Morgunblaðið - 18.04.1963, Síða 10
10
MORCVHBL AÐIÐ
FimmtUdagur 18. apríl 1965
Biskupshjónin lentu íhrakningum
í kirkjuvígsluferð til Vestfjarða
BISKUPINN yfir íslandi,
lierra Sigurbjöm Einarsson,
og biskupsfrú Magnea Þor-
kelsdóttir, fóru erfiða embætt
isferð vestur á Súðavík um
páskana, þar sem biskup
vígði nýja kirkju. Lentu þau
1 hrakningum á sjó, landi og
í lofti vegna veðurs, en lentu
heilu og höldnu í Reykjavík
kl. 4.30 í gærmorgun og miðað
við aðstæður hafði allt gengið
vel, eins og biskup orðaði það
4 viðtali við Mbl. Hann
skýrði blaðinu nánar frá ferð-
inni.
Biskupshjónin lögðu af stað
með varðskipinu Óðni á mið-
vikudag. Þau hrepptu slæmt
veður vestur, mikinn mótvind
og mikið frost, svo skipið var
sólarhring á leiðinni. Stöðug
ágjöf var og hlóðst mikill
klaki á skipið, svo það fór
inn til Patreksfjarðar og lá
það í nokkra tíma meðan
höggvinn var af klaki. — Ég
er sjóhraustur, og hefi gaman
að koma á, sagði biskup, og
konan mín, sem var eini kven
maðufinn um borð, stóð sig
ágætlega.
Á skírdagskvöld var komið
til ísafjarðar, en þann dag
hafði kirkjuvígslan upphaf-
lega verið fyrirhuguð. En
vegna seinkunar skipsins og
einnig þar eð veður var slæmt
og vegir ófærir, varð að fresta
því. Á föstudaginn langa voru
vegir ófærir og blindhríð á
Isafirði og beðið átekta. —
Seinni hluta dags fór svo ýta
til að hreinsa veginn til
Súðavíkur og áætlað að það
tæki 6—7 tíma. Þegar talið
var að ýtan væri komin lang-
leiðina, lagði bíll af stað með
'biskupshjónin. En snjórinn
var það miklu meiri en talið
var, að ýtan var aðpins komin
hálfa leið er biskupsbíllinn
náði henni og ók síðan í kjöl-
far hennar á leiðarenda. Tók
rúma 4 tíma að komast þessa
20 km leið.
Ákveðið hafði verið að
vígja kirkjuna á laugardag,
en veður var enn svö slæmt
að því var frestað til kl. 5 á
páskadag. Var fjölmenni við-
statt. Fólk kom úr byggðinni,
en aðkomufólk frá ísafirði og
Bolungarvík varð að hætta
við að koma.
— Vigslan fór eðlilega fram
og var athöfnin mjög hátíð-
leg, sagði biskup. Á eftir var
samsæti sem kvenfélagið á
staðnum gekkst fyrir. Kirkj-
an er vistlegt og fallegt hús.
1 henni eru viðir úr Hesteyrar
kirkju, — hún reyndist svo
fúin þegar til kom, að alger-
lega varð að endurnýja hana.
Fólkið á staðnum hefur verið
mjög samstillt og áhugasamt
um að koma kirkjunni upp og
lagt á sig mikla vinnu. Fjöld-
inn hefur staðið um þetta,
ungir og gamlir, konur og
karlar. Kirkjan er sérlega vel
'búin munum. Hafa margir
gefið henni góða gripi, m. a.
hefur Grímur Jónsson frá
Súðavík gefið ákaflega verð-
mæta og fagra muni til kirkj-
unnar.
Vígsluvottar voru héraðs-
prófastur sr. Sigurður
Kristjánsson, sr. Bernharður
Guðmundsson sóknarprestur,
frú Hallfríður Sveinsdóttir
og Arndís Ragnarsdóttir, sem
er 16 ára, en hún er form.
æskulýðsfélags kirkjunnar.
Á annan páskadag fermdi
sóknarpresturinn, sr. Bern-
harður Guðmundsson, 7 börn
í kirkjunni. Seinni hluta dags
fóru biskupshjónin frá Súða-
vík- og ætluðu að fijúga frá
Hin nýja kirkja í Súðavik.
Biskupinn vígir Súðavíkurkirkju
ísafirði. Er þangað kom frétt-
ist að ferð Flugfélagsins
mundi falla niður og var feng
in flugvél frá Birni Pálssyni
til að koma, enda biðu fleiri
farþegar.
Um 5 leytið var flogið af
stað í björtu og góðu veðri,
en er til Reykjavíkur kom,
var ólendandi þar. Var snúið
við og lent í Stykkishólmi.
Þar var enn heiðskírt, en
hríðarveðrið á leiðinni norður
Þaðan héldu biskupshjónin
svo í bíl kl. 8.30 og lentu í
hríðinni í Borgarfirðinum.
Var hún svo dimm að tölu-
vert erfitt var að halda vegin-
um og komu þau heim kl.
4.30 um morguninn. — Þetta
var að sjálfsögðu nokkuð erf-
ið ferð vegna veðurs, sagði
biskup að lokum, en gekk
ágætlega.
Peníngalán
Get lánað 150—250 þús. kr. til ca. 10 ára gegn ör-
uggu fasteignaveði. Þéir, sem hafa áhuga á þessu
leggi nöfn, heimilisfang og nánari uppl. um veð
inn á afgr. Mbl. merkt: „Lán — 6794“ fyrir n.k.
föstudagskvöld.
Sníöadama
óskast strax eða frá 1. júní. Tilboð merkt: „Sníða-
dama — 6793“ sendist afgr. Mbl. fyrir 20. þ.m.
Nemi óskast
LITHOPRENT HF.
Lindargötu 46 — Sími 15210.
Afgreiðslustörf
Afgreiðslumann eða stúlku vantar nú þegar. Uppl.
í Verzlun Axels Sigurgeirssonar, Barmahlíð 8. —
Upplýsingar ekki í síma.
Profil
kross-
viður.
Vandað-
asta og
ódýr-
asta
vegg-
klæðií-
ing.
Páll Þorgeirsson
Laugavegi 22. — Sími 16412.
Miirari og verka-
menn
óskast strax, mikil vinna. —
Upplýsingar í síma 34892
milli 12—1 og eftir kl. 7.
77/ leigu á mjög
gódum stað
2 herbergja ibúð með baði
gegn húshjálp á fámennu
heimili. Tilboð merkt: „880 —
6825“, sendist afgr. blaðsins
fyrir 25. þ. m.
ÁRNI GUDJ0NSS0N
HÆSTARÉTTARL.ÖGMAÐOR '
GAHÐASTRÆTI 17
VILHJÁLMUR ÁRNAS0N hrL
TÓMAS ÁRNASON hdl.
LÖGFRÆÐISKRIFSTOFA
lónaðarbankahúsinu. Símar Z463S og 16367
Afgreiðslufólk
Viljum ráða nú þegar duglega stúlku og karlmann
til afgreiðslustarfa. Nánari upplýsingar í skrifstof-
unni Skúlagötu 20.
Sláturfélag Suðurlands.
Frystihúsvinna
Viljum ráða nú þegar nokkra duglega menn til
vinnu í frystihúsi okkar að Skúlagötu 20. Nánari
upplýsingar í skrifstofunni.
Sláturfélags Suðurlands, Skúlagötu 20.
Töskur og hanzkar
Útlendar kventöskur. — Mikið úrval.
2—4 af gerð. — Nýjasta tízka.
Töskur með axlaól fyrir telpur.
Tösku - og hanzkabúÖin
við Skólavörðustíg.