á hinum Norð
urlöndunum og telur að þeir
fræðsluhættir, sem bezt hæfa
okkur sem fyrirmynd á þessu
sviði sé norska fræðslukerfið. .“
Þetta kemur manni nokkuð
spánskt fyrir, þar sem Norð-
menn hafa verið mest í deiglunni
á þessu sviði. Árið 1961 fóru
þeir að ræða breytingar á sínu
tæknifræðslukerfi, því þeim var
Ijóst að þeir voru t. d. nokkuð
á eftir Dönum og Svíum, og að
þeirra tæknifræðslukerfi sam-
svaraði á engan hátt hinni blóm
legu iðnþróun þeirra.
Framth. á bls. 15.
• Útvarpið um páskana
Þriðjudaginn eftir páska
hafði Velvakandi bókstaflega
ekki frið fyrir fólki, sem vildi
tala við hann um útvarpið um
páskana. Sumir vildu hæla ein-
stölkum dagskrárliðum, en þetta
lá fólikinu aðallega á hjarta:
Þegar hið hörmulega flug-
slys varð í Noregi, var þegar
getið um það í kvöldfréttum
á páskadag. Hvorki var leikið
sorgarlag á undan né eftir, held
ur kom fréttin innan um alla
þvæluna um hitastigið kl. þetta
og kl. hitt í Stoktahólmi, Paris
og Angmagssalik. Áður fyrri
þótti hlýða að leika sorgarlag,
þegar sli'kar fréfctir voru sagð-
ar, og enn er íslenzika þjóðin
svo fámenn, að slílk harmafregn
snertir hana alla.
Fréttin var eingöngu lesin kl.
hálfátta um kvöldið, en ekki
aftur það kvöld. Á annan dag
páska var fréttin aldrei lesin'
hvorki um morguninn, í há-
deginu, um miðjan dag, kvöld-
mafcarleytið eða kvöldið. Það
var því ekki nema lítill hluti
þjóðarinnar, sem heyrði frébt-
ina í úbvarpinu. Fréfctin barst
þó óðfluga út, fólk hringdi
hvert til annars og spurði,
hvort það hefði hlustað á út-
varpið, þegar umrædd frétt
var lesin. Það höfðu sumir, en
aðrir ekki. Þetta gaf því alls
konar sögum byr undir báða
vængi. Allir hlustuðu árangurs-
laust allan annan dag páska
eftir að þeyra fréttina lesna.
Hins vegar féíkk þjóðin svo
ráekilega að fylgjast með ein-
hverri kröfugöingu úti í Eng-
landi, að engu var líkara en
íslendingar stæðu að hennL
Kvölds og morgna, sfcundum
fimrn sinnum á dag, var sskýrt
ýtarlega frá þessari göngu, og
ekki sízt frá ferðalagi nokk-
urra manna, sem fóru frá Eng-
landi til Þýzkalands tii þess að
taka þar þátt í pólitóskri kröfu-
göngu. Að sjálfsögðu var fólki
þessu vísað aftur til Englands,
enda tíðkast hvergi í heiminum,
að flokkar manna taki sig upp
úr einu landi og heimsæki ann-
að, til þess að ganga með á-
róðursspjöld og pólitisk kröfu-
skilti um göfcur. Æbli lögreglu-
stjórinn í Reykjavik hefði t.d.
leyft brezkum sjómönnum að
fljúga hingað um páskana, þeg-
ar við áttum í deilum við þá
um fiskveiðilögsöguna, og
ganga um stræti borgarinnar
með áróðursspjöld? Svo ná-
kvæmlega var skýrt frá flakki
þessa pólifcíska utangarðsfólks
til Þýzkalands, að engu var lik-
ara, en þar færu útsend£u-ar
fréttastofu útvarpsins, sem
vildu leika píslarvotfca erlend-
is. Auðvitað vissu allir, að
þessu fólki yrði snúið heim til
föðurhúsanna. Þetta vissi fólk-
ið sjálft, en það hefur langað
til þess að öðlasf brot af pislar-
vættisgloríu, — og hér á Is-
landi fékk það sannarlega
hjálp til þess.
Þetta hrapaláega ósamræmi 1
fréfctaflutningi vakti afchygli
almennings, og það, sem hér er
sagt að framan, er inntak
bréfa til Velvakanda og við-
tala við hann.
• Tapaði böggli
og peningum
í gær hringdi til okkar kona
og bað okkur að koma því á
fíamfæri að dóttir hennar ung
hefði í fyrradag farið ofan I
bæ til þess m.a. að kaupa sér
sokkabuxur. Litla telpan lauk
erindum sínum og fór m. a. í
pósthúsið. Á leiðinni þaðan út
á torg, þar sem hún ætlaði að
ta-ka strætisvagn heim, varð
hún þess vör að hún hafði
glatað sokkabuxunum úr böggia
neti, sem hún hafði þær í, en
bréfið utan af þeim var eftir
í netinu. Fór hún nú að leita,
en fann ekki buxurnar. Meðan
á því stóð tapaði hún i>eninga-
buddunni sinni með 70 kr. í,
sem var afgangur eftir inn-
kaupin. Litla telpan er alveg
eyðilögð yfir þessu tjóni og
bað okkur að biðja skilvísan
finnanda að hafa samband við
Velvakanda. Þótt við alla jafn-
an séum ekki mil.ligöngumenn
um mál sem þessi viljum við
verða við þessari bón hennar.
AEG
Heimiíistæki
tJtsöiustaðir í Reykjavík:
HÚSPRÝÐI
Laugavegi 176. — Sími 20440.
JÚLlUS BJÖRNSSON
Austurstræti 12. Sími 22475.
BRÆÐURNIR ORMSSON
Vesturgötu 3. — Sími 11467.