Morgunblaðið - 18.04.1963, Side 15
Fimmtudagur 18. apríl 1963
MORCVNBLAÐIÐ
15
Qr &%%%%%%%%% %
Ingi R. Jóhannsson
skákmeistari íslands
UM PÁSKAHELGINA 1 a u k
Skákþingi íslands 1963. Þetta
var hið veglegasta mót, þó að
við söknuðum margra af beztu
skákmönnum landsins. Úrslit í
iandsliðsflokki, en þar er teflt
tim íslandsmeistaratitilinn, urðu
sem hér segir:
1. Ingi R. Jóhannsson 9.
2. Jón Kristinsson 8',4.
3. Magnús Sólmundsson 7.
4.—6. Benóný Bencdiktsson
Jónas Þorvaldsson
Freysteinn Þorbergss. 6.
7. Helji Ólafsson 5*4.
8.—10. Björn Þorsteinsson
Jón Hálfdánarson
Bragi Kristjánsson 4.
12. Bragi Björnsson / 2.
Endanlég úrslit í öðrum flokk-
um hefur þátturinn ekki fengið
ennþá. Keppnin í landsliðsflokki
var einkum spennandi um 4. sæt-
5ð eins og sjá má á ofangreindri
talningu, en þeir þremenningarn-
Ir verða að heyja nýja keppni til
þess að skera úr um hver hlýtur
fjórða sætið, en það er síðasta
sætið í landsliðinu í ár.
Hér kemur svo stutt og
skemmtileg skák úr fyrstu um-
ferð mótsins.
Hvítt: Bragi Kristjánsson
Svart: Ingi R. Jóhannsson
Pirc-Ufemsw-vöm
1. e4, d6; 2. d4, g6; 3. Rc3, Bg7;
4. Be2, Rc6; Leikið 1 tilrauna-
skyni. Venjulega er leikið hér
4. — Rf6, eða jafnvel e5. Ef
hvitur léki nú 5. d5 þá 5. — Rb8
ásamt c7—c6 og Rf6. f>. Be3, Rf6;
6. h4 hvítur hyggst á kóngssókn.
Róiegra áframhald var 6. h3
ásamt Rf3 og 0-0. 6. — h5;
7. f3 0-0; 8. Dd2, e5; 9. d5.
Til greina kom 9. dxe5. 9. — Rd4!
Kjarninn í áætlun svarts. Eftir
10. Bxd4, exd4; 11. Dxd4, Rg4;
12. Dd2, Bh6; hefur svartur feng-
5ð frjálsa stöðu með sóknar-
möguleikum fyrir peð. 10. Bc4,
e5; 11. dxc6 Hæpinn leikur, sem
gefur svarti frjálsar hendur.
Betra var 11. Rdl, sem svartur
myndi svara með Bd7. 11. — bxc6
12. 0-0-0. Ekki 12. Bxd4, exd4;
13. Dxd4, Rxe4!; 14. Dxe4, He8;
12. — d5; 13. Bb3, dxe4. Hér var
13. — Rxb3; axb3, d4 jafnvel
Bflugra. 14. fxe4. öllu skárra var
14. Rxe4, en svartur getur á
margvíslegan hátt náð betra
tafli, t. d. með Rd5 eða Rxe4.
14. — Rg4; 15. Bg5 Tapar skipta-
mun. 15. — Rxb3; 16. cxb3,
Dxd2f gefið. Eftir 17. Hxd2, f6;
Eða 17. Bxd2, Rf2 og vinnur létt.
IRJóh.
— HugleiBingar
Framh. af bls. 6.
Forskóli
í 11. gr. frumvarpsins segir:
„Við skólann skal starfrækt
undirbúningsdeild. Hlutverk
deildarinnar er að búa þá nem-
endur, sem hafa nægilega verk-
lega þjálfun undir nám í tækni-
skólanum, með kennslu í undir-
stöðuatriðum (ekki undirstöðu-
lögmálum?) tækninnar, svo sem
stærðfræði og eðlisfræði.
í 12. gr. frumvarpsins segir:
„Inngöngu í undirbúningsdeild-
ina geta þeir nemendur fengið,
sem lokið hafa prófi frá iðn-
skóla. Ennfremur geta feng-
ið inngöngu í undirbúningsdeild
ina þeir, sem lokið hafa mið-
skólaprófi og hafa hlotið nægi-
lega verklega þjálfun...."
Hvað meina nú hinir ágætu
aðstandendur frumvarpsins með
12. gr.? Skilyrði fyrir inngöngu
í iðnskóla er miðskólapróf. Eftir
miðskólapróf er svo 4. bekkja
nám í iðnskóla ásamt 4. ára
námi í verklegri iðn. Á að taka
það svo að iðnskólanámið sé
ekki metið að neinu? Æ, nei svo
slæmt held ég að það sé nú ekki,
heldur tel ég hitt öllu líklegra
að frumvarpið sé flýtisverk.
Bíll ■ Skuldabréf
Ford Consul ’55, ekinn 56 þús.
km til sölu og synis í dag.
Bílinn má greiða með veð-
skuldabréfi.
BÍLASALINN
Viö Vitatorg
Simi 12500 — 24088.
Félagslíf
Skíðadeild K.R.
Innanfélagsmót í Svigi í
öllum flokkum, fer fram nk.
sunnudag.
Stjórnin.
Þróttarar, knattspyrnumenn
Æfing í kvöld kl. 7.00 á
Melavellinum fyrir meistara-,
1. og 2. flokk. Mjög áríðandi
að allir mæti. Takið með
ykkur nýja félaga.
Knattspyrnunefndin.
Somkomur
K.F.U.M.
Ad. fundur í kvöld kl. 8.30.
Séra Bjarni Jónsson vígslu-
biskup flytur erindi: „Helgi
Hálfdánarson sálmaskáld". —
Allir karlmenn velkomnir.
Stúkan Freyja nr. 218
Fundur í kvöld að Frí-
kirkjuvegi 11, kl. 8.30. —
Kosning og innsetning em-
bættismanna. Hagnefnd sér
um skemmtiatriði á fundin-
um. Kaffi eftir fund. Félagar
fjölmennið.
Æt.
Hjálpræðisherinn
í kvöld kl. 20.30: Almenn
samkoma. Kapt. Og frú Hþy-
land stjórna. Velkomin. —
Föstudag: Hjálparflokkurinn.
Fíladelfía
Almenn samkoma í kvöld
kl. 8.30. Gun-Britt Pálsson
talar og ungt fólk vitnar. —
Allir velkomnir.
----------í
Guðmundur
Helgason
Óðinsgötu 4
Fæddur 30. júní 1876.
Dáinn 7. apríl 1963.
Vinarkvejða frá Einari Þórðar-
syni frá Skeljabrekku.
Sælt er að kveðja í kyrrð og ró
þá kómin er sól af fjöllum
Hallast að bólstri, finna fró,
sem faðminn oss býður öllum,
og stýra í höfn með strengda kló
úr straumi og boðaföllum.
Þín hugsun var skýr og
höndin þín
var hagvirk í flestum greinum.
Því eru samsikipti þín og mín,
þökkuð í hugarleynum.
Sælt er að hjúpast í hinsta lín
og hafa ei brugðist neinum.
Eftir fjölmargra ára töf,
var óbreytt og söm þín kynning.
Þér fylgir sá geisli fram að gröf
þar felst engin bitur minning.
Ég held henni fram á hinnstu nöf
sem hugljúfum sigurvinning.
Heita blessun á beðinn þinn
breiði ég vinur góði.
Hjartans þakkir í síðsta sinn
sendi í þessu ljóði
Svo vefur þig að sér vorboðinn
og vermir þig geislaflóði.
(Höf. Guðrún Magnúsdóttir).
A.THUGIÐ !
að borio saman við útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglýsa
i Morgunblaðinu, en öðrum
blöðum.
Góðir gestir
NÚ um páskana komu frá
Noregi góðir gestir seirn munu
hafa samkomur á kvöldin í Frí-
kirkjunni frá 18.-30. þjn. og ef
til vill lengur.
Menn þessir eru: Cand theol.
Erling Moe, seim mörgum hér í
bæ er að góðu kunnur frá tjald-
samkomunum á Skólavörðuihæð
sumarið 1961. Hann er fyrirliði
og frumkvöðull ferðarinnar hing
að að þessu sinni. í för með
honum eru: Stud. theol. Gunnar
Bonsaksen, kunnur æskulýðsleið-
togi og píanóleikari, og Odd
Wannebo, ungur og efnilegur
söngvari, sem stundað hefur nám
í Vínarborg. Hann hefur komið
fraim í sjónvarpi og útvarpi í
Noregi í vetur. Einnig hefur
hann sungið inn á hljómplötur
og Ihaft sjálfstæða kirkjutón-
leika .
Þessir þrir menn hafa starf-
að saman um skeið og haldið
kristilegar samkomur í kirkj-
um og samkomuhúsum í Þránd-
heimi og víðar í Norður-Noregi
við mjög góða aðsókn.
Nú koma þessir menn hingað,
af eigin hvötum til þess að halda
•hér kristilegar samkomur.
Allir eru velkomnir á sam-
komur þeirra félaga.
ngi Ingimundarsoti
nálflutningur — lögfræðistöri
héraðsdómslögmaður
riarnargötu 30 — Sími 24753
GUSTAF A. SVEINSSON
hæstaréttarlögmaður
Simi 111 71.
Þórshamri við Templarasund
Félag
IsleiBzkra bifreiðaeigenda
Aðalfundur félagsins Verður haldinn í Skátaheim-
ilinu við Snorrabraut í kvöld (18. apríl) kl. 20,30.
DAGSKRÁ:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Athygli félagsmanna skal vakin á því, að endur-
skoðaðir reikningar félagsins liggja frammi í skrif-
stofunni Austurstræti 14.
Félagsstjórnin.
Atvinna
Vantar röskan mann til verksmiðjustarfa.
IMýja skóverksmiðjcini
* Bræðraborgarstíg 7.
VDNDUÐ II n
falleg.Uk
0DYR U II
Oiúiurpórjónsson &co
Jiaftkvytra'ti <+
l/IKAHl í þessari viku 56 síður
ÚRSLIT í FEGURÐARSAMKEPPNINNI.
Að undanförnu hafið þið séð myndir af stúlkunum, sem
komust i úrslit. Nú birtum við af þeim litmyndir til þess
að auðvelda samanburðinn og atkvæðaseðillinn fylgir með.
3 smásögur eru í blað-
inu — 2 framhalds-
sögur. — Verðlauna-
kvöld með Svavari
Gests og margt fleira.
MÁ BJÓÐA YÐUR GULL?
Vikan sendi mann út á götur Reykjavíkur og fól lionum
það verkefni að selja 10 þúsund króna virði í hreinu gulli
fyrir aðeins 100 krónur.
Á myndunum sjáið þið hvernig það gekk.
BJARNI RIDDARI.
Hann ólst upp austur í Selvogi og var ekki einu sinni læs,
þegar hann gifti sig. En það voru óvenjulegar töggur í hon
um og hann varð fyrsti íslenzki auðmaðurinn á síðari öld-
um, Jónas Guðmundsson, stýrimaður tók saman.
VIKAIU