Morgunblaðið - 18.04.1963, Blaðsíða 24
I
JS7A/0A/Æ,
/rfl
Jfeklu
Austurslrxti 14 /
Sínii 11687 l—
87. tbl. — Fimmtudagur 18. apríl 1963
sparið og
notið Sparrl
Enginn kostur að gefa neina
vísbendingu unv orsök slyssins
— segir Halle ofursti
Osló 17. apríl. Fréttaskeyti
frá NTB.
TVEIR sérfræðingar frá
brezku verksmiðjunum Vick-
ers Armstrong, sem framleiða
Viscountflugvélarnar komu til
Ósló í dag til að vera við-
staddir rannsókn sérfræðinga
nefndarinnar á tildrögum flug
slyssins á Neseyju.
Verksmiðjumar hafa sent
þessa tvo sérfræðinga af eig-
in hvötum án óska nefndar-
innar — en við tökum að sjálf
sögðu við allri þeirri hjálp
er okkur býðst, sagði formað-
ur nefndarinnar Gunnar Halle
ofursti við NTB í kvöld.
Halle ofursti sagði að nefnd
in einbeitti sér að því að leita
upplýsinga sem gætu leitt til
skýringa á slysinu og að skipu
leggja rannsókn á leifum vél-
arinnar. Á morgun verður
jarðýta fengin til að ná upp
þeim flugvélarhlutum, sem
grófust niður í hæðina, er vél-
in steyptist til jarðar.
Fyrrum flugmaður Visco-
unt-vélar hefir lýst yfir við
eitt Óslóarblaðanna að skurð
ur skrúfublaðanna gæti hafa
breytzt vegna tæknilegs galla
þannig að skrúfurnar hemluðu
í loftinu og þetta væri hugsan
leg orsök óhappsins. Gm þetta
segir Halle ofursti að skrúfu-
blöðin geti að sjálfsögðu snúizt
þannig að þau í raun og veru
hemli, en skurður skrúfublað
anna getur aðeins breytzt
þegar hjól flugvélarinnar
snerta flugbrautina.
Nefndin mun samt sem
áður taka til athugunar hvort
tæknilegur galli getur hafa
gert stillingarkerfi óvirkt.
Ennþá er starf rannsóknar-
nefndarinnar aðeins á rann-
sóknarstigi og þess er enginn
kostur að gefa neina vísbend-
ingu um hver getur verið or-
sök slyssins, segir formaður-
inn.
Þessi mynd sýnir glögglega hversu litlu hefur mátt muna.
Framstuðari jeppans nemur við afturhjól vörubifreiðarinn-
ar, en framrúða jeppans er brotin eftir vörubílspallinn.
Harður árekstur á
Hafnarfjardarvegi
UM hádegisbilið i gær varð harð-
ur árekstur á Hafnarfjarðarvegi,
FULLORÐINN maður fannst
klukkan 11.05 í gærmorgun lát-
inn í portinu vestan við Sænska
frystihúsið . ••
Hafði snjóað yfir manninn og
bendia allar líkur til að hann hafi
sofnað þarna og króknað.
Garðahreppur
Spilum í kvöld á Garðaholti.
Sjálfstæðisfélag Garða- og Bessa
staðahrepps.
Kommiínistar
gleyptn leiíor
Þjóðvarnnr
HH) eina, sem athygli vakti
í framsöguræðu kommúnista,
Karls Guðjónssonar, i út-
varpsumræðunum í gær-
kvöldi, var sú yfirlýsing, að
fyrr um daginn hefðu verið
undirritaðir samningar þess
’ efnis, að náðst hefði
„breið samstaða" meðal
vinstri manna í landinu, og
lögðu þá margir eyrun við. í
næstu setningu kom í ljós, að
öll „breiddin“ var sú, að Þjóð
vörn er gengin kommúnistum
á hönd, eins og Morgunblaðið
greindi frá í gær. Kvað hann
Þjóðvörn ekki verðk beinan
aðilja að kommúnistaflokkn-
um, en mundi þjóða fram með
honum á öllum listum og
skipa þar „ýmis sæti“. Brostu
þá sumir vorkunnsamlega.
í
Bílarnir þrír hver aftur af öðrum og
hreinsa götuna og útiloka eldhættu.
slökkviliðsbíllinn, sem kvaddur var á vettvang til að
Bátur sekkur
á Vopnaiirði
Tjón þar vegna óveðursins
VOPNAFIRÐI, 16. apríl.
f norðaustan-stórviðrinu, sem
gekk yfir landið s.l. þriðjudag,
gerði stórbrim hér á Vopnafirði,
sem olli bátaeigendum miklum
erfiðleikum og tjóni.
Einn tveggja tonna trillubátur
slitnaði upp og sökk, og mun
hann hafa brotnað í spón, því
að rekald sást á sjónum nokkru
síðar. Eigendur bátsins voru Al-
bert Ólafsson í Leiðarhöfn og
Ólafur Halldórsson í Glæsibæ í
Vopnafirði. Báturinn var óvá-
tryggður.
Aðrir bátaeigendur, sem ekki
höfðu legufæri fyrir báta sína,
vöktu yfir þeim í tvo sólarhringa
við bryggjuna, til þess að verja
þá skemmdum. Einnig voru hér
Tjón vegna veðurs
vestur í Staðursveit
HELLNUM, 12. apríl. — Norðan-
veðrið skall hér nr.jög skyndilega
á laust eftir hádegi á þriðjudag
og hélzt óslitið í þrjá sólarhringa.
Ein trilla hafði róið héðan á
þriðj udagsmorgun í blíðskapar-
veðri, en var lent fyrir versta
veðrið. Hámarki _náði veðrið á
fknmtud agskvöld. í vestanverðri
Staðarsveit gerði þá aftakaveður
og olli spjöllum á húsum. Þak
tók af íbúðarhiúsinu á Hólkoti.
Fjárhús og hlaða fauk í Böðvars-
holti. Þak fauk af fjárhúsum í
Kálfárvöllum og Vatnsholti, og
enn fremur tók járnplötur af hús-
þökum á Lýsuhóli og Hrauns-
múla. Á þessu svæði er nýbúið
að leggja háspennulínu, og
skekktust staurarnir mjög á
löngu svæði. Á nokkrum stöð-
um brotnuðu rúður í húsum, en
meiðsli á fólki urðu hvergi.
— Kr. Kr.
tveir aðkomubátar, Víkingur
frá Bakkafirði og Orri frá Akur
eyri, sem andæfðu á höfninni í
hálfan annan sólarhring, því að
brim var svo mikið, að þeir
gátu hvergi lagzt að bryggju.
Orri fór frá netum sínum við
Langanes, sem hann var nýbyrj-
aður að draga, þegar veðrið skall
á, og hafði fengið tvö tonn af
fiski. Lá hann svo hér, þar til
á annan i páskum, að brimið
lægði svo, að hann gat farið út
aftur að vitja netanna, og dró
hann þá helminginn af þeim og
kom inn sl. nótt með tíu tonn
úr þeim, úr tveimur trossum.
Framhald á bls. 2
rétt gegnt Nesti. Ók sendiferða-
bifreið frá Coca-Cola verksmiðj-
unni aftan á Willys jeppa og
fleygði honum aftan undir vöru-
bílspall, en fylgdi sjálfur fast á
eftir. Má telja það mikla mildi
að þarna skyldi ekki hljótast af
meiðsli eða stórslys.
Klukkan liðlega tólf var hringt
til slökkvistöðvarinhax og til-
kynnt um mikið slys gegnt Nesti
í Fossvogi, og voru sendir á vett-
vang sjúkrabifreið og lögregla.
Áreksturinn hafði gerzt með
þeim hætti að bifreið sem ók suð-
ur Hafnarfjarðarveg beið eftir
faferi til að aka heim að Nesti
og vörubifreið stöðvaði fyrir
aftan hann en siðan Willys-bif-
reið. Kom þá vörubifreið frá
Coca-Cola verksmiðjunni full-
hlaðin, og skipti engum togum að
hún ók aftan á jeppann sem
hentist undir vörubifreiðina.
Willys-bifreiðin hafði ýtzt inn
undir pall vörubifreiðarinnar,
þannig að pallurinn nam við
íramrúðu jeppans, en stuðari
hans við afturhjól vörubifreið-
arinnar, og hafði annað horn hans
brotnað af. Stuðari jeppans er
mjög framarlega sökum þess að
hann er útbúinn með spili, og
má telja víst að það hafi forðað
bifreiðarstjóranum frá meiðslum,
enda hentust bæði jeppinn, sem
enn var hemlað, og vörubifreiðin
meira en bíllengd. Lá homið al
Framhald á bls. 23.
Fé hraktist til bcna í óveðrinu
Eltfii bóndi missti 20 ær
Akurejrri, 17. april.
BÓNDINN á Ytra-HóM í Fnjóska
dal, Karl Jóhannesson varð fyrir
miklum fjárskaða í óveðrinu um
daginn, missti 20 kindur af 87,
sem hann átti. Hann hafði hleypt
fé sínu út á þriðjudagsmorgun,
en er bylurinn skaM á mjög snögg
lega um klukkustund síðar, fór
hann þegar af stað að reyna að
ná því saman. Náðist fátt af fénu
þá, þar sem það hraktist undan
veðri upp um fjöll og á hættu-
lega staði. Sumt hrapaði fyrir
björg, annað króknaði og lamd-
ist til bana. Á annan í páskum
var fyrst sæmilega fært veður
til leitar og brugðu þá sveit-
ungar vel við til aðstoðar. Voru
þá alls 16 menn á skíðum við
leitina. Fundust nokkrar kindur
dauðar og nokkrar aðfram komn
ar. Var margt fé flutt heim þann
dag á sleðum, sem spenntir voru
aftan í ýtur og dráttarvélar.
Nokkrar kindur drápust eftir að
heim var komið og margar eru
veikar enn. Nokkuð af fénu varð
að skilja eftir og grafa í byrgi,
þar sem ókleift var með öllu að
koma því heim yfir torfærur og
ófærð. Hinsvegar fannst féð allt.
Varð að flytja hey til fjárins.
Ekki hefir frétzt af teljandi fjár
sköðum annars staðar hér um
slóðir, nema á Rauðá í Bárðar-
dal mun vanta 5 kindur.
— Sv. P.
Fé ferst í Dölum
Auk þess mikla fjárskaða sem
hér getur að framan er blaðinu
kumiugt um að fjárskaðar urðu
í Laxárdal í Dölum svo og I
Miðdölum.
Á þriðjudagsmorgun f dymbil-
viku var hi'ti 5 stig kl. 10 að
morgni í Búðardal, en kl. 3 síð-
degis var komið 5 stiga frost og
bylur. Þann morgun fóru menn
af stað að smala fé sínu, en uppi
á heiðum skall veðrið á laust
eftir hádegið. Áttu sumir leitar-
manna fullt í fangi með að ná
heim undan veðrinu. Vitað er að
nokkrar kindur hrakti í vatn uppi
á Laxárdalsheiði og fórust þær,
annað fennti. Þá lágu tvær kind-
ur í fönn r Miðdölum og fundust
dýrbitnar svo lóga varð annarri,
Enn hefir ekki verið hægt að
rannsaka að fullu hve tjónið
er mikið, því ekki gaf til leitar
fyrr en fyrst í gær. Óttast er þó
að þama hafi hlotizt verulegt
tjón af veðrinu.