Morgunblaðið - 01.05.1963, Blaðsíða 4
4
MORGUHBL4010
Miðvikudagur 1. maí 1963
Heilbrigð dómgreind
verði róðondi
Landsfundarræða Ingólfs Jónssonar,
landbúnaðarráðherra
GÓÐIR landsfundarmenn, konur
og karlar. Ég vil við þetta tæki-
færi ræða lítillega um nokkur at-
vinnumál. Skal þá fyrst minnzt á
landbúnaðarmálin. Á kjörtímabil-
inu hafa nokkur lög verið sett
landbúnaðinum til hagsbóta. Má
þar nefna lög um breytingu á
framleiðsluráðslögunum, lög um
Stofnlánadeild landbúnaðarins,
lög um lausaskuldir bænda, lög
um hækkun byggingarstyrks til
ibúðarhúsa í sveitum, 1961, lög
um hækkaðan jarðræktarstyrk til
þeirra býla, sem hafa túnstærð
undir 15 ha og hækkun á bygg-
ingarstyrk til íbúðarhúsa í sveit-
um upp í 50 þús. krónur, lög um
bændaskóla. Oft hefur verið rætt
um hina geysilegu þýðingu fyrir
landbúnaðinn að hafa fengið sölu
tryggingu á allri framleiðslunni
með breytingu á framleiðsluráðs-
lögunum í árslok 1959.
Umbætur í
verðlagsmálum.
Skal því ekki farið nánar út
í það að þessu sinni en geta má
þess að bændur fengu aldrei áð-
ur umsamið sex manna nefndar
verð og létu Framsóknarmenn sér
það vel líka meðan þeir voru í
ríkisstjórn. í>að er sannfæring
mín, að bændur hefðu ekki feng-
ið þessa tryggingu, ef Framsókn-
armenn hefðu farið með málíð
áfram. Mætti draga fram mörg
sönnunargögn fyrir því að Fram-
sóknarmönnum datt ekki í hug
að opna ríkiskassann í því skyni
að yfirtaka hallann af útfluttum
landbúnaðarvörum, sem bændur
höfðu sjálfir borið um margra ára
skeið. Á búnaðarþingi 1958 var
mikið rætt um þann halla, sem
bændur bæru af þeim vörum,
sem út væru fluttar, en í stað
þess að minnast á ábyrgð á þess-
um vörum ræddu Framsóknar-
menn mest um það, hvemig
draga mætti úr framleiðslunni.
Það virtist vera eina bjargráðið,
sem Framsóknarmenn sáu land-
búnaðinum til handa á búnaðar-
þingi 1958. Að bændur geta nú
femgið hækkun á afurðaverðinu
ársfjórðungslega, er einnig mikil
lagfæring frá því sem áður var,
þegar ekki var unnt að breyta
verðlaginu nema einu sinni á ári
eða í byrjun verðlagsársins.
Hækkun landbúnaðarvara 1.
imarz s.l. færir bændum 10 millj.
kr. tekjuauka til 1. sept. n. k.
Eins og alþjóð veit, voru bún-
aðarsjóðirnir gjaldþrota, þegar
Framsókn fór frá völdum. Með
yfirfærslugjaldinu 1958 var graf-
ið undan sjóðunum, þar sem þeir
skulduðu hundruð milljóna er-
lendis. Engar ráðstafanir reyndi
Framsókn að gera sjóðunum til
bjargar. Lagt var til í fjárlaga-
frumvarpi, sem Eysteinn lagði
fram haustið 1958, að búnaðar-
sjóðirnir skyldu á árinu 1959 fá
fjórar milljónir króna frá ríkis-
sjóði eins og þeir höfðu fengið
mörg undanfarin ár. Þegar núver-
andi ríkisstjórn var mynduð, var
ákveðið að koma lánasjóðum at-
vinnuveganna á traustan grund-
völl.
Sterk stofnun.
Með lögum um Stofnlánadeild
landbúnaðarins hefur landbúnað-
inum verið tryggð lánastofnun,
eem getur veitt aukin lán til fram
kvæmda í landbúnaðinum. Fram-
sóknarmenn hafa barizt gegn end
urreisn búnaðarsjóðanna vegna
þess að þeir segja að bændum
sé gert að greiða til deildarinnar
1% af búvörum. Á móti því
gjaldi, sem bændur greiða, koma
3.50 kr. gegn hverri einni krónu,
sem bændur leggja fram. Neyt-
endur borga talsvert í þessu skyni
og hafa ekki talið það eftir. Með
því að tryggja stofnlánadeildinni
fasta tekjustofna, verður deildin
sterk stofnun, sem veitir stöðugt
meira fjármagni í landbúnaðinn.
Eftir fá ár hefur deildin af eigin
skoðun. Skipuð var nefnd á s.l.
hausti, til þess að endurskoða
frumvarp, sem milliþinganefnd
búnaðarþings hafði samið. Stjórn-
skipaða nefndin hefur nú um þess
ar mundir lokið störfum og gert
ýmsar breytingar á jarðræktar-
lagafrumvarpinu og sniðið það
við breytta búnaðarhætti. Má
ætla að frumvarp þetta verði að
lögum á næsta þingi, enda brýn
þörf á að ný lög til jarðræbtar
verði sett. Á s.l. ári voru sam-
þykkt lög um lausaskuldir bændá.
Gefin voru út veðdeildarbréf til
20 ára með 7% vöxtum. Bænd-
um var gert mögulegt að breyta
lausaskuldum, sem höfðu safnast
Ingólfur Jónsson.
fé til útlána 100 millj. króna ár-
lega. Eftir 10—12 ár mun deildin
hafa 150 millj. króna árlega til
útlána af eigin fé og eiga í höfuð-
stól um 500 millj. króna. Ef land-
búnaðurinn hefði búið við þessi
lög s.l. 15 ár, væri ekki að ræða
um fjármagnsskort í landbúnað-
inum. í>að er ekki slæmt að fá
skammir fyrir mál eins og þetta,
sem mun í náinni framtíð verða
talið eitt af því bezta, sem fyrir
landbúnaðinn hefur verið gert.
En þannig hefur það löngum ver-
ið, að góðu málin fá ekki sízt and
stöðu í byrjun og hvað Stofnlána-
deild landbúnaðarins snertir, hafa
forystumenn Framsóknar reynt
að gera máiið pólitískt og magna
bændur gegn því, sem ekki hefur
tekizt.
Aukin fyrirgreiðsla.
Á árinu 1961 var styrkur til
íbúðarhúsa í sveitum hækkaður
úr 25 þúsundum í 40 þúsund og
styrkurinn látinn ná til flestra
íbúðarhúsa, sem í sveitum voru
byggð, en áður hafði styrkur að
eins verið veittur til nýbýla. Á
s.l. þingi var styrkurinn hækkað-
ur upp í 50 þús. krónur og ákveð-
ið að aukinn ræktunarstyrkur
skyldi veittur á túnstærð upp að
15 ha, með sama hætti og áður
gilti um 10 ha túnstærð. Er eng-
inn vafi á að þetta ýtir undir rækt
un og mun áður en langt um líð
ur vera talið sjálfsagt að hækka
þetta mark upp í 20—25 ha. Jarð-
ræktarlögin hafa verið í endur
fyrir á undanförnum árum, sér-
staklega á árunurn 1957 og 1958,
í 20 ára lán. Margir bændur not-
færðu sér þennan möguleika og
munu nærri 66 millj. króna hafa
verið veittar með þessum hætti
úr Veðdeild Búnaðarbankans.
Tryggt var að veðdeildarbréfin
yrðu tekin affallalaust, svo telja
má að lánskjörin séu hagstæð
fyrir bændur. Að lausaskuldir
söfnuðust var vitanlega vegna
þess að stofnlánasjóðir landbún-
aðarins höfðu allt of lítið fé til
umráða og gátu ekki lánað nema
brot af kostnaði við framkvæmd-
imar. Eftirleiðis mun þetta
breytast og hefur þegar breytzt
að veruiegu ley ti með því að lán-
in hafa verið hækkuð stórlega og
nú er lánað út á fleira en áður
var, s. s. dráttarvélar.
Framsóknarmenn ræða oft um
afurðamál landibúnaðarins og
hafa talið að landbúnaðurinn
byggi við lakari kjör en sjávar-
útvegurinn. f>ar sem þetta mái
hefur oft verið rætt, er ekki á-
stæða til að gera því skil hér, en
segja má enn, það sem sagt hefur
verið áður, að landbúnaðurinn
fær 55% lánað út á aíurðir í
Seðlabankanum, eins og sjávar-
útvegurinn. Auk þess fær land-
búnaðurinn fyrirframlán út á
dilka, eins og að undanförnu.
Metingur Framsóknar við sjáv-
arútveginn er í samræmi við það
sem þeir tala oft um í sveitum
landsins að sjávarútvegurinn fái
jafnvel meira fjármagn en hann
hefur þörf fyrir.
Lög um bændaskóla voru sam-
þykkt á síðasta þingi Milliþinga-
nefnd samdi frumvarpið og var
það sniðið eftir því sem breyttir
búnaðarhættir krefjast. Verður
sérstaklega lögð áherzla á
kennslu í meðferð véla og annað,
sem bóndinn þarf sérstaklega að
þekkja í sambandi við nútíma bú-
skap. Segja má að búskapur á
nútíma vísu sé orðinn vísinda-
grein og því óhjákvæmilegt að
bændur lesi mikið og kynni sér
þær nýjungar, sem koma til
greina. Mikil framleiðsluaukning
og bústofnsaukning hefur verið í
landbúnaðinum síðustu þrjú árin.
Er það ánægjuleg þróun og horfir
vissulega í rétta átt. Ræktunin
hefur einnig verið mikil eða
nærri fjögur þúsund ha. á ári
Áburðarnotkun fer stöðugt vax-
andi vegna aukinnar ræktunar.
Áburðarverksmið j an
stækkuð.
Áburðarverksmiðjan er allt of
lítil og hafa verið gerðar ráðstaf-
anir til undirbúnings á því að
auka afköst hennar um 50%, þann
ig að hún gæti framleitt árlega
allt að 36 þús. tonm af köfnunar-
efnisáburði. Gert er ráð fyrir að
á þessu ári verði notkun á köfn-
unarefnisáburði 26—2'8 þús. tonn.
I>að eru ekki mörg ár síðan að
notkunin var innan við 20 þús.
tonn. Unnið er stöðugt að aukinni
sandrækt og sandgræðslu. Hefur
á undanfömum árum verið dreift
áburði úr flugvél og gefið góða
raun. Á þessu ári munu væntan-
lega verða notaðar tvær flugvél-
ar til þess að dreifa áburði á
afréttarlönd og auðnir til þess að
flýta fyrir uppgræðslunni. Unnið
er að skógræktarmálum af aukn-
um krafti og hefir samkvæmt
áætlun, sem gerð hefur verið um
skógrækt, verið ákveðið að planta
minnst 1% millj. piantna árlega.
Vonandi verður skógræktin árang
ursrík og til þess að bæta landið
og afkomu þjóðarinnar, þótt síðar
verði. Um kornrækt hefir tals-
veit verið rætt og ritað og oft af
litlum skilningi eða þekkingu.
Ríkisstjórnin hefur gert ráðstaf-
anir til þess að tilraunastarfsem-
in við kornrækt verði aukin, en
það er skilyrði til þess að korn-
rækt verði tekin almennt upp í
landinu, að ræktað verði afbrigði,
sem hentar okkar stutta sumri og
takmarkaða hitastigi.
Það telja sérfræðingar mögu-
legt að gera og því er ástæða til
að ætla að kornræktin verði tek-
in upp sem atvinnugrein, þegar
tímabært þykir. í Gunnarsholti
hefir verið sett á stofn fóður- og
fræræktarstöð, þar sem umfangs-
miklar tilraunir eru um ræktun
á grasfræi, korni og fleiru, sem
að ræktun lýtur. Gert er ráð fyrir
að þar verði komið upp hey-
kögglagerð, eins og er algengt er-
lendis. Er korni blandað saman
við heyið og þjappað í köggla,
þannig að í flutiningi verður fóðr-
ið í þessu formi helmingi fyrir-
ferðarminna en vélbundið hey.
Eru miklar vonir bundnar við
starfsemina í Gunnarsholti og
gæti þar jafnvel orðið fóður-
birgðastöð fyrir land allt. í Gurni
araholti eru á vegum Sandgræðsl-
unnar um 200 holdanaut, auk fjár
bús. Lög um holdanautarækt
voru samþyk'kt á árinu 1962, en
hafa ekki komizt í framkvæmd
vegna andstöðu yfirdýralæknis.
Eru bændur mjög óánægðir með
að úr því hefur ekki orðið enn
sem komið er. í Kollafirði hefur
verið komið upp klakstöð fyrir
lax- og silungseldi. Mun þessi
stöð kosta allt að 16 millj. króna,
þegar hún er fullbúin. Er þess
vænzt, að þar sé merkileg starf-
semi og vísir til þess að ný at-
vinnugrein rísi í landinu og allar
hinar mörgu ár og vötn verði
fyllt með silungi og laxi. Mætti
þá einnig með þessum hætti afla
þjóðinni gjaldeyristekna í ríkum
mæli, því markaður er nógur fyr-
ir lax- og silung og verðið mjög
hátt. Hér hefur verið drepið á
nokkur mál landbúnaðarins, sér-
staklega vegna þess að svartsýn-
ismenn, Framsóknarmennirnir
telja að landbúnaðurinn sé á leið
til auðnar. Þeir sjá ekkert nema
eyðijarðir, hvar sem þeir fara,
þótt eyðijörðum hafi ekki fjölgað
svo teljandi sé síðustu árin. Ný-
býlin, sem árlega eru stofnuð,
vinna upp það sem kann að fara í
eyði af afskekktum jörðum,
þannig að býlafjöldinn breytist
lítið eða ekkert. Það er svo sjálf-
sagt og þjóðfélagsleg nauðsyn, að
efla landbúnaðinn og vinna að
því að hann megi eftirleiðis eins
og ávallt áður, vera máttarstoð
í þjóðfélaginu og einn af aðal at-
vinnuvegum þess Talið er að af-
urðaverðið þyrfti að vera hærra,
en ríkisstjórnin verður ekki sök-
uð, þótt ekki hafi samizt um
hærra verð en raun ber vitni í
sex manna nefnd að imdanförnu.
Framleiðsluráðslögin eru í endur-
skoðun hjá nefnd sem fram-
leiðsluráð hefir skipað. Á s.l. ári
fékkst verulega leiðrétting á verð
laginu. Má því ætla að árið 1963
verði bændum hagstæðara en
næstliðin ár. Bændur njóta þeirr-
ar hækkunar, sem fékkst s.L
haust allt þetta ár. Verði tíðar-
farið ekki lakara en á sl. ári er
augljóst að hagur bænda ætti að
fara batnandi, þar sem rekstrar
vörur landbúnaðarins hafa hækk-
að mun minna en verð afurð-
anna. Fóðurbætir, áburður og
brennsluolíur, sem eru aðalrekstr
arvörurnar, hafa lítið hækkað frá
því sem var á fyrra ári. Vélar og
varahlutir hafa læltkað stórlega
eins og áður hefur verið lýst, með
nýrri tollskrá. Að afkoma bænda
fer nú batnandi á fjórða ári við-
reisnarinnar, er sönnun þess, að
viðreisnin hefur heppnast og rétt
er stefnt. Verði ekki lagður stexnn
í götuna og mögulegt að vinna
áfram á sama hátt, er augljóst að
ekki aðeins landbúnaðurinn, held
ur og einnig aðrir atvinnuvegir
njóta þess að viðreisnin hefir
heppnast.
Rafvæðingin.
Framsóknarmenn hafa ásakaJ
ríkisstjórnina fyrir seinagang í
rafvæðingu landsins. Þetta má þó
furðulegt heita, þar sem vitað er
að staðið er við 10 ára áætlunina.
Á s.l. þremur árum hefir rafmagn
verið lagt til fieiri bæja en áður
og 10 ára áætlunin framkvæmd
með fullum hraða. Á árunum 1960
—’62 var lagt inn á 700 býli raf-
magn og auk þess voru tengd 160
býli eftir s.l. áramót, sem tilheyra
árinu 1962. Rafstrengur var lagð-
ur til Vestmannaeyja á s.l. ári.
Er það mikil hagsbót fyrir Vest-
mannaeyjar. Á þessu óri mun raf
magn verða lagt til 230 býla. Á
næsta ári verður lokið við 10 ára
áætlunina. Kostnaður við 10 ára
áætlunina mun verða allt að 1000
millj. króna, en þá hefir verið
gert myndarlegt átak í rafvæð-
ingu landsins. Þá eru eftir um
8 þús. manns í landinu, sem ekki
hafa fengið varanlegt rafmagn.
Unnið er að framhaldsáætlun í
því skyni að koma rafmagni inn
á hvert heimili í landinu ekki
seinna en á árinu 1970. Fullyrða
má að íslendingar eru með
fremstu þjóðum á þessu sviði
þrátt fyrir fámenni og strjálbýiL
Fer vel á því að svo er. Vitað er
að rafmagn verður ekki leitt um
strjálbýlið, nema að þjóðin standi
öll að því með framlögum úr
sameiginlegum sjóði. Mikið hefur
verið unnið að virkjunarrannsókn
um á undanförnum árum. Á árinu
1961 var varið til rannsókna 15,2
millj. króna, en á árinu 1962 um
25 millj. króna. Áður hefir verið
varið aðeins 4 millj. kr. í þessu
skyni árlega. Ýmsir staðir hafa
verið rannsakaðir, s. s. E>ettifoss,
Búrfell, Hveragerði, gufuvirkjun,
og ýmsir smærri staðir sunnan-
lands, norðan, austan og vestan.
Ekki er enn að fullu fengin nið-
urstaða á því hvað heppilegast er